Alþýðublaðið - 06.04.1965, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 06.04.1965, Blaðsíða 13
Opna frk nýburstaðir þarna um slóðir. — Líkt var á komið fyrir Árna, og tókum við því þann kostinn, að hlaupa með sleðanum, „fótaheit- um” félögum okkar til mikillar ánægju. í einu byrginu höfðu eyjabúar höggvið gat gegnum ísinn, sem var nokkurra metra þykkur. Er vatnið í vökinni yfir- leitt kristalstært, svo, að sjá má langt niður í sjóinn. Eitt sinn er .einn vísindamannanna kraup nið ur við vökina og var að búa eitt- hvert tæki undir að sökkva því niður í hana, heyrði ‘hann skvamp fyrir aftan sig. Hann snéri sér skelkaður við og horfði í augun á bráðfallegum sel. — Mátti vart milli sjá hver var meira undrandi, en selurinn ■stakk sér von bráðar aftur. Þó fannst honum þægilegra að mæta sel en ísbirni eins og Carl ;Johnston, en hann er kokkur eyjarinnar. Carl vaknaði um miðja nótt við að glugginn í herbergi hans var brotinn. Brotnir gluggar eru illa séðir þarna um slóðir, því að fljótt er að kólna í híbýlunum, .ef svo fer. Johnston stökk fram úr, stakk tusku í gatið og hopp- aði upp í aftur. En þegar hann ætlaði að fara að snúa sér upp í horn, tók hann eftr iað ituskan var farin. Bölvandi stökk hann fram úr aftur og tróð stærri tusku í gluggann, en allt fór á sömu leið. Johnston stakk þá hausnum út um gluggann til að athuga hverju þetta sætti, og var heldur illilegur á svip. Lá þá við að hann ræki hausinn upp 1 ginið á heljarmiklu bjarndýrl, sem starði á hann, sizt blíðlegrl augum. Johnston sagði fyrstu viðbrögð sín þau, að hann geyst- ist upp í rúm aftur og dró sæng- ina upp fyrir höfuð. Hann vlssi þó, að þar var skammgóður vermir, en þar sem hann var byssulaus, var hann fremur illa staddur. Björninn hafði fundið kjötlyktina úr eldhúsinu og virt- ist staðráðinn í að fá sér bita. Johnstone byrjaði því að hrópa sem mest hann máttl, og. tók björninn undir það með ömur- legu gauli, .sem varð honum lítt til huggunar. Svo fór þó að lpk- ,um, að menn vöknuðu og galt bangsi frumhlaupsins með lífi SÍnu. Eftir þessa sögu vildum við óðir og uppvægir fara á IQMbarðavÍSgcrðBr opioalladaga (UKA LA1HSARDA6A OO 8UKNUDAGA) FRASX.8T1L22. Cáttmiíviffitissfoíanli/f suthami&.nsmtrfk. bjarndýraveiðar, og þar sem ó- lendandi var í Keflavík, og allar líkur á, að við yrðum að gista, fengum við lánaðan riffil hjá Clarence Nolan, sem stjórnar daglegum rekstri stöðvarinnar. Riffill hans var Remington 30.06, mikið vopn og vígalegt. Skokkuðum við svo þrír saman á veiðar, ég, Jón Birgir, Árni og Jón Hákon. Eftir þvi sem lengra dró frá húsunum fór hugrekki okkar þverrandi, og var það al- mennt samþykkt, ef sæist til bjamdýra, myndum við kasta rifflinum frá okkur og hlaupa. Og síðast var svo komið, að við þorðum varla að skjóta til marks af ótta við að skotin kynnu að draga að sér bjarndýr. Veiði- ferðinni lauk þó þannig, að við gengum hnarreistir til baka. — Engan drápum við bangsann, en það má mikið vera, ef öskuhaug- ar rannsóknarstöðvarinnar verða nokkurn tíma samir. Um nóttina hreiðruðum við um okkur á gólfinu í matsalnum og lengi fram eftir mátti heyra gjamsið í blaðamönnum sem hámuðu í sig nýjar perur, app- elsínur og epli. Daginn eftir var mikið deilt um hver hefði mest hrotið og urðu menn sammála — að einum undan^kildum — að þessi eini hefði látið eins og þokulúðurinn á Queen Mary. — Eigi skal þó konu þessa manns lagt það vopn í hendurnar að birta nafn hans. En deilurnar þögnuðu, og allir voru þögulir, þegar ARLIS II. var að hverfa í sortann. Við höfðum verið í heimsókn á sannkallaðri ævin- týra eyju, og það var ekki laust við að við söknuðum hennar. Við höfðum heldur ekki verið þar í sjö mánuði. ShiPAUTGeRfii RihiSlNS M.s. Skialdbrefö fer austur um land til Bakka- fjarðar á föstudag. Vörumóttaka á miðvikudag t»l Norðfjarðar, Mjóafjarðar, Seyðisfjarðar, Borg arfjarðar, Vopnafjarðar, Bakka- fjarðar og Þórshafnar. Farseðlar seldir á fimmtudag. M.s. Guðmundur góði fer til Rifshafnar, Ólafsvíkur, Grundarfjaröar, Stykkishólms, Hjallanes, Skarðsstöðvar og •Krókrfjarðarness á miðvikudag. Vörumóttaka £ dag. Hannes á horninu Framhald af 2. síðu lokið við Suðurnesjaveg þannig að annað hvort verði hann steyptur eða malbikaður. Annars vekur það athygli í sambandi við þetta mál, iað hvergi sést eins vel spill ing í stjórnmálum okkar og í deil unum um þennan veg. Eigendur skæklana, sem eru þarna niður við sjóinn( risu upp öndverðir og heimtuðu að vegurinn yrði nær þeim en gert hafði verið ráð fyrir Aætlunum var því breytt, þó að ekki væri að öllu leyti farið eftir kröfunum og afleiðingin hefur orðið sút iað enn dýrara hefur reynzt að gera veginn en talið var. Hiann átti að vera beinn, en varð eintómar lykkjur. Aiilt ber að sama brunni. Hannes á horninu. Frá Ferðafé- iagj íslands Ferðafélag íslands heldu kvöld- vöku í Sigtúni fimmtudagmn 8. april. Húsið opnað kl. 20. JFUND AREFNI : 1. Hákon Bjarnason, skógræktar stjóri, talar um Hallormsstað' og nágrenni sem ferðamanna iand, og sýnir litmyndir. 2. Myndagetraun, verðlann veitt. 3. Dans til kl. 24. Aðgöngumiðar seldir í bókaverzl- unum Sigfúsar Eymundssonar og ísafoldar. Verð kr. 50,00. Uppsalabréf Framhald af 7. síðu. frjálsa samkeppni sin á milli og eru margir uggandi um, að bóka menning í landinu muni við það bíða mikinn hnekk. som þessa afstöðu taka, benda á, aS bókaverzlunum muni fækka að mun, birgðir verða fábreyttari og sumar bækur, sem erfitt sé að selja, muni alls ekki komast á markað. Óttast er, að stóru vöru- húsin, sem hafa bolmagn til að undirbjóða, muni sölsa undir sig bókamarkaðinn, og þar verði gróðasjónarmiðið allsráðandi. Nýir rithöfundar muni eiga enn erfiðara um vik en áður að koma bókum sínum á framfæri. Þetta staðfestir forstjóri útgáfu- fyrirtækisins Rabén & Sjögren óbeint, er hann segir, að útgef- endur verði að vera enn varkár- arl en áður við að kynna nýja höfunda. Breytingin kemur þó ef til vill harðast niður á rithöfund- um, sem verða að semja um kjör sín frá grunni. þar sem samning- ar þeirra um höfundarlaun mið- ast að öllu leyti við útsöluverðið. Rithöfundurinn og lögfræðingur- inn Jan Gehlin, nýkjörinn for- maður rithöfundasamtakanna segir: „Samningsgrundvöllur rit- höfunda er nú í algjörri upp- lausn .... málið verður enn flóknara vegna þess, að við er- um aðilar að samnorrænum samningi. Eins og nú standa sak- ir, þurfum við að taka afstöðu til afleiðinganna, sem þessi ákvörð- un hefur i för með sér bæði fyr- ir stéttina og menninguna f í heild”. Ekki eru þó allir jafnsvartsýn- ir á afleiðingar þessarar breyting ar. Sumir benda á, að verð á bókum muni trúlega lækka með þessu fyrirkomulag og því hljóti bækurnar að ná til fleiri en áð- ur. Svo eru aðrir, sem trúa því, að bókmenning í landinu muni standast hverja raun, svo að einn ig hér eru til menn, sem eru bjartsýnir á menninguna, hverju sem fram vindur. En hvað sem öðru .líður, er frjálst verðlag á bókum orðin staðreynd, sem ekki verður breytt og reynslan ein sker úr um afleiðingarnar. Svava Jakobsdóttir. * BILLIN Bent an Icecar 1 8 8 33 ÍR OG ÁRMANN Framhaid af 11. síðu. og höfðu ÍR-ingarnir yfirburði á öllum sviðum. ÍKF sigraði síðasta keppinaut slnn í II. deild, Skalla- grím, eftir nokkuð jafnan le»k með 49 stigum gegn, 37, staðan í hálf- leik var 23:18 fyrir ÍKF. Þar með eru ÍKF menn búnir að tryggja sér sæti það í I. deild, sem annað hvort KFR eða ÍS missa, en úr því verður ekki skorið fyrr en á úrslitakvöldi mótsins þann 22. þ. m. í I. deild sigruðu Ármenningar ÍS með 61 stigi gegn 35 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 20:18 .fyrir Ármann. Trúlofunarhringar Sendum gegn póstkröfu Fljót afgreiðsla Guðm. Þorsteinsson guUsmiður Bankastræti 12.1 Teppahreinsun Fullkomnar vélar. Hrelnsum teppi og húsgögn 1 heimahúsum, fljótt og veL Teppahraðhreinsunin Siml 38072. Vinnuvélar til leigu 1 Leigjym út litlar rafknúnar steypuhærivélar o. m. fL LEIGAN S.F. Sími: 23480. Sigurgeir Sigurjónsson hæstaréttarlogmaður Málflutningsskrifstofa Óðinsgötu 4 - Sími 11043. Eyjóif ur K. Sigurjónsson Ragnar A. Magnússon Flókagötu 65, 1. hæð, siml 1790S Lögglltir endurskoðenður Einangrunargler Framleitt elnungis Úr úrvalsglerl. - 5 ára ábyrgð. Pantið tímanlega. Korkiðjan h.f. Skúlagötu 57 — Sfmi 23200. ALÞÝÐUBLAOIÐ - 6. aprd 1965 |,3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.