Alþýðublaðið - 14.04.1965, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 14.04.1965, Qupperneq 7
T ÚTGEFANDI: SAMBAND UNGRA JAFNAÐARMANNA Loftpressur hamast er próflestur stendur yfir eftir Georg Tryggvason stud. jur. AÐ undanförnu hefur verið all- mikið rætt um hag og hlutskipti stúdenta á opinberum vettvangi, og hefur þá ósjaldan komið fram sú skoðun, er allmikið virðist út- breidd, aS stúdentar búi við marg háttaðar ívilnanir og forréttindi á flestum sviðum. Nú er það hins vegar svo, að flestum þeim stúd- entum, er forréttinda þessara eru aðnjótandi, finnst heldur lítið til þeirra koma, og er það reyndar ekki að ástæðulausu eins og ég mun nú reyna að sýna fram á í þessu greinarkorni. Tveir eru þeir þættir í okkar daglega lífi, er öðrum fremur skipta máli, en það eru fæði og húsaskjól, og hefur aðbúnaður á þessum sviðum ekki aðeins afger- andi áhrif á lestrarfrið og þægindi daglegs lífs, heldur og fjárhags- lega afkomu alla. Að vísu er högum stúdenta afar misjafnlega háttað með tilliti til þessara tveggja framangreindra meginþátta, og er ómögulegt að taka með í stuttri grein öll tilvik, er þar er um að ræða, heldur mun ég reyna að lýsa högum venjulegs utanbæjarstúdents. Um húsnæðismálin er það lielzt wwvmwwwwwwwww Herðum nú áskrifenda- söfnun að Áfanga F Y R I R nokkru siðan voru áskriftaseðlar að ÁFANGA sendir til útfyllingar ýmsum vinum hans og stuðnings- mönnum. Nauðsynlegt er að seðlar þessir verði fylltir út sem fyrst og sendir afgreiðsl- unni sem fyrst. Minnist þess, að því fleiri sem áskrifendur hans eru, því betra og traust- ara tfmarit verður hann. Leggjumst því öll á eitt í áskriftarsöfnu n fyr ir ÁFANGAt MWMWWVWWVWVVVWHWWiV að segja, að auk þess sem stúdent- ar geta að sjálfsögðu leigt her- bergi úti í bæ, þá gefst þeim kost- ur á að búa á stúdentagörðunum svonefndu, og mun greinarhöfund- ur, sem sjálfur býr á öðrum þeirra, þeim er Nýi-Garður nefnist, lýs'a hlunnindum þeim og forréttind- um, er slfkri búsetu eru samfara. Nýi-Garður var reistur fyrir rúmum tveimur áratugum fyrir samskotafé einstaklinga, kaup- staða og smávægilegt framlag rík- issjóðs. Er skemmst frá því að segja, að frágangur á þessari bygg ingu er allur með slíkum endem- um, að þar virðist allt hafa verið til sparað, og verið unnið af fljót- færnislegu handahófi, því auk þess sem byggingin er utan að sjá stíl- laus ferkantaður kassi, þá er öll innrétting dapurlega illa unnin og léleg. Slitnar mottur á brakandi tréstigum, ónýtar vatnslagnir, ein- falt gler í öllum gluggum og ljót ar sprungur um velflesta veggi, svo eitthvað sé nefnt af mörgu. Hinum sjötíu íbúum hússins er úthlutað aðeins einum síma að hringja úr, og er það sjálfsali, en þar kostar hvert símtal tvær krón- ur. Nú og bein afleiðing af léleg- um frágangi allra vatnslaena er sú, að bar bila á víxl böð og snyrt- ingar, svo að þeim verður að loka. Hefur t. d. bað það, er ætlað er íbúum efsta gangs til afnota ekki verið í lagi einn einasta dag í all- an vetur, því hafi þar komið vatns- dropi á gólf, hefur hann umsvifa- laust lekið um ótal sprungur ofan í næstu lierbergi fyrir neðan. Og svipaðar sögur má segja af snyrt- ingu þeirra, er í kjallaranum búa. En hvers vegna er nú þetta látið drasla svona heilu veturna öllum til amsturs og óþæginda? Einhver fróm sála kynni að álíta að það væri gert vegna okkar etúdent- anna. Að yfirvöld Garðanna vildu ekki ti'ufla næði og lestrarfrið stúdent- anna með þeim gauragangi, er slík um viðgerðum verður óhjákvæmi- lega samfara, og því væri slíku ónæði frestað til sumarsins. Og víst er því frestað, en bara ekki til sumarsins, heldur ér beðið með bai-smíðina þar til próflestur hefst. Kjarni málsins er nefniíega sá, að á Görðunum þarf að græða rétt eins og öllu öðru hér á landi, og eru þeir því reknir sém hótel yfir sumarmánuðina. Um það er reynd- ar ekkert illt að segja, og sjálf- sagt að reyna að nota þetta hús- næði allt árið. En sá agnúi er á þesu öllu, að virðulegum hótelgest- um er bara alls ekki bjóðandi upp á, í eina eða tvær nætur, þann að- búnað, sem er stúdentum fullgóð- ur allan veturinn, og því er það, að þegar vora tekur og próf að nálgast, þá hefur eftir ár verið safnað hingað úi'valsliði barsmíða- manna til að flikka upp á húsið, áður en gestirnir koma, og hafa þeir síðan langtímum saman varn- að stúdentum lesturs með höggum og hávaða, og það í miðjum próf- lestri, þegar mest er þörf næðis Framhald á 13. síðu. SKÖMMU eftir miðja síðustu viku lögðu tveir Framsóknar- menn fram tillögu á Alþingi um að stúdentar fengju lán hjá Húsnæðismálastjórn til bygg- ingar hjónagarðs. Tillagan er ágæt, svo langt sem hún nær og fær vonandi nægilegt fylgi til samþykktar. Það er svo ann- að mál, að þótt tillagan sé fram borin af Framsóknarmönnum e hugmyndin ekki þeirra. Þvert á móti var það Sigurður Guð- mundson, formaður Sambands ungra jafnaðarmanna, er varp- aði hugmyndinni fram í þætt- inum ^Málefni dagsins", sem birtist hér á æskulýðssíðu fyrir nokkrum vikum síðan. í þeirri grein varpaði hann einnig fram ýmsum fleiri hugmyndum og tillögum um lausn þess brýna Framsókn gerir málefni SUJ að sínum!!! vandamáls, sem húsnæðismálin eru ýmsu námsfólki nú sem fyrr. Sjálfsagt eiga þær tíllög- ur eftir að koma fram á Alþingi í einni eð annarri mynd, og skyldu menn þá minnast þess, að frá SUJ eru þær upphaflega komnar. Tillagan um lausn á hjóna- garðsmáli stúdenta er ekki fyrstu SUJ-málið sem Fram sóknarmenn koma með á yfir- standandi Alþingi. í haust gerði Þórarinn Þórarinsson að um- talsefni á Alþingi tillögu, er 20. þing SUJ hafði þá nýlega sam- þykkt, þar sem varað var við og mótmælt síauknu valdi em- bættismanna ríkisins á kostnað hinna þjóðkjörnu fulltrúa. Þór- arinn bar lof á SUJ fyrir til- lögu þessa og sýnir það rétt- mæti hennar, að jafnvel liðs- oddi embættismannahers Fram sóknar skuli skilja nauðsyn hennar. Þórarinn reyndist þá maður til að geta þess, að sam- þykktin var frá SUJ komin. Framsóknarþingmenn þeir, er fluttu hjónagarðstillögu SUJ í vikunni, reyndust hins vegar ekki menn til að geta uppruna iennai'. Eru þeir menn að minni fyrir. Fundur Sambandsráðs heppnaðist vel FUNDUR Sambandsráðs ungra jafnaðarmanna var haldinn á Akra nesi helgina 3. og 4. apríl síðast liðinn, og tókst í hvívetna hið bezta, eins og áður hefur verið skýrt frá. Á fundinum flutti for- maður SUJ, Sigux'ður Guðmunds- son, yfirlitsræðu um starfsemi sam bandsins og Örlygur Géirsson, gjaldkeri þess, skýrði reikninga þess. Skipað var í starfshópa, er fjölluðu um hina ýmsu þætti starf- seminnar og skiluðu þeir áliti á sunnudag k-1. 2, er fundur ráðsins hófst að nýju. Ýtarlegar umræður urðu um álit starfshópanna og lauk þeim ekki fyrr en kl. 6 e. h., en þá var fundi slitið. Sambandsfundurinn var ágæt- lega sóttur, vel unninn og fór vel fram. Hann bar gott vitni öflugu starfi ungra jafnaðarmanna um land allt, þrótt þeirra og vilja til áð efla samtökin enn. Fundarstjór- ar þessa ágæta fundar voru þeir Guðmundur Vésteinsson og Gylfi Magnússon. Fundarritarar voru þeir Georg Tryggvason og Karl Steinar Guðnason. HWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWW WWWWWWWtWWWWWWWWVWWWWWMWil1 árshátíð SUJ í kvöld Eins og áður hefur verið tilkynnt fer árshátíð ungra jafnaðarmanna fram að Hótel Borg í kvöld, miðvikudaginn 14. apríl og hefst kl. 8,30 e. h. Kvöldverður verður reiddur fram fyrir þá, er þess óska, áður en árshátíðin hefst. Til árshátíðarinnar er vel vandað að venju og; verða ýmis ftóð skemmtiatriði. Ungir jafnaðarmenn eru hvattir til að sæhja hátíðina vel ogt stundvíslega og taka með sér gesti. tWWWWWWWWWWWWWWW%WWWWWWWVO WWWWWWWWMWWWWMWWWWWWWW»Ól ALÞÝÐUBLAÐIÐ. — • 14. apiíl 1965 7

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.