Alþýðublaðið - 29.04.1965, Qupperneq 1
SllD FINNSTI
MEDALLANDSBUfi
zmsm
45. árg. — Fimmtudagur 29. apríl 1965 — 95. tbl.
Fyrsti knattspymuleikur vorsins fór fram í gærkveldi og kepptu
þá KR og Þróttur og lauk leiknum með sigri hins fyrrnefnda.
Myndin hér að neðan er úr leiknum og er af fyrsta markinu,
sem gert er á þessu vori.Það er markmaður Þróttar sem fleygir
sér eftir boltanum, en varð of seinn í þetta skiptið. Sjá nánar
um leikinn á íbróttasiðunni á blaðsíðu 11. (Mynd: JV).
OKKAR
Vestmannaeyjum, 28. apríl
ES — GO
NOKKRIR bátar hafa nú skipt
yfir af þorskanót og á síld. Mikils
síldarmagns hefur orðið vart í
Meðallandsbug og hefur hún á-
netjast í þorskanót og jafnvel í
net. Halkion er farinn austur, en
Bára frá FáskrúSlsfirffí, Huginn og
ásamt Akurey eru að búa sig af
stað. Þeir á Bárunni reikna meff
að Ianda aflanum fyrir austan, þar
sem erfitt verðnr að koma honum
í vinnslu í Vestmannaeyjum, rneð-
an vertíðin stendur sem hæst.
með 937 tonn, Leo 912, Björg SU
757, Ver 725, Sæbjörg 685, Lundi
675 og ísleifur III á að vera meðal
sex efstu en ekki er vitað um afla
magn hans.
Hæsti nótabáturinn er hins veg-
ar með um 500 tonn, en það er
Gjafar VE.
VIÐSKIP
Undanfarið hefur verið sæmi-
legur afli hjó netabátum, en léleg-
ur hjá nótabátunum. Hæstu neta-
bátarnir eru nú þessir: Stígandi
Flugvél féll
ofan á mann
Tuttugu ára gamall Bandaríkja-
maður beið bana af slysförum á
Keflavíknrflugveúi I gær. Slysiff
vildi tS' kl. 15-25^ með þeim hætti
að flugvél féll ofan á manninn
með fyrrgreindum Efleifiing'um.
Flutningaflugvél var ný lent á
vellinum og var ma'ðurinn að
setca klosSa vfff hjól hennar, þar
sem hún stóff á veSlinnm, þegar
hjól lugvélarinnar hrotnaði og féll
hún ofan á manninn.
FTA - LÖNDIN VAXAN
Reykjavík, 28. apríl EG
Á SÍÐASTLIÐNU ári fóru 42,7% útflutn-
ings okkar til aðildarríkja Fríverzlunarbanda
lags Evrópu, EFTA. Ilafa viðskipti okkar við
þessi lönd fariff mjög vaxandi nokkur undan
farin ár, þrátt fyrir þá staffreynd, aff tollmúr-
ar EFTA valda okkur örffugleikum. Ef samstarf
EFTA ríkjanna fer vaxandi t.d. á sviði landbún
affar- og sjávarafurða, verffa hagsmunir okkar
íslendinga enn brýnni, og sjálfsagt er og eðli
legt fyrir okkur að fylgjast vel með allri fram
vindu mála. Á þessa leið mælti dr. Gylfi Þ.
Gíslason viðskiptamálaráðherra er Alþýðublað
ið ræddi við hann í gær.
Viðskiptamálaráðherra tjáði Al-
þýðublaðinu, að rikisstjórnin hefði
enga ákvörðun tekið um að leita
eftlr aðild að EFTA, hins vegar
væri að sjálfsögðu stöðugt fylgzt
með þróun viðskiptamáía í heim-
inum, og þá sérstaklega að því er
snerti helztu viðskiptalönd okkar.
— Meðan horfur voru á því, að
Efnahagsbandalagið og Fríversiun-
arbandalagið sameinuðust á einn
eða annan hátt og Vestur Evrópa
yrði þannig ein viðskiptaheild,
var það að sjálfsögðu athugað al-
veg sérstaklega með hverjum
hætti íslendingar gætu helzt
tryggt viðskiptahagsmuni sína í
þessu sambandi. En þegar það mál
komst af dagskrá við það, að de
Gaulle hafnaði aðild Breta að EBE,
hætti málið að hafa þá þýðingu
fyrir fsland, sem það hafði áður
haft.
Það sem fyrst og fremst hefur
mælt gegn aðild okkar íslendinga
að EFTA, er að stofnskrá þess tek-
ur fyrst og fremst til viðskipta
með iðnaðarvörur, en ekki við-
skipta með sjávarafurðir og land-
búnaðarvörur. Það hefur því ekki
Hafísinn skapar ný við-
horf við síldarleitina
Beykjavík 28- apríl GO.
Vegna fréttarinnar frá Vest-
jnannaeyjum um síldina í Með
allandsbug áttum við stutt við
tal við Jakob Jakobsson fiski
fræðing:
— Áttuð þið von á göngu
þarna Jakob?
—Vitað er að öðru hvoru
hefur verið þarna talsvert af
síld á þessum árstíma. Við höf
um haft af henni sPurnir núna
í nokkur ór og jafnvel því að
hún hafi hrygnt alla leið aust
ur við Hrollaugseyjar^ en.
vegna ónógs skipakosts hef-
ur ekki orðið af frekari rann
sóknum þar eystra- Enda hafa
leitarskipin verið bundin hér
við SV-land á þeim árstíma.
Nú hefur hinsvegar aðeins ver
ið um lítilsháttar síld að ræða
á Hraunsvíkinni, þar sem Akra
nesbótar hafa verið að fá 2-
400 tunnur að undanförnu.
Sýnishorna af þessari síld
er beðið með eftirvæntingu
og þá verður hægt að skera úr
Frh. á 4. síðu.
verið líklegt, að við gætum sam-
ið um bætt viðskiptaskilyrði fyrir
sjávarafurðir okkar í skiptum fyr-
ir þær tollalækkanir á iðnaðarvör-
Framhald á 4. síðu.
Norræn handrita
stofnun í Khöfn?
Kaupmannahöfn 28. apríl NTB-RB
SKÝRT VAR FRÁ því í dag aff
íhaldsflokkurinn rnuni leggja fyr-
ir þingið frumvarp þesg efnis að
stofnuff verði samnorræn stofnun
til að rannsaka þau „norrænu“
handrit sem geymd eru í Kaup-
mannahöfn.
Eftir tvær vikur verSTur væ4t .
anlega tekið fyrir í danska þing
inu frumvarp ríkiss'jórnarmnar
um að afhenda íslendingum mlk
inn hluta handritanna í Árnasafnl
og nokkur þeirra handrita sem
geymd eru í Konungsbókhlöffu.
USA og USSR
semja um vernd
WASHINGTON, 28 apríl (NTB-
Reuter). — Bandaríkin og Sovét
ríkin hafa náff samkomulagi um.
samvinnu um vernd fiskistofnsins
á Norðvestur-Atlantshafi, aff sögn
bandaríska utanríkisráðuneytislns.