Alþýðublaðið - 29.04.1965, Síða 8

Alþýðublaðið - 29.04.1965, Síða 8
I i i I i t j i I í Halldórssyni, Einar Jónsson skipstjóri á Karlsefninu, Einar Sigurðsson útgerðarmaður og frystihúsaeigandi m. m., kallað- ur hinn ríki, Eggert Þorbjarn- arson framkvæmdastjóri Borg- areyjar hf. Einar Thoroddsen hafnsögumaður og fyrrv. skip- stjóri, ambassador Sovétríkj- anna, Nikolai K. Tupitsyn, A. P- Grachev verzlunarfulltrúi sendi- ráðsins, hr. Nedorezov aðstoðar- maður hans, Lomakin blaðafull- trúi og fleiri bæði sendiráðs- menn og ísenzkir. Af þessari upptalningu mætti vera ljóst, að hér stendur eitt- hvað til, enda er það svo. Nú eygja framámen'n í islenzkum fisk iðnaði þess kost í fyrsta skipti, að fara á veiðar með togara „sem tekur trollið inn að aftan” og sjá hvernig slíkur togari vinn- ur. Z. Angaretis er 3170 tonna skip, sem hefur aðstöðu til að fullvinna allan aflann um borð. Fiskurinn er hraðfrystur í blokkir, úrgangur fer í fiskimjöl, lifrin er brædd í lýsi og hægt er að sjóða niður. Laust eftir klukkan 10 er allt tilbúið til brottferðar. Gestirnir koma sér fyrir á ýmsum stöðum í skipinu. Sumir eru á stjórn- palli, aðrir uppi á brúarþaki, gömlu mennirnir sitja í borðsal áhafnarinnar og spila bridge, aðrir ráfa um brúarvængí og ganga. Við stefnum venjulega siglingaleið út sundin. Við Eng- ey fer hafnsögumaðurinn frá borði-og við baujuna er stefnan tekin út flóann á Garðskaga og menn halda áfram að spóka sig á þiljum uppi og þeir af áhöfn- inni, sem eru á vakt taka til að gera trollið klárt til köstunar. Gömlu mennirnir halda áfram að spila. Þeir eru búnir að sigla þessa leið svo oft, að ekk- ert er eftir handa þeim að sjá rómantíkin hefur rokið út í veð- TEXTI OG MYNDIR: GRÉTAR OÐDSSON ur og vind fyrir mörgum árum, þegar þeir stímuðu á miðin, vansvefna, þreyttir og tærðir af iangvarandi þrældómi, en þeir eru spenntir að sjá þessa marg- umtöluðu veiðitækni af eigin raun. Hádegið nálgast og Garðskagi. Gestirnir eru leiddir að mat- borði í borðsal yfirmanna. Vegna fjöldans verður að ráð- ast að matnum í tvennu lagi. Meðan fyrri hópurinn borðar, er síðari hópurinn í góðu yfir læti í einkaíbúð skipstjóra Áður en sezt er að borðinu kallar ara Nafn mannsins lengst til vinstri vitum við ekki, en næstur honum stendur Júrí Verkhoturof skipstjóri á Z. Angrarertis, þá Einar Jóhsson á Karlsefni og Pétur Þorbjörnsson á Pétri Halldórssyni. Aflinn tæmdur úr pokanum. Trolliff rennur aftur af skipinu. Laugardagurinn var bjartur og blár, napurt kul að norðan, en samt var þetta fyrsti sólskins dagur sumarsins. Esjan var hálf grámygluleg þennan morgun, snjóug ofan í miðjar hlíðar með þokuhjúp á kollinum. Alhvíta Skarðsheiði bar í kuldablátt norðurloftið, en Akrafjall átti hlýjan svip og mjúkar línur, þar sem það hreykir sér yfir Skipa- skaga og þorpið, sem eins og kúrír ofan í sjóinn frá Reykja- vík !að sjá. i Di-áttarbáturinn Magni hnubb ar ( síðuna á stóru grámáluðu skiþjj, sem liggur utan á Brúar- fossl við Ægisgarð. Þetta skip er lneð hvíta yfirbyggingu og rauðan borða á reykháfnum. Á borðanum er hamar og sigð í gulum lit. Torkennilegir stafir eru letraðir á kinnung þess, en á svörtu skilti yfir brúarvængn- um stendur: Z. Angaretis. Á aft- urþilfari má sjá ýmsar tilfær- ingar til togveiða og skuturinn er rofinn, en skáhöll renna ligg- ur af þilfari í sjó niður. Við stöndum á framþiljum og horfum á tvo stráka róla sér glæfralega við kinnunginn á Brúarfossi. Þeir eru að mála stefnið með rúllum á löngu skafti. Klukkan er rúmlega hálf tíu og ýmsir þekktir íaenn fara að tínast um borð. Þeir koma yfir Brúarfoss, fikra sig varlega yfir landganginn, sem lagður hefur verið milli skipanna, en Magni hefur það hlutverk að halda þeim að. Þarna er Ingi- mar Einarsson framkvæmdastjóri FÍB, Jón Sigurðsson, forseti Sjómannasambandsins, Kristján Jóhannesson starfsmaður SR, Hafsteinn Bergþórsson fyrrum forstjóri BÚR og gamall togara- skipstjóri, Kolbeinn Sigurðsson, fyrrv. skipstjóri, Vilhjálmur Árnason fyrrv. skipstjóri, Bjarni Ingimarsson flaggkapteinn Tryggva Ófeigssonar, Pétur Þor- björnsson skipstjóri á bv. Pétri 8 29. apríl 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.