Alþýðublaðið - 29.04.1965, Page 10

Alþýðublaðið - 29.04.1965, Page 10
Borlómur Framh. af 5. síSu éstseSu til umkvörtunar, en þetta fólk kvartar sjaldan. Laun ellihrumra og öryrkja eru blátt áfram hlægileg, (eða réttara sagt grátleg). Þau eru í dag kr. 2075 á mánuði- Það ætti að vera iág- markskrafan að öryrkja og elli laun verði minnst, % af gildandi dagkaupi á hverjum tíma. Meðlög með óskilgetnum böm um eru alltof lág. Barnsfeðumir ættu að vera skyldaðir til að bera uppeldiskostnað barna sinna að minnsta kosti að hálfu leiti. Ógiftar mæður eiga oft í miklum efnahagsörðugleikum en bamsfeðurnir oft efnaðir borgarar. Flestir þeir sem eru komnir á ellilaunaaldur, hafa verið spar Samir menn, og margir lagt ein jiverja upphæð í sparisjóð, til þess 'að hafa eitthvað til öryggis þegar starfsorku þrýtur. Það Br ekki hægt að segja, að þeir ráðist á garðinn þar sem hann ;er hæstur, það er varla hægt að ætlast til að sparifjáre'gendur isjái bönkunum fyrir veltufé, ef vextir verða ennþá lækkaðir. Það.væri verðugt rannsóknar efni fyrir sálfræðinga, hvernig heiiir stjórnmálaflokkar geta um hverfst í ágirnd og valdagræðgi að þeir sjá ekki það sem hvert einasta fermingarbarn skilur. Ef vextir lækka, þá minnkar láns fé. Ef þeir hækka, þá eykst það. Sparifjáreigendur eru ekki gkyldir til að leggja fé sitt í bankana. og ég efast ekki um það að lánsfé stórminnkar -ef vextir lækka, án þess að spari féð verði ’rferðtryggt- Það er ábyggilega mál að linni féflett ingu af þeim sem ennþá kunna þá dist að spa-ra, og af þeim sem minnstar tekjur hafa. Það fé sem lagt var í banka fyrir 15-20 ámm síðan, hefur rýrnað að verðmæti um ca. 95%. Þó geta ýmsir flokkar og stór framámenn þjóðarinnar, klifað á því í blöðum sínum ár eftir ár, að lækka vextina m.ö.o. að taka sem mest af þeim sem minnst hafa, til þess að þeir sjálfir, sem mestar tekjur hafa pg bezta aðstöðu, geti keypt fínni og dýrari bíla byggt stærri jlúxushús, setið dýrari veizlur bg farið fleiri skemmtiferðir til þnnarra landa. Margt fleira mætti nefna. Þegar kauphækk þna er krafizt, þá er alltaf talað Úm að bæta hag hinna „lægst taunuðu". En þegar búið er að jiemja t d. um 10% kauphækk tin Þá er útkoman þannig. Þeir jsem hafa 20.000. kr. í laun á mán fá"2000 kr hækkun. Þeir sem pafa 2000 kr. á mánuði, (öryrkja og ellilaun) fá 200 kr. hækkun ^Lmánuði. Fagurt réttlæti það! v TWargt fleira mætti um þetta fegja , en ég læt þetta nægja áðsinni. Öryrki SERVÍETTU- PRENTUN SÍMI 32-101. Verkstjórastarf Njarðvíkurhreppi Staða verksstjóra hjá Njarðvíkurhreppi er laus til um- sóknar. Upplýsingar veittar, ef óskað er í skrifstofu hreppsins Þórustíg 3, Ytri-Njarðvík, sími: 1202 eða hjá sveitarstj. sírni: 1473. Umsóknir tun starfið sendist sveitarstjóra fyrir 10. maí 1965. SVEITARSTJÓRINN NJARÐVÍKURHREPPI. Jón Ásgeirsson. riRi vantar böm eða fullorðið fólk til að bera blaðið til kaupenda í þessum hverfum: Laufásveg Bergþórugötu Tjarnargötu Bogahlíð Laugaveg Miðbæ I Langagerði Sólheimum Afgreiðsla Alþýðublaðsíns Sími 14 900. Auglýsingasíminn er 14906 * BILLINN Rent an Iceear sími 1 8 8 3 3 % eftir 11 ár Framhald af 5. síðu inn og gefast upp í baráttunni fyrir tilveru sinni og hætta að vinna. — í slíkum tilfellum hefi ég skrifað Borgaryfirvöldunum og Ríkisskattanefnd, og farið fram á lempilega borgunarskil- mála skuldanna, og stúndum fulla eftirgjöf þeirra, þegar sú nauðsyn hefur borið til. Þessum beiðnum mínum hefur alltaf ver ið mætt með mestu vinsemd, og hefur piltunum orðið það til mik ils hagræðis. Eg hefi fylgzt með lífi pilt- 10 29. apríl 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ /n ■ y. .0' - 0', ... anna og athöfnum þeirra, enda hafa þeir flestir komið til við- tals á skrifstofu minni í hverj- um mánuði, nema þeir hafi ver- ið í vinnu utanbæjar, en þá hefi ég vitað um hvar þeir voru stadd ir og hvenær þeir væru væntan legir heim til borgarinnar. Það er athyglisverð staðreynd, að þeir fáu piltar, sem aftur hafa orðið sekir, hafa flestir fallið í afbrotin skömmu eftir að þeir voru úrskurðaðir undir eftirllt- ið, en þetta staðfestir það, að þeim er hættast fyrstu mánuð- ina, og þá þurfa þeir mesta um- hyggju. — Hættan er eflaust minni þegar frá liður og pilt- arnir finna meira öryggi hjá sér gegn freistingunum, og tel ég að þar komi til greina áhrif langra og vinsamlegra samtala, sem ég á við þá oft tvisvar í mánuði, fyrstu mánuðina, sem þeir eru undir eftirliti. Margir piltanna hafa látið orð falla að því, að þeim hafi verið mikil uppörvun og stoð í því, að hafa getað snúið sér til eftir litsmannsins og sótt til hans ráð og styrk þegar örðugleikarnir hafa steðjað að þeim, því að all flestir þessara pilta eiga fáa að- standendur og eru háðir erfið- um heimilisástæðum. Það er vissa, að ákærufrest- urinn hefur þegar, eftir fárra ára reynslu, orðið mörgum ungl- ingum mikilvægt atriði í iífinu. Hið háa Alþingi hefur veitt sömu upphæð og undanfarin ár til starfseminnar, þ. e. 60 þús. kr., sem ber að þakka, og þá hef- ur Dómsmálaráðuneytið veitt mér sérstaka fyrirgreiðslu á all- an hátt, eins og undanfarin ár, sem einnig ber að þakka. Á þessum fyrstu 16 starfsár- um Fangahjálparinnar, 1949 til 1965, hefur hún haft afskipti af málum 1207 manna og afgreitt 3643 mál. En á árinu 1964 voru afgreiðsl urnar 753 og málin 417. Reykjavík, 1. jan. 1965. KASTLJÓS Framhald af síffu 7. en því nafni kallar hann hið ný- tízkulega Bretland, sem hann hyggst byggja upp. Þótt Wilson njóti meiri vin- sælda en flokkurinn, hefur Verkamannaflokkurinn ekki tap að fylgi síðan í októberkosning- unum. Samkvæmt Gaullupkönn- unum nýtur flokkurinn meira fylgis nú, og að áfallinu í Leyton undanskildu, þá er Gordon Wal- ker utanríkisráðherra beið ósig- ur, hefur frammistaða flokksins verið viðunandi í aukakosning- um. Að því er Verkamannaflokk- inn snertir setur Wilson sér það takmark, að gera hann að sósíal- demókratiskum flokki að skandi naviskri' fyrirmynd, þjóðar- flokki á breiðum grundvelli, sem laus sé við of sterk tengsl við einhverja ákveðna stétt þjóðfé- lagsins. Það er trú Wilsons, að slíkur flokkur geti tryggt alþýðustjórn í Bretlandi úm mörg ókomin ár. Bengt Calmeyer. Samtök sveitar- íélaga í Reykja- neskjördæmi AÐALFUNDUR Samtaka sveit arfélaga í Reykjanesumdæmi var haldinn 13. þ m. í þinghús- inu á Garðaholti í Garðahreppi Formaður samtakannaf Hjálm ar Ólafsson bæjarstjóri i Kópa vogi setti fundinn, bauð fulltrúa velkomna og flutti skýrslu stjórn arinnar. Samtökin vanu stofin uð í nóvember á síðastiiðnu ári og eiga öll sveitarfélög í umdæm inu, '15 talsins aðild að þeim. Ríkisskattstjóri Sigurbjörn Þorbjörn .son flutti erindi á fund inum um tekjustofna sveitar- félaga, en auk hans voru gestir fundarins Ævar ísberg, skatt- stjóri Reykjanesumdæmis og Unnar Stefánsson fulltrúi hjá Sambandi íslenzkra sveitarfél aga- Eftirtaldar tillögur voru ein róma samþykktar á fundinum: 1. ) Fulltrúafundur Samtaka tsveit arfélaga í Reykjanesumdæmi haldinn 13. rnarz 1965 telur brýna nauðsyn á, að þjónusta skattstofunnar í umdæminu verði stórum bætt og ítrekar tilmæli stjórnar samtakanna til fjár- málaráðherra um að hrinda í framkvæmd þeim tillögum, sem skattstjóri umdæmisins hefur gert til úrbóta. 2. ) Fulltrúafundur Samtaka sveitarfélaga í Reykjanesum- dæmi haldinn 13. marz 1965 fél ur stjórninni að kanna hjá sveit arstjórum og starfsmannafélög- um stærri sveitarfélaganna í um dæminu, hvort heppilegt sé að‘ setja á fót sameiginlega nefnd sem fjallar um kaup og kjör starfsmanna þeirra í samvinnu við stjórn Sambands fsl. sveit- arfélaga. 3. ) Fulltrúofundur Samtaka sveitarfélasa í Reykianesum- dæmi haldinn 13. marz 1965 fagn ar því samstarfi. sem hafið er milli nokkurra ‘■veit’rfélaga í umdæminu um lagningu olíu- malar og leseur áherzlu á áfram haldandi :«amstarf sem flestra sveitarfé'ag!>nna um varanlega gatnagerð- Stjórn samtakanna var endur kjörin, en hana skipa: Hjálmar Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, formaður, Ólafur G. Einarsson, sveitarstjórl í Garðá- hreppi, gjalcPkerL Þórir SæJ mundsson, sveitarstjóri í Miðnes hreppi, ritari. Varastjórn skiDa bessir menn. Sveinn Jón-son, bæjarstjóri í Keflavík, Hafsteinn Baldvins son, bæjarstjóri í Hafnarfirði, Matthías Sveinsson, sveitarstjóri Mosfellshrepps. Endurskoðendur: Jón Ásgeirsson,: sveitarstjóri í Njarðvíkurhreppi, Jón Guð mundsson, oddviti í Mosfells hveppi. Varamenn: Eyþór Stefán'-son, odviti Bessa staðahrepps, Sígurgeir Sigurðs son, sveitarstjóri Seltjarnarnes j hrepps.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.