Alþýðublaðið - 29.04.1965, Qupperneq 14
HL HAIMIIMGJU IMFÐ DAGIININ
Það getur oft vcrið erfitt
að gera greinarmun á hrein
um sannleika og hvítri lýgi. .
1. maí
kaffi
ALÞÝÐUFLOKKSKONUR
gangast fyrir veizlukaffi 1. maí
næstk. síðd. í Iðnó. Undanfarin
ár hefur þessi góða kafíisala í
Iðnó á hátíðisdegi vinnandi fólks,
verið ákaflega vinsæl, og sannar
lega gert sitt til að auka liátíðar
skap á þessum merka degi, enda
liafa veitingar verið rausnarlegar,
hlaðin borð af rjómatertum,
smurðu brauði, pönnukökum og
fleiru góðgæti. Fögnum s'gri Al-
þýðuflokksins í verkalýðsmálun-
um! Hittumst í Iðnó 1. maí!
24. apríl voru gefin saman í hjóna
band af séra Garðari Svavarssyni
í Laugarneskirkju, ungfrú Edda
Agnarsdóttir og Benony Einarsson
Álftamýri 36.
(Studio Guðmundar Garða
stræti.)
Sjötug er í dag Ragnhildur Guð
mundsdóttir Sólvangi Vestmanna
eyjum, húsfreyja Einars Sigur-
finnssonar.
22- apríl voru gefin saman í hjóna
I band í Langholtskirkju af séra
Árelíusi Nielssyni ungfrú Bryndís
Helga Sigurðardóttir og Jónas-
Jónasson, Efstasundi 94.
(Studio Guðmundar Garða
stræti.)
Kaffisaía . Kristniboðsfélags
kvenna í Reykjavík( verður eins
og undanfarin ár 1- maí í Kristni
boðshúsinu Betanía Laufásvegi 13
og hefst kO.. 3 e.h.
Góðir Reykvíkingar drekkið
miðdegiskaffið hjá okkur- Allur
ágóði rennur til Kristniboðsins í
Kongó.
Fimmtudagur 29. apríl
- 7.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 Á frívaktinni:
Dóra Ingvadóttir sér um sjómannaþáttinn.
15.00 Miðdegisútvarp: Fréttir — Tilkynningar —
íslenzk lög og klassisk tónlist.
16.30 Síðdegisútvarp: Veðurfregnir — Létt músik.
17.00 Fréttir.
18.20 Þingfréttir — Tónleikar.
18.50 Tilkynningar.
19.20 Veðurfregnir.
19.30 Fréttir.
20.00 Daglegt mál.
Óskar Halldórsson cand. mag. talar.
20.05 Með ungu fólki.
Troels Bendtsen og Andrés Indriðason sjá um
þáttinn.
•21.05 Sinfóníuhljómsveit íslands leikur í útvarpssal.
Stjórnandi: Páll Pampichler Pálsson.
a. „Pomp and Circumstances", mars op. 39
éftir Edvard Elgar.
b. Konsert fyrir fimm blásturshljóðfæri og
hljómsveit eftir Vittorio Rieti. Þórarinn
Ólafsson leikur á flautu, Josef Zvachta á
óbó, Gunnar Egilson á klarinettu, Hans
Þátturinn Með ungu fólki nýtur mikilia
vinsælda. Hann er í kvöld, strax að loknum
lestri frétta og þættinum Daglegt mál. Um
sjónarmenn þáttarins eru nú Troels Bendt
sen og Andrés Indriðason.
Ploder á fagott og Herbert Hriberschek á
horn.
c. Sinfónía í d-moll eftir Josef Haydn.
21.45 Nokkur kvæði og vísur.
Andrés Björnsson les úr nýrri Ijóðabók séra
Sigurðar Norlands.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.25 Jaltaráðstefnan og skipting heimsins.
Ólafur Egilsson lögfræðingur les úr bók eftir
Arthur Conte (12).
22.30 Kvöld í Reykjavík.
Ólafur Stephensen flytur djassþátt.
23.00 Á hvítum reitum og svörtum.
Guðmundur Arnlaugsson flytur skákþátt.
23.35 Dagskrárlok.
Stemning.
Af hljóðlátri stemningu húmsins
ég heillast sí og æ.
Þá lít ég á næturlífið
og labba niður í bæ.
Ráðvilltur rónaskarinn
röltir um götur og torg,
en íslenzkur aðall veltur
út af Hótel-Borg.
Kankvís.
Knattspyrna
Frh. af 11. síðu.
leitt meiri tilþrif. Fyrri hálfleik-
urinn var allur mun betur leik-
inn og fjörugri en sá síðari. Enda
þá sýnilega farið að ganga á „elds-
neytisforða" leikmanna.
Síðari hálfleiknum lauk með
sínu markinu hjá hvorum, og
komu bæði á síðustu fímm mín-
útum leiksins. Guðm. Haraldsson
útherji skoraði fyrir KR, en Hauk
ur miðherji fyrir Þrótt. Bæði
mörkin voru vel gerð, einkum var
þó skot Hauks fallegt og næsta ó-
verjandi.
Völlurinn var laus og þungur.
í heild má segja að framganga
leikmanna spái vel fyrir gengi
knattspyrnunnar í sumar.
Einar Kjartansson dæmdi og
fórst það um margt karlmannlega.
EB
Fatasýning
Framhald af síðu 16.
Hann kvað samkeppnina vel-
komna, íslenzkir fataframleiðend-
ur treystu sér vel til að sýna al-
menningi að framleiðsla þeirra sé
fyllilega samkeppnisfær á þessu
sviði, bæði miðað við gæði og verð
lag. Kaupstefnan verður bæði
kynningar og sölusýning og má
segja að þar verði flestar tegund
ir fatnaðar sem framleiddar eru á
íslandi. Sem lítið dæmi má nefna:
prjónafatnaður, barnafatnaður,
lífstykkjavörur, skyrtur, kvenfatn-
aður, karlmannafatnaður, sport-
fatnaður, sjóklæði, úlpur, viðlegu
útbúnaður, vettlingar. hálsbindi,
nærfatnaður, sokkar o. fl. Fjöl-
breytt úrval verður og í hverjum
vöruflokki þannig að sérstaklega
hagkvæmt verður fyrir innkaupa-
stjóra verzlunarfyrirtækja að eiga
þess kost að gera innkaup þar sem
á einum stað verður á boðstólum
mikið úrvaL
Lido verður opnað almenningi
kl. 7 á föstudag og er aðgangur
ókeypis. Kaupstefnan stendur til
9 maí og verður opið eingöngu
fyrir kaupendur frá 10 f. h. til 3,
en síðan verður opið fyrir almenn-
ing til 10 á kvöldin. Ef þessi fyrsta
kaupstefna gefur góða raun, verð-
ur reynt að gera hana að árlegum
viðburði. Kjartan Guðjónsson aug
lýsingateiknari sá um skipulag og
uppsetningu sýningarinnar.
Hlaup
Framhald af 11. siðu.
í þriðja sæti var Dýri Guðmunds
son. Aðeins einn keppandi var
skráður í elzta aldursflokknn
Trausti Sveinbjörnsson og hljóp
hann því með 14—16 ára, en
hann sigraði í fyrra og var að
jálfsögðu öruggur um sigur að
þessu sinni. Keppendur 14—16
ára voru fjórir og sigurvegari
varð, Kristinn H. Benediktsson
þriðja árið í röð. í öðru sæti var
Hafsteinn Aðalsteinsson og Ólaf
ur Valgeirs on þriðji. Viðavangs
hlaupið tókst mjög vel þrátt fyrir
óhagstætt veður, en skemmti-
legra væri ef þátttaka gæti verið
meiri í eldvi flokkunum.
VERKAMENN.
Vantar verkamenn í bygging
arvinnu, handlaug fyrir tré
smiði og fleira. Upplýsingar
í síma 34102.
Augl. í Mogga-
Hægviðri léttskýjað, hiti um 8—12 stig. í gær
var austan gola á Austfjörðum, en hægviðri um
vestanvert landið. í Reykjavik voru vestsuðvestan
2 vindstig, sjö stiga hiti og móða.
Kerlingin er mín hægri
hönd, segir kallinn- Hann
er nefnilega örvhentur.
14 29. apríl 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ