Alþýðublaðið - 30.06.1965, Síða 10
Veiðimenn
Framhald úr opnu.
aS skriðdrekum. Hurricane vélarn
ar voru búnar tólf 0,303 caliber
vélbyisum. Flugvélin hér á mynd
inni hefur einkennisstafina DT—A
S>að er gert til heiðurs einum
mesta flugkappa Breta, Robert
Stanford Tuck, en hann flaug
Hurricane með þessum einkennis
stöfum. Hann hafði skotið niður
29 óvinavélar, 1942, þegar hann
hann var sjálfur skotinn niður og
handtekinn-
fj CURTIS P-40B, WARHAWK
** (t.v.) og hin japanska ZERO-
Curtiss vélarnar eru m.a- frægar
fyrir að Tígrisflugsveitin notaði
þær. Tígrisflugsveitin var byggð
upp af bandarískum flugmönnum
er fengu „leyfi“ úr herþjónustu
heima fyrir til að berjast við Jap
ani í Kína; sem sjálfboðaliðar.
Flugvélarnar voru búnar fjórum
303 caliber vélbyssum og tveimur
50 oaliber.
Zero vélarnar voru fyrst notað
ar í Kína, og svo út stríðið, m.
ál vi ðárásina á Pearl Harbor.
Þáer enduðu svo sem farkostir
fyrir sjálfsmorðsflugmenn í lok
SÍriðsins.
Zero vélarnar voru búnar tveim
ur 20 mm- fallbyssum og tveimur
7,7 caliber vélbyssum. Þær voru
snöggar og gátu klifrað vel, en
hinsvegar ekki sterkbyggðar.
£ SPITFIRE MK. 9, og AVRO
® LANCASTER. Spitfire var not
uð allt frá 1942 til stríðslokarMK
9 var mest framleidda tegundin af
Spitfire og af mörgum flugmönn
um talin sú bezta- Hún var búip
fjórum 50 caliber vélbyssum og
tveimur 20 mm. fallbyssum- Avro
Lancaster var vafalítið bezta
sprengjuflugvét Breta. Hún var
einkum notuð til næturárása á
Þýzkaland og fór margar frægðar
ferðir. Ein frægasta flugsveit
Breta ,,The Dam Busters“ notaði
Lancaster vélarnar til að flytja
Tallboy og Grand Slam sprengj
urnar en sú fyrrnefnda vó 17000
pund og sú síðarnefnda 22000.
Grand Slam sprengjurnar voru
m.a. notaðar til að sprengja nið
ur 30 feta þykka járnstyrkta stein
steypuþakið sem var á kafbáta
bryggjunum í Hamborg. Sprengj
unum var ekki varpað beint á skot
markið heldur rétt hjá því- Þær
grófu sig ein 90 fet niður í jörð
ina áður en þær sprungu og komu
af stað ógurlegum jarðskjálftum
sem hristu öll nálæg mannvirki
til grunna- „Dam Buster“ flug
sveitin undir forystu Guys Gibs
on sprengdi einnig upp stíflur í
Eder, Möhne og Sorpe og fór
margar viðlíka hæPulegar árás
arferðir, sem varð til þess að hún
fékk einnig viðurnefnið „Enska
sjálfsmorðsflugsveitin“.
SÞ
Framhald af 7. síðu.
en ella, að kommúnistaríkin með
Sovétríkin í broddi fylkingar líta
allt öðru vísi á tilgang SÞ en hinn
svokallaði frjálsi heimur. Vestræn
lönd telja tilgang SÞ fyrst og
fremst þann, að stuðla að varð-
veizlu friðarins og koma þannig í
veg fyrir harkalega röskun á
valdajafnvæginu; viðhalda ó-
breyttu ástandi í heiminum.
Kommúnistaríki, sem ekki eru
haldin borgaralegum fordómum
gegn valdbeitingu þegar slíkt get-
ur orðið málstaði kommúnismans
til framdráttar, telja tilgang SÞ
allt annan. Þau telja samtökin
fyrst og fremst tæki til að hamla
gegn tilraunum vesturveldanna
til að viðhalda óbreyttu ástandi.
Auk þess sé SÞ aðalvettvangur
10 30. júní 1%5 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
kalda stríðsins, sem vel sé til þess
fallinn að halda uppi áróðri fyrir
málstað kommúnista um allan
lieim. Af þessum ástæðum einum
saman er ljóst, að kommúnista-
ríkin (að Kína undanskildu) telja
það ekki þjóna hagsmunum sínum,
að SÞ líði undir lok, hversu ákaft
sem þau vilja veikja hlutverk SÞ
sem verkfæri vesturveldanna til
að viðhalda óbreyttu ástandi.
Ástæðan til þess, að SÞ hefur
semt sem áður tekizt að knýja
fram vilja sinn, eða réttara sagt
vilja meirihlutans, í mörgum mál-
um, er sú, að í slíkum tilvikum
stóðu stórveldin tvö ekki and-
spænis hvort öðru — brýnir hags-
munir þeirra voru ekki í veði.
Þetta er hin raunvenulega orsök
þess, að greiðsluerfiðleikarnir,
sem í rauninni snúast ekki um
greiðslur heldur valdapólitík,
hafa verið svo torleystir. Þetta er
einnig ástæðan til þess, að SÞ
hefur reynzt svo máttvana í
mestu hernaðarátökum síðan á
dögum Kóreu-stríðsins, stríðinu í
Vietnam, að enginn hefur lagt til,
að deilan verði lögð fyrir SÞ.
★ LÍFSEIG STOFNUN
Á hinn bóginn er SÞ kærkomið
verkfæri, sem stórveldin eru ekki
sein að færa sér í nyt þegar tvö
eða fleiri ftórveldi vilja samkomu
lag í alvarlegum deilum. Þetta
var ástæðan til þess, að U Thant
aðalframkvæmdastjóra tókst í
október 1962 að fá Kennedy og
Krustjov til samningaviðræðna i
hættulegustu deilu mannkynssög-
unnar.
Undir þessum kringumstæðum
verður að gjalda varhug við full-
vrðingum um, að SÞ muni enga
þýðingu hafa í framtíðinni. Þrátt
fyrir ótal erfiðleika og deilur og
þótt endalokum SÞ hafi verið
spáð hvað eftir annað hafa SÞ
reynzt vera lífseig stofnun, ein-
faldlega vegna þess að ríki heims
telja sér hag í viðgangi samtak-
anna.
Og í dag styðja að minnsta
kosti nokkur stórveldanna SÞ —
um það má deila hvort Rússar og
Frakkar styðji samtökin — en mik
ilsverðast er, að samtökin njóta
eindregins stuðnings yfirgnæf
andi meirihluta hinna nýfrjálsu
smáríkja Afríku og Asíu, en þau
telja SÞ sína stofnun. Þetta sjónar
mið eiga Rússar erfitt með að
virða að vettugi á sama tíma og
keppa við Kína, hina hörðu and-
stæðinga SÞ, um hylli Afríku-
ríkja. — Gunnar Leistikow.
Grein Ólafs
Framhald úr opnu.
harðneskju heimsins. Báðar sög-
urnar njóta hæfileika Svövu að
lýsa kviku tilfinninga í samhengi
kunnuglegs, hversdagslegs veru-
leika; sú gáfa kann enn að
notast henni betur.
Með öðrum orðum: mér virðist
bók Svövu Jakobsdóttur loflegri
en sögur hennar ein og ein. En
það verður fróðlegt að sjá hvað
hún gerir þessu næst. Kvenna-
stúdíur hennar, á mörkum hins af-
brigðilega og hversdagslega, ættu
að gcta orðið upphaf annars
meira — Ó. J.
I
I
Finnland - Sovéfríkin
Í 17.7.-31.7. 15 daga ferð
~ Verð kr. 75.600.00 ™
Fjölbreytt og óviðjafnanleg ferð, þvert yy
yfir Rússland allt suður í Kákasíu. Dvalist á
baðströnd við Svartahaf, skoðaðir sögustaðir,
söfn, leikhúsferðir. Ferðir, hótel, matur og léið-
sögn innifalin í Yerði. Flogið með flugvélum
Loftleiða.
Fararstjóri: Reynir Bjarnason, landbúnaðar-
kandidat Moskvuháskóla.
Ferðaáætlun: 17. júlí: Flogið til Helsinki og
dvalið þar í sólarhring. 18. júlí: Farið méð járn-
braut til Leningrad og dvalið þar 2 daga. 21.
júlí: Flogið til Riga og dvalið þar einn dag. 22.
júlí: Flogið til Kiev og dvalið þar einn dag. 23.
júlí: Flogið til Sochi við Svartahaf, og dvalið
þar 4 daga á baðströndinni. 28. júlí: Flogið til
Moskvu og dvalið þar í 3 daga. 30. júlí: Farið
með járnbraut til Helsinki. 31. júlí: Flogið til
íslands.
1
LAN O S
FERBASKRIFSTOFA
Skólavörðustía 16. II. haað
I
I
1
Kaupum hreinar tuskur
PRENTSMIÐJA ALÞÝÐUBLAÐSINS