Alþýðublaðið - 11.07.1965, Side 4

Alþýðublaðið - 11.07.1965, Side 4
Ritstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Ritst.iórnarfuil- trúi: Eiður Guðnason. — Símar: 14900- 14903 — Auglýsiugasfmi: 14906. Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavik. — Prentsmiðja Alþýðu- blaðsins. — Askriftargjald kr. 80.00. — I lausasölu kr. 5.00 eintakið. Utgefandi: Alþýðuflokkurinn. 44 STUNDIR ÞAÐ TVENNT, sem mest er fagnað í sambandi við lausn kjaradeilna verkalýðsfélaganna, er tví- mælalaust stytting vinnutímans niður í 44 stundir á viku og yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um stórfelldar úmbætur í húsnæðismálum. Með styttingu vinnutímans hefur langþráðu tak onaarki verið náð og hafa verkalýðsfélögin í því máli únnið stóran og eftirminnilegan sigur. Nú eru þessi mál loks að komast í sambærilegt horf við það sem ■er í nágrannalöndum okkar. í stefnuskrá sinni bendir Alþýðuflokkurinn á nauðsyn þess, að hæfileg hvíld og nægilegar tóm- stundir, sem vel séu nýttar, séu bein forsenda þess að vinnandi fólk njóti góðrar heilsu og hamingju. Langþráður draumur er nú orðinn að veruleika og verkamanna- og verkakvennafélögin, sem dregizt höfðu aftur úr ýmsum öðrum starfsgreinum hvað vinnutíma snerti, hafa nú loks fengið leiðréttingu sinna mála. Með aukinni tækni og bættum vinnuskilyrðum á vafalaust enn eftir að stytta vinnutímann á kom- andi árum, enda í senn eðlilegt og réttmætf, að verka fólk njóti á þann hátt ávaxta tækniframfara. . ÓDÝRAR ÍBÚÐIR YFIRLÝSING ríkisstjórnarinnar um úrbætur í húsnæðismálum hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli. Á fundi Dagsbrúnarmanna í fyrrakvöld var þeim fyrirheitum, sem þar eru gefin, líkt við eldri lögin um verkamannabústaði, sem segja má að vald ið hafi byltingu í húsnæðismálum láglaunafólks. Nú á að taka upp í stórum stíl byggingu ódýrra og hagkvæmra íbúða og með sérstökum ráðstöfunum verður þess freistað áð lækka hinn háa byggingar- feostnað, sem verið hefur íbúðabyggingum fjötur um fót undanfarin ár. íbúðir þessar verða seldar með sérstökum vildarkjörum til þess að þær komi að not- um þeim, sem þær eru ætlaðar. Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar er í fullu samræmi við stefnu Alþýðuflokksins í húsnæðismálum, en í stefnuskrá flokksins segir, að stefna beri að því áð sérhver fjölskylda geti eignast þak yfir höfuðið án 'þess að verja til þess öhóflegum hluta tekna sinna, og skuli ríki og sveitarfélög í því skyni beita sér fyr ir byggingu hagkvæmra íbúða og réttlátri skiptingu lánsfjár til langs tíma. Beri ríki og sveitarfélögum að hafa forystu um rannsóknir og tilraunir til að finna sem hagkvæmasta byggingarhætti og freista þess, að lækka byggingarkostnað. Undir forustu Emils Jónssonar félagsmálaráð- herra hefur hér verið stigið stórt skref fram á við, — stærsta skrefið um langt árabil til lausnar húsnæð isvandanum. Sóló húsgögn eru löngu oröin lunds- þekkt fyrir stilfegurð og gæði. Himr hreyfanlegu nylon plast tappar á fótum nýju húsgagnanna eru enu cin nýjung. Nú leggst mjúkur flöc* urina að gólfinu og því engin hætta & að dLikuriau cða reppið skemmisr, hvernig sem aðstæður, cru. Með því að kaupa Sóló húsgögn hafið þér fulla vissu fyrír fyrsta flokks efni og vinnu. Munið að eldhúshúsgögnin verða að vera Sóló húsgögn STERK OG STÍLHREIN. j i « ( \ FMMLEIOANÐI: SÓLÓHÚSGÖGN HF.HRINGBRAUT 121 SÍMl:21032 Kvikmynd um Wennerström Vestnr—þýzkt sjónvarpsfyrir ’ Wennerström ofursta tseki hyggst gera tvegg ja klukku stunda heimildakvikinynd um sænska stórnjósnarann Stígr va-r dæmdur í æviíangt fangelsi í fyrra fyrir njósnir í þágu Sovét ríkjanna. Vestur-þýzka fyrirtækið Þýzki feik j hefur þegar hafið undirbúning að arinn Paul Hoffmann fer með að gerð kvikmyndarinnar og verður alhlutverkið, en hann er nauðalík I hún að miklu leyti tekin í Sví. ur Wennerström. Wennerström i þjóð, * ' 4 11. júlí 1965 - ALÞÝÐU8LA0IÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.