Alþýðublaðið - 11.07.1965, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 11.07.1965, Blaðsíða 9
eyrum eftir höfuðskaða eða ef maður fær glóðarauga án þess að hafa fengið högg á augað, er ekk- ert áhorfsmál að leita verður læknis. Um kann að vera að ræða brot eða brákun í höfuð- kúpu. Ung börn brjóta sjaldan á sér höfuðkúpuna en þeim er hins regar hættara við að fá heilahrist ing; hafið því vaðið fyrir neðan ykkur og farið með barnið til næsta læknis eða sjúkrahúss. TOGNUN. — Algengt er að fólk togni í öklaliðum. Ef einhver mis- stígur sig og kvartar um óþægindi og sársauka á eftir, þá er bezt að setja kaldan bakstur (hreinan vasaklút vættan í köldu vatni) um tognunarstaðinn og sárabindi ut- anyfir til stuðnings. Styðjið liann þangað til sársaukinn rénar. Ef liðurinn bólgnar og sársaukinn heldur áfram, getur verið um bein brot að ræða, og þá liggur beinast við að vitja læknis. í TJALDSTAÐ FARIÐ VARLEGA VIÐ MAT- SELDINA. — Ein mesta hættan í útilegum er sú, að fólk brenni sig eða tjald sitt við eldamennsku og óvarlega meðferð elds. Þess vegna ætti allt „útilegufólk' að hafa með sér brunasmyrsl úr apótekum. Ef um bruna á stóru svæði er að ræða, er vissast að leita læknis. GIGT. — Að sofa á harðri jörð gétur valdið gigt. Bezta lækningin er hreyfing. Hún kann að vera sársaukafull í fyrstu en bætir líð- anina og sjaldan líður á löngu, unz vöðvarnir komast aftur i samt lag. Á FARALDSFÆTI. FERDAVEIKI. — Þeim, sem hættir til ferðaveiki, ættu, ef mögulegt er, að ferðast að nætur- lagi. Gott getur verið fyrir barn. í ■■ . ■ '«4 ’• . - sem tekst á hendur mikið ferða lag að fá róandi lyf samkvæmt læknisráði áður en lagt er upp í ferðina og sefur það þá gjarnan á meðan á henni stendur. Konur, sem eru ófrískar eða telja möguleika á því, að svo sé ættu ekki að kaupa sér sjó- eða loftveikipillur. Mörg slíkra lyfja geta svo sem kunnugt er valdið skaða á líkamsvexti fóstursins. — Ófrískar konur ættu því að leita til læknis, ef þær telja sig þurfa á slíkum meðulum að halda. Ef fólk er gjarnt til sjó- eða loftveiki ætti það ekki að fasta á ferðalögum. Hungur getur fremur stuðlað að velgju en forðað frá henni. En fólk á að velja sér létta, fiturýra fæðu áður en það leggur í ferðalag. Ferskt ioft getur líka komið að gagni — ef samferða mennirnir eru svo skilningsríkir - ■ * < L, ■ • >«5, ' - ‘ •** * Drengjaskyrtur flónel kr. 92,00 Drengjaskyrtur nylon — 165,00 Karlmannaskyrtur flónel — 146,00 Drengjasokkar crepe — 26,00 Nærbuxur karlmanna — 36,00 Nærbolir karlmanna — 36,00 LOKAÐ Skrifstofa'n verður lokuð mánudaginn 12. þ.m. vegna skemmtiferðar starfsfólks. Tollstjórinn í Reykjavík. Laugsrdalsvöllur Á morgun mánudag kl. 20.30 leika á Laugar- dalsvelli: KR - VALUR Mótanefnd. ÚTBOÐ Óskað er eftir tilboðum í sölu á borðbúnaði, eldhúsáhöld- um o. fl. (leir- og stálvörum) fyrir Borgarsjúkrahúsið í Fossvogi. Útboðslýsinga má vitja í skrifstofu vora Vonarstræti 8. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKGRBORGAR. Hef flutt læknasto-fu mína aff Hverfisgötu 50, 3 hæff. Sími 13174. Viðíalstími 1,30 — 3 á laugarnlögum 10 — 11. Símaviðtalstími 1 — 1.30. Laugardaga 9,30 — 10. Þorgeir Jénsson, læknir. (Vinsamlegast geymiff auglýsinguna). Benzínsala Hjólbarðaviðgerðir Opið alla daga frá kl. 8—23,30. Hjófbarðaverkstæðið Hraunholi Hornl Lindargötu og Vitastígs. — Siml 23900. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 11. júlí 1965 $

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.