Alþýðublaðið - 15.08.1965, Side 9
SAMEINAST ITALSKIR
JAFNAÐARMENN?
SÓSÍALISTAFLOKKUR Pietro
Nenni á Ítalíu hefur boðað til
landsfundar 27. október næstk.
Miðstjórn flokksins hefur haldið
síðasta fund sinn fyrir flokksþing-
ið í Róm, og allt fór rólega fram
á yfirborðinu. Samþykkt var
stefnuyfirlýsing, sem ritari flokks-
ins, de Martino, lagði fram, og
fljótt á litið virðist sem forysta
flokksins muni mæta á landsfund-
inum án þess að hafa tekið af-
stöðu til mikilvægasta málsins,
sem verður á dagskrá: Samein-
ingar Sósíalistaflokksins og Jafn-
aðarmannaflokksins (sósíaldemó-
krata).
Stefnuyfirlýsing de Martinos
var mjög óljós, og hana má túlka
á ýmsa vegu. Þar er á engan hátt
látin í ljós skoðun meirihluta
flokksins, sem styður Nenni. En
á það er bent, að stefnuyfirlýsing-
in sé samkomulag til bráðabirgða
er eigi að bera klæði á vopnin.
Hún var samþykkt til að firra
deilum við minnihluta flokksins,
sem Lombardi er fyrir og leggst
gegn sameiningu sósíalista og
jafnaðarmanna.
Raunar munu Nenni og meiri-
hlutinn, sem styður hann, hafa
gert mjög nána grein fyrir af-
stöðu sinni. Stuðningsmenn hans
halda því fram, að sameina verði
flokkana eins fijótt og auðið er
og verði sameiningin að hafa kom-
izt ó í síðasta lagi innan sex mán
aða. Ástæðan til þess, að þessi
frestur er tilgreindur, er sú, að
nauðsynlegt er að hafa nægan
tíma til að undirbúa kosningabar-
áttuna 1968, en þá fara fram þing-
kosningar.
Og ástæða er til að ætla, að
Nenni og stuðningsmenn hans
muni sjá svo um, að flokkurinn
verði sameinaður jafnaðarmanna-
flokknum, án þess að hann klofni
á nýjan leik. Lombardi og vinstri
armur hans hafa heldur ekki hót-
að því beinlínis að kljúfa sig úr
flokknum, en ef ástandið innan
flokksins versnar er ekki hægt
að útiloka þann möguleika, að
Lombardi fari að dæmi Vecchi-
etti, sem klauf flokkinn eftir síð-
asta landsfund og stofnaði nýjan
stjórnmálaflokk.
★ Fylgisaukning jafnað-
armanna
Hins vegar óttast Lombardi
eitt meira en sameiningu við
jafnaðarmannaflokkinn og það
eru nýjar kosningar. Að skoðun
hans hafa sósíalistar tapað fylgi í
hverjum einustu bæjar- og sveit-
arstjórnarkosningum síðan þeir
fóru í ríkisstjórn og Vecchietti á-
kvað því að kljúfa sig úr flokkn-
um. Lombardi heldur því fram,
að sósíaiistar hafi ekkert gert
nema að tapá á samstarfinu við
kristilega demókrata — sósíalist-
ar hafi borgað reikninginn einir,
Lombardi leggst eindregið gegn
þingrofi og nýjum kosningum eins
og sakir standa. Það voru því
margir sem lögðu við hlustirnar,
þegar ritari jafnaðarmannaflokks-
ins, Mario Tanassi, lýsti því ný-
lega yfir, að ef sósíalistar segðu
sig úr stjórninni yrðu jafnaðar-
menn að gera slíkt hið sama og
hann sæi því enga aðra lausn en
þá að gengið yrði til nýrra kosn-
inga.
Stuðningsmenn Lombardia
halda því fram, að hér sé Tan-
assi af ráðnum hug að leggja fast
að þeim. Og raunar eru það ekki
lengur kristilegir demókratar sem
notað geta hótun um þingrof sem
tæki í stjórnmálunum — jafnað-
armaðurinn Saragat er nú forseti
lýðveldisins og hann hefur á
hendi vald til að rjúfa þing. Þess
vegna skiptir það ekki litlu máli
Hér kemur svo teikning af
svokölluðum garShúsum, sem
teiknuð munu hafa verið til
byggingar að Hraunbae 63, 65,
67 og 95. Arkitekt er Björg-
vin R. Hjálmarsson.
Svefnherbergin eru fjögur
herbergi og öll aðskilin frá
stofum. Stofa er geysistór, 4,20
metrar á breidd og öll lengd
hennar 9,10 metrar, en þó er
gert ráð fyrir, að afþiljað sé
húsbóndaherbergi í enda henn-
ar. Mesta breidd hússins • er
að jafnaðarmaðurinn Tanassi skuli
hafa minnzt á slíkan möguleika.
Auk þess er það staðreynd, að
jafnaðarmenn hafa bætt við sig
fylgi í hverjum einustu kosning
um, stundum mjög miklu. Þeir
hafa með öðrum orðum engu að
tapa.
PIETRO NENNI
— vill samvinnu við jafnaðar-
menn Saragats.
★ Úr ríkisstjórn?
Vandi sá, sem stuðningsmenn
Lombardis eiga. við að stríða, er
því mjög ljós: Beygi þeir sig fyrir
sameiningu flokkanna halda þeir
áfram að mynda vinstri andstöðu
innan nýs og miklum mun stærri
sósíalista-jafnaðarmannaflokks,
sem ætti að hafa mjög góða mögu
leika til að hljóta 20% atkvæða
það er að segja gréiddra, í kosn-
ingunum 1968. Beygi þeir sig
ekki og hóti að kljúfa sig úr sósí-
alistaflokknum neyða þeir kannski
Nenni til að segja sig úr stjórn-
inni, jafnaðarmenn mundu þá og
segja sig úr stjórninni, efnt yrði
til nýrra kosninga, sósíalistar
mundu tapa fylgi en jafnaðar-
menn bæta við sig og þar með
verður sameining flokkanna knú-
in fram næstum því sjálfkrafa.
Þessar getgátur um hina marg-
þættu erfiðleika Lombardis eru
mjög algengar um þessar mundir,
og ítalir búa sig undir stjórn-
málaátök í haust. Þessi átök hefj-
Framhald á 10. síðu
14 metrar og mesta dýpt þess
frá götu 16 metrar. Húsið er
„vinkillaga,” svo að gott skjól
ætti að skapazt inni í þríhyrn-
ingnum.
Húsin eru örlítið mismun-
andi að flatarmáli, frá 131,62
fermetrum upp í 136,75 ferm.
Þess má geta, að allmiklu
skýlla mundi sennilega vera í
görðum húsanna inni í röðinni,
en ef til vill lengri sólartími
í endahúsinu.
Teíkningin er Nr. 217.
Skyndisala
ÁSKÓFATNAÐf
3 daga
Kvenskór, karlmannaskór,
Bomsur, inniskór,
Sandalar o. m. fl.
Fallegir og góðir skór.
Góð kaup
SkólverzKun Péturs Andréssonar
Laugaveg 17
SkóverzKun Péturs Andréssonar
Barnavagnar
Allwin og Silver Cross
Barnakerrur,
fjölbreytt úrval.
VerzKunin VARÐAN
Laugavegi 60 — Sími 19031.
V erkstæ ðisvinn a
Trésmiðir og lagtækir menn, helzt vanir
verkstæðisvinnu óskast. Upplýsingar ekki
gefnar í síma.
GAEVILA KOIVfiPANÍIÐ hf.
Síðumúla 23.
POLYTEX plastmálning
Innan húss sem utan.
REX þakmálning
il.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 15. ágúst 1965 $