Alþýðublaðið - 25.08.1965, Blaðsíða 3
: : :
2
.••• ■•••■.—'••
WmiWm
|f||§l
ill
’r í lelðangur
tll Grænlands
I KVOLD heldur „Ægír” í rann-
sóknarleiðangur í Grænlandshaf
ásamt hafrannsóknarskipinu „Hel-
land-Hansen”, sem Háskólinn í
B.iörgvin gerir út. Rannsóknir þess
ar eru liður í umfangsmiklum at-
liugunum á hafinu milli Græn-
lands og íslands, og eru þær styrkt
ar af Rannsóknarnefnd Atlants-
hafsbandaíagsins. Dr. Unnsteinn
Stefánsson, haffræðingur, er for-
maður nefndar þeirrar, er vinnur
að rannsóknunum. Athuganirnar
beinast einkum að því að ákvarða
straumrennsli í Austur-Græn-
lands strauminum og við botn í
rennunni milli íslands og Græn-
lands, auk ákvörðunar á hita- og
segulstigi og söfnun sýnishorna til
ákvörðunar á súrefnis- og næring-
arefnamagni í sjónum. Loks verð-
ur safnað sýnishornum á svifi og
geröar mælingar. á framleiðslu-
getu sjávarins.
Leiðangursstjóri á „Helland-
Hansen” verður Herman Gade, haf
fræðingur. Leiðangursstjóri á Ægi
verður dr. Svend-Aage Malm
berg, haffræðingur og með honum
verða frá Fiskideild, Halldór Ár-
mannsson haffræðingur, ungfrú
Sigrún Helgadóttir, Ari Arnalds,
Birgir Halldórsson og Guðmundur
Svavar Jónsson, auk Reidar Leine-
bö’s, haffræðings frá Háskólanum
í Björgvin. Skipherra á Ægi verð-
ur Haraldur Björnsson. Gert er
ráð fyrir, að leiðangurinn standi
í 2-3 vikur.
Engin síld til Skaga-
strandar nú í sumar
Skagaströnd BB, — GO.
ÁSTAND í atvinnumálum á
Skagaströnd er svipað og verið hef
ur að undanförnu. Ákaflega lít
ið er um atvinnu, engar bygging
arframkvæmdir og sjósókn lítil
vegna aflatregðu. Tveir af stærri
bátunum, Húni og Sigrún, sem
keypt var til Skagastrandar í vor
frá Akranesi, eru á síld og hefur
öðrum gengið sæmilega en hin
um afleitlega.
Grein um
utanríkismál
/
Islands
TÍMARIT norræna félagsins í
Randaríkjunum, The American
Sc.andinavian Review, birtir í ný-
útkomnu hefti grein um utanríkis
stefnu íslendinga eftir Guðmund
í. Guðmundsson utanrikisráð-
herra. Er greinin hluti af flokki
greina, sem utanríkisráðherrar
Norðurlandanna hafa ritað hver
um stefnu síns lands.
Grein Guðmundar endar á
þessum orðum: „ísland er eitt af
minnstu, sjálfstæðu ríkjum heims
og getur að sjálfsögðu ekki haft
mikii áhrif á gang alþjóðamála.
íslendingar eru og hafa um aldir
verið vopnlaus þjóð. Á grundvelli
fornrar og nýrrar menningar og
liugsjóna fordæma íslendingar
valdbeitingu í mannlegu samfé-
lagi og viðskiptum þjóða. Þeir
vilja leysa innanlandsdeilur með
Frh é 14. slðu
Engin síld hefur verið flutt til
Skagastnandar það sem af er þesá
ari síldarvertíð, hvorki söltunar
eða bræðslusíld. Þó er stór verk
smiðja á staðnum og voru ráðnir
menn í hana í vor til að hafa
hana tilbúna ef síld bærist. Þá eru
liér tvö söltunarplön ónýtt.
Dragnótaveiði, sem miklar von
ir voru bundar við var reynd í
vor, en afli var svo rýr að bátarn
ir hættu eftir þriggja vikna úti
vist. Þeir voru þrír að tölu. Einn
þeirra reynir ailtaf öðru hvoru
dragnótinni, en afli er ekki með
þeim hætti að sé til upp
örfunar fyrir hina að hefja veið
ar á ný.
Sjósókn er ekki önnur, en með
nokkrum litlum dekkbátum og trill
um, sem stunda veiðan með hand
færi. Afli er lélegur og frekar hægt
að segja að menn stundi sjóinn
sér til dundurs, en vegna vonar
innar um góðan aflahlut.
Auk síldarverksmiðju og söltun
arstöðva eru tvö frystihús á Skaga
strönd, svo ekki verður annað sagt
en að sæmileg aðstaða sé í landi
til að taka á móti sjávarafla, hvort
heldur um er að ræða síldfisk eða
þorsk.
MIKLAR byggingafram-
kvæmdir eru hafnar austan
við Árbæ og mun þar rísa á
skömmum tíma nýtt hverfi,
sem vafalaust verður kallað
„Bæir” í framtíðinni, þar eð
götunöfn enda öll á bæir. —
Þarna standa íbúðablokkir
meðfram Suðurlandsbraut og
rísa nú hver af annarri. Ef að
líkum lætur verður flutt inn
i fyrstu húsin innan árs.
Suðurlandsbraut er fjöl-
farinn þjóðvegur, sem liggur
austur úr borginni. Með bygg-
ingunum stóreykst umferð um
hann á þessum kafla, og brátt
verður hann að fjölmennri
götu íbúðahverfis. Við það
skapast mikil umferðarhætta,
sem ástæða er að vara við.
Þarna eru enn ekki komin
götuljós, en skammt er að
minnast þess, að dauðaslys
varð í skammdegi á þessum
slóðum.
í framtiðinni mun Suður-
landsbraut eiga að liggja á
allt öðrum stað „utan við
þetta nýja hverfi. Er það tal-
andi tákn um slóðaleg vinnu-
brögð hér á landi, að hin nýja
braut skuli ekki vera lögð og
tekin í notkun, áður en gamla
Suðurlandsbrautin er gerð að
íbúðagötu. Virðist svo, sem
þjóðvegir á mörkum Reykja-
víkur sitji ávallt á hakanum,
hversu hættulegt sem það er,
eins og reynslan af Hafnar-
fjarðarvegi sýnir.
Alþýðublaðið telur, að hættu
sé boðið heim í hinu nýja
hverfi. Ný Suðurlandsbraut
verður að koma strax, svo að
þjóðvegsumferðin flytjist
brott. Götulýsing og aðrar ör
yggisráðstafanir verða einnig
að koma hið fyrsta.
Réðist á og misþyrmdi
79 ára gamalli konu
Reykjavík. — ÓTJ.
SEXTUGUR karlmaður réðist
á 79 ára gamla konu á heimili
hennar sl. laugardagskvöld, — og
misþyrmdi henni á svívirðilegasta
hátt. Gat hún enga björg sér veitt,
og það var ekki fyrr en daginn
eftir að hún fannst liggjandi blóð
ug og illa á sig komin. Konan og
árásarmaðurinn þekktust lítillega
og hafði hann komið í heimsókn
til hennar um kvöldið, nokkuð
úndir áhrifum áfengis.
Af einhverjum ástæðum reidd-
ist hann henni svo heiftarlega, að
hann réðst á hana, en hún gat
enga björg sér veitt sökum þess
að hún er fótaveik og getur ekki
Stóraukið flug yfir Atlantshaf
SAMKVÆMT fréttabréfi frá
IATA, hafa bæði farþega og vöru-
flutningar á vegum félaga, sem
eru aðilar að samtökunum og ann-
ast flugferðir yfir Atlantshaf, stór
aukizt á fyrstu sex mánuðum
þessa árs.
Miðað við fyrstu sex mánuði
i ársins í fyrra hafa farþegaflutn-
ingar þessara félaga aukizt um
18,2% og vöruflutningar um 53,4
%. Heildartala farþega fyrri helm-
ing árs í fyrra var 1.249.775, en
í ár 1.477,852: Aukning á farþega
fjölda á „túrista” farrými — og
fyrsta farrými helzt nokkurn veg-
inn í hendúr.
Til samanburðar við þessar töl-
ur má geta þess að fjöldi þeirra
farþega, sem umrædd félög fluttu
yfir Atlantshaf fyrstu sex mánuði
ársins 1955, eða fyrir 10 árum, var
271,508. Síðan hafa flutningarnir
nálega sjöfaldast.
gengið óstudd. Barði maðurlnn;
hana margsinnis af öllu afli, og
skildi hana svo eftir án þess að
skeyta meira um hana. Le.'fur
Jónsson hjá rannsóknarlögregl-
unni sagði Alþýðublaðinu, að bú-
ið væri að handtaka manninn, og,
hefði hann meðgengið brot sitt,:
Ber hann við að hann hafi verið;
, t
m]ög ölvaður. Það varð konunnij
til happs, að maður í næsta húsfi
annast innkaup fyrir hana, og ái
sunnudagsmorguninn kom hann:
við hjá henni að venju. Brá hon-:
um vonlega mjög í brún er hannj
sá hana og gerði fósturdóttur henn
ar aðvart. Var í skyndingu sent.
eftir sjúkraliði og gamla konan?
flutt á sjúkrahús. Þar kom í ljós
að hún var marin og hrufluð á;
brjótholi. handleggjum og víðar,]
auk þess sem hún var með glóð-|
araugu og áverka á hálsi. Einnigj
kvartaði hún yfir þrautum í|
bringubeini og vinstri síðu.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 25. ágúst 1965 3