Alþýðublaðið - 25.08.1965, Síða 11
Rosenborg náði 2ja
marka f orskoti 3:1
FYRRI LEIKUR KR. oer Rosen
borg í Evrópubikarkeppninni fór
fram í gærkvöldi í frekar köldu
veðri, norðan gola var og völl-
inn háll eftir undanfarandi rign-
ingar. Menn höfðu gert sér von-
3r um jafnan leik og jafnvel KR.
sigur, en það fór á annan veg. II.
deildur liðið norska hafði yfir-
burði á Inær öllum sviðum og
gerði sigurvonir manna að engu.
Ekki bætti úr skák að KR. mætti
til leiks með tætingslið, sem aldrei
tókst að ná saman, en hreint furðu
legt hvernig heim datt í hug að
mæta með þessa uppstillingu eftir
annars góða leiki hjá aðalliðinu
í sumar.
★ LIÐ ROSENBERG:
T. Fossen, Knut Jensen, Kjell
Lyssand, S. Haagenrud, K. Rönn
es, E. Nygaard, T. Pedersen, B.
Tingstad, T. Lindvaag, H. Han-
isen, Kleveland
★ LIÐ KR.
Heimir Guðjónsson, Ársæll
Kjartansson, Bjarni Felixsson,
Þórður Jónsson, Þorgeir Guð-
mundsson, Sveinn Jónsson, Gunn
ar Felixson, Sæmundur Bjarkar,
Baldvin Baldvinsson, Ellert
Schram, Gunnar Guðmannsson.
★ Dómari: W. J. Mullan.
★ Línuverðir: J. Rodger, A. O.
Russel.
★ Áliorfendur um það bil 5 þiis.
FYRRI HÁLFLEIKUR: 1—0
KR. byrjar með knöttinn og leik
ur gegn, nokkuð sterkri golu.
strax í byrjun sækja KR-ingar
og hætta er við norska markið
þegar annar bakvörðurinn ætlar
að gefa til Fossen í markinum en
boltinn rúllar rétt framh.iá mark
súlunni. Rétt á eftir fær KR horn
spyrnu en Baldvm skallar jdir. Nú
fara þeir norsku að taka leikinn
í sínar hendur og sækja fast en
eru óskyttnir eða þá að Heimir
ver. Á 10. mín. kemur fyrsta rnark
ið. Heldur sakleysislegt spil á vall
arhelmingi KR og allt í einu er
boltinn kominn á vítateig og hinn
eldsnöggi útherji Kleveland not-
færir sér það vel og skorar með
fastri spyrnu óverjandi fyrir
Heimi. Rosenborg sæ'kir fast eftir
markið og oft er hætta við mark
KR., en Heimir er vel á verði og
bjargar oft glæsilega. Siðustu 10
mínúturnar eru nokkuð jafnar og
fjörugar. Á 35 mín. er skallað að
marki KR. en boltinn dettur ofan
á þverslá og yfir. Skömmu síðar
kemst Sæmundur í gegn, en Skot
hans er laust og lendir í fæti
norska markmannsins og í liann,
sem svo ekkert varð úr. Undir
lok hálfleiksiiis sækja KR-ingar
fast og Ellert skallar að marki,
Valur og FH til
úrslita í 2. fl.
kl. 7,30 í kvöld
í KVÖLD fer fram úrslita
leikur 2. flokks íslandsmóts
ins í knattspyrnu. Valur og
FH leika á Melavellinum kl.
7.30.
ÍWWWMWMMWWWWWWWW
en h. bakvörðurinn Jensen bjarg
ar stórglæsilega með þvi að
henda sér og skalla framhjá.
SÍÐARI HÁLFLEIKUR 2—1
Strax á fjrrstu mín. kemst mark
Rosenborg í hættu, en Gunnar
Guðmannsson á gott skot að
marki, en Fossen bjargar naum-
lega. KR-ingar sækja fast, en geng
ur illa er upp að markinu kem-
ur. Á 5. mín. Brýst Kleveland í
eegn, en Heimir bjargar fallega
með úthlaupi. Strax á eftir er
Kleveland aftur með fcnöttinn og
leikur á Ársæl bakvörð og renn
ir knettinum út í teig til Han-
sen, en hann hittir ekki og knöttur
inn heldur áfram til Tingstad h.
innherja, sem þrumar hátt yfir
fyrir opnu tnarki. Á 25 mín. kem
ur svo KR. markið, hornspj’rna
er tekin og Ellert skallar fast að
marki og markvörðuriim réð ekki
við bohann og missti hann inn-
fyrir. Við markið færist fjör í
KR.-liðið og liggur við að þeir
nái yfirhöndinni er Ellert gefur
góða sendingu til Baldvins, sem
sendir lausan bolta að marki, en
Fossen biargar með því að reka
tána í knöttinn. Rétt á eftir er
Gunnar F. í dauðafæri en skot
hans fer hátt yfir. Á 33. min kem
ur svo 2—1. Ársæll var að gaufa
einhvers staðar út á velli og
Kleveland fær góða sendingu og
skorar fallega. Firnm mín. síðar
innsigla Norðmennimir sigurinn,
er h. útlierjinn Pedersen fær í
Framh. á 14. síðu
Hér munaði mjóu, að KR tækist að skora.
Nörðmennirnir voru
betri en KR-ingan
ÞAÐ sýndi sig í gærkvöldi í leik
Evrópubikarkeppninnar, milli
Bikarmeistara Noregs og íslands,
Rosenborg og KR, að enn skortir
vora menn verulega á, að standa
þar með hælana sem hinir er-
lendu knattspyrnukappar hafa
tærnar. Rosenborg, sem leikur í
II. deild bar óneitanlega af mót-
herjum sínum um knattmeðferð
og leikskipulag. Sú mikla breyt-
ing, sem KR gerði á liði sínu
kom ekki að því gagni sem búizt
var við. Umsagnir kunnugra á
norskri knattspyrnu og „spádóm-
ar” um gott gengi vorra manna
stóðugt heldur ekki, vegna þess
einfaldlega, að gestirnir kunnu
meira fyrir sér en heimamenn.
Úrslitin 3:1 hefði og eftir tæki-
færum geta orðið mun meiri. Má
Leikurinn í tölum
Norsku bikarmeistararnir — Rosenborg frá Þrándheimi. Myndir: Bj. Bj.
Fyrri hálfleikur.
Rosenborg
Innköst 13
Aukaspyrnur 6
Hornspymur 8
Rangstöður 2
Skot á mark 7
Skot framhjá 5
Skalli á mark 4
Mörk 1
Seinni hálfleikur
Innköst 9
Aukaspyrnur 3
Hornspyrnur 4
Rangstöðui' 2
Skot á mark 7
Skot framhjá/yfir 5
Skalli á mark 0
Mörk 2
því segja, að eftir atvikum væri
það vel sloppið.
í liði Rosenborg, sem var yfip-
leitt skipað frekar jafnsterkum
leikmönnum, báru þó af v. út-
herjinn og h. bakvörðurinn. í liði
KR voru þeir Ellert Schram og
Sveinn Jónsson, þeir af leikmönn-
unum sem bezt börðust og sýndu
verulega „bikar-keppnisskap”. —•
Auk þess varði Heimir oft mjög
vel, enda heppnin með honum í
mörg skipti. KR-liðið í heild var
ekki eins öflugt í þessum léik
og stundum áður er það hefur att
kappi við erlend lið.
Sannarlega er það mjög þakkar-
vert af KR að hafa rutt braut-
ina að þátttöku íslenzkra knatt-
spyrnuliða í Evrópubikarkeppn-
inni, en þetta er í annað sinn sem
ísland (KR) er þar þátttakandi,
og rekja má beint til áhrifa þessa,
þátttöku íslandsmeistaranna nú-
verandi í keppni meistaraliða
Evrópu, en á sunnudaginn kemur
mun leikur ÍBK og ungversku
meistaranna, Ferencsvaros fara
fram á Laugardalsvellinum. En
þó vitað verði að þar verður ó-
jöfnu saman að líkja, miklu ójafn-
ari átök en í gærkvöldi, er það
þó vissulega tilhlökkunarefni áð
sjá enn einu sinni hversu fer er
um getur vorra manna í við-
skiptum þeirra við snillinga á
10 heimsmælikvarða. Og sannarlega
4 eiga hinir tryggu áhorfendur knatt
6 spyrnuíþróttarinnar það skilið, að
2 fá að sjá að minnsta kosti með
4 nokkurra ára millibili það bezta,
2 sem boðið er upp á — á þfeasu
1 sviði íþróttakeppninnar í víðri
1 veröld. — EB.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 25. ágúst 1965 %%
KR
7
8
5
5
3
2
2
0