Alþýðublaðið - 25.08.1965, Síða 15
Þorparamir reyndu að pína Gregory til þess að
segja þeim frá leyndarmálinu.
„MIRAGE” heitir ný
njósnamynd með Gre-
gory Peck, Diönu Baker
og Leifi Eirfkssyni í að-
alhlutverkunum. í byrj-
un myndarinnar og reynd
ar út hana alla, á Peck
í miklu sálarstríði. Hann
er alls ekki viss um hver
hann er, og hvert hlut-
verk hans er í heiminum.
Hann þekkir fólk, sem
hann hefur þó ekki hug-
mynd um hvað starfar
eða heitir, og sífellt er
eitthvað að brjótast um í
huga hans. Aðeins eitt er
hann viss um: Það er ein-
hver að reyna að drepa
hann. Margar tilraunir
hafa verið gerðar,
til að myrða hann, en
hann hefur jafnan kom-
ist undan á síðustu
MIRAGE
að áður en hann missti
minnið, var hann þekkt-
ur vísindamaður, og
hafði einmitt fundið
lausnina að því hvernig
hægt væri að framleiða
atómsprengju sem hefði
enga geislun eða aðrar
eftirverkanir í för með
sér. Þetta hafði geysilega
hernaðarlega þýðingu,
þar sem það gerði Banda-
ríkjamönnum kleift að
nota slíkar sprengjur án
þess að eiga á hættu að
verða sjálfir fyrir geislun
af henni.
Er Gregory kemst að
þessu er hann þegar fall
inn í hendur andstæðing
anna, sem vilja hafa
leyndarmálið upp úr
honum. Er það aðeins fyr
ir einstaka heppni, og að-
stoð Diönu Báker sem
honum tekst að sleppa lif
andi úr þeirri klípu.
Ekki skulum við taka
fyrir að mynd þessi sé
spennandi en anzi virð-
ast framleiðendur henn-
ar hafa takmarkað vit á
kostum og göllum kjarna
vopna.
stundu. Eitt sinn var
hann á leið upp í lyft-
unni, þegar hann var að
koma heim til sín úr vinn
unni. Með honum var að-
eins einn annar maður í
dökkum frakka með hatt
inn niðri í augum. Þegar
þeir komu út úr lyftunni,
hélt ókunni maðurinn
lítilli skammbyssu í baki
Gregorys, og neyddi
hann til þess að opna her-
bergishurðina. — Með
brögðum tókst Gregory
að afvopna og rota
manninn, og þá flúði
hann úr íbúðinni, enn
ráðvilltari en fyrr. En
loks fer þó að skýrast
ýmislegt af því sem kom
ið hefur fyrir hann, og
hann fer að muna ýmis
atriði úr fortíð sinni. —
Loks kemst hann að því
0
nl
rn
kvikmyndir
skemmtqnir
dœguriöc^ofL
Úrslitastundin var komin
skammbyssu úr veski sínu.
en þá þreif D'iana
Molar
Jimmy Stewart átti 57
ára afmæli um daginn en
þá var hann staddur ná-
lægt Yuma, Arizona við
töku mypdarinnar
„Flight of the Phoen-
ix”. Jimmy leikur þar
flugmann og það er nokk
uð sem hann ætti að eiga
auðvelt með, þar sem
hann flaug sprengjuflug-
vél í síðasta stríði, og l
fékk ósköpin öll af heið
ursmerkjum, fyrir frá-.
bært hugrekki og margar
hetjudáðir. Meðleikarar '
hans, þeir Ernie Borg-
ine, Peter Finch, Richard
Attenborough og Dan
Duryea létu sem þeir
vissu ekki af að hann átti
afmæli, fyrr en störfum
dagsins var lokið. Og Jim ;
my hafði reynt að halda
því vandlega leyndu. En
þegar „cut” var hrópað
í síðasta skipti, var hrúg
að yfir afmælisbarnið ís-
köldum kampavínsflösk-
um og það sem betra var,
konan hans, Gloria, hafði
komið flugleiðis til Yu
ma, til þess að vera í af-
mælinu.
— Það er lygi, hrópaði
Jimmy, þegar hann sá
hana. Eg er ekki 57 ára
— ég er 27.
íslenzk æska
Framhald af 7. síðu.
meira á manndóm þess varðandi
skemmtanalíf eins og það tíðkast
nú á dögum. Aðsókn að skólum
landsins sýnir það, að íslenzk æska
er námfús og gefun það m.a. von
um að hún verði vel undir það
búin að taka við af eldri kynslóð
inni.
HÓLMFRÍÐUR
JÓNSDÓTTIR,
kennari:
Enginn efast um að efnivið
ur íslenzkrar æsku sé góður og
því er allt undir því komið, hvern
ig okkur tekst til að móta og ala
upp æskuna. Það eru foreldram
ir fyrst og fremst, sem bera ábyrgð
á uppeldi hennar og því næst
koma skólarnir og aðrir uppalend
ur. Ég fullyrði, að við getum eigi
vai'ið fjármunum okkar betur en
að hlynna að æskunni á allan hátt
Við verðum líka að gera strangar
kröfur til okkar góðu æsku, bæði
hvað snertir hegðun og störf.
Alþýðumaðurinn þakkar svör
hinna góðu borgara, og svör þeirra
gefa vissulega tilefni til umræðna
þótt síðar verði.
En svörin auka vissulega bjart
sýni þeirra, er eigi viðurkenna
að æskan sé á glötunarbarmi.
Viðgerft handrita
Framhald af 2. síðu
þeir munu verða forstöðumönnum
og starfsmönnum til ráðleggingar
um ýmislegt, er varðar meðferð
og viðgerð handrita í söfnunum
og varðveizlu þeirra. Þá munu
þeir einnig leggia á ráð um fram
tíðarstarfsemi viðgerðarstofu hand
i-ita, þar sem frú Vigdís Björns-
dóttir starfar, en hún nam um
iskeið hjá Mr. Ro.gjer Powell
•Fyrirhugað er að Mr. Powell
haldi hér fyrirlestur um handrita
viðgerðir og sérstaklega starf það,
sem hann hefur innt. af hendi við
viðgerð á hinu merka írska skinn
handriti BoOk of Kells. Mun liann
sýna litskuggamyndir máli sínu
til skýringar.
Fyrirlesturinn verður í 1.
Ikannslustofu, háskólans miðviku
daginn 25. ágúst kl. 8,30.
Menntamálaráðuneytið,
23. ágúst 1965.
Paul Hansen
Frh. af 1, síðn.
störfum í ríkisstjórninni. Hann
sagði við sama tækifæri að hann
myndi halda áfram þingmennsku
en hann hefur verið þingmaður
frá því frelsisárið 1945.
Ráðherraskiptin eiga sér stað á
erfiðum tíma að því er fjármál
ríJkisins snertir. Vegna aukinna út-
gjalda ríkissjóðs, m. a. vegna kaup
liækkana og hækkaðra trygginga-
bóta verður að auka mjög tekjur
ríkissjóðs. Ríkisstjórnin vill end-
urskoða skattalögin í nokkrum at-
riðum, m. a. með því að koma á
skatti af tekjum ársins og marg-
virðisskatti, er á að koma í stað
núverandi söluskatta.
Poul Hansen tók við embætti
fjármálaráðherra árið 1962 er fyr-
irrennari hans, H. Knudsen lézt.
Hansen var þá varnarmálaráð-
herra. Hann varð ritari í stjórn
Sambands ungra jafnaðarmanna
í Danmörku aðeins 16 ára að
aldri, er trésmiður að iðn, nam
síðar við lýðháskóla og gerðist
síðan blaðamaður. Seinna meir
var hann kjörinn á þing og hefur
síðan farið með margar forystu-
og trúnaðarstöður. Henry Gruen-
baum, sem tekur nú við stöðu fjár-
málaráðherra, er 54 ára að aldri
og er stjórnvísindamaður. Hann
hefur starfað talsvert fyrir dön-
sku verkalýðshreyfinguna og hef-
ur einnig auk þess ritað um stjórn
mál og efnahagsmál í Aktuelt.
Samsærið
Framhald af 1. sfðu
vildi láta ræna Roosevelt, var sú,
að hann hélt, að betra mundi að
ná samkomulagi við Bandaríkin
eftir hrakfarirnar við Stalingrad.
Úr samsærinu varð þó ekki, þar
sem sovézkur sendimaður, Niko-
lai Kuznetsov, hafði komizt inn í
her Þjóðverja undir fölsku nafni,
og fengið upplýsingar um það. —
Ýmsir fleiri sendimenn sovézkir
gáfu ýmsar upplýsingar sem
stuðluðu að því að samsærismönn
unum tókst ekki að framkvæma
áform sitt, auk þess sem ástmær
eins SS-foringjans, Fritz von Or-
tel, veitti sovétmönnunum mikil-
vægar upplýsingar.
Fjöldi sovézkra sendimanna
kom til Teheran áður en fundur-
inn hófst, og var fjöldi þýzkra
sendimanna myrtur. Ekki getur
tímaritið þess, hverjir hafi viður-
kennt að hafa myrt Þjóðverjana.
Það fylgir og sögunni, að Roose-
velt forseti hafi afþakkað boð
Stalins um að búa í Sovézka
sendiráðinu, á meðan á fundinum
stæði.
Geimferðin
Frh. af 1. síðu.
þar með auðsætt að þeim mun
takast að vera í geimferð sinni
a.m.k. lielming þess tíma sem á-
ætlað var að ferðin skyldi taka.
Eiga þeir nú að fara a.m.k. 61
hring um jörðu. — Um miðjan
dag í dag höfðu þeir farið 45
hringi um jörðu og við geimferða
stofnunina í Houston í Texas var
tilkynnt að þeir væru báðir tveir
við beztu heilsu. í gærdag gerðu
þeir ýmsar tilraunir, t.d. ljósmynd
unartilraunir og tilraun til að
mæta ímynduöum gervihnetti. Til
raun þessi var svokölluð skrifborðs
tilraun, þ. e. geimfararnir gerðu
allt það sem nauðsynlegt er að
gera til að mæta gervihnetti án
þess þó að breyta stefnu sina eiff
in geimfars að þessu sinni.
Kaupfél agsstjórastarf
Kaupfélagsstjórastarfið hjá Kaupfélaginu Björk, Eski-
firði er laust til umsóknar frá og með 1. janúar 1966.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri istörf og kaup-
kröfu óskast sendar til formanns félagsins Ásgeirs Júlíus-
sonar, Samtúni, Eskifirði eða starfsmannastjóra Sambands
ísl. samvinnufélaga, Jóns Arnþórssonar, Reykjavík.
Starfinu fylgir leigufrítt húsnæði með ljósum og hita.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember n.k.
Stjórn Kaupfélagsins Bjarkar, Eskifirði.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 25. ágúst 1965 15