Alþýðublaðið - 26.08.1965, Page 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 26. ágúst 196.5 3
Ný hók um Davíð
frá Fagraskógi
Rannsókn á óhöpp
um smáflugvélanna
MEÐAL JÓLABÓKANNA í haust
gefur Kvöldvökuútgáfan á Akur
eyri út búk um Davíð Stefánsson
frá Fagraskógi. Bókin mun aðal
íega fjalla um skáldið persónu
lega, ætt hans, líf og starf. Hún
er rituð .af 16 kunnum mönnum,
sem allir voru nánir vinir og
kunningjar Davíðs.
Árni Kristjánsson og Andréss
JSjörnsson búa bókina undir prent
un, en höfundarnir eru þessir:
Árni Kristjánsson píanóleikari,
séra Björn Ó. Björnsson, Brynjólf
Sveinsson, menntiaskólakennart,
Eiður Guðmundsson, bóndi Hraun
um, Helga Valtýsdóttir, leikkona,
Huida Á. Stefánsdóttir, skólastjóri,
Kristján Jónsson, Borgardómari,
Páll ísólfsson, tónskáld, séra Pét
ur> Sigurgeirsson, Ríkharður Jóns
Framh. á 15. síðu.
stajanir eigi að gera vegna hinna
tíffu óhappa, sem litlar jlugvélar
haja lent í undanjarna mánuffi.
Þaff er orffinn nær vikulegur við-
burður aff þessum jlugvélum
hlekkist á og í nær öllum tiljell-
unum er eingöngu um aff kenna
reynsluleysi jlugmannanna og víta
verðu gáleysi. Eitthvað verffur að
gera í þessum ejnum, sagffi Agnar
Koejod-Hansen, jlugmálastjóri, í
viðtali viff Alþýffublaðið í gær, en
hvað þaff verffur veit ég ekki jyrr
en nejndin sem skipuð var til að
athuga þessi mál, skilar áliti sinu.
Flugnám hér á landi er sízt
lakara en í öffrum löndum og jlug-
timarnir, sem nemendur verffa aff
jljúga áffur en þeir já réttindi jajn
margir og annars staðar er krajizt.
En hér á landi eru skilyrði til
flugs að ýmsu leyti erfiðari en
víðast hvar í útlöndum, en þó
mun það ekki aðalorsök þessara
tíðu óhappa heldur hitt, að
reynslulitlir flugmenn fara ekki
eftir settum reglum og þekki ekki
nógu vel til lendingarskilyrða eða
veðurfars. Bæði er að þessir menn
fara ekki eftir fyrirskipunum loft
ferðaeftirlitsins og að þeir láta
eftir sér að lenda á ólíklegustu
stöðum, þar sem engin lendingar-
eða flugtaksskilyrði eru fyrir hendi
leiða til þess, að þeir stofna eigin
lífi og farþega sinna í lífshættu
og eyðileggja verðmætar flugvél-
ar. Þeim mun undarlegra er þetta
að' í mörgum tilfellum eru til
sæmilegir flugvellir og viður-
kenndir af flugmálastjórninni í
næsta nágrenni þeirra staða sem
flugvélarnar eru eyðilagðar á
vegna þekkingarskorts og glanna-
skapar þeirra sem flugvélunum
stjórna. Þetta á ekki við um at-
vinnuflugmenn sem bælði hafa
revnslu í þessum efnum og að
mönnum sem sýnt hafa glanna-
skap og óhlýðni í flugferðum sín-
um er ekki trúað fyrir að fljúga
með farþega fyrir flugfélögin, —
heldur svokallaða einkaflugmenn
sem oft sýna ekki nægilega var-
kárni í flugi sínu.
Reykjavík. — OÓ.
Flugmálastjórnin hejur skipað
nejnd til að athuga hvaða ráð-
Gátu ekkert gert með
ónýt tæki í höndunum
Reykjavik. — GO.
'KIukkan um fimm í gærdag
komumst við í Reykjanesvita og
hittum þar fyrir Sigurjón Ól-
afsson vitavörð og Konráð son
hans. Þeir voru þá ekki farnir
að sofa, nema Sigurjón liafði
rétt náð blundi snemma um
morguninn. Sigurjón er maður
kominn yfir miðjan aldur, en
ber sig vel. Hann man margt
strandið við Reykjanes, þar sem
hann er búinn að vera vitavörð-
ur síðan árið 1947 — eða í 18
ár.
— Okkur sárnaði mest að
geta ekkert aðhafzt til að bjarga
mönnúnum, sagði Sigurjón. Það
er ömurlegt að þurfa að horfa
á mennina hverfa hvern á fæt-
ur öðrum í brimgarðinn og
sitja uppi með ónýt tæki í
höndunum. Hefði björgunar-
sveitin verið kölluð strax á stað
inn er enginn vafi á, að tekizt
hefði að bjarga öllum mönnun-
um.
Nokkrir bátar voru þarna úti
fyrir og lýstu upp svæðið, en
gátu ekkert aðhafzt frá sjó, —
enda álandsvindur og stórsjór.
Þeir virtust líka halda að menn
irnir hefðu allir komizt frá
borði í gúmbátnum, því þeir
lýstu hann upp í sífellu og til-
kynntu Loftskeytastöðinni að
þar myndi mennina að finna,
en við gætum líklega ekki séð
bátinn þar sem hann sat skorð-
aður undir slútandi klettanefni.
Nú grípur Konráð fram í:
— Eg fór strax niður að bátn-
um og aðgætti hann, en þar var
engan mann að finna. Við urð-
um þess líka fljótlega varir að
mennirnir voru allir á flakinu.
Þegar pabbi kom aftur frá að
sækja byssuna og hringja, að-
gætti ég bátinn aftur til frekara
öryggis, en enginn maður var
í honum eða í námunda við
hann.
Veðrið var mjög vont, um 8
vindstig líklega af norðvestri og
ólögin gengu látlaust yfir bát-
inn. Við reyndum eftir mætti
að kalla til mannanna og biðja
þá að þrauka sem lengst, því
að hjálpin væri á leiðinni, en
lítið heyrðist á milli fyrir brim-
gnýnum og aðstaða á flakinu
eins erfið og hugsast getur.
Þarna inn undir Kinnaberg-
inu hagar svo til, að um 8 metra
hátt standberg er í sjó niður,
en undir því stórgrýtisurð. Eg
stóð í urðinni og hafði á mér
taug. Einn manninn bar svo ná-
lægt mér, að ég reyndi að ná
til hans, en útsogið tók hann
áður en mér tækist að festa á
honum hendur. Þá fór ég alveg
á kaf í brimskaflinum og var
lengi að jafna mig í augunum
Framhald á 15. síðu.
Sigurjón vitavörður og Konráð sonur hans fyrir framan Reykjanesvita. — Ljósmynd Alþbl.
kemur í dag
AHTI KARJALAINEN, utanrík-
isráðherra Finnlands, og kona
hans koma í opinberá heimsókn
hingað í dag. Hjónin koma um
þrjúleytið með flugvél Flugfélags
íslands.
Síðar í dag mun finnski ráðherr-
ann ræða við Bjarna Benediktsson
forsætisráðherra í stjórnarráðinu,
en um kvöldið situr hann veizlu
íslenzku utanríkisráðherrahjón-
anna í ráðherrabústaðnum.
Á föstudaginn verður farið til
Akure.vrar og Mývatns, á laugar-
dag er ráðgerð skoðunarferð um
Reykjavík, en síðdegis mun Kar-
jalainen ræða stundarkorn við ís-
lenzka blaðamenn. Ráðherrann fer
til laxveiða á sunnudaginn, en á
meðan fer kona hans til Þingvalla,
að Laugarvatni, Gullfossi og Geysi
og í Hveragerði.
Heimsókninni lýkur á mánudag
og halda hjónin þá heimleiðis.