Alþýðublaðið - 26.08.1965, Blaðsíða 4
Kitstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Ritstjórnarfull-
trúi: Eiður Guðnason. — Símar: 14900- 14903 — Augljsingasími: 14906.
ABsetur: AlþýðuhúsiB við Hverfisgötu, Keykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu-
blaðsins. — Askriftargjald kr. 80.00. — I lausasölu kr. 5.00 eintakið.
Utgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Velkominn gestur
UTANRÍKISRÁÐHERRA HNNA, Ahti Karjala
inen, og kona hans koma til Reykjavíkur síðdegis í
dag í opinbera heimsókn. Koma þau í boði utanríkis
ráðherra og endurgjalda þannig opinbera heimsókn
hans til Finnlands fyrir nokkru.
Finnar eru velkomnir gestir á íslandi. Sterk
bönd vináttu og menningartengsla hafa lengi tengt
þjóðirnar saman, enda þótt löng leið sé á milli
landanna. Báðar hafa þjóðirnar þá sér-
stöðu innan hinnar norraenu fjölskyldu,
að tala tungumál, sem eru torskilin hiniun
þjóðunum þrem. Báðar eru útverðir Norðurlanda,
önnur í austri, hin í vestri. Og háðar hafa þá afstöðu
til stórvelda, að þeim er þátttaka í samstarfi Norður
landa bæði stjórnmálaleg og menningarleg nauðsyn.
íslendingar haf a fylgzt með baráttu finnsku þjóð.
arinnar síðasta *aldarf jórðung af mikilli samúð. Finn
um voru þung örlög búin í upphafi heimsófriðarins,
og hefðu fáar smáþjóðir sýnt þá festu og hugprýði,
sem þeir gerðu í Vetrarstríðinu. Framhald þess var
jafn óhjákvæmilegt og það var sorglegt, úr því að
stórveldin höfðu dregið Finna nauðuga inn í valda-
baráttu sína.
Finnar urðu að láta af hendi mikil lönd eftir ófrið
inn, og fluttust mörg hundruð þúsund manns frá
þeim héruðum. Það *var efnahagslegt stórvirki að
finna þessu fólki ný heimili og nýja atvinnu. Sömu
sögu var að segja af stórfelldum stríðsskaðabótum,
•sem Finnum var gert að greiða. Með risavöxnu á-
taki ha-fa þær verið leystar af hendi, svo að hvergi
skortir á.
Hið finnska undur er, að þrátt fyrir slíkar fórnir
skuli Finnar standa jafnfætis fremstu þjóðuan ver
aldar hvað snertir tækni og félagslegar framfarir, að
dkki sé minnzt á svið listanna. Finnar hafa vaxið við
hverja raun.
Viðskipti Finna og íslendinga hafa um árabil
verið mikil og hagstæð. Finnar hafa keypt mikið
magn af síldarafurðum, en selt okkur í staðinn timb
ur, iðnaðarvörur og margvíslegan annan varning. Er
vonandi, að áframhald verði á þessum viðskiptum og
aau vaxi í framtíðinni.
A sviði mennmgarmála hefur það síðast gerzt í
iamskiptum Finna og íslendinga, að einn hinna
íeimsfrægu húsameistara, sem gert hafa Finnland
Irægt á því sviði, hefur teiknað Norrænu höllina, sem
rísa á skammt frá Háskólanum í Reykjavík. Telja
íslendingar mikinn feng að eignast byggingu eftir
þlíkan meistara, og mun hún um leið verða minnis
/arði um vináttu Finna í okkar garð.
, Islendingar bjóða finnsku utanríkisráðherra-
jrjónin velkomin með þeixri ósk, að samskipti og vin
htta Finna og Íslendinga megi halda áfram að dafna
i framtíðinni.
4 26. ágúst 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
HAUST-ÚTSALA
á kvenskóm er hafin
Stórlækkað verð.
SKOVAL
Austurstraeti 18
Eymund sson a r k jallar a.
AIXMIKLAR FRAMKVÆMDIR
í umbótaátt tara nú fram á Suður
landsbraut. Brautin var geró brcið
ari enda engin vanþörf á, en sá
galli er á þessari framkvæmd að
staurar standa út á brautinni og
getur það valdiö slysum. Sama
má segja um breytingarnar á
Öskjuhliðarhálsinum. Brautin hef
ur verið breikkuð til muna, en
staurarnir ekki færðir út fyrir
brautina eins og þurft hefði að
gera og þar með kemur breikkunin
ekki að því gagni sem annars
hefði orðið. Samt eru þessar breyt
ingar til mikiila bóta.
MENN SJÁ l»AÐ NÚ hversu
mjög það hefur reynzt til bóta
að gera akfæra bráðabirgðabraut
upp Ártúnsbrekkuna við hlið þeirr
ar gömlu og þeirrar einu sem
fyrir hendi var austur úr borg
inni. Umferðin hefur gjörbreytzt
við þetta. Ég hafði nokkrum sinn
um minnzt á þetta, en gerði þá
ráð fyrir að nýja brautin yrði sett
í sambandi við M'klubraut með
bráðabirgðabrú yfir árnar. En
ef til vill er þetta auðveldara og
það nægir fyrst um sinn. Þarna
á að gera miklar skipulagsbreyting
ar, en vöxtur umferðarinnar hefur
orðið svo gífurlegur, að ekki var
liægt að bíða eftir þeim.
NÚ RÍS UPP hvert stórhýsið á
fætur öðru fyrir innan Elliðaár. en
einbvffshúe eigá að vera Ivrir
neðan veginn. Garðlöndin leggiast
niður og þarna verður komið
mjög fjölbýlt íbúðahverfi eftir
eitt ár. Enn sjáum við það hvernig
Reykjavík þenst út, aðallega í aust
urátt, en einnig í suðausturátt svo
að samfelld byggð er að myndast
milli höfuðstaðarins og Hafnar-
fjarðar.
ÞAÐ ER GEYSIMIKIÐ kapp í
íslendingum, kapp dugnaður og'
flottheit, því að flestar eru þess
ar íbúðir of stórar þegar miðað
er við brýna þörf, lánsfjármögu
leika og fjárfestinguna. Maður
gleðst yfir dugnaðinum, en gleð
in er blandin þegar við blasir sú
staðreynd, að við flvtum okkur of
mikið, við siglum of hratt og reis
um okkur hurðarás um öxl, ekki
aðeins einstaklingarnir heldur og
þjóðfélagið í heild. Maður skyldi
halda að með öllum þessum gífur
iegu byggingum ætti að rýmkast
svolítið til með húsnæði, en lítið
er farið að bera á því. Ástæðan er
sú, að langflestir stækka við sig
jafnvel langt -yfir efni fram.
MÉR ER SAGT, að Suðurlands
brautín fái nýjan svip innan
ákammg eða þegar búið er að
ganga frá þvervegum sem eiga
að liggja yfir hana. Þarna eiga að
koma brýr svo að gangandi fólk
komist yfir aðalbrautina hindrun
arlaust og jafnvel bifreiðar líka,
en brýr yfir fjölförnustu göturn
ar geta leyst úr miklum umferðar
vanda. Hér hefur þetta ekki sézt
fyrr, en í hinu-nýja skipulagi mun
vera gert ráð fyrir nokkrum slík
um brúm.
EN FYRST ÉG minnist á Suð
urlandsbraut er rétt að minna þá
einstaklinga og hlutafélög sem
reist hafa verzlunarhallir við Suð
urlandsbrautina á undanförnum
árum á það, að þeir eru seinir
til að lagfæra hlaðið hjá sér. Sig
fús í Heklu gerðí það strax og síð
an H. Ben & Co. Hvað dvelur
hina? Það er varla liægt að kom
ast yfir svaðið að dyrum þeirra.
Akurnesingar
Lögtaksúrskurður hefur verið kveðinn upp fyrir öllum
vangreiddum útsvörum, aðstöðugjöldum og fasteigna-
gjöldum til bæjarsjóðs Aikraness.
Lögtök munu því verða tékin hjá hlutaðeigendum, að átta
dögum liönum frá birtingu þessarar tilikynningar.
Akranesi 25.8. 1965.
Bæjarritarinn.
Kaupfélagsstjórastarf
Kaupfélagsstjórastarfið hjá Kaupfélagi Skagstrendinga,
SkágaslTÖnd er laust til umsókíiar frá og með 1. nóvem-
her n.k.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf og kaup-
kröfu óskast sendar til formanns félagsins Jóhannesar
Hinrikssonar, Ásholti, Skagaströnd eða starfsmannastjóra
Sambands ísl. isamvinnufélaga, Jóns Arnþórssonar,
Reykjavík.
Starfinu fylgir leigufrítt húsnæði með Ijósum og hita.
Umsóknarfrestur er til 15. sept. n.k.
Stjórn Kaupfélags Skagstrendinga,
Skagaströnd.