Alþýðublaðið - 26.08.1965, Side 6
LUGEINN
ENN UM FRJOSEMI
Tvær óléttar mæður, sem hlot
ið hafa meðferð til að auka frjó
semi í dýragarðinum í Londön eru
nú taldar líklegar til að eignast
fleiri en eitt afkvæmi .
Hér er um að ræða tvö dádýr, og
skýrði dýralæknir garðsins David
.Taylor, svo frá í vikunni, sem
leið, að bæði dýrin væru óvenju
þung á sér. Fyrri tilraunir til að
fá dýr af hjartaætt til að eignast
afkvæmi í dýragörðum, hafa ekki
tekizt.
Þessi velheppnaða niðurstaða
með dádýrin — sem mjög er erfitt
að fá til að tímgast í vörzlu —
bendir til að meðöl til aukningar
frjósemi — er hingað til hafa
aðeins verið notuð við konur —
geti einnig komið að notum, þegar
um er að ræða að fá dýr, sem
hætta er á, að deyi út, til að tímg
ast, sagði talsmaður dýragarðsins.
Einkum á þetta við um þær dýra
tegundic, sem nú eru aðeins til
í dýragörðum víða um heim, en
ekki lifa lengur villt.
Af fjórum dádýrum, sem nú eru
í dýragarðinum í London, eru þrjú
kvendýr og eitt karldýr. Karldýr
ið hefur fengið karlkyns hormóna
en kvendýrin lyf, sem auka frjó
semi hjá konum.
Sömu aðgerðum hefur verið
beitt við indverska antílópu og
tvö vörtusvín frá Vietnam, en enn
verður ekki séð hvern árangur
þæi' aðgerðir bera.
Taylor dýralæknir er samt mjög
bjartsýnn að því er varðar notkun
hormónalyfja til að vernda sjald
gæfar dýrategundir frá því að
deyja út.
■
•'i‘
I, " ;
•• • ' .
■
■
' '
•7 íPllÍs. ’-lffi’
IHMmmé
é . ‘li:1 ■ I
VM
ll.lliiil
fijf
. m. iV ;■
‘ • • •
■k.vV-wvV-;'
■H
Wjí
ÞETTA er hin 19 ára gamla Mia Farrow, dóttir leikkonunnar
Maureen O-Sullivan, en stúlkukind þessi, sem kvað hafa fengið nokk
ur smáhlutverk í kvikmyndum hefur upp á síðkastiö verið mjög orð
uð við hin fimmtuga sln síunga ungkarl Frank Sinatra. Sumir
telja, að þau hafi í hyggju að giftast, en Sinatra er áöur tvígiítur.
ÞESSI mynd er úr fyrstu og einu fjarstýrðu námu hcimsins —
en þaö er kolanáma í Bevercoto Colliery í Englandi. Náma þessi
framleiðir eina og hálfa milljón tonna af kolum á ári hverju, en
samt vinna þar ekki nema 700 menn. Er þetta fjarstýrisútbúnaðin-
um að þakka, sem bæði vinnur verkið að nokkru og auðveldar það.
Myndin er tekin í stýrisherbergi þessarar sérstæðu námu. Eins og
sjá má er námuverkamaðurinn á myndinni hreinn og þrifalegur sam
■anborið við það sem tíðkast um námuverkamenn í venjulegum
námum.
Áfengi og
flugferðir
TVEIR amerískir læknar — dr.
Joe Nettles og dr. Robert Olson —
telja, að banna beri gjörsamlega
alla neyzlu áfengra drykkja um
borð i farþegaflugvélum. Báðir
telja læknarnir sig hafa vissu fyr-
ir því, að eitt einasta whiskyglas,
þegar menn séu á flugi, geti orð-
ið spurning um líf eða dauða.
Áætiunarvélar nú til dags
fljúga í 10.000 til 13.000 metra
hæð. Jafnþrýstiklefarnir sjá svo
um, að súrefnismagnið í klefanum
er stöðugt, en ef einhver bilun
'.yrði, yrðu farþegar að reiða sig á
| súrefnisgrímur, segir dr. Olson.
i Læknarnir hafa gert tilraunir
|með 20 karlmenn á aldrinum 20
t til 32 ára. Mennirnir voru settir í
j jafnþrýstiklefa með súrefnisgrím-
: ur á sér. Þegar súrefnismagnið var
! fært í það horf, sem ríkir í 10.000
metra hæð, voru súrefnisgrímurn-
ar teknar af þeim. Mælt var hve
lengi mönnum tækist að halda
meðvitund, og athugað var hve
mörgum þeirra tækist að setja á
sig súrefnisgrímurnar, áður en
þeir misstu meðvitund.
Síðan var sama tilraun gerð
með mennina eftir að þeir höfðu
allir fengið eitt glas af whisky að
drekka. Það kom í ljós, að við-
bragðsgeta mannanna hafði
minnkað um 40—45%.
Læknarnin Olson og Nettles
telja sig hafa sannað svo ekki
verði um villzt, að sá maður, sem
er undir áhrifum áfengis og vei-ð-
ur fyrir súrefnisskorti, hafi tals-
vert miklu minni möguleika á að
bjarga sér en sá, sem ekki hefur
bragðað áfengi.
Telja læknamir, að ekki eigi
að veita neitt áfengi í farþegaflug-
vélum í áætlunarflugi, og ekki
eigi heldur að framreiða neitt á-
fengi í biðsölum í flughöfnum.
ÞAÐ eru fjölmargir frægir kvik-
myndaleikarar, sem eiga afmæli í
ágústmánuði og má þar fyrsta
fræga telja JOHN SAXON, sem
varð 32 ára þann 4. og sama dag
varð ROBERT TAYLOR 54 ára.
6. ágúst varð svo ROBERT MIT- j
CHUM 48 ára og LUCILLE BALL j VIÐ skýrðum frá því fyrr í sumar,
54. CONNIE STEVENS varð 27 að um þessar mundir er haldin í
Evropuraðið
og Karl mikli
ára þann 8. og PER ASPLIN og
EDDIE FISHER urðu báðin 37 ára
þann 10. ágúst.
vestur-þýzku borginni Aachen mik-
il sýning, sem vekja mun mikla at-
hygli allra þeirra, er áhuga hafa
ÞETTA er franski leikarinn Charles Aznavour, sem við’ þekkj-
um vel úr íslenzkum kvikmyndahúsum, nú síðast úr „Skjóttu píanist
ann“. Hann er hér með festarmey sinni, sem er sænsk, frá Kalmar í
Svíþjóð, og heitir UHa Thorsell. Þau virðast hafa höndlað hamingj-
una eftir svipnum að dæma, enda dveljast þau um þessar mundir í
Saint Tropez og hlusta á djazz á kvöldin.
á Karlamagnúsi, einhverjum til-
komumesta höfðingja miðalda.
Sýningin er haldin að tilhlutan
Evrópuráðs og verður opin fram í
miðjan september. Miðast hún við
að gera mönnum Ijósan persónu-
leika Karls mikla, störf hans og
áhrif. Ástæðan til þess, að Aachen
var valin til sýningarinnar er sú,
að þar var höfuðborg hins víð-
lenda ríkis Karls mikla og enn
liggur hún miðsvæðis, rétt við
landamæri Hollands, Belgíu og
Frakklands.
Meginhluta sýningargripanna
hefur verið komið fyrir í hinum
svokallaða krýningarsal í ráðhús-
inu i Aachen, en það var á sínum
tíma byggt á þeim stað, þar sem
höll Karlamagnúsar stóð. Enn-
fremur er gripum komið fyrir í
súlnagöngum, er liggja til dóm-
kirkjunnar þar rétt við.
Á sýningunni fá menn nokkuð
að kynnast þeirri menningu, sem
umlukti keisarahirðina á árunum
768 til 814, menningu, sem til-
einkaði sér atriði frá ýmsum þjóð-
löndum, eins og Englandi, Ítalíu
og Spáni og varð því fyrsta Evr-
ópumenning í sögunni.
Meðal hins mikla fjölda liluta,
sem sýndir eru, eru falleg, upp-
lýst handrit frá miðöldum, smíðis-
hlutir úr gulli, bækur, gripir úr
fílabeini, austurlenzk skjöl og kort,
Framhald á 10. síðu.
£ 26. ágúst 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ