Alþýðublaðið - 09.09.1965, Page 2
heimsfréttir
S2/....siáastiidna nótt
★ NÝJU DELHI: — Styrjöld Indverja og Pakistana harðnaði
cnn í gær. Indverskar ‘hersveitir fóru yfir landamærin á tveim r
fitöðum og pakistanskir fallbyssubátar serðu ánásir á indverskan
ttiafnarbæ.
★ LONDON: — Brezka stjórnin tilkynnti í gær, að hún hefði
foannað sendingar vopna og hergagna til Indlands, en engin brezk
vopn eru seld til Pakistans. Franska stjómin skoraði á Indverja og
Pakistana í dag að láta skynsemina ráða áður en bað væri um sein
an. U Thant, aðalframkvæmdastjóri Sþ heldur áfram ferð sinni
til Pakistan og er væntanlegur þangað á morgun.
★ PEKING: — Kínverjar sendu Indverjum í gær orðsendingu
jþar sem þeir mótmæla harðlega yfirgangi Indverja á landamærun-
um.
★ PARÍS: — De Gaulle forseti heldur 12. blaðamannafund
einn sem forseti Frakklands í dag. Hann anun væntanlega láta i Ijós
ekoðun sína á deildunni innan EBE og mun einnig ræða NATO ög
Vietnam.
★ AÞENU: — Hægri leiðtoginn Kanellopoulos lagði lil í gær
að flokkur hans. Þjóðlega rótttaka sambandið, og flokkur Papan-
dreous, Miðsambandið, mynduðu bráðabirgðastjórn, samkvæmt á.
reiðanlegum heimildum. Hins vegar eru litlar líkur taldar á að
eamvinna geti tekizt með 'þessum tveimur stærstu stjórnmálaflokk
ium Grikklands
★ TEIIERAN: — Shahinn í Persíu skoraði í dag lá allar þjóðir
Iieims að draga úr hernaðarútgjöldum og verja sparnaðinum til
haráttunnar gegn fáfræði. Shahinn kom fram með þessa áskorun er
UNESCO-ráðstefnan hófst í Telieran í dag.
★ BELGRAD: — Utanríkisráðherra Dana, Per Hækkerup,
ræddi við Tito Júgóslavíuforseta lá Brioni í |gær.
★ PARÍS: — Franska stjórnin lagði fram ný fjárlög í gær.
Tekjuafgangur nemur 140 milljónum franka og stingur þetta í
fitúf við halla á fyrri f járlögum, einkum 1956 oig 1957. Búizt er við
að þjóðarframleíðslan aukizt um 6.4% eða jafnmikið og geit var
ráð fyrir á síðustu f járlögum. Á fjárlögunum er gent ráð fyrir skatta
lækbunum.
★ DA NANG: — Bandarískir landgönguliðar felldu 66 Viet-
conghermenn í gær er þeir sprengdu ineðanjarðarbyrgi skæruliða
. í loft upp. Þetta gerðist í samræmdum aðgerðum stjórnarhermanna
cg landgönguliða á skaga einum um 128 km. sunnan við Da Nang.
★ BERLÍN; — Vestur-Þjóðverjar hafa ekki fallizt a ti’iögu
Austur-Þjóðverja um að viðræðum um nýjan samning á ferðum
til Austur-Berlínar 9. iseptember verði haldið áfram. Ekki er búizt
við nýjum viðræðum fyrr en eftir Vestur-þýzku kosningarnar.
STÓRORRUSTA
í VBETNAM
Ruddust um borð í skip
og slösuðu skipverjana
DA NANG, 8. september (NTB-
Reuter). — Bandarískir landgöngu
tiðár felidu 66 Vietconghermenn I
dag er þeir sprengdu neðanjarðar
|»yrgi í loft upp 218 km sunnan við
Pa Nang. Þar me'ð hafa 127 skæru
,Iiðar fallið í samræmdum aðgerð
Um bandarískra landgönguliða og
fSuður-vietnamiskra hermanna
Begn Vietcong á skaga einum sunn
an við Da Nang-stöðina f Quang
Nam-héraði.
Hér var um að ræða hörðustu
ibardaga í Quang Nam-héraði um
f'ins árs skeið ög úrvalssveit úr
Suður-Vietnamher hefur ekki orð
ið fyrir eins miklu imannfalli um
tþriggja ára skeið. Skæruliðarnir.
(sem tóku þátt í bardögunum,
Iiöfðu dvalizt á þessum slóðum í
unarga mániuði en aldrei átt í
' heinum vopnaviðskiptum við
tstjórnarhermenn. Skæruliðar
iögðu á flótta í gærkvöldi eftir
að bandarískar þotur komu stjórn
arhermönnum til hjálpar og voru
að lokum lokkaðir í gildru, sem
Frh. á 15. síðu.
Reykjavík. — KB.
í NÝLEGU blaði af Fiskaren,
norsku sjávarútvegsblaði, segir,
að nýlega hafi farizt síldarskip,
sem bar hið kunnuglega nafn: ís-
lendingur. Skip þetta var 134
tonna stálskip, nærri því 60 ára
gamalt, smíðað 1906, en endur-
byggt og lengt árið 1951. íslend-
ingur var á heimleið frá miðunum
við Hjaltland, þegar það fékk á
sig sjó og lagðist á hliðina. —
Áhöfninni tókst að rétta skipið við
Reykjavík OÓ.
AÐFARANÓTT mánudags sj.
laust fyrir kl. þrjú réðust þrír ung
ir Akureyringar um borð í síldar
Göngur
eru að
Reykjavík. — ÓR.
ÞESSA dagana eru göngur og
leitir almennt að hefjast, en réttir
verða svo fljótlega upp úr miðjum
september. Nú er orðinn siður að
hefja leitir og halda réttir ein-
hvern vissan mánaðardag í sept-
ember, en áður fyrr var allt slíkt
miðað við þennan eða hinn dag-
inn í ákveðinni viku sumars.
Fyrstu leitarmenn hér sunnan
heiða fara af stað í dag og leita
svæðið á milli Hvftár og Þjórs-
ár, en það munu vera lengstu
Hafið smið á
Neskaupstaður, — JS, — ÓTJ.
FREMUR er dauft í atvinnulífinu
hérna, nema helzt hjá þeim sem
stunda byggingarvinnu. Um miðj
an ágúst var byrjaff á dráttarbraut
inni nýju, og er veriff aff rífa niff
ur gömlu veggina. Þaff er pólskt
fyrirtæki sem útvegar vélarnar,
cn þær koma líkiega ekki fyrr en
næsta sumar. Svo er veriff aff
byggja myndarlegt barnaheimili,
og Friffrik Vilhjálmsson er vel á
veg kominn meff netaverkstæði
sitt, sem er geysistórt og glæsilegt
Batnar öll affstaffa tii mikiila muna
þegar þaff verffur teki'ff í notkun
Einnig er ráffgert aff byggja nýtt
símstöffvarhús, og íþróttahús, en
ólíklegt aff framkvæmdir viff þaff
hefjist fyrr en næsta sumar.
aftur, en fljótlega lagðist það aft-
ur flatt, enda var síldin þá farin
að renna til í lestunum. Á þess-
um slóðum voru fleiri norsk skip,
og þegar sýnt var, að íslendingi
yrði ekki bjargað, var áhöfnin
flutt yfir í eitt þeirra, og skömmu
síðar sökk hið aldna fley. Þess var
ekki getið í fréttinni, hvers vegna
skipið bar þetta nafn: íslending-
ur, en þess mætti geta til, að það
hafi einliverntíma komið á ís-
landsmið á langri ævi.
skipið Guðmund Þórðarson frá
Reykjavík, þar sem það lá í Akur
eyrarhöfn. Gerðust þeir ærið að
gangsharðir þegar um borð var
og réttir
hefjast
göngur sunnanlands. Fyrir norðan
munu gangnamenn þeir, sem
lengst fara, leggja upp úr Ból-
staðahlíðarhreppi upp á Eyvind-
arstaðaheiði núna á laugardaginn.
Þessir kappar allir koma svo til
byggða um miðjan mánuðinn og
verður þá réttað víða um land.
Því fylgir að sjálfsögðu mikill
gleðskapur og í réttunum hittast
vinir og kunningjar, sem sumir
hverjir hafa ekki sézt síðan í rétt-
unum í fyrrahaust.
Við liringdum í gær í Guðmund
Jósafatsson, fyrrverandi bónda frá
Brandsstöðum, en hann er nú
starfsmaður Búnaðarfélagsins og
er fróður mjög um réttir, göngur
og allt, sem þeim málum viðvík-
ur, og eru upplýsingarnar hér að
framan hafðar eftir honum. —
Margt bar á góma og hafði Gúð-
mundur frá ýmsu að segja, því að
hann hefur verið viðriðinn réttir
og göngur allt frá aldamótum. —
Hann hefur m. a. verið í Stafns-
rétt í Skagafirði árlega frá 1902
og komið í þær fleiri.
í sambandi við fyrstu réttir á
Suðurlandi, sagði Guðmundúr, að
Framhald á 15. síffu
komið og hrutu og brömluðu allt
sem hönd lá festi og slógust upp á
áliöfnina, sem átti sér einskis ills
von. Hlutu margir skipverja
nckkra áverka og einn þeirra hand
leggsbrotnaði í átökunum. Tveim
af lárásarmönnunum tókst skips-
höfninni að koma frá borði og vár
aðeins einn eftir þegar lógreglan
kom á vettvang og tók hann í
vörzlu sína samt félögum hans,
sem gerðu tili'aunir til að brjótast
um borð aftur, en lán árangurs.
Grunur leikur á að Akureyring
arnir hafi þóttst ætla að sækja
stúikur um boi'ð í Guðmuud Þórð
arson, sem þeir héldu að þar værn
að finna, en stúlkulausir fóru þeir
frá borðj og alls óvíst að þær hafl
nokkru sinni verið þar.
Gerðar hafa verið skaðabótakröf
ur lá hendur þessara athafnasömu
manna vegna skemmda sem þeir
ullu um borð í skipinu og áverka
á skipsmönnum.
Allt dautt á
Seyðisfirði
Seyðisfirði, — GB, — ÓTJ.
HÉÐAN er allt slæmt aff frétta.
Tíffin er andstyggileg og atvinna
engin aff ráffi. Engin síld í sjón
um, og bátarnir flestir famir eitt
livað burt. Til þess aff kóróna allt
isaman er svo kuldastormur og
hraglandi dag eftir dag, og ligg
ur viff frosti um nætur. Undan
farin sumur hefur veriff líflegt hér
og nóg aff gera, en nú er allt dautt.
2 sept. 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Kjördæmisþing á Ausluriandi
★ KJÖRDÆMISÞING Alþýðuflokksrns á Austurlandi verður
háð lá Reyðarfirði sunnudaginn 19. september njk. og hefst kl. 2
e.h. Þingið sækja allir trúnaðarmenn Alþýðuflokksins á Austur-
landi. Aðalræðumaður þingsins verður auglýstur síðar. — Kjör
dæmaráð.
Kjördæmisþing í Noröurlandskjördæmi veslra
★ KJÖRDÆMISÞING Alþýðuflokksins í Norðurlandskjördæml
vestra, verður haldið á Sauðárkróki sunnudaginn 12. september. —<
Þingið verður sett klukkan 3 síðdegis að Hótel Mælifelli.
Auk stjórnarkosningar og venjulegra aðalfundarstarfa, verða
rædd hin ýmsu framfaramál kjördæmisins og stjórnmálaviðhorfiff
yfirleitt. {
Á fundinum mæta þeir Eggert G. Þorsteinsson félags- og sjávar*
útvegsmálaráðherra og Jón Þorsteinsson alþingismaður.
RáÖstefna um verkalýösmál á SauÖárMi
★ VERKALÝÐSMÁLANEFND Alþýðuflokksins hefur ákvcðið
að gangast fyrir ráðstefnu um verkalýðsmál 11. og 12. september nk.
Ráðstefnan verður sett að Hótel Mælifelli laugardaginn 11. septem-
ber klukkan 13,33 af Jóni Sigurðssyni formanni verkalýðsmálanefnd-
ar Alþýðuflokksins.
Eggert G. Þorsteinsson, félagsmálaráðherra, flytur erindi, og
síðan fara fram umræður um verkalýðsmálin almennt.
Fyrirhugað er að ráðstefnunni ljúki klukkan 15 á sunnudag, en
þá hefst kjördæmisþing Alþýðuflokksins í Norðurlandskjördæml
vestra. |
ÍSLENDINGUR SOKKINN