Alþýðublaðið - 17.09.1965, Blaðsíða 4
4
E|MStO>
Bitstjórai: Gylíi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. - Ritstjórnarfull-
trúi: Eiður Guðnason. — Símar: 14900 - 14903 — Auglýsingasími: 14900.
AOsetur: AlþýðuhúsiS við Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu-
blaðsins. — Askriftargjald kr. 80.00. — I lausasölu kr. 5.00 eintakið.
Otgefandi: Alþýðufloklcurinn.
MARGT SKRITIÐ
MARGT er skrítið í íslenzíkri pólitík. Nú hefur
Þjóðviljinn skyndilega fengið áhuga á landbúnaðar-
málum og skrifar dyggilega um þau dag eftir dag.
Ekki eru þessi skrif þó um búskapinn sjálfan eða
þá landbúnaðarstefnu, sem fylgt er. Nei, Þjóðviljinn
eyðir rúmi sínu til að ráðast á Alþýðuflokkinn og
telja lesendum sínum trú um, að hann beri ábyrgð
á hækkandi búvöruverði og öðrum erfiðleikum á
því sviði!
Nú vita allir, sem með þessum málum fylgjast,
að ríkjandi stefna í landbúnaðarmálum hefur mót-
azt af yfirboðum Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins og keppni þeirra um 10-15.000 at-
kvæði svemheimifanna. Alþýðuflokkurinn hefur
haldið uppi nokkurri gagnrýni, ekki sízt varðandi
hinar ivaxandi útflutningsuppbætur á landbúnað-
arvöru, og byggist sjónannið flokksins á hagsmun-
um !neytenda. Hins vegar er athyglisvert, að Þjóð-
viljinn hefur til skamms tíma ekki tekið undir á-
bendingar Alþýðuflokksmanna í þessum efnum, en
reynir nú að nota þær til árása á þá.
Úr því að Þjóðviljinn loks hefur fengizt til að
taka þátt í umræðum um þessi mál, vill Alþýðu-
blaðið hérmeð leggja fyrir hann tvær spurningar:
1) Hvernig hefðu kommúnistar ákveðið verð-
lag landbúnaðarafurða, ef þeir hefðu verið í ríkis-
stjórn, þegar Alþýðusambandið dró fulltrúa sinn
úr sexmannanefnd? Hefðu kommúnistar beitt öðr-
um ráðum en stjómin nú greip til? Ef svo, hver
eru þau ráð?
2) Hafa kommúnistar nokkra aðra stefnu í land-
l búnaðarmálum en að þvinga bændur í samyrkju-
bú eða ríkisbú? Hefur reynsla af þessari stefnu ver-
ið góð í Austur-Evrópu?
GLEYMSKA
MORGUNBLAÐIÐ skrifar um almannasamtök
og pólitíska flokka. Gagnrýnir blaðið hin nánu
tengsl samvinnuhreyfþigarinnar qg Framsóknar-
flokksins, svo og tengsl verkálýðshreyfingarinnar
við sósíalistaflokkana tvo. Býsnast blaðið mjög yfir
því, að slík tengsl skuli hafa verið til og telur þau
í hæsta máta óeðlileg.
Morgunblaðið gleymir samtökum kaupmanna,
samtökum útgerðarmanna, samtökum iðnrekenda.
Það gleymir samtökum auðmanna íslands, sem
mæta í árlegu kokkteilboði Sjálfstæðisflokksins,
þar sem þcim er þakkað fyrir stórfé, sem þeir leggja
flokknum til. Það gleymir þeim, sem hafa mokað
auglýsingum í Morgunblaðið og gert það að stór-
veldi, er skapar Sjálfstæðisflokknum pólitíska
sérstöðu, sem andstæðingar hans hafa ekki.
Allt er þetta óeðlilegt, rétt eins og misnotkun
Framsóknarflokksins á samvinnuhreyfingunni.
4 17. sept. 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
m
ÞAÐ ER ÖLLUM kunnugl;, að
margvíslegt brask hefur um lang
an tíma átt sér stað' í húsbygging
ingum og íbúðasölum hér í borg
inni. Það eru ekki aðeins, að bygg
ingameistarai" hafi tekið þátt í
þessu braski, þó að allir séu þeir
ekki undir sömu sök seldir, held
ur hefur braskið ekki síður átt
sér stað þegar seldar hafa verið
eldri íbúðir.
UM ÞETTA ATRIÐI út af fyrir
sig, ræði ég ekki frekar í dag, en
furðulega hljótt er um þessi mál
og þó liggur það í augum uppi,
að það kemur harðast niður á
þeim sem sízt skyldi. Menn hafa
þrælað myrkrana á milli árum
saman og reynt að spara hvern
eyri með það fyrir augum að eign
ast íbúð, en svo eru þeir féflett
ir og standa eftir vonsviknir og
undrandi á þessu og þar í hlut á
fátæk kona, sem hefur verið hlunn
farin.
ÞÁ SÖGU SEGI ÉG ekki, en
af tilefni hennar vil ég segja þetta
Kaupið aldrei íbúð, hvernig svo
sem ykkur lýst á kaupin við fyrsta
og annað samtal. Látið sérfróða ó-
viðkomandi menn skoða íbúðina
og skrifið aldrei undir samning
um kaup meðan nokkuð er í óvissu
Látið lögfræðing sjá um samnings
gerð að öliu leyti, en aldrei fast
eignasalann, sem selur íbúðina.
ÞETTA ER EKKI sagt vegna
þess, að ég sé að saka fasteigna
sala um neiriskonar óreiðu. Þó
eru dæmi um það, að sölufreist
ingin leiði menn afvega og það
er víst mannlegt. — Ég segi þetta
BRIDGESTONE
HJÓLBARÐAR
Síaukin sala
sannar gæðin.
BRIDGESTONE
veitir aukið
öryggi í akstri.
BRIDGESTONE
ávallt fyrirliggjandi.
GÓÐ ÞJÓNUSTA
Verzlun og viðgerðir.
Gúmbarðinn h.f.
Brautarholti 8
Sírni 17-9-84.
★ Braskið í íbúðasölum.
★ Aðvörun til fólksins.
★ Nauðsynlegt að fara varlega.
★ Gjald á Reykjanesvegi.
vegna þess, að mér finnst það blóð
ugt þegar fólk, sem lagt hefur að
sér til þess að safna fyrir útborg
un, sér hana næstum því gufa
upp í höndunum á sér. Það er
nauðsynlegt að fara varlega.
ÁKVEÐIÐ MUN VERA að taka
gjald af vegfarendum um Keflavík
urveginn og verður galdheimtan
nálægt Straumi. Nú þegar hefur
verið auglýst eftir nokkrum mönn
um í vaktavinnu til þess að inn
heimta gjaldið. Þetta verður nokk
uð kostnaðarsamt. Þarna verður
að byggja sæmilegt hús og ýmsar
tilfæringar svo að hægt sé að loka
veginum og opna hann með einu
handtaki. Varla er hægt að hafa
þarna lengri vaktir en sex tíma
og þarf því fjóra menn.
ÉG SÉ EKKI betur en að gjald
ið þurfi að vera nokkuð hátt svo
að það geri ekki aðeins að greiða
stofnkostnað svo og laun starfs
mannanna, sem varla geta orðið
fyrir neðan kr. fimm liundruð
þúsund samtals heldur og kostnað
við veginn sjálfan. Ekki veit ég
hversu margar bifreiðir fara um
veginn á hverjum sólarhring, en
það hljóta vegayfirvöldin að vita.
GJALDIÐ VERÐUR því a3
vera hátt ef það á að koma að
gagni, en ekki get ég ímyndað mér
að hægt sé að taka meira en tutt
ugu og fimm krónur fyrir hvern.
bil. I
Koparpípur og
Fittings,
Ofnkranar,
Tengikranar,
Slöngukranar,
Rennilokar,
BIöndunartækL
Bursfafell
byggingavöruverzlua,
Réttarholtsvegi S.
Sími 3 88 40.
HVERFISGATA 4-6
GARÐAR GÍSLASON H F
1 15 0Ö BYGGINGAVÖRUR
Girðinganet
Galv. girðingastaurar
Girðingalykkjur
Akranesvöllur
Annar úrslitaleikur íslandsmótsins fer fram á morg.
un á Akranesvelii kl. 4 milli
Akurnesinga og Keflvíkinga
Ferðir með Akraborginni kl. 1,30 og til baka að' Ieik
loknum kl. 6,30. —
Verða Akurnesingar íslandsmeistarar í ár?
MÓTANEFND.