Alþýðublaðið - 02.10.1965, Page 9
Oddur A. Sigurjónsson
LAGAR
Efalaust muna margir eftir
söngleiknum „Konungurinn og
ég,” sem fór sigurför um flest
leikhús og kvikmyndasýningahús
um víða veröld fyrir nokkrum ár-
um síðan. Aðalefni söngleiksins
var byggt á atburðum, sem raun-
verulega höfðu skeð, en að vísu
fyrir meira en einni öld síðan. —
Anna Leonowens hét hún og var
kennslukona við -hirð Viktoríu
drottningar í Bretlandi. Hún var
ráðin til konungshjónanna í Sí-
am til þess að kenna börnum
þeirra. — Frímerkið, sem við sjá-
um hér á myndinni,- er af fyrr-
verandi nemanda hennar. Þetta
merki er eitt af fyrstu frímerkj-
unum í Síam, gefið út 1883. Á því
eru síönsk skrifteikn, sem eru
flestum Evrópubúum óskiljanleg,
nema þá tungumálasérfræðingum
ef til vill.
— Þegar Anna Leonowens kom
til Síam, hét konungur landsins
Maha Mongkut, en myndin á frí-
merkinu er af syni hans, Chula-
Ipngkorn. Á þessum tíma, sem
Anna kom til Siam, mátti heita
svo, að landið væri algerlega lok-
;að land fyrir ferðamönnum frá
Evrópu. Þó kom það stöku sinnum
fyrir, að brezkir, og þá sérstaklega
ótrauðir ferðamenn, komust þar
inn fyrir landamærin. Kennslu-
konan Anna Leonowens gerði
meira en kenna kóngsbörnunum
hirðsiði og hoilar lífsreglur. Hún
vann einnig að því, þótt í eins
konar dularbúningi væri, að upp-
ræta þá fordóma og gamla trú
eða ótrú á því, að hleypa evróp-
iskri menningu inn í landið. Henni
varð furðu mikið ágengt í þessum
efnum. Það sést bezt á því, að
þegar konungssonurinn, sem hún
hafði kennt, sem barni, tók við
völdum 1868, reyndist hann miklu
frjálslyndari í mörgum eða flest-
um efnum, en fyrirrennarar hans
höíðu verið. Chulalongkorn kon-
ungur afnam t.d. þrælahald í
ríki sínu. Hann endurbætti einnig
mikið póstþjónustuna í Síam, sem
vægast sagt hafði verið langt á
eftir tímanum, og hann lét gefa út
fyrstu frímerki landsins. Það var
árið 1883. Liklegt er, að hann hafi
er hann var nemandi Önnu, oft
séð frímerki á bréfum, sem til
hennar bárust á bréfum frá Eng-
landi. Þau voru með mynd drottn-
ingarinnar ensku, og á síömsku
merkjunum var einnig mynd af
þessum konungi, en hann ríkti
mjög lengi, eða til ársins 1910.
Árið 1908 voru þau yfirprentuð
vegna 40 ára ríkisstjórnarafmælis
konungs. En bak við þessi gömlu
síömsku frímerki sjáum við mynd
hinnar hugrökku ensku kennslu-
konu, sem ein síns liðs vogaði sér
inn í hið lokaða land, Síam, og j
hafði þar þau uppeldisáhrif á !
prinsinn, að hann tók upp miklu ;
frjálsari stjórnarstefnu en áður
þekktist þar í landi, og vafalaust
liefðu frímerkjasafnarar, sem nú
skoða albúm sín með gömlu sí-
ömsku merkjunum, ekki átt þau
alla leið aftan frá 1883, hefði Anna
aldrei til Síams komið. Sennilega
væru þan fyrstu þeirra allmiklu
yngri að árum, en raunin er á.
Síam er land langt austur í As-
íu, ekki langt frá Vietnam, þar
sem stöðugur ófriður geisar. Von
andi berst hann ekki til þessarar
friðsömu þjóðar. Síam er stundum
nefnt land hinna hvitu fíla. Það
var þar, sem kaupsýslumaðurinn
danski. H. N. Hansen stofnaði Au.-
Asiufélagið, sem varð risafyrir-
tæki. Þess má að lokum geta, að
Síam iiefur nú breytt um nafn og
heitir nú Thailand. Það nafn hefur
staðið á frímerkjum þess síðan
1950.
Skólarnir eru að hefja störf og
senn þyrpist æska landsins þang-
að, til þess að auka nokkuð við
kunnáttu sína og búa sig á þann
hátt undir lífsbaráttuna, sem bíð-
ur hvers og eír;s.
Við, sem að kennslu störfum,
vonum að veran í skólunum færi
nemendurna ofurlítið fram á við
— í öllum skilningi.
Vissulega er gleðiefni að sjá
æskurjóð andlitin á ný og finna
í ys dagsins orkuna ólga og svella
í kringum sig og minnast þess
tíma, er við stóðum í sporum
nemendanna.
En, samt eru þessir tímar ekki
alveg óblandið gleðiefni f.vrir skóla
menn. Látum vera um eril og ann-
ir, sem eru föst fylgja starfsins,
annað þyngir meira. Það er sí-
, stækkandi hópur unglinga, sem
hvergi á höfði sínu að lialla um
| framhaldsnám að loknu unglinga-
í prófi, þótt fullur vilji þeirra sé
fyrir hendi.
Hér á ég við þá, sem aðeins
hafa náð unglingaprófi með tilskil-
inni lágmarkseinkunn, en ekki
náð því marki, sem skólarnir telja
hæfilegt til framhaldsnáms.
Hér er komið að þeim þætti,
sem rangsnúnastur er í öllu skóla-
kerfinu. Hvers á þetta fólk að
gjalda?
Þess, og þess eins, í flestum
tilfellum, að það hefur ekki hlot-
ið nægilegan námsþroska á venju-
legum aldri til að standast kröf-
urnar, sem til þess eru gerðar.
Hér er níðzt á þeim, sem sízt
skyldi og með árangri, sem óhjá-
kvæmilega varpar þungum skugga
á unglingsárin og efalaust oft
miklu lengur, máske ævilangt.
Eg hefi áður hér i blaðinu reif-
að þessi mál nokkuð og reynt,
eftir minni getu, að færa fram-
bærileg rök að því, að hér er stefnt
út í hreinan ófarnað.
Eg hefi bent á leið, sem mér
virðist vel fær til þess að létta
verulega róðurinn fyrir hina
þroskaminni. Sú leið er einfald-
lega að skipta námsefni unglinga-
stigsins á þrjá vetur í stað
tveggja. Að vísu yrðu þeir einu
ári lengur að ná unglingaprófi en
hinir þroskameiri jafnaldrar
þeirra, en ég trúi þ'ú, að námið
yrði þeim flestum notadrýgra og
umfram allt yrði miklu oftar sneitt
hjá því skeri, sem nú strandar á.
Gamalt máltæki segir: „Betri
er krókur en kelda,” og mér finnst
a.m.k. tilraunavert að rétta á
þennan hátt hlut þeirra, sem
minna mega sín en skólakerfið
gerir ráð fyrir að sé eðlilegt.
í þessu efni strandar á því
einu, að skólarnir hafa ekki leyfi
til að gera slíka tilraun án þess
að hin háu fræðsluyfirvöld komi
til, en á þeim virðist vera harla
lítil hreyfing í þessu efni.
. Mér dettur stundum í hug, að
spyrja sjálfan mig að því, hvað
allar þessar skýrslur, sem af okk-
ur er heimtað að gera, hafi milpð
raunhæft gildi. Þær tala þó nógu
skýru máli um ástandið, séu þær
lesnar og umfram allt reynt að
draga af þeim raunhæfar ályktan-
ir. Og ég mundi telja, að það væri
reglulega lærdómsríkt fyrir hina
háu herra, að vera í okkar sporum,
þó ekki væri nema eina dagstund
og þurfa að hlusta á kveinstafi ör-
væntingarfullra foreldra, sem
spyrja: „Er þá ekkert hægt að
gera fyrir barnið mitt?” — og
neyðast til að svara: „Því miður.”
Þannig er það okkar hlutskipii
að þurfa að birta bæði þeim og
nemendunum, sem vissitlega
standa okkur ekkert fjær en hin-
ir máttarmeiri, útlegðardóminn,
sem allt hið innra með okkur æp-
ir gegn.
Vel veit ég, að Reykjavíkurbær
hefur gert nokkra tilraun til að
rétta ofurlítið hlut þessa fólks
með stofnun framhaldsdeildarinn-
ar. Skal það raunar ekki vanmetið,
en benda má á, að skaðinn er
skeður áður en til þessa kemur.
Unglingarnir eru þegar guggnaðir
undan þyngri kröfum en þeir ráða
við og það er meinið, sem þarf
að lækna, en ekki setja „hross-
skinnsbót á sárið.“
Við stærum okkur af velferðar-
ríki. Og vissulega hefur efnahag-
ur batnað stórum. Við stofnum
alls konar verndarfélög, og vel sé
Framhald á 15. síBu.
MELKA SKVRTAN ER
SÆNSK ÚRVALSFRAM-
LEIÐSLA.
HVÍTAR í ÞREM
ERMALEN GDUM.
MISLITAR t MÖRGUM
LITUM OG GERÐUM.
melka
H E RRÁDEILD
Austurstræti 14 — Sími 12345
Laugavegi 95 — Sími 23862.
Iðnskólinn í Reykjavík
Bakaranám - Forskóli
Verklegt forskólanám i bakaraiðn hefst i Iðnskólanum í
Reykjavik hinn 15. október. Umsóknir um námsvist þurfa
að berast fyrir 10. október.
Umsókn um námsvist og nánari upplýsingar verða látn-
ar 'í té í skrifstofu skólans tíl 10. október, á venjulegum
skrifstofutíma.
Iðnskólinn í Reykjavík
Landssamband Bakarameistara.
Skrifstofur vorar
verða lokaðar í dag vegna jarðarfarar
Guðmundar Vilhjálmssonar
fyrrverandi framkvæmdastjóra, varafor-
manns Vinnuveitendasambainds íslands.
Vinnuveitendasamband íslands.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 2. okt. 1965 $