Alþýðublaðið - 02.10.1965, Qupperneq 11

Alþýðublaðið - 02.10.1965, Qupperneq 11
•v-’.-vr S 111 BM|c7^.>.Ærv 'yý/W^'-w ?í\r>tut-‘ P'1'1 d c/'C/'i- 'i Sí '' H '■ ■■ ’ á...........jrf hbbsæw, i ;i; ís& / '•' / p /gra W$M$h $-M mmMmm miammrn. ■ • ‘ ’■ 'v-Y; ; c •«•« - \ . • .' * 'i -. r*- 1 ■ - - • URSLITALEIKIR Bikarkeppni KKÍ fer fram um helgina. Alls hófu 16 lið keppni, um allt land, en til úrslita leika fjögur, Ármann, Körfuknattleiksfélög ísafjarðar, Umf. Selfoss og íþróttafélagið Þór Akureyri. Keppnin hefst kl. 20.15 annað kvöld og þá leika Ármann og ís- firðingar og Ungmf. Selfoss og Tilkowski knatt- spyrnumaður árs- ins í V-Þýzkalandi HANS Tilkowski úr félaginu Bor- ussia Dortmund var kjörinn „Knattspyrnumaður ársins” af Vestur-þýzkum íþróttafréttamönn- um. Tilkowslti hlaut 147 atkvæði, en næsti maður, Júgóslavinn Peter Kadenkovic hlaut 90 atkvæði. Uwe Seeler, sem kjörinn var 1960 og 1964 varð nú fimmti með 34 at- kvæði. Viðurkenningin, gullknött- ur og hinn gyllti hringur verður afhent Tilkowski í dag. Norsk skautastúlkd ÞÓ AÐ ENN sé sumar eru ýmsir farnir að undirbúa sig fyrir keppnistímabil vetrar- íþrótta. Þessi fallega stúlka, Sissel Horgen, Osló æfir list hlaup á slrautum á Jord.'n svæðinu. Þór, Akureyri. Á sunnud. leika saman liðin, sem tapa kvöldið áður, en til úrslita leika liðin, sem sigruðu. ífyróttamót í Mexikó 11. til 17. október nk. Mexíkanar efna til íþróttamóts dagana 11. til 17. október næst- komandi, og til þessa hafa á annað hundrað erlendir þátttakendur til- kynnt komu sína til Mexíkó. Rúss- ar eru fjölmennastir, senda 40 keppendur, Ítalía sendir 22, Japan 14, Spánn 11, Frakkland 7, Rúm- enía 7 og Finnland 3. Mótið er liður í undirbúningi Mexíkana fyrir Olympíuleikana 1968. Rúmenía vann Noreg 120,5-90,5 Rúmenía sigraði Noreg í frj. íþrótt um með 120.5 stigum gegn 90.5. Af norsku liðsmönnunum vakti Bunæs mesta athygli, hann sigraði í 200 m. á 21.0 sek., aðeins 1/10 úr sek. lakari tími en met hans sett fyrir fimm árum. Krogh sigraði í sleggju kasti með 62.79 m. og Skjelvaag í 400 m. grindahlaupi á 51.9 sek. Norðmenn eru mjög óánægðir með árangur sinna manna í keppninni, en þess má geta, að þeir sigruðu Rúmeníu í fyrra. Þjálfarar KR og Akurnes- Inga spá tvísýnum leik LEIKUR Akurnesinga og KR-inga um íslandsmeistaratitilinn í knatt- spyrnu fer fram á Laugardalsvell- inum á morgun og hefst kl. 3. All- ir knattspyrnuunnendur eru að vonum mjög spenntir fyrir leikn- um, við vonumst eftir góðu veðri og spennandi leik, ekki síðri þeim, sem við sáum á sunnudaginn var. ★ ÞETTA VERÐVR TVÍSÝNT SAGÐI GUÐJÓN Við hringdum til Akraness í gær og tókst að ná tali af Guðjóni Finnbogasyni, þjálfara Skaga- manna, en hann var á hraðferð, leikmennirnir voru allir á leið til æfinga og ekki mátti tefja þjálfar- ann. — Það er ekki gott að segja, hvernig þetta fer, sagði Guðjón, við búumst auðvitað við því bezta. Allir okkar beztu menn verða með og liðið befur undirbúið sig af kost gæfni í vikunni. Guðjón sagði, að allir leikmenn- irnir væru heilir og ákveðnir í að gera sitt bezta, spurningin væri aðeins sú, hvort það dygði. AKURNESINGAR ERU STERKIR, sagði Guðbjörn. Við hringdum einnig í Guðbjörn Jónsson þjálfara KR. Hann sagði, að KR-ingar væru bjartsýnir, en gerðu sér jafnframt ljóst, að lið Akurnesinga væri sterkt og erfitt að sigra það. — Okkur hefur gengið illa með Akurnesinga í sumar, sagði Guð- björn, en við teljum okkur samt írú um, að sigurinn verði okkar, þar til flautað verður af. ★ LIÐIN A MORGUN KR: Markvörður Heimir Guðjóns-' son, hægri bakvörður Ársæll Kjart ansson, vinstri bakvörður Bjarnl Felixson, hægri framvörður Krist-; inn Jónsson, miðframvörður Hörð-: ur Felixson, vinstri framvörður j Sveinn Jónsson, liægri útherjl Gunnar Felixson, hægri innherjÞ Einar ísfeld, miðherji Baldvin i Baldvinsson, vinstri innherji, El(- ert Schram og vinstri útherji Guð mundur Haraldsson. Guðbjörn Jónsson, þjálfari KR, sagði að Sveinn Jónsson væri slæmur i baki og ekki væri víst, að bann gæti leikið með. Framh. á 14/síðu. GUÐJÓN FINNBOGASON Þetta verður tvisýnt Úrslitaíeikir bikar- keppni um helgina MARGAR efnilegar stúlku? hafa komið fram í frjálsum íþróttum undanfarið. Myndin er tekin á Landsmóti UMFÍ í sumar og það er Lilja Sigurð ardóttir, HSÞ, sem er að stökkva hástökk. Lilja tók miklum framförum í sumar og var m. a. í landsliðinu, sem keppti við Skotland í ágúst- mánuði. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 2. okt. 1965 ||

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.