Alþýðublaðið - 07.10.1965, Qupperneq 1
7
Fimmtudagur 5 október 1965 - 45. árg. - 225. tbl. - VERD 5 KR.
Rannsókn gerð hjá
122 gjaldendum
ALÞYÐUBLAÐINU liefur bor
izt fréttatilkynning- frá Fjármála-
ráðuneytinu í tilefni skrifa Þjóð'-
viljans um starfsemi skattrann-
sóknadeildar við embætti ríkis-
skattstjóra. Segir í tilkynningunni,
að dcildin hafi byrjað rannsóknir
hjá 166 gjaldendum, og lokið rann
sókn 34 mála. en af þeim var í
11 tilfellum ekki tilefni til frek-
ari aðgerða. 23 málurn hefur ver
ið vísað til meðferðar hjá ríkis-
skaítanefnd, og hefur* hún af-
greitt 7 af þeim málum.
Tilkynning ráðuneytisíns fer
Jiér á eftir:
Vegna ritstjórnargreinar í dag.
blaðinu „I>jóðviljinn“ 5. þ. m.
þar sem spurzt er fyrir um störf
skattrannsóknadeildar við eni-
bætti ríkisskattistjóra og jafnframt
Nokkrir árekstrar
l';
Reykjavík, ÓR.
NOKKRIR árekstrar voru hér í
borginni í gærdag og gærkveldi,
en ekki urðu slys á mönnum. Taldi
lögreglan, að bílamir, sem til sýn
is eru víða um bæinn, stórskemmd
ir eftir árekstra og veltur hefðu
þegar haft áhrif í þá átt að bæta
umferáarmenninguna. Nokkur ölv
un var á götunum í gærkveldi, en
þó ekki meiri en venjulegt er í
miðri viku.
gefið í skyn, að stofnun skatt-
sektanefndar hafi verið linun á
fyrri málsmeðferð skattlaeabrota
og til þess ætluð að „semja í
kyrrþey" við hina seku , telur fjár
málaráðuneytið rétt að taka fram
eftirfarandi:
Stofnun skattrannsóknadeildar
við embætti ríkisskattstjóra á ár-
inu 1964 var til þess ætluð að
vinna kerfisbundið að því í sam
vinnu við önnur skattyfirvöld í
landinu, að reyna að uppræta hin
víðtæku og alvarlegu skattsvik,
sem því miður um langan aldur
hafa átt sér stað og eru vissulega
mi-kil þóðfélagsmeinsemd.
Það er hafið yfir allan efa, að
í embætti ríkisskattstjóra og skatt
rannsóknastjóra hafa valizt hinir
hæfustu menn, sem ötullega hafa
unnið að því að Skipuleggja sem
bezt sín vandasömu störf. Rann-
sóknir skattamála eru oft mjög
umfangsmiklar og því ekki þess
að vænta, að á skömmum starfs-
tíma rannsóknadeildarinnar hafi
tekizt að upplýsa mikinn fjölda
skattsvikamála. Hins vegar hefir
verið að þessum málum unnið á
skipulegan hátt, sem mun væn-
legri er til árangurs en handahófs
kenndar athuganir, og leitazt við
að finna úrræði til þess að 'gera
mönnum erfiðara fyrir um röng
framtöl.
Það er engum efa bundið, að
starfsemi rannsóknadeildarinnar
hefir þegar haft jákvæð áhrif á
framtöl manna.
Rannsóknastörf sem þessi eru
Framhald á 10. síðu-
Víti til varnaðar í>
Það er hafin herferð gegn um
ferðaslysunum. Einn liður í henni
er að stilla upp á almannafæri
flökum af bifreiðum, sem eyði-
lagzt hafa í árekstrum. Myndin
hér til hliðar er af leigubifreið-
inni sem þrír ölvaðir unglingar
óku á fyrir nokkrum dögum. Flak
ið er til sýnis í Austurstræti. Sjá
nánar á blaðsíðu 3. (Mynd: JV).
RÚMLEGA HÁLFRI
MILLJÓN STOL
Reykjavík. — ÓTJ.
RÚMLEGA hálfri milljón
króna var stolið í innbroti, sem
framið var í verzlunina Krónan,
við Mávahlið 25, í fyrrinótt. Héð-
inn Skúlason hjá rannsóknarlög-
reglunni, sagði Alþýðublaðinu, að
eigandi verzlunarinnar, Guð-
mundur Kristjánsson, hefði
gleymt peningakassanum í búð-
inni, þar sem hann lá á borði í
bakherþergi. Um hádegið í gær-
dag hefði hann svo ætlað að fara
að borga reikning sem komið var
með, en þá var kassinn horfinn.
Héðinn sagði, að farið hefði ver-
ið inn í verzlunina kjallaramegin.
Þar var tekin burl járnplata, sem
var fyrir glugga, og þjófurinn svo
skriðið inn.
— Þetta er í fyrsta skipti, sem
mér verður það á að gleyma kass-
anum, sagði Guðmundur Kristj-
ánsson við fréttamenn Alþýðu-
blaðsins. Eg hefi alltaf haft það
fyrir reglu, að taka hann heim
með mér að kvöldi. En í fyrra-
kvöld vildi svo til, að ég þurfti
að keyra út nokkuð af pöntun-
um, og m. a. heim til sjálfs mín.
Það komu til okkar gestir, og ég
steingleymdi að fara aftur eftir
kassanum eins og ég hafði ætlað
mér. Eg man ekki nákvæmlega
hversu mikið var í kassanum, on
það hefur verið hátt á sjötta
hundrað þúsund króna. Mest var
í ávísunum, sumar mjög stórar,
og ég man ekkert hver gaf þær
út eða á hvaða banka þær voru,
nema þær stærstu.
— Hefurðu einhverja trygg-
ingu við svona löguðu?
— Nei, því er nú verr. Mér hef-
ur verið sagt, að liægt sé að fá
einhvers konar þjófnaðartrygg-
ingu, en ég hefi því miður aldrei
hirt um *það.
Frh. á 10. síðu.
Ráðizt á konu
Reykjavík. — ÓTJ.
DRUKKINN karlmaður réðist á
konu á heimili hennar við Vifils-
götu sl. laugardagsmorgun. Hlaut
hún við það glóðarauga, höfuð-
högg og fleiri áverka. Konan vissi
nafn mannsins og heimilisfang,
og var hann brátt handtekinn af
rannsóknarlögreglunni.
ÞARNA BRAUZT ÞJOFURINN iNN
Gnðmundur Kristjánss. kaupmaðúr í Króuunni, stendur við
glug-gaim, sem þjófurinn fór inn um. — Eg hef aldrefl
g-leymt )íeningakassanum í búðinni fyrr, sagði Guomundur
við fréttamann Álþýðublaðsins.( Mynd: JV).