Alþýðublaðið - 22.10.1965, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 22.10.1965, Qupperneq 2
eimsfréttir sidastlidna nótt ★ SALISBURY: —• Forsætisráðherra Rhodesíu, Ian Smith, Hagði til í gærk\ öldi í boðskap til Harold Wilsons forsætisráðherra Breta, að Wilson og Bottomley samveldismálaráðherra færu tafar ttaust til Salisbury. Áður hafði Wilson sagt í bréfi til Smiths, að fliann og.Bottomley færii til Salisbury einhvern næstu daga. ★ ACCRA: — Átta ríkisstjórnir taka ekki þátt í störfum fáð (Stefnu Einingarsamtaka Afríkurikja í Accra, höfuðborg Ghana, 4>ar eð þau saka Ghana um undirróðursstarfsemi í löndum sín- um. Löndin uu: Chad, Dahomey, Gabon, Filabeinsströndin, Mada- gaskar, Efri-Volta, Togo og Niger. ★ PÁRÍS: — Sendiherra Bandaríkjanna hjá NATO, Cleveland, ekoraði í gær á aðildarríki NATO að taka 'þátt í *kjarnorkuvörnum ðxmdalagsins svo *að !koma megi í veg fyrir útbreiðslu kjarnorku- vopna til landa. sem ekki ráða yfir slikum vopnum. Hann sagði, að innan örfárra ára igætu tíu til tólf riki komið sér upp sjálfstæð lun kjaniorkuiiðum. Atvarleg vandamál gætu skapazt ef NATO- ríkin ikæmu sér ekki saman um sameiginlegar kjarnorkuvarnir. ★ VARSJÁ: — Upphrópanir og skammir milli fylgismanna Rússa annars vegar og fylgismanna Kínverja (hins vegar settu svip Binn á fundi aiþjóðaverkalýðssambands kommúnista í Varsjá í gær. Fulltrúar Rússa gengu tvívegis af fundi. ★ STOKKHÓLMI: — Einum japönskum og þremur banda- rlskum vísindamönnum var í igær veitt Nóbelsverðlaun. Nóbelsverð laununum í eölisfræði var skipt tmilli Japahans Tomonaga og tBandarikjamannanna Julian Schvvingers og Richard P. Feymans. Bandaríkjamaðurinn Robert Burns Woodward hlawt Nóbelsverð- launin í efnafræði. ★ SAIGON- — Hermenn Vietcong hörfuðu til skógar í gær eftir að bandarískar flugvéiar hrundu árás þeirra á toandarísku her Stöðina við Fleik Me. Hér var um að ræða einhverja mestu loft- íarás Vietnamstríðsins. ★ WASHINGTON: Johnson forseti hélt aftur til Hvíta húss- insj í gær frá sjúkrahúsinu í Bethesda þar sem (gallblaðran var tek ín úr honum 8. október. Eftir nokkra daga fer hann til búgarðar SÍns í Texas. ★ HAMBORG: — 23. ára gamall austur-þýzkur vélfræðingur flúði til Vestur-Þýzkalands í lítilli flugvél í gær. Hann lenti heilu tog höldnu skammt frá Láuenberg við Hamborg. ★ KENNEDYHÖFÐA: — Veðurfræðingar spá hagstæðum veð tirskilyrðum þegar „Gemini 6“ verður skotið frá Kennedyhöfða á mánudag með tveimur geimförum innanborðs. Agenda-eldflaug verður skotið 101 mínútu á Undan „Geimini" og mikilvægasti lið- ur tilraunarinnar verður sá, að láta geimfarið og eldflaugina mæt ast í geimnum. Geimferðin stendur í tvo sólarhringa. Geimfararnir Cru Walter Schirra og Thornas Stafford. Verðtryggingarfrum- varpið rætt í gær Reykjavík. — EG. Stjórnarfrumvarp um verð- tryggingu fjárskuldbindinga kom til fyrstu umræðu í neðri deild í dag og var að lienni lokinni vís- að til fjárhagsnefndar. Efni frum- varpsins liefur áður verið rakið hér í blaðinu, en því er ætlað að vera almenn löggjöf um verð- tryggingu í viðskiptum öðrum en kaupgjaldsmálum. Dr. Gylfi Þ. Gíslason viðskipta- málaráðherra mælti fyrir frum- varpinu í ítarlegri ræðu, sem birt verður í blaðinu eftir helgi. Gerði liann í upphafi máls síns grein fyrir verðbólguþróuninni undan- farna áratugi, og benti á, að hún hefði haft ýmsar óhagstæðar og skaðlegar afleiðingar á íslenzk efnahagsmál og félagsmál, tafið hagvöxt, beint fjárfestingu inn á • óheppilegar brautir að sumu leyti, dreglð úr sparnaðarlineigð og haft ranglát áhrif á tekju- og eignaskiptingu með því að ýta undir skuldasöfnun og ívilna skuldurum á kostnað sparifjár- eigenda. Verðbólgan er margþætt fyrir- bæri, sagði Gylfi, og á henni verður ekki ráðin bót, nema með margháttuðum samræmdum að- gerðum Viðskiptamálaráðherra sagði ennfremur að brýna nauðsyn bæri til að vinna gegn verðbólgu- vandanum og ein þeirra leiða, sem ekki hefði áður verið reynd hér á landi, væri sú, að tryggja verð- gildi sparifjár annars vegar og lána til langs tíma hins vegar, eins og frumvarpið gerir ráð fyr- ir. Tilgangurinn er sá, að örva sparnað með því að koma í veg fyrir verðfall sparifjárins með hækkandi verðlagi, og hins vegar að freista þess að koma í veg fyrir að menn sækist eftir láns- fé til að öðlast verðbólguhagnað og koma í veg fyrir að menn njóti SÝSLURNAR KEPPA f RfKISÚTVARPINU VETRARDAGSKRÁ útvarpsins liefst um næstu helgi. Á sunnu- dagskvöld hefst framlialdið af hinni vinsælu kaupstaðakeppni í fyrravetur, og munu sýslurnar eigast við í vetur, undir stjórn "m SVAVAR - nýr þáttur LAXNESS — Paradísarheimt Birgis ísleifssonar og Guðna Þórðarsonar. Fyrst keppa Múla- sýslur hvor við aðra. Þá sunnu- daga, sem spurningakeppni verð- ur ekKi, mun Svavar Gests flytja nýjan skemmtiþátt. Á mánudagskvöldum verður til skiptis blaðafundur, sem Eiður Guðnason tekur við af Gunnari Schram, tveggja manna tal — (Malthías Jóhannessen og Sig- urður Benediktsson) og Spurt og spjallað undir stjórn Sigurðar Magnússonar. Framhaldsleikrit verða á þriðju dögum og verður fyrst flutt nýtt leikrit eftir Agnar Þórðarson. — Fyrsta útvarpssagan verður Para- dísarheimt Halldórs Laxness, les- in af höfundi. Nýr þáttur verður tekinn upp og á að flytja frægt efni á erlend- um málum, leikrit o. fl. Björn Th. Björnsson stjórnar og verður þetta efni flutt kl. 11-12 á þriðju- dagskvöldum. Meðal annarra nýjunga í vetrar dagskrá útvarpsins má nefna, að Njörður Njarðvík stjórnar sam- ræðuþælti um bækur, — og munu 3—4 menn ræða eina bók í einu. sliks hagnaðar. Þeir sem því fá ] tjón, sem þeir verða fyrir, mefl- ráðstöfunarrétt yfir sparifénu með | þeim liagnaði, sem lánsféð veitiB lánum til lapgs tíma verða því að J í skjóli sömu verðhækkana. bæta sparifjáreigendum upp það ; Frto. a 14. alBu. Myndarlegt hefti af Áfanga komið FYRRA hefti 5. árgangs Áfanga, tímarits Sambands ungra jafnað- armanna, er nýkomið út. Er ritið hið myndarlegasta að vanda, búið nýrri kápu, 58 síður að stærð og vandað í hvívetna. Ritstjóri þess er Sigurður Guðmundsson, for- maður Sambands ungra jafnaðar- manna. Búnað þess annaðist Aug- lýsingastofa Gísla B. Björnssonar. Meðal efnis, er Áfangi flytur nú, eru greinarnar Barátta við hungrið eftir ritstjórann; Guðað á glugga eftir Guðmund Magn- ússon skólastjóra; Lýðræði og rík- isvald eftir Arne Helldén; Jöfn út- svör um land allt eftir Guðjón B. Baldvinsson; Þróun sósíalism- ans eftir Leo Colland; Aukning þjóðarauðs — í hvers hlut? eftir Ivar Sands; Fara almannaþarfir halloka? eftir Erik Ribu; Sósíal- isminn og frelsið eftir Iring Fet scher; Á aldarafmæli Alþjóða- sambands eftir Július Braurithal; Annar áratugurinn, annar hluti a£ sögu Sambands ungra jafnaðar« manna eftir Hörð Zóphaníasson* Hin nýja forsíða Áfanga. Wilson heldur til Salisbury Salisbury og London, 21. okt. (TB-REUTER). Forsætisráðherra Rhodesíu, lan Smith, lagði til í boðslcap til Har- old Wilsons, forsætisráðherra Breta, í kvöld, að Wilson og Pot- tomley samveldismálaráðherra færu tafarlaust til Salisbury. — Smith segist gera ráð fyrir þvi að halda fundi með Wilson og Bot- tomley um helgina. Smith bar fram þessa tillögu í svari við bréfi frá Wilson forsæt-, isráðherra fyrr um dagiun, þar sem Wilson skýrði Smith frá því, að hann og samveldismálaráðherr- ann hygðust halda til Salisbury éinhvern næstu daga. í bréfi sínu, sem svar við á- skorun Smiths um, að Rhodesíu verði veitt sjálfstæði, spurði Wil- son hvort nauðsynlegt væri, að >OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOöOOOOO< Spilakvöld í Reykjavík | ANNAI) spilakvöld Alþýð'uflokksfélaganna verður í kvöld, föstudag í Iðnó og hefst klukkan 8,30. Þetta er fyrsta kvöld ið í þrig.gja kvölda kieppni. Helgi Sæmundsson, formaður Menntamálaráðs, talar uin daginn og veginn. Dans á eftir. — Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og mæta stundvíslega. 6 ÖOOOOOOÓOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO- þeir liéldu áfram að skiptast 5 röksemdum úr fjarlægð nieðan framtíð margra manna væri í ó- vissu. Wilson kveðst reiðubúinn atl ræða við hvern sem er, ef þacj geti orðið til þess að leysa megl hið alvarlega vandamál. „Eg vil að þér gerið yður þess ljósa grein, að eini tilgangurinn með heim- sókn minni er að reyna að finna leið út úr ógöngunum og forða hinum alvarlegu afleiðingum, sem ég annars tel ómögulegt að forð- ast,” segir í bréfi Wilsons til Smiths. Halastjarnan sást ekki vel Halastjarnan niikla, Ikeya-Sekl, fór fram hjá sólinni í dag, en I vigrgum löndum varð fólk fyrir vonbrigðum. þar eð það hafði búr izt við að sjá flugeldasýningu & himninum. í París og í London risu margir úr rekkju fyrir dög« un til þess að horfa á fyrirbærið, en sólin og halastjarnan fólu sig á bak víð ský og sáust ekki. —« Bezt sást halastjarnan í Japan. , 2 22. október 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.