Alþýðublaðið - 22.10.1965, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 22.10.1965, Blaðsíða 14
Glíma Framhald af 11. síðu- Ihgatíma deildarinnar vegna-þess- arar miklu þátttöku og æfa nú drengir á aldrinum 6—15 ára 5 tíma í viku. Þá hefmr þátttaka giímumanna eldri en 16 ára auk- Izt einnig en þjálfari þeirra er Iiínn góðkunni glímumaður Gísli Guðmundsson, en kennari drengja Hörður Gunnarsson. Vegna liins vaxandi áhuga á glímu, sem í Ijós hefur komið í fir ákvað stjórn glímudeildarinn- ftr að efna til kynningar- og sýn- íngaríerðar til Kefiavikur um síð- «stu helgi, eins og fyrr er sagt. Hafa slíkar ferðir áður verið farn- Iftr á vegum deildarinnar, t. d. til jft.kraness — og víðar. Tóku alls ÍS6 gllmumenn þátt í förinni, bæði eldri og yngri, auk stjórnandans Harðar Gunnarssonar. Tókst færðin mjög vel og var Éýnt í Félagsbíói fyrir nær fullu húsi. í upphafi ávarpaði glímu- stjórinn gesti og ræddi gildi glímunnar sem íþróttar og upp- eldisþáttar í íslenzku menningar- jþjóðfélagi í dag. Þá gat hann hins á'byrgðarmikla hlutverks, sem æskunni væri sett á herðar um varðveizlu og iðkun glímunnar á fcomandi tímum og liét á þá yngstu *að sameinast um viðgang þjóðar- íþróttarinnar, glímunnar. Síðan voru sýnd brögð og varnir, léttar glímur og nokkrar kappslimur;___ auk þess að nokkrir fornir leikir Yoru leiknir, m. a. hráskinnaleik- ur, sem þykir skemmtilegur, enda gefur að líta hinar snörpustu við- ureignir knárra manna. Að lokum ■€ór fram bændaglíma. Bændur voru bræðurnir Guðmrfndur Freyr og Valgeir Halldórssynir en hinn fyrrnefndi er Keflvíkingur. Glímt var af miklu fjöri, enda íspenningur meðal áhorfenda. ____ Kauk svo viðureigninni, að heima tnenn urðu hlutskarpari og hlutu í sigurlaun fagran silfurbikar, sem glímt var um. Atvlnnuréttindi Framhald af 3. siðu. uð ákvæðum um lágmarksfjölda vélstjóra. Einnig miðar frumvarp- ið að því að veita réttindi til starfa við aflminni vélar eftir skemmri starfstíma en áður var. Að umræðunni lokinni var frum- varpinu vísað til 2. umræðu og sjávarútvegsnefndar. Nýtt leikrit Framhald af 3. síðu. ur Jóhannesson. Öll eru hlutverk- in viðamikil. Leikstjóri verður Sveinn Einarsson og leikmynd gerði Steinþór Sigurðsson. Jökull kvaðst hafa haft leikritið í smíð- um í þrjú ár, og hefði það verið að mestu leyti tilbúið, þegar það var tekið til æfinga í september síðastliðnum, en þó hefðu verið gerðar á því smábreytingar, og yrði það líklega að breytast þar til á frumsýningu. Húsnæðismál Frh. af 1. síðu. un framkvæmdanefndar til umsjón ar með fjöldaframleiðslu ibúða, framkvæmd verði allsherjar end urskoðun laga um húsnæðismál, vextir lækkaðir ag sérstök heim ild veitt til hækkaðra lána tii efna Íítilla meðlima verkalýðsfélaga. Eggert benti á, að brýna nauð syn hæri til að endurskoða húsa- leigulögin og afnema núverandi IV!,s. Skialdhreið fer vestur um land til Akureyrar 26. 'þ.m. Vörumóttaka á föstudag og árdegis á laugardag til áætlun arhafna við Húnaflóa og Skaga- fjörð, Siglufjarðar, Ólafsfjarðar og Dalvíkur. Farseðlar seldir á mánudag. Við andlát Guðmundar Ólafssonar frá Fjalli Hneigð til sagna og hlý var lund. Hljóðu magni dreginn hefurðu á ragna stórri stund stefnt á þagnarveginn. Gretar Fells. löggjöf, 'því samkvæmt henni gætu sveitarfélög, sem byggðu leiguíbúð ir ekki annað en gerzt brotleg við lög, ef þau vildu leigja íbúðirnar, þannig að þær stæðu undir sann- anlegum kostnaði. Riáðherra skýrði einnig frá því að ríkisstjórni hefði falið húsnæðismálastjórn endur- skoðun laga um verkamannabú- staði og útrýmingu heilsuspill- andi húsnæðis og að sameina þetta tvennt í einn lagabálk, og semja frumvarp til húsa’eigulaga eða fella ákvæði um það inn í önnur lög um húsnæðismál ef þurfa þætti. Gerði Eggert síðan igrein fyrir efni frumvarpsins og skýrði hvers vegna tilraunin til að lækka byggingarkostnað með fjöldafram leiðslu verður gerð í Reykjavík, en það er m.a. vegna þess að hér er 'byiggingarkostnaður hæstur og beztir möguleikar 'á að hagnýta nýjustu tækni. Kvaðst hann von- ast til að frumvarpið fengi greið an gang í gegnum þingið, m.a. vesna þess að ýmis framkvæmda atriði. sem ákveða verður i reglu gerð er ekki unnt að ákveða fvrr en þing hefur afgreitt mál- ið'. Ólafur Jóhannesson (F) talaði af hálfu Framsóknarmanna og Vvað allt gott um frumvarpið að sevia. nema þá fjóröflunarleið, að pirnaskatt skuli miða við fasteigna mat sexfaldað. Lagðist hann ein- dregið gegn því, en láðist þó að aera grein fyrir öðrum f iáröflunar leiðum. en varði löngum tima til að ræða skattamál ag skattsvik, og taldi har þörf aukins eÞirlits. Magnús Jónsson fjármálaráð- herra (S) kvað afstöðu Framsókn ar ekik' hafa komið á óvart í þessu máli. Gott væri að vera með öllu sem til bóta horfði en sjálfsagt að vera á móti fjáröflun til fram- kvæmda. Magnús fór síðan nokkr um orðum um skattsvikin, sem síð ur en svo væru nýtt fyrirbæri, og átaldi Framsóknarmenn fyrir að reyna að gera starfsemi skattrann sóknardeildar tortryggilega í aug um almennings, og væri það lélegt innlegg til þeirra mála. Alfreð Gíslason (K) kvað frum- varpið ekki í einu og öllu vera í samræmi við yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar frá í sumar, og taldi 'til nokkur atriði, er hann taldi renna stoðum undir þá kenningu. Eggert G. Þorsteinsson félags 8KTÚBER 22 tÓQludaistir Langholtsöfnuður: Kyn.iis og spilakvöld verður í safnaðarheim- ilinu sunnudagskvöldið 24. okt. kl. 8.00. Þess er óskað að safnað armeðlimir yngri en 14 ára mæti ekki á spilakvöldunum. Kvenfélag Hallgrímssóknar heldur fund mánudaginn ?5 okt. kl. 8,30 í HSnskólanum. Unnur Hall dórsdóttir flytur erindi. Frú Rósa Blöndal les upp og dr. Jakob Jóns son flytur vetrarhugleiðingu. Kaffidrykkja. Frá GuðspekifélaginU: Baldurs- fundur í kvöld kl. 20,30 í húsi fé lagsins. Guðjón B. Baldvinsson flytur erindi sem hann nefnir; Á leið til Golgata. Hljómlist kaffi veitingar. Gestir velkomnir. málaráðherra talaði síðastur og kvað þessi ummæli Alfreðs á mis- skilningi byggð, og sýndi fram á að svo var. Að umræðunni lok inni var málinu vísað til 2. um- ræðu og heilbrigðis og félagsmála nefndar. Kvénnadeild Skagfirðingafélaga ins í Reykjavík, heldur aðal- og skemmtifund 1 Oddfellow (uppi) miðvikudaginn 27 október kl. 8.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundar störf kaffi og félagsvist. Konur fjölmennið og takið með ykkur gesti. Verðtrygging Framhald af 2. síðu Benedikt Gröndal (A) kvaddi sér hljóðs og kvaðst mundu flytja þá breytingartillögu við frum- varpið, að verðtrygging yrði ekki látin ná til lána út á íbúðir í verkamannabústöðum, sem eru tölutakmörkunum háðar, enda njóta eigendur þeirra íbúða við endursölu ekki þeirra verðhækk- ana, sem verða af völdum verð* bólgunnar. Einar Ágústsson (F) benti á að sparnaður færi minnkandi í landinu, og atvinnuvegirnir ættu ekki kost á hagkvæmum lánum. Verðbólguþróunin hefði mjög skert hlut sparifjáreigenda og yrði að rétta hann. Hann sagði, að frumvarpið þyrfti að athuga gaum gæfilega, og benti á ýmis atriði,. sem hann taldi þurfa nánari at- hugunar við. Einar sagði ennfremur að leggja ætti meiri áherzlu á verð- tryggingu sparifjársins í sam- bandi við þetta frumvarp, en verð tryggingu lánanna. Lúðvík Jósefsson (K) sagði, að margvíslegar verðbólgufram- kvæmdir ættu ríkan þátt í því ástandi, sem hér hefði skapazt. Hann benti á að verðtrygging er þegar við lýði á ákveðnum tegund- um lóna hér á landi og hefði þetta skapað alvarlegan mismun, sem uppræta þyrfti. XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXOOOO < útvarpið Föstudagur 22. október 7.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisútvarp. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 13.15 Lesin dagskrá næstu viku. 15.00 Miðdegisútvarp. 16.30 Síðdegisútvarp. 17.00 Fréttir — Endurtekið tónlistarefni. 18.20 Þingfréttir — Tónleikar. 18.45 Tilkynningar. 39.20 Veðurfregnir. 19.30 Fréttir. 20.00 Efst á baugi Björgvin Guðmundsson og Eiður Guðnason oooooooooooooooooooooooo tala um erlend málefni. 20.30 „Fyrr var oft í koti kátt“: Gömlu lögin sungin og leikin. 20.45 Buddunnar lífæð og börn vor Ólafur Haukur Árnason skólastjóri á Akra- nesi flytur erindi. 21.10 Kammertónleikar í útvarpssal: Fimm blás- arar leika 21.30 Útvarpssagan: „Vegir og vegleysur" eftir Þóri Bergsson Ingólfur Kristjánsson les söigulokin (10). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Mannhelgi, — ritgerð eftir séra Magnús Helgason. Snorri Sigfússon fyrrum námsstjóri flytur. 23.ý5 Næturhljómleikar: Frá tónlistarhátíðinni í Chimay í júlí. 23.40 Dagskrárlok. VQCR Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Steingríms Steingrímssonar, Álfaskeidi 26, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við hjúkrunarfólkinu á Sólvangi fyrir góða aðhlynningu. Lára Andrésdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Faðir okkar Kristinn Steinar Jónsson Laufásveg 50 andaðist 1 Landakotsspítala að kvöldi hins 20. okt. Börn hins látna. Eiginmaður minn Valdemar Hannesson Smyrlahrauni 2 Hafnarfirði, sem andaðist 17. þ.m. verður jarðsettur frá Þjóðkirkjunni í Hafnar- firði, laugardaginn 23. þm. kl. 2 e.h. Fyrir hönd aðstandenda Anna Guðnadóttir. |_4 22. október 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.