Alþýðublaðið - 12.12.1965, Page 9

Alþýðublaðið - 12.12.1965, Page 9
MENN í FRÉTTUM ANDSIÆÐINGAR DE GAULLES SENNILEGT verður að telja, að síðari umferð frönsku forseta- kosninganna 19. desember verði einvígi milli de Gaulles forseta og Francois Mitterands, hins sam- eiginlega frambjóöanda kommún- ista og sósíalista. Hver er Mitterand. Hann er einhver umdeildasti, gáfaðasti- og metnaðargjarnasti stjórnmálamað ur Frakka. Hann er fæddur 1916 í liérðinu Charenta, sem frægt er fyrir framleiðslu á koniaki, og faðir hans var járnbrautarstarfs- maður. Hann lagði stund á lög- fræði, tók nokkur ágæt próf við Sorbonne-háskóla og stjornvís- indaháskólann í París, barðist með sóma í andspyrnuhreyfing- unni gegn Þjóðverjum á stríðs- Mitterand. árunum og varð aðstoðarráðherra í frelsisstjórn de Gaulle, þar sem hann fór með mál er vörðuðu stríðsfanga. ★ RÁÐHERRA 12 SINNUM Hann hefur 12 sinnum verið ráðherra eða aðstoðarráðherra. Mest lét hann að sér kveða sem innanríkisráðherra í stjórn Men- des-France 1954-55 og dómsmála- i'áðlherra í stjúrn Guy Mollets 1956—57. Hann hefur alltaf stað- |ið vinstra megin við miðju í istjórnmálum, ve.ið vinsamlegur kommúnistum en hefur ekki tal- að máli þeirra fyrr en í hinni nýafstöðnu kosningabaráttu, en þó af mikilli varkárni. Ilann hafn- aði NATO eins og skipulagi band- jagsins er nú háttað, en lagðist ekki gegn Efnahagsbandalaginu, Einn af bræðrum hans stendur mjög nærri kommúnistaflokknum. Annar bróðir hans er hérshöfð- ingi, gegnir mjög þýðingarmiklu embætti í kjarnorkuvörnum Frakka og fylgir gaulistum að málum. ★ DULARFULLT TILRÆÐI Hinn kunni rithöfundur, Fran- cois Mauriac, hefur kallað Mitt- erand ,,dæmigerða skáldsagnaper sónu‘ og hann hefur oft verið kall aður „pólitískur kro^sfari.” Ekki ósjaldan hefur hann verið viðrið- in dularfull mál, seip rekja hefur mátt til undirheima franskra stjórnmála og njósna. AðfarajUiójtt hins 16. október 1959, þegar Mitterand var á heim- leið frá skrifstofu sinni, var skot- ið á hann úr vélbyssu frá bíl, sem ók fram hjá honum. Honum tókst með naumindum að bjarga lífi sínu með því að stökkva yfir vegginn fyrir f'aman garð stjömu athuganartöðvarinnar í París. Þett.a mál hefur aldrei verið upp- lýst, en sá b 'áláti orðrómur komst strax á kreik að Mitterand hefði sjálfur sett þetta tilræði á svið. Mál het.ta bar á góma í kosn- ingabp'-"ttunni og ef til vill verð- ur þe^a ennbá meira kosninga- mál á næ tu fjórtán dögum. Á- stæðan er ekki sízt sú, að ýmis- legt vírðist benda til þess. að ákveðið samband sé á milli til- ræði ins 1959 og ránsins á mar- okkanska stjórnarandstöðuleið- toganum Ren Barka í París nú fyrir skemmstu. Fvrrverandi þingmaður úr flokki gaulista. sem fiæktist inn í °amsæri OAS. hinna frægu íþ'vðiuverkapamtaka, Lgegnum sambönd sín við hreyfingu Pou- jadista, og var dæmdur í 20 ára fangelsi að honum fjarstöddum hefur haldið því fram í bréfi til blaðsins ,,Le Monde”, að Mitter- and hafi samið við hann um að setja „til'ræðið” á svið. Maður þessi, Pesquet, sagði einnig, að franska lögreglan hefði heitið hon. um sakaruppgjöf ef hann þegði um málið. Taka verður frásögn Pesquets mjög varlega en hann segir enn fremur, að annað for- setaefni, hægriöfjgaþinninn Tlxi ie"-Vignancour, hafi átt frum- kvæðið að „tilræðinu” ásamt ein- um þingmannj poujadista, Le Pen og þræðirnir hafi legið til fyrr- verandi forsætisráðherra gaul- ista, Debré. ★ SKUGGI FORTÍÐARINNAR Tixier-Vignancour ber ásak- anirnar til baka og segir, að Pesqu et sé starfsmaður frönsku leyni- iögreglunnar og baráttusveita þeirra, „Les Barbouzes.” Mitter- and segir, að enginn vafi leiki á því að ráða hafi átt hann af dög- um til þess að binda enda á rann sókn hans á stjórnmálastarfsemi leynilögreglunnar. Kosningabaráttan heldur áfram, og fortíðin getur verið þung í skauti. i n U -e&is ri>X; o«»ftömiu r'Úh-m; $. $ á <51«. m i.m nv siut R.c Mozart. Ætluð unglinguin 12 — 16 ára Barna og unglingabækur Selbergs 1965 El Æskuminningar Albert Schweitzers. Ætluð unglingum. Sandhóla-Pétur (Annað bindi.) Ætluff drengjum 11—15 ára. Prinsessan sem strauk. Ætluð stúlkum 12—16 ára KALLA OG ðCRISTJÁN Ævintýri á ísjaka Kalla og Kristján Ætluð drengjum 10—14 ára. Ætluð stúlkum 13—16 ára. I Ása Dísa. Ætluð stúlkum 10—12 ára. Kátir Ætlu® drengjum 9—12 ára. Bóka- útgáfan SETBERG Freyjugötu 14 Sími 17667. Ætluð unglingum 10—14 ára Erna fer í ferðalag Fyrir stúlkur 8—12 ára. Grímur grallari og Lotta frœnka Grímur grallari og Lotta frænka. Ætluð börnum 9 — 12 ára. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 11. des. 1965 <|

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.