Alþýðublaðið - 12.12.1965, Blaðsíða 9
MENN í FRÉTTUM
ANDSIÆÐINGAR
DE GAULLES
SENNILEGT verður að telja,
að síðari umferð frönsku forseta-
kosninganna 19. desember verði
einvígi milli de Gaulles forseta
og Francois Mitterands, hins sam-
eiginlega frambjóöanda kommún-
ista og sósíalista.
Hver er Mitterand. Hann er
einhver umdeildasti, gáfaðasti- og
metnaðargjarnasti stjórnmálamað
ur Frakka. Hann er fæddur 1916
í liérðinu Charenta, sem frægt
er fyrir framleiðslu á koniaki, og
faðir hans var járnbrautarstarfs-
maður. Hann lagði stund á lög-
fræði, tók nokkur ágæt próf við
Sorbonne-háskóla og stjornvís-
indaháskólann í París, barðist
með sóma í andspyrnuhreyfing-
unni gegn Þjóðverjum á stríðs-
Mitterand.
árunum og varð aðstoðarráðherra
í frelsisstjórn de Gaulle, þar sem
hann fór með mál er vörðuðu
stríðsfanga.
★ RÁÐHERRA 12 SINNUM
Hann hefur 12 sinnum verið
ráðherra eða aðstoðarráðherra.
Mest lét hann að sér kveða sem
innanríkisráðherra í stjórn Men-
des-France 1954-55 og dómsmála-
i'áðlherra í stjúrn Guy Mollets
1956—57. Hann hefur alltaf stað-
|ið vinstra megin við miðju í
istjórnmálum, ve.ið vinsamlegur
kommúnistum en hefur ekki tal-
að máli þeirra fyrr en í hinni
nýafstöðnu kosningabaráttu, en
þó af mikilli varkárni. Ilann hafn-
aði NATO eins og skipulagi band-
jagsins er nú háttað, en lagðist
ekki gegn Efnahagsbandalaginu,
Einn af bræðrum hans stendur
mjög nærri kommúnistaflokknum.
Annar bróðir hans er hérshöfð-
ingi, gegnir mjög þýðingarmiklu
embætti í kjarnorkuvörnum
Frakka og fylgir gaulistum að
málum.
★ DULARFULLT TILRÆÐI
Hinn kunni rithöfundur, Fran-
cois Mauriac, hefur kallað Mitt-
erand ,,dæmigerða skáldsagnaper
sónu‘ og hann hefur oft verið kall
aður „pólitískur kro^sfari.” Ekki
ósjaldan hefur hann verið viðrið-
in dularfull mál, seip rekja hefur
mátt til undirheima franskra
stjórnmála og njósna.
AðfarajUiójtt hins 16. október
1959, þegar Mitterand var á heim-
leið frá skrifstofu sinni, var skot-
ið á hann úr vélbyssu frá bíl,
sem ók fram hjá honum. Honum
tókst með naumindum að bjarga
lífi sínu með því að stökkva yfir
vegginn fyrir f'aman garð stjömu
athuganartöðvarinnar í París.
Þett.a mál hefur aldrei verið upp-
lýst, en sá b 'áláti orðrómur komst
strax á kreik að Mitterand hefði
sjálfur sett þetta tilræði á svið.
Mál het.ta bar á góma í kosn-
ingabp'-"ttunni og ef til vill verð-
ur þe^a ennbá meira kosninga-
mál á næ tu fjórtán dögum. Á-
stæðan er ekki sízt sú, að ýmis-
legt vírðist benda til þess. að
ákveðið samband sé á milli til-
ræði ins 1959 og ránsins á mar-
okkanska stjórnarandstöðuleið-
toganum Ren Barka í París nú
fyrir skemmstu.
Fvrrverandi þingmaður úr
flokki gaulista. sem fiæktist inn
í °amsæri OAS. hinna frægu
íþ'vðiuverkapamtaka, Lgegnum
sambönd sín við hreyfingu Pou-
jadista, og var dæmdur í 20 ára
fangelsi að honum fjarstöddum
hefur haldið því fram í bréfi til
blaðsins ,,Le Monde”, að Mitter-
and hafi samið við hann um að
setja „til'ræðið” á svið. Maður
þessi, Pesquet, sagði einnig, að
franska lögreglan hefði heitið hon.
um sakaruppgjöf ef hann þegði
um málið. Taka verður frásögn
Pesquets mjög varlega en hann
segir enn fremur, að annað for-
setaefni, hægriöfjgaþinninn Tlxi
ie"-Vignancour, hafi átt frum-
kvæðið að „tilræðinu” ásamt ein-
um þingmannj poujadista, Le Pen
og þræðirnir hafi legið til fyrr-
verandi forsætisráðherra gaul-
ista, Debré.
★ SKUGGI FORTÍÐARINNAR
Tixier-Vignancour ber ásak-
anirnar til baka og segir, að Pesqu
et sé starfsmaður frönsku leyni-
iögreglunnar og baráttusveita
þeirra, „Les Barbouzes.” Mitter-
and segir, að enginn vafi leiki á
því að ráða hafi átt hann af dög-
um til þess að binda enda á rann
sókn hans á stjórnmálastarfsemi
leynilögreglunnar.
Kosningabaráttan heldur áfram,
og fortíðin getur verið þung í
skauti.
i n U -e&is ri>X;
o«»ftömiu r'Úh-m; $. $ á <51«. m i.m nv
siut R.c
Mozart.
Ætluð unglinguin 12 — 16 ára
Barna og unglingabækur Selbergs 1965
El
Æskuminningar Albert
Schweitzers.
Ætluð unglingum.
Sandhóla-Pétur
(Annað bindi.) Ætluff
drengjum 11—15 ára.
Prinsessan sem strauk.
Ætluð stúlkum 12—16 ára
KALLA OG
ðCRISTJÁN
Ævintýri á ísjaka Kalla og Kristján
Ætluð drengjum 10—14 ára. Ætluð stúlkum 13—16 ára.
I
Ása Dísa.
Ætluð stúlkum 10—12 ára.
Kátir
Ætlu® drengjum 9—12 ára.
Bóka-
útgáfan
SETBERG
Freyjugötu 14
Sími 17667.
Ætluð unglingum 10—14 ára
Erna fer í ferðalag
Fyrir stúlkur 8—12 ára.
Grímur grallari
og Lotta frœnka
Grímur grallari og
Lotta frænka.
Ætluð börnum 9 — 12 ára.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 11. des. 1965 <|