Vísir - 26.01.1959, Síða 7

Vísir - 26.01.1959, Síða 7
Mánudaginn 26. janúar 1959 ¥ÍSIB 7 Sitthvað frá Suðumesjum. Ól. E. Einarsson. Clearing-vi5skiptl og aflafréttir. Gera má ráð fyrir, að vétrar- aflinn, sem fluttur verður á land í verstöðvum á Suðurnesjum ein- um á yfirstandandi vertíð, nemi eitthvað nálægt 75 þúsund tonn- um af óslægðum fiski. Þetta er mikill afli og stórkostleg gjald- eyrisverðmæti. Um það bil 50% þessa afla fer til hraðfi-ystihús- anna, en hinn helmingurinn til saltfisks og ski’eiðarframleið- anda. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að allar sjávaraf- urðir eru verðbættar af ríkinu um 80 af hundraði, miðað við út- flutningsverðmæti. Þetta er ný- mæli, sem sett var inn í samn- inga af fyrrverandi ríkisstjórn. A meðan innflutnings. og gjaldeyrisleyfi voru seld, hin svo kölluðu bátagjaldeyi’isleyfi, út- ílutningssjóði til tekna, giltu aðrar reglui'. Þá var tekið tillit til þess við úthlutun verðbóta, hvert og fyrir hvað útflytjendur seldu afui’ðir sínar. Með öðrum orðum, þeir sem seldu framleiðsl una fyi'ir harðan gjaldeyri til Portúgals, Ísalíu, Afríku og fl. landa fengu hærri verðbætur en hinir, sem seldu í vöruskiptum til járntjaldslandanna og Spánar. Enda verða þeir fyrrnefndu oftast að sætta sig við lakara fiskverð. Cleax’ing-viðskipti geta verið á- gæt og sjálfsögð, en þó aldrei nema að vissu marki. Ef verð vörutegunda þeiri’a, sem viðkom- andi þjóð greiðir með afui’ðum okkar, er óeðlilega hátt, þá er vöruskiptasamningurinn orðinn hreinasta svikamylla. ■ íslenzkir kaupsýslumenn hafa nú á seinni árum kynnzt veru- lega vöruskiptavei'zlun. Margir hafa heimsótt hina frægu vöru- sýningu í Leipzig, og þar verið , gei'ð viðskipti í stórum stíl, mið- j að við stærð okkar þjóðar. Varla hafa menn komizt hjá þvi að veita athygli, að vei-ð það, sem íslandi er ætlað að greiða vöru- kaup sin með, er nokkru hærra en verð það, sem aðrar vestræn- ar þjóðir vei’ða að greiða. Að minnsta kosti í sumum tilfellum. Ástæðan er náttúrlega augljós. Þegar aðrar þjóðir gi-eiða með hörðum gjaldeyri, sömu tegund gjaldeyris og við fáum fyrir salt- físk okkar og skreið, fá þær mun lægi'a verð á innkaupum sinum, en við sem gr’eiðum með hrað- fr-ystum fiski. Þarna er náttúr- legar um verðfellingu að ræða á okkar fiski. Og þó hafa Islend- ingar oft gei’t góð viðskipti í Leipzig. Menn geta verið sammála um, •a^ ekki sé hægt að svo stöddu, p.ð íeTrnÍa niður hin víðtæku vöru skintaviðskipti okkar og að halda Tberi áfi’am á sömu eða svipaðri braut fvrst um sinn, en hitt er ah’ann-t og fær ekki staðist, að þessi fríðindi skuli vera fengin í hendur e'num þættinum í útflutn ingsverzlun okkar, þótt það að vísu sé sá stærsti. Ur þvi að vérið er að færa alla fi-amleiðslu þjóðarinnar meira og minna undir áætlunarbúskap, þá er það lágmarkskrafa, að bú- ið sé sem jafnast að öllum stétt- um. Ætli að saltfiskframleið- endur myndu ekki þiggja það núna að seljá á vöruskiptagrund velli eitthvað af þeim fiski, sem þeir nú liggja með og hafa legið með allt að tólf mánuði í húsum sínum. Menn yrðu vafalaust á- nægðir og það þótt verðið hækk- aði ekki. Allir þekkja þann mikla kostnað, sem því er samfai’a að geyma saltfiskbirðir. Saltfisks- og skreiðarframleiðendur verða nú að krefjast lagfæi’inga á þessu misrétti, sem þeir hafa; vei’ið beittii’. Ef ekki með breyttri verðuppbót þá með kröfu um að mega selja ákveðið magn af framleiðslu sinni á vöruskipta- grundvelli. Grindavik. Gæftir hafa verið ágætar alla vikuna. Átján bátar af 20 eru þegar byrjaðir róðra og róa allir með línu. Afli þeirra hefur hins vegar verið fremur tregur, og hefur aflinn verið frá 3—9 lestir •á bát í róði’i. Keflavík. Afli Keflavíkurbáta hefur tregðazt mikið, en gæftir verið góðar í vikunni. Hefur aðeins einn dagur vikunnar fallið úr. Flestir bátanna hafa fengið þetta frá 4—6 lestir í róðri, en hæsti báturinn kom með 10 lestir úr einum róðri. Enn eru netabátar ekki byrjaðir róðra, en verið er að undirbúa þá. Sandgerði. Eins og annars staðar á Suð- urnesjum hafa gæftir verið góð- ar frá Sandgerði þessa viku. Daglega hafa róið 15—16 bátar og hefur heildai-afli þeirra á dag verið 95—100 lestir miðað við slægðan fisk. Allt að helmingur aflans er ýsa og smáfiskur. Héð- an róa allir með línu, og enginn netabátur byrjaður. frá út- varpshækkun. Himi 12 ágúst 195S sótti Ríkis- útvarpið um það til menntamála- j í'áðuneytisins, að afnotagjaldið yrði hækkað frá 1. april 1959 úr , 200 krónum í 350 krónur enda | hafði afnotagjald útvarps verið j óbreytt í sex ár. Hinn 3. desember s.I., eða eftir { að kaupgjtldsvísitalan hafði hækkað í 202 stig 1. desember, samþykkti menntamálaráðu- nej-tið hækkun afnotagjaldsins i 300 krónur. Vegna breyttra aðstæðna hef- ur ráðuneytið nú ákveðið að þessi hækkun skuli ekki koma til fi’amkvæmda og breytist afnota- gjaldið því ekki 1. apríl n. k. Menntamálaráðu.neytið, janúar 1959. Áfengisleit á bílstöðvum á laugardagskvöldið. Á laugardagskvöldið kl. 10 gerði lögreglan í Reykjavík leit að áfangi hjá þremur bifreiða- stöðvum í bænurn. Við leitina fannst áfengi í 9 fcílum, en ekki mun hafa verið um mikið magn að ræða. Málin eru í rannsókn hjá Sakadómaraembættinu. Stjórnarkreppa á Ítaiíu. Stjórnai’kreppa er yfirvofandi á Ítalíu. Fregnir frá Rómaborg herma, að Fanfani forsætisi’áðherra hafi tekið ákyörðun um, að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt.. Hefur yerið búizt við þessu að undanförnu, eftir að stjórnin tví- vegis beið ósigur við atkvæða- greiðslur á þingi. Það er gamall siður í Danmörku að búa til jólahafur og sézt lítið barn skemmta sér við að skoða gripinn. Roberts Burns minnst víða um heim í gær, er 200 ár voru fiðin frá fæðingu hans. í gær voru tvær aldir liðn- fyrir veizlu, sem haldin var í- au frá fæðingu skozka Ijóð- Þjóðleikhúskjallaranum í gær- skáldsins Roberts Burns, og var kveldi og var þar veizlustjóri xess minnzt úti imi allan heim,1 skozki sendiherrann Donalci og gcngust hin svonefndu McKinnon Brandor, sem minnt • Burns-félög fyrir því. j ist skáldsins í ræðu og las kvæði- Meðal annai's voru samkomur( hans, en einnig flutti hið ágæt- haldnar af þessu tilefni í Lond- sta erindi um Bui’ns undix:; on og Edinborg og um allt Bret borðum ástralski prófessorinn, land og brezka samveldið og sem mörgum er góðkunnur, víða í Bandaríkjunum og Sov-^og Gilchrist sendiherra, semt étrikjunum. í Glasgow var efnt er maður skozkur, flutti ræðu, til Burns-sýningar mikillar, og o. fl. tóku til máls. voru t. d. sýndar íslenzkar þýðlngar á ljóðum Bui'ns, en til máls. Flestii” veizlugesta voru styi’kþegar, British Council, er til náðisL þessar Ijóðaþýðingar (Stein- og munu hafa setið hófið um 40 gríms og Matthíasar) urðu mjög þeirra. Var þessarar merkii vinsælar með þjóðinni og eru' stofnunar hlýlega minnzt. — enn í dag, eins og þýðing Árnaj Veizlan, sem fór fram að skozk- Pálssonar bókavarðar á Auld um venjum, eftir því sem við* Lang Syne (Hin gömlu kynni'var komið, og lauk með því að gleymast ei), er síðar kom til. menn sungu „Auld Lang Syne‘ .. Skáldsins Roberts Burn?> Veizla í Þjóð- verður minnzt síðar hér i blað- Icikliúskjallaramim. inu í tilefni tveggja alda af- Hér gekkst British Council mælisins. Því skal ei bera höfuð hátt? t>ííir Habert Hiti'/ts. Því skal ei bera höfuð hátt ' í heiðursfátœkt, þrátt fyrir alit? Svei vílsins þrœl, — þú voga mátt Að vera snauður, þrátt fyrir allt, Þrátt fyrir allt og þrátt fyrir allt, Þreytu, slit og baslið allt, Allt hefðarstand er mótuö mynt, En maðurinn gullið, þrátt fyrir allt. Þó fœðið okkar fáist spart Og flikur aumar, þess kyns allt, En flónum matsœld, mungát, slcart, Er maður maður, þrátt fyrir allt, Þrátt fyrir allt og allt og allt, Ofskraut, foráilá, þess kyns allt, Hver heiðursmaður, allslaus eins, Er á við konung, þrátt fyrir allt. Sjá lávarðsdurginn darka um láð Með dranib og glys oo þess kyns allt, Þó mannmergð stór sé honum háð, Er herrann glópur, þrátt fyrir allt, Þrátt fyrir allt og allt og allt, Alstirnt brjóst cj þess kyns allt, Hver ágœt sál, í anda frjáls, Mun að því hlœja, þrátt fyrir allt. Þó kóngur greifa kjósi og jarl Úr knapa sveit og þess kyns allt, Á miklu hœrri hefðarpall Kemst heiðursmaðurinn, þrátt fyrir allt. Þrátt jyrir allt og allt og allt, Upphefð, najnbót, þess kyns allt, Hið innra verð og vitund þess Er vegsemd meiri en þess kyns allt. Því biðjum við sú veitist tíð, Og verða mun það, þrátt fyrir allt, Að vit og drenglund sigri' um sið í sannleiks stríði, þrátt fyrir allt. Þrátt fyrir allt og þrátt fyrir allt, Mun þetta verða um heimsból allt, Að maður manni blindist blítt Með bróðurhendi, þrátt fyrir allt. Steingrímur Thorsteinsson þýddi. m ) Mimv SÉRLEG4 MtLDAÐ EFN/ GOTT SN/Ð

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.