Vísir - 09.03.1959, Síða 12
Kkkert blað ex ódýrara í áskrift en Vísir.
LátlS tuurn fœra yður fréttir eg annað
ySar bálfu.
Siml 1-16-60.
VlSIR.
Mánudagiim 9. marz 1959
'liiniS i»c, *m eprasi áikrifendui
Víiia eftir 10. hvers mánaðar, fá blaBÍB
nkeypis ti) mánaðamóta
Síml 1-16-60.
Eftlr „hafvillurnar":
Stjórnmálaskóli Varðar:
99Eg hefði aldrei trúað því, að
tengdamæður væru svo góðar.“
Jóhann Hafstein, alþm.,
flytur erindi í kvold.
Rabbað við Walter Raldwins, sem
sótti kærustuna
„bað var langt og erfitt ferða-
lag, sérstakiega þó ferðin með
togaranum frá Skotlanði til
I'ærey.ja. Átta mílur á klukku-
siund, ég búinn með alla mína
j eninga og ekki kominn hálfa
Teið. Kærastan beið eftir niér í
Klakksvík, og ég átti eftir að
komast með hana til baka alla
þessa leið.“
En nú eru þau komin alla leið,
heilu og höldnu, og bíða þess
aðeins að fá leyfi hernaðaryfir-
fJValda til að gifta sig hérna suð-
ur á Keflavíkurflugvelli.
Hann heitir Walter Baldwins
*og er rafvirki í bandaríska hern-
•um. Hún er Kristen Antonsen
^írá Klakksvík í Færeyjum. Þau
voru bæði þreytt og eftir sig
eftir ferðaævintýrið, þegar
fréttaritari Vísis hitti þau að
máli í flugvallahótelinu á laug-
ardaginn.
Hún var á Vífilsstöðum.
Kristen var i tæp tvö ár að-
stoðarstúlka á Vífilsstöðum, og
það var þá, sem þau kynntust.
Hún fór siðan heim til sín. Hon-
um leiddist einveran, og nú, þeg-
ar hann fékk frí frá herþjón-
ustu, ákvað hann ag fara og
sækja hana, svo þau gætu geng-
. ið i „það heilaga.“ Það voru líka
seinustu forVööð, því hann á að
íara heim til Bandarikjanna 2.
apríl n. k. og þá hefði verið tölu-
vert erfiðara að ná saman. Nú
ætla þau að giftast strax og þau
geta og setjast að í Ameríku.
1 sjálfu sér eru það ekki
heimsviöburðir, þótt ástfanginn
maður skreppi á næsta bæ til
að sækja kærustuna sína, og það
hefði það sennilega heldur ekki
orðið í þetta sinn, ef ekki hefði
viljast svo illa til að hann lenti
5 hálgerðum „hafvillum" á leið-
inni. Hann reiknaði nefnilega
með því, að það væri ekkert erf-
iðara að komast til Færeyja en
foara til Skotlands.
Fram og aftur —
fram og aftur.
Þess vegna tók hann sér far
með flugvél til Englands. Þegar
þangað kom komst hann að raun
um það, að enginn vissi, hvern-
Macmillan farinn
til Parísar.
Macmillan og Selwyn Lioyd
fara til Parísar í dag.
Þeir ræða við Debré forsætis-
ráðherra og de Murville utan-
ríkisráðherra þegar í dag og
De Gaulle forseta á morgun.
Á fimmtudag fara þeir til
Bonn og á þriðjudag í næstu
viku til Ottawa og Washington.
til Klakksvíkur.
ig átti að komast til Færej'ja.
Hann ferðaðist milli ýmissa
borga með járnbrautarlest og
spurði sífellt fyrir um það,'
hvernig mætti komast til Fær-
eyja. Að lokum komst hann til
Glasgow i Skotlandi. Þaðan fór
hann til Prestvíkur, siðan aftur
Það er engin furða þótt Walter
yrði hrifinn af Kirsten — jafn-
vel þótt hún væri aldrei
hjúkrunarkona hans.
(Ljósm. St. Nik.)
til Glasgow og svo til Aberdeen.
Frá Aberdeen tók hann sér far
með skipi til Shetlandseyja, og
hugsaði með sér, að þaðan hlyti
hann einhvernveginn að komast
á leiðarenda. En það var nú alls
ekki svm vel. Þegar hann fór að
spyrjast fyrir þar, komst ein-
hver blaðasnápur á sporið og
gerði allt vitlaust með því að
birta söguna um hermanninn,
sem var að leita að kærustunni
sinni.
Walter fór aftur til Aberdeen.
Nú var hann búinn með alla sína
peninga og var engu nær um ár-
angurinn. En nú var heimspress
an komin í spilið. Blaðamenn
sátu um hann nótt og nýtan dag,
vildu allt fyrir hann gera, og
einn þeirra bauð honum jafnvel
einkaflugvél til Færeyja, ef blað-
ið hans fengi einkarétt á sög-
unni.
Englnn flugvöllur.
„Gott og vel — allt í lagi, ég
tek boðinu," sagði Waltei'. En
við eftirgrenslan kom það í ljós
að flugvöllur var ekki til á Fær-
eyjum, nema einn afdankaður
herflugvöllur, sem var svo langt
frá Klakksvík, að ekki þótti ger-
andi að eiga við það. Endirinn
varð því sá, að honum var komið
Ræðir um kommúnismann, hugsjonir og kenn-
ingar og um hlutverk hans í íslenzkum stjórn-
málum. Erindið hefst kl. 8,30 í Vaihöll við
Suðurgötu.
á togara, sem var að fara á þess-
ar slóðir, og sem skilaði honum
alla leið til Klakksvikur.
„Mér var tekið þar með kost-
um og kynjum,“ sagði Walter.
„Móðir Kirstenar vildi allt fyrir
mig gera, og var mér sem bezta
móðir. Eg hefði aldrei trúað því,
að tengdamæður gætu verið
svona góðar.“
En nú var ekki til setunnar
boðið, Hann var orðinn vita pen-
ingalaus, fríið að verða búið, og
þau urðu að komast til Islands í
grænum hvelli.
Einhvernveginn var peninga-
málinu bjargað við. Þau tóku sér
far með „Tjald“ til Kaupmanna
tafnar, þaðan með flugvél til
Ivíþjóðar, — og loks til Reykja-
nkur fljúgandi.
Nú biða þau leyfis, hann i her-
kálabragga, hún á herbergi nr.
1 í flugvallarhótelinu, að mega
rifta sig.
„Já, þetta verður aldeilis saga
il að segja börnunum okkar,
ægar þar að kemur,“ sagði
Valter að skilnaði, og Ijómaði af
íamingju.
Heinidallur, félag ungra Sjálf-
stæðismanna, hélt aðalfund sinn
í gær, og voru þar m. a. miklar
umræður um stefnuskrá félags-
ins. Hafði stefnuskráin frá 1947
verið endurskoðuð og var sam-
þykkt. Forjnaður var endurkjör-
inn Baldvin Ti'yggvason lögfr.
Skýrslur formanns og féhirð-
is voru lesnar upp á fundinum,
og kom þar fram, að félagsstarf-
ið hafði verið mikil og fjölbreytt
á árinu og fjárhagur félagsins
góður.
Bretar fiuttu út skrifstofu-
vélar fyrir 1.6 miilj. stpd. í
janúar og var það örlíti'ð
meira en í sama mánuði
1958.
Á undangengum árum sýna
kosningaúrslit » 'ýmsuni
lönduin álfunnar, að fylgi
kommúnista hefur minnkað
stórkostlega. Dæmi: Belgía
1950 234.541, 1958: 100.113.
Sérstaklega athyglisvert er,
að fylgistapið á sér stað á
árunum eftir að harðstjórn
Stalins leið undir lok.
Að kalla í öllum borgum
við vötnin miklu (Great
Lakes) milli Bandaríkjanna
og Kanada, er varið stórfé
til hafnarbóta, svo tugum
og hundruðum millj. doll-
ara skiptir, enda verður
St. Lawrence skipaskurður-
inn opnaður á sumri kom-
anda.
í kvöld mun Jóliann Hafstein
alþm. flytja síðari erindi IV. ,mál
efnaflokks Stjórnmálaskólans,
sem fjallar um andstæðinga
Sjálfstæðisflokksins.
Jóliann mun ræða um konun-
únisma, hugsjónir og kenningar,
um vestrænt og austrænt lýð-
ræði, öreiga og alræði, um sögu-
lega þróun kommúnismans og
um hlutverk konimúnismans í
íslenzkiun stjórnmáliun.
S.l. föstudag flutti Magnús
Jónsson frá Mel, alþm., fyrra er-
indi IV. málefnaflokks. RJakti
hann í stórum dráttum sögu
Framsóknarflokksins og Alþýðu
flokksins og skýrði frá helztu
stefnumálum þeirra. Þá gerði
hann og grein fyrir tengslum
Framsóknarflokksins við sam-
vinnuhreyfinguna og samband
Alþýðuflokksins við verkalýðs-
í stjórn voru kosnir Baldvin
Tryggvason lögfr. formaður,
Sigúrður Helgason lögfr., Jón E.
Ragnarsson stud. jur., Ólafur
Jensson vélvirki, Kristján Ragn-
arsson, skrifstofum., Hörður Ein
arsson stud. jur.; Guðni Gíslason
og Gunnar Gunnarsson Mennta-
skólanemar, Magnús Sveinsson
og Örn Valdimarsson skrifstofu-
menn. Stjórnin hefur ekk enn
skipt með sér verkum.
hreyfinguna og breytingum á
afstöðu Alþýðuflokksins til þjóð
nýtingar. Var gerður góður róm-
ur að máli Magnúar og komu
maður svaraði.
Erindi Jóhanns Hafstein, al-
þm., er 9. erindi Stjórnmálaskól-
ans ,en þau verða alls 13. — N.k.
föstudag hefst V. og síðasti
málefnaflokkurinn og mun hann
fjalla um skattamál, viðskipta-
mál, verkalýðsmál og félagsmál.
Erindin munu flyja þeir Svavar
Pálsson, viðskiptafr., Þorvai'ður
Jón Júliusson, hagfr., Gunnar
Helgason, erindreki og Þoiwald-
ur Garðar Kristjánsson. lögfr.
Þátttaka í Stjórnmálaskóla
Varðar hefur verið mjög góð og
greinilega komið fram áhugi
manna fyrir þeim málum, sem
þar hafa verið rædd. Er það að
vonum, þar sem slík námskeið
í stjórnmálum hafa ekki fyrr
verið byggð upp á sama hátt og
nú er gert, þannig að þau skapi
heillega mynd af þeim málum,
sem hæst ber í landsmálapólitík
inni. Að loknum flutningi hvers
erindis hafa ræðumenn svarað
fjölda fyrirspurna, sem til þeirra
hefur verið beint.
Svo sem fyrr segir verða er-
indin alls 13 og verður siðasta
erindið ílutt föstud. 20. marz, en
sunnudaginn 22. marz verður
sameiginlegt kaffikvöld og þá
væntanlega teknar ákvarðanir
um málfundi fyrir þátttakendur
og leiðbeiningar í ræðumennsku.
Erindi Jóhanns Hafstein í
kvöld kl. 8.30 í Valhöll við
[ Suðurgötu.
Þess var getið í frétt í Vísi fyrir rúnilcga hálfum mánuði, að
Egill Vilhjálmsson og kona hans hefðu verið fyrstu íslend-
ingarnir, sem flugu með Boeing 707 þrýstiloftsflugvél frá ís-
landi til Ameríku. Við það tækifæri var tekin mynd af þeim
hjónum, er þau voru að stíga upp í flugvélina. Einkennisklæddi
maðurinn á myndinni er starfsmaður PAA á Keflavíkurflug-
velli, Stefán Guðjohnsen. (Myndin er frá PAA)
Aðaffundur Heimdaflar í gær.
Endurskoðuð stefnuskrá samþ. á
fundinum.