Vísir - 05.08.1959, Page 4
VfSIR
Miðvikudaginn 5. ágúst 19591
Tékkóslóvakía eitt af mestu
skóiónaðarlondununi.
Gottwaldov — áður Zlln höfuð-
stöð iðnaðarÍDS.
r Gottwaldow í Tékkóslóvakíu
tr bær, sem alla tíð hefur átt
Velgengni sína undir skófatn-
aði. Hún hét áður Zlin og var
höfuðstöð skófatnaðar-iðnaðar-
ins í landinu, Bata-iðnaðarins,
sem heimsfrægur var á tíman-
nra fyrir heimsstyrjöldina.
Eftir styrjöldina hafa verk-
smiðjurnar verið stækkaðar og
ýmsum vélum bætt við og árs-
framleiðslan nemur 30—35
milljónum para af skóm árlega.
Þetta er tæplega helmingur allr
ar skóframleiðslu í landinu, en
hún nemur 80 millj. para. í
augum 60 þúsund íbúa Gott-
waldow og flestra Tékka er
bærinn enn höfuðstöð þessarar
iðngreinar.
Borgin stendur í sporöskju-
laga dals, sem áin Drevnice
rennur um og eru verksmiðj-
urnar, sem nú nefnast Svit-
verksmiðjurnar, á bökkum
hennar. Stærsta byggingin þar
er 16 hæðir, byggð úr múrstein-
um og gleri.
Áður mikið
„Bata“-veldis.
Af þaki þessarar byggingar er
gott útsýni yfir verksmiðjurn-
ar, borgina og dalinn allan. Til
hægri eru verkamannahús,
byggð á dögum „Bata“-veldis-
ins, en þau voru þá talin fyrir-
mynd. Til vinstri er nýr borgar-
hluti og er þar kvikmyndahús,
sem er sagt vera hið stærsta í
Evrópu, og nýtt gistihús, og
ennfremur röð verkamannabú-
staða, sem byggð hafa verið á
undangengnum árum.
Fyrir styrjöldina voru Bata-
verksmiðjurnar mestu skóverk-
smiðjur álfunnar og Bata-skó-
fatnaður var fluttur út til svo
að segja allra landa heims.
Þjóðnýting.
Bataeignirnar voru gerðar
upptækar og þjóðnýttar af tékk
nesku stjórninni eftir styrjöld-
ina á þeim grundvelli, að menn
í Bataættinni hefðu haft sam-
starf við nazista á styrjaldar-
tímanum og fyrr. Verksmiðj-
urnar urðu fyrir miklum
sprengjuárásum í styrjöldinni,
svo að framleiðslan minnkaði
um 60%, en 1948 var hún aftur
orðin jafnmikil og fyrir styrj-
öldina. Hafði þá allt verið end-
urskipulagt og byggt á ný.
Nafnbreyting.
Þegar kommúnistar náðu
völdum 1949 var nafni bæjar-
ins breytt í Gottwaldow, til
heiðurs við Klement Gottwald,
hins kommúnistíska forseta
landsins, sem lézt 1953. Sam-
tímis fengu verksmiðjurnar sitt
nýja nafn, Svit (Sólarupprás).
Nú vinna 18.000 manns í
verksmiðjunum. Þar er fram-
leitt leður af ýmsum gerðum,
segldúkur o. fl., auk skófatnað-
ar. í verksmiðjunum eru sútuð
<511 skinn, sem notuð eru við
skógerðina og mikið að auki.
Vinnutími
er 46 klst. á viku eins og í öðr-
#im iðngreinum landsins. Vinnu
tími er frá kl. 6 f. h. til 2 e. h.
og frá 6—12 á laugardögum.
Meðal mánaðarkaup svarar til
178 Bandaríkjadollara, miðað
við hið opinbera gengi í Tékkó-
slóvakíu, og er það nokkru
lægra en meðalkaup um land
allt í öllum öðrum iðngreinum,
en verkafólkið býr við betri
skilyrði að mörgu leyti en víða
annars staðar.
Vinstri menn mótmæfa.
Nokkuð hefur borið á mót-
spyrnu vinstri manna á Ind-
landi vefna ákvörðunar ind-
versku stjómarinnar um að
grípa í taumana í Kerala ríki,
unz nýjar kosningar hafa farið
þar fram.
í Bombay varð að hætta
fundi lögþingsins vegna að-
gerða vinstri manna, og í Dehli
voru farnar miklar hópgöngur,
um 10 þús. manns, sem mót-
mæltu harðlega framkomu
stjórnai’innar í málinu, og báru
menn skilti er á var letrað,
„Stjórnarskráin er í molum“,
og því líkt. Ekki mun þó hafa
komið til neinna átaka.
r
...^
W. A , . .umJ: ta a L
..... ... . .. . J
Bandaríkjamenn efna til keppni í fleiru en baseball og golfi.
Ein af þeim keppnum, sem fram fara, er góðaksturskeppni ung-
linga. Þátttakendur koma saman í höfuðborginni, Washington,
þar sem lagðar eru fyrir þá ýmsar akstursþrautir, líkar þessari
sem hér sést. Ætlunin með keppninni er að þekkingu ungra
ökumanna á umferðarreglum og öryggi. Ekki eru akþrautirnar
einar látnar ráða úrslitum, heldur eru þátttakendur spurðir
spjörum úr. Til þess að gera keppnina eftirsóknarverðari eru
veitt þrenn verðlaun, 1000, 1500 og 2000 dollarar, sem koma
keppendum til góða sem skólastyrkur, það er greidd fyrir þá
skólavist eða hluti hennar, sem nemur þessum upphæðum.
Laxveiðin:
Netaveiði góð en stanga-
veiði léleg í sumar.
SilungsdauÓmn í Varmá getur hafa orsakast
af hita, brennisteínsvetni og súrefnisskorti.
T.íiyvpíXí í npf Imfiiv í Iinilrl knmiA’ til c\rn enm nf mi
Laxveiði í net hefur í heild
verið ágæt í sumar, en stanga-
veiði aftur á móti treg og sum-
staðar mjög treg.
Samkv. upplýsingum, sem
Vísir fékk hjá Þóri Guðnasyni
veiðimálastjóra í morgun hefur
vatnsskortur í ám hamlað mjög
stangaveiði í sumar. Það eru að-
eins nokkrar ár í Húnavatns-
sýslu svo sem Miðfjarðará,
Lax á Ásum og Blanda, þar
sem hún hefur verið góð. í öll-
um öðrum ám hefur hún verið
léleg og sumstaðar mjög léleg.
Árnar hafa verið venju fremur
vatnslitlar og þrátt fyrir raka
í lofti og óþurrka hér sunnan-
lands hefur verið mjög lítið um
rigningar og sízt af öllu stór-
rigningar.
Um silungsdauðann í Varmá
á dögunum kvað veiðimála-
stjóri langsennilegast að orsak-
irnar hafi verið of mikill hiti í
ánni, en fleira gæti þar einnig
komið til svo sem of mikið
magn af brennisteirisvatni og
súrefnisskortur.
Veiðimálastjóri sagði að sil-
ungur þyldi takmarkaðan hita,
og þegar hitastigið í vatninu
kæmizt yfir 20 stig væri það
silungnum ofraun til lengdar.
Nú var vatnið í Varmá óvenju
heitt fyrri daginn sem gufunni
úr borholunni var veitt í ána,
eða 2314 stig, en hitnaði til
muna eftir að borholugufunni
var hieypt saman við, einkum
fyrst í stað. Þetta taldi veiði-
málastjóri vera höfuðorsökina
fyrir silungsdrápinu. Hinsvegar
hefði brennisteinsvetni, sem
jafnan er í hveragufu að meira
eða minna leyti getað flýtt einn-
ig fyrir silungadauðunum og
loks súrefnisskortur.
Silungurinn virðist hafa drep
izt á takmörkuðu svæði, eða á
svæðinu rétt niður fyrir Reykja
foss,.
Þessi mynd er tekin nýlega á skemmtun í barnaskóla nokkrumí
í London, þar sem nemendur eru bæði hvítir og svartir. Það
virðist ekki mikið kynþáttahatur á ferðinni milli hins 6 ár&t
gamla negra og 7 ára gömlu ensku stúlku, sem drekka bæði
úr sömu flöskunni í hinu mesta bróðerni. Það er athyglisvert,
þar sem miklar kynþáttaóeirðir urðu á dögunum í London*
Þrekraun á jökulbungu
í 3000 metra hæð.
Þátttakendur níu ungir menn og
fintm stúlkur.
Fyrir nokkru lagði flokkur , vonast til
manna
. að athuganir þeirra
9 karlar og 5 konur, leiði til þess, að unnt verði aS
upp í óvanalegan leiðangur. —
Flokkurinn ætlar að dveljast í
auka öryggi manna, sem nauð-
lenda á fjöllum, eða fjallgöngu-
tvo sólarhringa á jökulbungu í marina, sem eiga í erfiðleikum..
Frönsku Ölpunum, í um 3000
metra hæð, vistarlaus og í Þáttakendur
skjólleysi, án þess að hafa innan við tvítugt.
værðarvoðir eða annað til þess
að sveipa um sig.
Að tveimur dögum liðnum
Þátttakendur eru flestir inn-
an við tvítugt. Meðal þeirra
^eru þýzkir, svissneskir og.
svífur þyrilvængja yfir jökul- ^franskir námsmenn, sænsk
bunguna og varpar niður mat- hjúkrunarkona og ítalskur
vælum og skjólfatnaði, en eng-' arkitekt.
um verður leyft að fara niður j Er upp kom skiptist flokkur-
aftur fyrr en að átta dögum inn í tvo hópa. Annar flokk-
liðnum. jurinn var klæddur fatnaði eins-
Hér er um sjálfboðaliða að og menn venjulegast klæðast í
ræða, sem eru þátttakendur borgum með létta skó á fótum.
í þrekraun, sem stofnað ér
til í tilrauna skyni, til þess
að komasí að raun um hvert
sé mótstöðuafl manna við
þann aðbúnað og skilyrði,
sem þarna er um að ræða.
Þeir koma fram í hlutverki
flugfarþega. — Hinn flokkur-
inn gegnir hlutverki fjall—
göngumanna í erfiðleikum.
Báðir flokkarnir hafa tal—
stöðvar. Ef einhver þátttakandi
Læknar eru með í ferðinni getur fyrirsjáanlega ekki stað-
og athuga þátttakendur
fylgjast með líðan þeirra og
Ekki faldi veiðimáastjóri
izt þrekraunina og heilsu hans
er hætta búin af framhaldsþátt-
töku, verður sent SOS-skoyti
og kemur þá þyrilvængja á
vettvang, en þeir, sem standasb:
um.
neinar líkur á að laxastofnin- hana, verða fluttir niður í þyr—
um í Ölfusá stafaði nein hætta jivængjum að átta dögum liðn-*
af brennisteinsvatni eins og
sumir gætu sér til.
Þá sagði veiðimálastjóri að
lokum að fullyrðingar hafi kom
! ið fram um það í blöðum að
j gufu yrði hleypt í Varmá úr
sömu borholu aftur í þessari
viku, en hann sagði að engar
ákvarðanir hafi verið teknar
um það að svo komnu máli.
Málflutningssknístofa j
Páll S. Pálsson, hrl. j
Bankastræti 7, sími 24-200*