Vísir - 28.08.1959, Blaðsíða 1

Vísir - 28.08.1959, Blaðsíða 1
12 síður y 12 síður 49. ár. Föstudaginn 28. ágúst 1959 187. tbl. Eisenhower í London: Beztu mottökur sem nokkur gestur hefur fengið þar. 500.000 manns fögnuðu forsetanum við komuna — hann ræddi við drottningu í morgun. Eisenhower forseti kom til Lundúna í gærkvöldi, flugleiðis -frá Bonns eftir viðræður sínar við Dr. Adenauer. MacMillan forsœtisráðherra tók á móti lionum á flugvellinum, en á leið sinni inn i borgina hlaut Eisen- hower þœr beztu móttökur, sem nokkur erlendur valdamaður hefur hlotið í Bretlandi, fyrr cg síðar. MacMillan hélt stutta ræðu, cr forsetinn steig úr farkosti sínum. Sagði hann m.a. að Bret- ar bæru nú sama traust til Eis- enhowers, sem forystumanns einnar af stærstu þjóðum heims <og þeir hefðu gert á stríðsár- uum, er þeir hefðu trúað hon- um fyrir yfirherstjórn hluta hinna brezku herja. Forsetinn svarað,i og sagði m. a., að það væri óþarfi fyrir sig að taka það sérstaklega fram, að Bandaríkjamenn stæðu .og myndu alltaf standa fast með 'Bretum í baráttunni fyrir friði og frelsi. Eisehower dvaldist í nótt í bústað bandaríska sendiherrans, og á leið sinni inn í borgina í gær, — en hún er um 15 mílna löng, — ók hann fram hjá að minnsta kosti hálfri milljón manna, er safnazt hafði saman til þess að fagna honum. Segja fréttamenn, að sjaldan eða aldrei hafi þeir verið vitni að einlægari og falslausari mót- tökum, og séu þær þær beztu, sem nokkur erlendur gestur hafi fengið í Bretlandi. í morgun lagði Eisenhower af stað í Comet-flugvél, frá Lundúna-flugvelli, áleiðis til fundar \ ið Elizabetu drottn- ingu. Mun flugvélin bíða for- setans á flugvelli skammt frá Aberdeen, meðan hann fer í heimsókn til Balmoral-kastala, sveitarseturs drottningar, sem er um 50 mílur frá flugvellin- um. í dag heldur hann svo áftur til Lundúna, og hefjast þá við- ræður þeirra MacMillans. Hef- ur brezki forsætisráðherrann lýst því yfir, að hann telji hin- ar væntanlegu viðræður mjög mikilvægar. Verður hluta þeirra viðræðna sjónvarpað um Bret- landseyjar. Fréttin um viðtökur þær, sem Eisenhower fékk í gær í Lond- on, hefur vakið athygli og fögn- |uð manna vestan hafs. Laas: Loftbrú verður opnuð frá Filippseyjum og Japan. Hammarskjöld segist enga beiðni hafa fengió um að senda eftirlitsmann til Laos. Það hefur nú opinberlega verið tilkynnt, í framhaldi af filkynningu Bandaríkjamanna um að þeir muni senda aðstoð til Laos, að opnuð verði loftbrú þangað með létt vopn og vistir. Þessi ákvörðun bandarísku -■stjórnarinnar var kunngerð .síðla í gær. Munu verða send matvæli, vopn, viðleguútbún- aður hermanna og annað er að hernaði lýtur, til Vientine. — Undanfarna daga hafa bardag- -ar geisað í næsta nágrenni norður af borginni. Ákveðið hefur verið, að fyrst um sinn fari flutningarnir fram :með bandarískum flutninga- rflugvélum, sem hafa bæki- rstöðvar á Filippseyjum. Síðar meir er sennilegt að einnig verði send vopn og vistir frá Japan. I Hammarskjöld, framkvæmd- | arstjóri SÞ. hefur sagt í viðtali 1 að engin beiðni hafi borizt frá j stjórn Laos, þess efnis að SÞ. ' sendi eftirlitsmann til landsins. Sjálfur kvaðst Hammarskjöld ekki geta sent eftirlitsmann til ' landsins upp á sitt eindæmi, til þess þyrfti ákvörðun ör- yggisráðs SÞ. Litlar fregnir hafa borizt um bardaga undanfarinn sólar- hring, en fullvíst mun þó talið, að skæruherhaður sé enn hafð- ur í frammi víða í héruðunum norðan Vientine. Sólskin og blíða á síldarmiðum eystra Voru byrjaðir að kasta í morgun. — Flugvélin sá vaðandi síld. j Tvö umslög I á sekúndu. Frá fréttaritara Vísis. Raufarhöfn í morgun. Það er sannarlega ekki heim- ferðarhugur í skipstjórwnum, sem enn eru eftir fyrir austan. Þar hefur verið indœlasta sum- arblíða dag eftir dag og táls- verð veiði. Flugvélin var að fara upp kl. 8, og sá hún þá strax vaðandi síld út af Glettingi. Þeir voru að byrja að kasta í morgun, en gekk illa að eiga Portugaíar auka fiskikaup. Frá fréttaritara Vísis. — Osló í ágúst. Norðmenn líta björtum aug- um á framtíðarhorfur með út- flutning á saltfiski til Portú- gals. Portúgalar kaupa meiri fisk af þeim í ár vegna þess að þeirra eigin fiskframleiðsla er minni en í fyrra. Nú er búið að flytja út til Portúgals 3413 lestir af salt- fiski en það er helmingi meira magn en selt var þangað í fyrra. Grindadráp i Færeyjum: 1500 hvalir á hálfu árí. Frá fréttaritara Vísis. Þórshöfn í Færeyjum. Nálega 1500 grindahvalir hafa verið drepnir hér á fjörð- um og sundum við eyjarnar á fyrra helmingi þessa árs. Það var í byggðinni Miðvági í Vági, sem bezt veiddist, en þar var nýverið ráðið niðurlög- um 108 hvala eftir margra klukkustunda æðislegan eltiiig- arleik inn um hinn strautn- þúnga Skoþenfjörð og harða viðureign. nfövxr . við síldina. Hún vildi ekki tolla uppi, en þarna er síld. Það var sæmileg veiði hjá þeim í gær- kveldi. Víðir II. fékk 650 mál, Guðbjörg frá Sandgerði 750, Heiðrún fékk gott kast, Hrafn! Sveinbjarnarson fékk 400 mál, Guðmundur Þórðarson RE 150, Gylfi II. 200, Rafnkell fékk í fyrrakvöld og í gær 550 mál,1 og daginn áður hafði hann feng-' ið 600 mál. (Síldin fer ekki1 fram hjá Rafnkelsstaðabóndan- um). Svanur RE fékk 300 mál í þremur köstum í gærmorgun og fékk svo stórt kast í gær- kveldi, og fyllti sig. Það er nokkuð erfitt að fylgj- ast nákvæmlega með öllum skipunum, því að mörg þeirra fá síld án þess að tilkynna það. Austfjarðabátarnir leita til heimahafna, þótt þeir þurfi að bíða þar eftir löndun, í stað þess að koma hingað norður og það er ekki alltaf, að þeir tilkynni komu sína í talstöð- inni. Það eru allir á þeirri skoðun, að veiðihorfur séu góðar fyrir Austfjörðum, svo framarlega sem veðrið haldist stillt, eins og það hefur verið undanfarið. Þessi mynd var tekin rétt fyrir sjö í Lækjargötu, þeg- ar biðröðin út fyrir af- greiðslu Flugfélags íslands náði næstum alla leið norð- ur í Austurstræti, eins og myndin ber með sér. Menn ætluðu að kaupa umslög Flugmálafélagsins vegna 40 ára afmælis flugsins hér á landi á fimmtudaginn. Kapp- ið var svo milcið í mönnum, að nær helmingur upplags- ins, sem er 15.000, seldist á klukkustund — eða tvö um- slög á sekúndu hverri. Það litla, sem eftir er af umslög- um, verður selt á sama stað í kvöld kl. 7—9 Nælan er með 400 demöntum. Alexandra prinsessa, dóttir hertogafrúarinnar af Kent, er um þessar mundir í Astralíu. Er hún þar sem fulltrúi fjöl- skyldu drottningarinnar, send til að sýna sig landslýð þar syðra. Þegar hún kom til Canberra, höfuðborgar Ástra- líu, var henni gefin næla með 400 demöntum auk fleiri steina, svo sem rbnía. Glæpum fjölgar mjög í London. Hafa aukizt um fjórðung frá 1954. Afbrotum hefur farið fjölg- andi í London í fjögur ár í röð, að því er segir í skýrslu lögregl- unnar. Á síðasta ári var lögreglunni tilkynnt um næstum 152 þús- und alvarleg afbrot, og eru þau 25 þús. fleiri en árið áður, og næstum tvöfalt meira en á ár- inu 1954, en þá var lægð á þessu sviði, 'eftir að glæpum hafði fjölgað mjög í lok stríðsins, þeg- , ar hermenn voru látir lausir úr herþjónustu og undu lítt kyrr- setunum í upphafi. Lundúnalögreglan kvartar mjög undan því, að hún hafi of lítið fé til að geta starfað al- mennilega. Nú koma um 258 mál á hvern leynilögreglumann hjá Scotlad Yard á ári, en voru aðeins 205 fyrir nokkrum árum. Afbrotaaukningin er. mest hjá ungum mönnum, 14—20 ára, því að hún hefur verið um 25 % síðustu árin. -

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.