Vísir - 06.11.1959, Blaðsíða 7
Föstudaginn 6. nóvember 1959
V IM «
Sogssijómin tekur 30 milij. kr.
lán vegna nýja orkuversins.
Bæjarsfjorn samþykkir að á-
byrgjast lánið að sínum hluta.
Samþykkt að brevta gnfii-
togara í dieseltogara.
Bæjarstjórnarfundur var haldhm í gær, og uráu talsverðar
umræður um lán handa Sogsvirkjuninni.
»> •'/ »> • v •> <
Aðalmálin, sem . lágu fyrir
hæjarstjórnarfundinum í gær,
voru:
1. Ályktun stjórnar Sogs-
virkjunarinnr um skuldabréfa-
lán hjá Seðlabankanum, .30
millj. kr., til greiðslu á innlend-
urn kostnaði vegna framkvæmd
anna við Efra Fall. I
2. Tillaga útgerðarráðs um að
breyta togaranum Ingólfi Arn-
arsvni í mótorskip og að bæjar-
stjórn ábju-gist lántöku til þess.
Borgarstjóri hafði framsögu
í báðum málunum. ITm lánið til
Sogsvirkj unarinnar sagði hann,
að nauðsyn bæri til að útvega
þetta fé. Niðurstaðan hefði orð-
íð sú, að Seðlabankinn hefði tek
ið að sér að annast útgáfu
skuldabréfa i þessu skyni. En
til þess að unnt væri að selja
slík bréf á fi'jálsum markaði
hefði bankinn talið óhjákvæmi-
legt að fara inn á nýjar brautir.
Við innlausn skuldabréfanna
skal greiða verðlagsuppbót á
nafnverð þeirra í hlutfalli við
hækkun rafmagnsverðs í Rvík
frá því sem var í okt. og nóv.
1959 og til jyalddaga bréfanna,
1. nóv. hvert áranna 1960—1964.
Lánið er í 5 ílokkum, frá 1—5
ára bréfa og eru vextir mismun-
andi eftir því, frá 5V2—7%.
Eins og vænta mátti fellur
þessi lántaka ekki í fjármála-
smekk kommúnista. Þeir þykj-
ast hafa séð aðrar og betri leið-
ir til að afla fjárins og liggja
þær auðvitað til austurs eins og
allir þeirra vegir.
Cuðnmndur Vigfússon kvaddi
sér hljóðs ug iýsti yfir því, að
hann og flokksmenn hans í bæj-
arstjórn teldu lánstilboð þetta
svo óhagstætt, að ekkert vit
væri í að ganga að því. Taldi
hann Seðlabankann ekki þurfa
að taka nema 4% vexti, sem
væri ærið nóg með hliðsjón af
því, að austur í Sovét hefði að
sögn Einars Olgeirssonar verið
hægt að fá lán með 21/? % vöxl-
um.
Alfreð Gíslason tók í sama
streng, nema hvað hann fór
harðari oi'ðum um tiiboðið og
talaði um brask í því sambandi.
Gunnar Thoroddsen og Geir
Hallgrímsson bentu þeim Guð-
mundi og Aifreð á, að iánveit-
ingin byggðist á þvi, að hægt
væri að selja bréfin, en bréf
með 4 ?; vöxtum væru eins og
allir vissu gersanrlega óseljan-
leg á þessum tímum.
Um lánsmöguleika í Sov-
étríkjunum sagði borgar-
stjcri, að aldrei hefði legið
ljóst fyrir, hvort fé væri fá-
anlegt þar; og eigi heldur
hvort sú kvöð fylgdi, að vél-
ar og tæki til framkvæmd-
anna yrðu keypt austur þar.
Hann kvaðst þó hafa rætt við
Hermann Jónasson, þáverandi
forsætisráðherra, og spurt hann,
hvoi't ríkisstjórninni hefði bor-
izt tilboð um lán frá Rússum.
Svaraði ráðherrann því neit-
andi og kvað ríkisstjórnina ekki
ætla að hafa milligöngu um lán-
töku þaðan í þessu skyni. Benti
borgarstjóri fulltrúum komm-
únista á, að þar sem lán fengj-
ust ekki þar eystra nema með
milligöngu ríkisstjórna, hefði
málið þar með verið úr sögunni.
Borgarstjói'i lagði til að
bæjarstjórn samþykkti álykt-
un Sogsstjórnarinnar um að
bjóða út lánið með framan-
greindum skilmálum, og var
það samþykkt gegn atkvæð-
um kommúnista.
Tillagan um lántöku til breyt-
inga á Ingólfi Arnarsyni var
samþykkt umræðulaust. Tillaga
Utgerðarráðs var á þessa leið:
..Útgerðarráð samþykkir að
leggja til að bæjarstjórn Revkja
víkur, að fela framkvæmda-
stjórum bæjarútgerðarinnar að
Játa gera ráðgerðar breytingar
á b. v. „Ingólfi Arnarsyni", þ. e.
að setja í skipið dieselvélar með
tilheyrandi útbúnaði og endur-
bvggja það, svo sem nauðsyn-
legt er í því sambandi, samhliða
12 ára flokKunarviðgevð þess.
Jafnframt samþykki bæjar-
stjórn að áhvrgjast i þessu skyni
allt að 10 milljón króna lán,
sem tekið yrði í erlendri mynt
með hæfilegum kjörum að dómi
útgerðarráðs.“
B.v. Ingólfur Arnarson var
bvggður árið 1947, og er með
gufuvél og lcatli. Olíueyðsla :
skipsins var árið 1958 1 millj. j
og 600 þús. Ivr. og viðlrald \’éla
312 þús. kr.
Við fyrirhugaða breytingu er
gert ráð fyrir, að olíukostnaður
minnka um kr. 600 þús. á ári og
viðhaldskostnaður véla um 200
þús. kr.
Reiknað er með að ganghraði
skiptsms aukist að mun og' lest-
arrými þess fyrir fisk um sem
svarar 50 smálestum.
Þótt gert sé ráð fyrir að
breytingin og viðgerðin á skip-
inu kosti 10 millj. kr. — þar
af '12-ára klössun, sem óhjá-
kvæmilega þyrfti að gera í síð-
asta lagi á næst ári — verður
elcki annað séð en tillaga út-
gerðarráðsins sé á sterkum i'ök-
um reist.
Eins og bent er á í grcin-
argerð framkvæmdastjór-
anna, Ilafsteins Bcrgþórs-
sonar og Jóns Axcls Péturs-
sonar, myndi lækkun árlegs
olíukostnaðar standa undir
vaxtabyrði fyrsta árið, mið-
að við 6 >/2 % vexti, og síðan
leggja til afborgana í vaxandi
mæli, cftir því sem skuldin
minnkar.
Lækkun á viðhaldskostnaði
véla kemur einnig upp í afborg-
anir.
Meiri ganghraði og aukið rúm
fyrir afla ei einnig síns virði,
einkum þegar langt þarf að,
sælrja til fanga.
Eftir umrædda breytingu er^
gert ráð fyrir að engra teljandi
viðgerða á skipinu vei'ði þörf.
næstu 12 árin, ef engin óhöpp j
koma fyrir.
Nýtt skip af þessax'i gerð mun
nú Kosta 21—22 millj. kr.
Bæjarráð hafði samþykkt að
mæla með að bærinn tæki á-
byrgð á allt að 10 millj. króna
láni. og var það einnig sam-
þykkt í bæjai'stjórn.
Ný bók:
ERFIÐ BÖRN
Dr. Matthías Jónasson sá um útgáfuna, en bókin er skrifuð
af 9 mönnum er allir lxafa fengizt við hin vandasömu
málefni erfiðra bai'na. Þeir skrifa bókina út frá lifandi
í’eynslu sinni og leggja áherzlu á hagnýt sjónarmið.
Bók þessi fjallar um ei'fið börn, börn sem ekki eiga að
fullu samleið með öðrum, sökum fötlunar t.d. blindu eða
málgallá, taugaveiklunar, námstrega, eða vitsskorts, eða
eru haldin siðferðilcgu þróttleysi. Með uppeldi, sem byggt
er á þckkingu, má oft gera góðan þegn úr erfiðu barni. —•
Bókin mun því reynast mörgu heimilinu, sem á við slíkan
vanda að eíja, næsta mikill fcngur.
HLAÐBÚÐ
HB
SUTBOLTAR
í eftirtaldar bifi'eiðir frá 1941—1956: Chevrolet — Chrysler
— De Soto — Dodge — Plymouth — Pontiac — Oldsmobile.
SMYRILL, húsi Sameinaða, sími 1-22-60.
Philip Noel-Baker fékk
friðarverðlaun Nobels.
Samtímis kunnugt að hann náði ekki kjöri
í stjórn Yerkamannaflokksins.
Noi'ska Stórþingið úthlutaði
í gær friðarverðlaunum Nobels
og hlaut hau brezki jafnaðar-
maðurinn Philip Noel-Baker.
Hann hefur um langt árabil
barizt fyrir afvopnun og varan-
Ekki fóðurskorti
um að kenna.
Vegna gi'einar í Þjóðviljan-
um í gær um búi'ekstur á Ketlu
á Rangárvöllum, óska ég að
blaðið birti eftirfarandi leið-
réttingu:
Nokkur undanfarin ár, höf-
um við Vilhjálmur Þór í-ekið
nokkui’n húi-ekstur á Ketlu.
Síðastliðið haust tók ég einn
við nefndum búrekstri, og er
Vilhjálmi Þór hann með öllu
óviðkamandi síðan.
Hvað viðvíkur hinni mjög
slæmu útkomu á vænleika
lainbanna í haust, þá mun
koma í ljós, að þar var ekki
fóðurskorti um að kenna.
Skúli Thorarensen
(sign.)
legum friði. Hann er ný orðinfl
sjötugur.
Hann hefur alla tíð verið einn
helztu baráttumaður í flokki
jafnaðai'manna, og hefur mikla
þekkingu til að bera um utan-
í’íkis- og alþjóðamál. Hann hef-
m verið foi’maður Verkalýðs-
flokksins og gegnt öðrum trún-
aðarstörfum.
í gær varð einnig kunnugt,
að PhiJip Noel-Baker og dr.
Editli Summei'skilJ, voru ekki
kosin í stjórn Verkamanna-
flokksins, en kosning fór nýlega
fram, og voru úrslit gerð kunn
í gær.
Eftir hann liggja margar'
merkar bækur um afvopnunar-
og fi’iðarmál.
Nýr námsstyrkur handa víð-
skiptafræðistndent.
H. f. Egíll Vilhjálmsson stofnar styrkinn.
H.f. Egill Viljhjálmsson hef-
ur í tilefni af 30 áva afmælis
fyrirtækisins ákveðið a'ð veita
námsstyrk einum efnalitlum og
efnilegum stúdent * viðskipta-
íræðuni hér í háskólanum.
' Styrkurinn verður veittur til'j
þess að ljúka prófi í viðskipta
fræðum hér innan eins árs og
til þess að ljúka prófi í erlend-
um háskóla í sömu fræðigi’ein
á næstu þrem árurn.
Styrkurinn er alls 70.000
krónur og gi'eiðist með 10.000
ikr? 19-59/60 og síðan árlega
20.000 kr. næstu þrjú ár.
Þessi mynd
er í „Þjóð-
sagxiabók Ás-
gríms Jónsson-
ar“ gerð í
litum og heitir
„Mjaðveig
Mánadóttir“,
en söguna
þckkja flestir.
Mynd þessi varð viðskila við frásögn af Þjóðsagnabók Ásgríms, sem Menningarsjóður gaf ut
ásamt þrem bókum öðrum nú í vikunni. Það er ekki að orðlengja það, að bók þessi er ein
fallegasta og þjóðlegasta bókin, sem völ verður á á haustmarkaÖnuin, að öllum öðrum ólöst-
uðum. Hún á auðvitað heima við hliðina á þeim bókurn sem cru fyrir alla á heimilinu