Vísir - 17.12.1959, Blaðsíða 1

Vísir - 17.12.1959, Blaðsíða 1
49. árg. Fimmtudaginn 17. desember 1959 175. tbl. 12 síður 12 síður Varnir NATO í ólai Norstad telur varnaáætlun óframkvæmanlega nema fíugherir séu undir einni stjérn. Á ráðherrafundi Norður-At- um, að Frakkar færu algerlega lantzhafsbandalagsins í dag sínu fram. Ráðherrarnir voru verður rætt um fund æðstu bundnir þagnarheiti, og eru manna, aðferðir Rússa við að fregnir um þetta frá frétta- koma fram.málum o. fI., en í mönnum komnar. gær var rætt um landvarna- málin, og ekki búizt við, að ]iau verði rædd frekara í dag. Á fundinum í gær sagði Nor- stad, hershöfðingi bandalags- ins, að hann gæti ekki fram- kvæmt áætlunina um varnir Vestur-Evrópu, nema loftherir bandalagsríkjanna væru undir einni stjórn algerlega, en á það vill De Gaulle ekki fallast. Flestir ráðherranna studdu hann — nema landvarnaráð- herra Frakka, sem sat fundinn gleip að sögn fram í hvað eftir annað, og jafnvel hafði í hótun- 5 daga lega. Brezk blöð í morgun ræða mikið um ágreininginn og telja flest réttmæta gagnrýni Banda- ríkjanna á Frakklandi, fyrir að bregðast skyldum við banda- lagið. Bent er á, að ekkert iand hafi á neyðarstundum þurft eins mikið á samstarfi og stuðn- ingi annarra þjóða að halda og Frakkar. í kvöld verður gert hlé á Nato-fundinum, enda er nú skammt til fundar leiðtoga Vesturveldanna, og er gert ráð fyrir fjórum fundum er þeir sitji Eisenhower, Macmillan, | De Gaulle og Adenauer, og 1 munu utanríkisráðherrar og ráðunautar og sérfræðingar auk þess sitja ýmsa fundi. Blfrelðastjórar á Akur- eyri dændir. Frá fréttaritara Vísis Akureyri í gær. Nýverið hafa tveir bifreiða- stjórar á Akureyri verið dæmd- ir til ævilangrar ökuleyfissvift- ingar. Þriðji ökumaðurinn var dæmdur frá réttindum um óá- kveðinn tíma. Þá hafa nokkrir bifreiðastjórar verið sviftir öku- réttindum um eins árs skeið og þaðan af skemur. Þessar dómar hafa verið kveðnir upp sökum ölvunar við akstur. Talsvert hefur verið um á-1 rekstra farartækja undanfarið á Akureyri, en fæstir þeirra ^ ýkja alvarlegir og ekkert slys, á mönnum orðið í sambandi við þá það sem liðið er af árinu. Samkvæmt upplýsingum frá . Akureyrarlögreglunni hafa margir unglingar verrið teknir þar fyrir ýmiskonar óspektir, m.a. fyrir það að brjóta ljósa- perur í götuljóskerum, rúður í húsum og fleira. Sumir pilt- anna hafa hlotið sektir fyrir tiltæki sín, en aðrir sloppið með áminningar. Sjóðþurröin nemur e. t. v. 6-800 þús. kr. Haekur kaupfélagsins eru nú einnig í athugun. Rannsókn þjófnaðarmáls- ins í Vestmannaeyjum stendur lú sem hæst, og er engin niður- staða fengin um, hve miklar fjárhæðir er þar um að ræða. Vitað er þó að á árinu 1958 hafa a. m. k. horfið 372 þús- und krónur í vasa gjaldkerans, og vitað er að á árinu 1957 er einnig um mikinn fjárdrátt að ræða. Gizkað er á að fjárdráttur- inn muni nema samtals ekki minna en 600 til 800 þúsund krónum. Grunur hefur að sjálfsögðu vaknað um, hvort svipað hefur gerst í kaupfélaginu, þar sem Halldór gerðist kaupfélagsstjóri eftir að hann hætti bæjargjaldkera- Frá fréttaritara Vísis. Sandgerði í morgun. Hér var skafrenningur í morgun og allhvasst. Bátarnir hafa ekki verið hreyfðir síðan á sunnudag og ekki er útlit fyr- ir sjóveður í dag. Þetta er fimmti landlegudag- urinn hjá síldarbátum. Ekki hefur verið róið úr neinni ver- stöð, þennan tíma því norðaust- an strekkingur hefur blásið yf- ir síldarmiðin. Tvær aflasölur fyrir jól. Togarinn Júní seldi í Brem- erhaven í morgun 135 lestir af afla fyrir 76.500 mörk en auk þess var togarinn með 42,5 lest- ir af ísaðri síld, sem seldist fyr- ir 23.000 mörk. Síldin var veitt í hringnót og var því smá, enda fékkst fyrir liana minna verð, 55 pfenning- ar pr. kg. en Keilir fékk á sín- um tíma, en það voru 93 pfenn- ingar og var afbragðs verð. Tvær aflasölur verða fyrir jól. ísborg selur í Þýzkalandi í væntanlega selja í Aberdeen næstu daga. Sennilega verða einhverjar aflasölur erlendis að afliðnum jólum. Bandaríkjamenn tóku ný- lega í notkun fimmta kjarn- orkukafbát sinn, er nefnist Sædrekinu (Seadragon). Menn spyrja vafalaust, hvaða furðumynd þetta sé, en svarið er ósköp einfalt. Flugmenn F. í. voru um dag- inn ag æfa lendingu á flug- vellinum í Vestmannaeyjum í myrkri, og einu sinni þeg- ar flugvél var í aðflugi, smellti ljósmyndarinn af og lét myndavélina standa opna, þar til flugvélin var farin framhjá (Ljósm. Sn. Sn.) Samið um síldarsöltun hvarvetna. Samningar tókust í Keflavík í nótt. Laxá heim um áraméL Laxá, hið nýja skip Verzlana- sambandsins fór í fyrradag frá Óðisnvéum í Danmörku áleiðis til Ventspils. Skipið fer þaðan til Rúss- lands og lestar timbur. Það er ekki væntanlegt heim úr þess- ari fyrstu för fyrr en um ára- mót. Hinn 10. þ. m. tókust samn- ingar milli vinnuveitenda og verkakvennafélaganna í Rvík, Hafnarfirði, Grindavík og Vest- mannaeyjum um síldarsöltun á yfirstandandi vertíð. Varð samkomulag um að flokka síldina í þrjá kaup- flokka miðað við stærð, þ. e. 1—500, 500—700, og 700—900. f Keflavík töldu verkakonur þessa flokkun erfiðleikum bundna og hafa ekki mætt á söltunarstöðvunum frá því 9. þ. m. Vildu þær aðeins hafa flokkana tvo þ. e. stórsíld og millisíld í einum flokki þ. e. - —700 í stað 1—500 og 500— 700 eins og á hinum stöðunum hafði samist um, og smásíldina í öðrum f nótt komust á samningar í Keflavík og Njarðvikum fyrir milligöngu og skv. tillögu Torfa Hjartarsonar, sáttasemjara ríkisins, um tvo söltunarflokka, byggðum á grundvelli samning anna frá 10. þ. m.ðað við það síldarmagn, sem söltunin hef- ur reynzt verða í hvern stærð- arflokk. Hér er því um að rseða fyrir- komulagsbreytingu á flokkun síldarinnar en ekki breytingar á kaupi, enda undirstrikað af báðum aðilum að í þessum samningum kæmu breytingai' á grunnkaupi ekki til greina. störfum, og munu reikning- ar þess vera í endurskoðim nú. Halldór hætti þar störf- um jafnskjótt og upp komst um sjóðþurrð hans hjá bæn- um (á föstudag), og bíður nú átekta í Eyjum. Aðferð hans við fjárdráttinn ( og skjalafölsunina, var aðallega sú, að er hann tók við reikning- | um og vinnunótum áhalda- t hússins, sem sér um flestar ( verklegar framkvæmdir bæjar- ins, reif hann nóturnar og bjó til nýjan heildarreikning og falsaði nafn forstjóra áhalda- hússins undir nóturnar, sem þá sýndu hærri útgjaldaupp- hæð, en raun var á. Þannig er um skjalafals að ræða auk þjófnaðarins, og varðar það fangelsi að lögum. Fleira hefur komið í ljós, svo að þetta mun ekki vera eina aðferðin, sem hann hefur við- haft, en sú algengasta. Eitt af því, sem Vestmanna- eyingum svíður hvað mest, er það, að strax og upp komst um þetta, og Halldór hafði viður- kennt brot sitt, gaf hann sig upp sem gjaldþrota, en ’það þýðir það að hann tekur ekki á sig meiri ábyrgð, en „eignir“ hans standa fyrir. Halldór mun hafa keypt íbúð í Eyjum og ýmis hús- gögn í hana, en ekki er reikn að með að andvirði þeirra nái langt upp í fjárdrátt lians. Rússar og iapanlr semja um viðskipti. Sovézk viðskiptasendinefnd kom til Tokió nú í vikunni. J Áfonnið er, að gerðir verði . viðskiptasamningar til langs j tíma. Rússar vonast til að geta selt Japönum járngrýti, koks og hráolíu, en fá í staðinn vélar, stáliðnaðarvörur ýmsar og fleira. V.-Þýzki flug- herinn eflist. Vestur-Þýzki flguherinn vex hröðum skrefum. Nú hefur verið bætt við hann þremur deildum (wings) og eru þær þá orðnar 12 alls. — Sú deildin, er síðast var stofnuð, ræður yfir 36 amerískum F 84 þotum. . ,

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.