Vísir - 28.12.1959, Síða 2
VlSIR
Mánudaginn 28. desember 1959
' ii \ v/
Sœjarfréttit
Útvarpið í kvöld:
18.30 Tónlistartími barn-
arina (Sigurður Markússon).
19.00 Létt lög. 20.30 Einleik-
ur á píanó: Rögnvaldur Sig-
urjónsson leikur sónötu í
D-dúr eftir Mozart. — 21.00
„Vogun vinnur — vogun
tapar“. — Sveinn Ásgeirs-
( son hagfræðingur stjórnar
þættinum. 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. 22.10 Upp-
, lestur: „Jólagesturinn“,
saga eftir Viktoríu Bjarna-
dóttur (Anna Guðmunds-
dóttir leikkona). 22.25 Nú-
tímatónlist (pl.) — til 23.00.
Sjötug er í dag
Ása Víglundsdóttir, Kárastíg
1. í dag dvelur hún hjá fóst-
urdóttur sinni á Langholts-
veg 149.
Tímarit
Verkfræðingafélags íslands,
1. hefti 1959, er komið út. —
í heftinu er m. a. minning-
argreinar um Axel Sveins-
son vitaverkfræðing, um
byggingarefnarannsóknir
Iðnaðardeildar, útreikning á
kólnunartölu í hlöðnum
húsveggjum, um ofaníburða-
rannsóknir, rannsóknir á
pozzolan-eiginleikum nokk-
urra íslenzkra bergtegunda,
rafkraptur-rafmagn o. m. fl.
Á fundi bæjarráðs
22. des. var lagt fram bréf
frá Sambandi ísl. sveitarfé-
lags um fyrirhugað þing
sveitarstjórnarmanna á veg-
um Evrópuráðsins í Strass-
burg í jan. n. k. Var sam-
þykkt að Gunnlaugur Pét-
ursson borgarritari verði
fulltrúi bæjarins á þingi
þessu.
Skátajól
heitir jólablað Skátablaðs-
KROSSGATA NR. 3934:
ins, sem nýkomið er út. —
Efni blaðsins er fjölbreytt
og hefir ýmsan fróðleik að
færa og skemmtilestur fyrir
yngri kynslóðina. Nefna má
ferðasögu eftir Ragnar H. |
Guðmundsson, aðra eftir Jón'
Oddgeir Jónsson, um Fjall-j
rekka og starfsemi þeirra,'
ýmsar jólasögur, gátur og
þrautir o. m. fl.
Ægir,
rit Fiskifélags íslands er
komið út. Þar er yfirlit yfir
Útgerð og aflabrögð, ýmsar
smágreinar og upplýsingar,
og ekki sízt löng frásaga
eftir Birgi Kjaran, er hann
nefnir „í togi með hvalföng-
urum“ og segir skemmtilega
og fróðlega ferðasögu með
Agnari Guðmundssyni, skip-
stjóra á Hval 5 upp í Hval-
fjörð.
Hvar er atgeir Gunnars
niðurkominn?
Nýjasta kenningin í íslands-
sögu, er vér vitum af, fjallar
um örlög atgeirs Gunnars á
Hlíðarenda, en um þetta má
lesa í nýútkomnum bæklingi,
eftir Pétur H. Salómonsson.
Eigi getum vér hermt, hvort
sé hér á ferðinni doktorsritgerð,
en þarna segir Pétur, að atgeir
Gunnars hafi sokkið í Breiða-
fjörð með Eggerti Ólafssyni.
Löngu síðar hafi brezkur tog-
ari fengið „spjót“ í vörpuna
og vitanlega slegið eign sinni
á það og flutt til Englands. Og
nú er spurningin mikla, var
þetta ekki atgeir Gunnars, og
er hann blátt áfram ekki gey'md
ur í brezku safni?
En um allt þetta getur hver
fróðleiksfús lesandi fræðst bet-
ur um í bæklingi Péturs, sem
heitir „Hvar er atgeir Gunnars
frá Hlíðarenda?“ sem er til sölu
í bóka- og blaðasölum og hjá
fræðimanninum sjálfum, hvar
sem hann sést á nótt eða degi.
Réttarhöld í Bagdad út af.
samsærinu gegn Kassem.
Fimm af 78 hafa játað. - Sjónvarpað
er frá réttarhöldunum.
Réttarhöld eru hafin í Bag-
dad yfir 78 mönnum, sem sak-
aðir eru um þátttöku í sam-
særinu gegn Kassem forsætis-
ráðherra íraks. Útvarpað er og
sjqnvarpað frá réttarhöldun-
um og áður en þau hófust var
fréttamönnum tjáð, að þeim
væri frjálst að fylgjast með
öllu og síma um það, sem gerð-
ist.
Af þeim 78 mönnum, sem
eru ákærðir, eru 21 fijarverandi,
þar sem ekki hefur tekizt að
hafa hendur í hári þeirra. —
Saksóknari ríkisins hefur lýst
yfir, að Hussein Jordaníukon-
ungur, íranskeisari og Nasser
forseti Arabiska sambandslýð-
veldisins hefðu haft í hótunum
við írak og stjórn landsins, og
vitnaði í blaðafregnir, þar sem
þessir menn, einkum Nasser,
voru beinlínis taldir hafa staðið
að baki samsærismanna.
Fregnir í gær hermdu, að
þrír menn hefðu játað á sig
sakir, og í morgun, að fimm,
þeirra meðal stúdent, hefðu
játað, að hafa skotið á Kassem.
Þeir sögðust hafa tekið þátt í
samsærinu í þágu Arabiska
sambandslýðveldisins.
Sumir sakborninga sögðust
hafa verið knúðir til játninga.
Fjölnienn lögregla i lefjt
að morðingja. \
Hryllilegt morð var framið í
Manchester á Englandi um jól-
in og leitar fjölmenn lögregla
morðingjans.
Er sagt, að lögreglan í Mid-
lands hafi aldrei gert út jafn
marga menn til leitar og að
þessu sinni. — Það var ung
kona, sem myrt var, og mun
morðvopnið hafa verið borð-
hnífur. Nokkrir menn segjast
hafa séð ungan mann blóði drif-
inn og hafa látið í té lýsingu
á honum.
Gyðingahatur brýzt út
i Vestur-Þýzkalandi.
Gyðingakirkja vanhelguð, svo og minnismerki.
Róleg jól
Frh. af 1. síðu.
arauga, auk meiðsla á nefi og
munni í. ryskingum við annan
mann í heimahúsi. Á jóladag
danglaði maður í glerhurð með
þeim afleiðingum, að hann
skarst illa á hendi og var flutt-
ur til læknis. Annars staðar
varð að fjarlægja óvelkomna
gesti úr húsum og loks kom til
lítilsháttar árásar eða átaka á
götum úti, en án þess að til
meiri háttar tíðinda drægi.
Slökkviliðið þurfti varla að
hreyfa sig um jólin. Það var
tvisvar kvatt út vegna íkveikju
í bálköstum. í öðrum tilfellinu
var kveikt í bálkesti við félags-
heimili knattspyrnufélagsins
Víkings í Bústaðahverfi. Þar
varð mikill eldur og tók lang-
an tíma að slökkva. Þá kvikn-
aði og í trjálundi við Laugarás-
veg í fyrradag, en var fljótlega
slökkt.
Formaður Kölnardeildar
Vesur-þýzku ríkisflokksins,
sem er smáflokkur, hefur ver-
,ið settur í gæzluvarðhald um
stundar sakir, og nokkrir menn
aðrir, en réttarhöld eru í þann
veginn að hefjast í Köln, út af
saurgun á Gyðingakirkju og
minnismerki yfir fallna Gyð-
inga þar í borg á jólanótt.
Þeir höfðu málað minnis-
merkið svarlr og hakakross
máluðu þeir á það og níð um
.Gyðinga var málað á kirkjuna.
ÍTveir menn voru handteknir.
i
Lúbke forseti og Adenauer
kanzlari lýstu þegar áhyggjum
sínum yfirþessum svívirðingar
jverknaði, og flokksstjórn Rík-
isflokksins lýsti yfir, að hann
væri ekki fjandsamlegur Gyð-
ingum. Var hinum handteknu
mönnum vikið úr flokknum og
allri Kölnardeildinni um
'stundarsakir.
Nixon sennilega forseta-
efni republikana.
— Nelson Rockefeller hefur lýst yfir, að
hann gefi ekki kost á sér.
Nelson Rockefeller ríkisstjóri
í New York tilkynnti um jólin,
að hann hefði ákveðið að gefa
ekki kost á sér sem forsetaefni
republikana í forsetakosning-
unirni að ári.
Ekki kvaðst hann heldur
gefa kost á sér sem varafor-
setaefni og væri hér um
ákvörðun að ræða, sem ekki
yrði breytt. — Rockerfeller
hefur á undangengnum tíma
ferðast um Kaliforniu og víðar
til þess að kynna sig persónu-
lega og skoðanir sínar.
Stjórnmálafréttaritarar telja
víst, að Nixon varaforseti verði
fyrir valinu, þar sem Rocke-
feller er genginn úr skaftinu.
Nixon á sterk ítök í hinum
íhaldssamai’i armi flokksins, en
Rockefeller frjálslyndur, og'
óttuðust demokratar að hann
vegna frjálslyndis síns kynni
að draga til sín fylgi frá þeim.
Lárétt: 1 hús, 6 blind.., 7
fornt nafn, 8 loðdýr, 10 vötn, 11
.. .skeyttur, 12 helma, 14 tónn,
15 rómversk tala, 17 hækkar.
Lóðrétt: 1 söguhetja, 2 hljóð,
3 varfærni, 4 letrað fyrir meira
en 1900 árum, 5 bakteríur, 8
amboð, 9 nokkuð, 10 forfeður,
12 kall, 13 alg. smáorð, 16 sér-
hljóðar.
Lausn á krossgátu nr. 3933:
Lárétt: 1 sönglar, 6 ól (seig-
ur),,7 oj, 8 ósátt, 10 Ás(hildar-
mýri), 11 rót, 12 brak, 14 MA,
15 nám, 17 hakar.
Lóðrétt: 1 sót, 2 öl, 3 gos, 4
ljár, 5 rottaii, 8 ósana, 9 tóm,
10 ár, 12 bú(kona), 13 kák, 16
m.
SNJÓKEDJUR
Keðjubitar, keðjulásar, keðjutangir, keðjubönd.
Einníg „Wintro“ frostlögur.
SMYRILL, Húsi Sameinaða. — Sími 1-22-60.
R0SKINN MAÐUR
óskar eftir vinnu sem fyrst. Margt kemur til greina, t.d.
léttar skriftir, en sízt næturvinna. — Tilboð sendist Vísi
fyrir miðvikudagskvöld merkt: „Áreiðanlegur.“
Unglingadeild Ameríska Rauða Krossins (American Junior
Réd Cross) lætur með hjálp amerískra skólabarna, á hverju
ári útbúa gjafapakka, sem sendir eru skólabörnum víðsvegar
um heim fyrir milligöngu hlutaðeigandi Rauða Kross félaga.
Rauða Krossi íslands hafa undanfarin ár borizt slíkir gjafa-
pakkar og hefur þeim verið útbýtt meðal skólabarna víðsvegar
um landa. — Að þessu sinni hafa þeir verið gefnir í Kópavog,
Sandgerði, Vestmannaeyjar, Höfn í Hornafirði, Djúpavogi,
Breiðdalsvík, Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði, Eskifirði, Reyðarfirði,
S$uðárkróki, Bíldudal, Patreksfirði, heimavist Laugarnesskólans,
og Jaðar. Þeðar gjafapakkarnir voru afhentir á Jaðri skömmu
fyrir jólin, var þessi mynd tekin.
Konan mín og móðir okkar
GUÐRÚN EINARSDÓTTIR
frá Miðdal andaðist 24. þ.m.
• > • ■ •
Gísli Einarsson ogr synir.