Vísir - 11.02.1960, Síða 12
Ekkert blað er ódýrara í askrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir og annað
lestrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
VÍ8IK
Munið, að þeir sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá Maðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Fimmtudaginn 11. febrúar 1960
Vatnsborð Hvítár hækkaði
um 11 m. hjá Brúarhlöðum.
Sliúlni rnní vegitnat yfir
YBtjrtlta IsstantL
Talið er að vatnsborð Hvítár
iiafi hækkað um 10—11 metra
hjá Brúarhlöðum í Biskupstung
Om í flóðinu mikla, ef miðað er
við venjulegt sumarvatnsborð.
Undir venjulegum kringum-
stæðum er vatnsborðið um 11
metra fyrir neðan brúargólfið,
en núna skolaði áin jakahröngli
upp á brúna, auk þess sem hún
gróf fyllingu við brúarsporðinn
og skolaði burt. Sýnir það, að
hún hefir náð um 4 metra dýpi
■fyrir ofan bakka sína, eða gljúf-
urbarminn, og mun það mjög
'fátítt.
Aðgerð við brúna er í þann
’Veginn að hefjast og má gera
ráð fyrir að þær taki nokkra
daga.
Þá hófst viðgerð í gær á veg-
inum og brúnni yfir Skillandsá
í Laugardal, en þar fór hluti af
brúnni í flóðinu sem kunnugt
er, og stöðvaðist öll umferð.
Skálm á Mýrdalssandi fór úr
farvegi sínum í flóðinu, flæddi
yfir veginn austan við brúna
og braut hann þannig, að vegar-
samband rofnaði í bili.
Samkvæmt uppíýsingum
frá Vegamálaskrifstofunni í
gær eru viðgerðir hvarvetna
í gangi, en sums staðar eru þær
nokkuð tafsamar vegna þess ,
hve erfitt er að ná í ofaniburð.
Víðast hvar, þar sem ekki var
um stórfelldar skemmdir að (
ræða, eru vegir aftur orðnir
færir bifreiðum, jafnvel þótt
viðgerð sé ekki fyllilega lokið.
Á leiðinni milli Reykjavíkur
og Akureyrar er nú komið sum-
arfæfi, nema í Skagafirði er
enn tafsamt og seinfarið, en þó
fært orðið.
Þetta er skemmtileg og óvenjuleg mynd, þótt liún væri síður
en svo tekin í skeinmtilegu veðri. Regnhlífar hafa mikið verið
notaðar í vætunni undanfarið, og ’því fannst ljósmyndaranum
tiívalið að skjóta, þegar svona vel bar í veiði. (Ljósm. G. E.)
Götusteinar of hættulegir.
Hætt a5 nota þá í Algeirsborg — eru of
hentugír í götuvirld.
Það er alda gömul venja
víða um lönd að nota tilhöggna
steina til gatnagerðar, og er
haldið enn í dag, en líklegt
þykir, að Frakkar breyti nú til
— og s Algeirsborg, sem sem
Frakkar viðhöfðu þessa gatna-
gerð eins og £ heimalandinu, er
þegar byrjað á því.
Það kom nefnilega í ljós í
byltingartilrauninni á dögun-
Fréttaritstjórar Associated
Press efndu til skoðanakönn-
unar sín á milli um það,
hvaða atburður þessa árs
(1959) hefið haft mest frétta
gildi. Efna þeir til slíkrar
skoðanakönnunar árlega.
Frétt ársins reyndist að
þeirra áliti: Vesturför Krú-
sévs.
i
4
■J
um, að ekkert er hægara en að
rífa upp hnullungana í skyndi,
og hlaða úr þeim ramer götu-
vígi. Þetta gekk alveg furðu
fljótt fyrir sig í Algeirsborg,
þar sem byltingarsinnar hlóðu
slík götuvirki þvert yfir götur
á mjög skömmum tíma. A Rue
Michele, aðal umferðargötu,
voru stórvirkar ýtur notaðar til
þess að ryðja burt götuvirkjun-
um, og þar næst voru stein-
arnir fluttir í burtu, og nú er
verið að asfaltbera um 7500 fer-
metra af Rue Michele, og ólík-
legt annað en að dagar hnull-
unganna til gatnagerðar séu
brátt taldir. Þeir þykja líka
harðir og ójafnir undir fæti og
kvartað yfir þeim bæði af ak-
andi og fótgangandi mönnum.
Cobmbol
Oíton
Mánud. 1. þ. m. var efnt til
kosninga i ríkinu Kerala á
Indlandssaga, og urðu úrslit
þau, að kommúnistar urðu
undir. Þeir höfðu sigrað í kosn-
ingmn áður, en ráðsmennska
þeirra var slík, að miðstjórnin
í Nýju Delhi neyddist til að
svifta þá völdum og efna til
nýrra kosninga. Kortið sýnir
legu Kerala.
Tíu ára úrengur brenndist
til bana í gær.
EEdur læstist I föt hans
eftir sprengingu.
Síðdegis í gær beið 10 ára
gamall drengur bana á hinn
hörmulegasta hátt, er hann
brenndist af völdum sprenging-
ar í porti hjó Melavöllum við
Rauðagerði.
Rannsókn í máli þessu er
ekki lokið, en svo virðist sem
drengur þessi, Jón Gunnar
Gunnarsson, til heimilis að
Langagerði 44, hafi verið að
leika sér inni í portinu með
tveim drengjum öðrum. Þarna
munu þeir hafa kveikt bál og
kastað á það benzínbrúsa með
einhverjum slatta af benzín í.
Varð við þetta allmikil spreng-
AÐ VESTAN:
Fé varla komið í hús
sumstaðar í vetur.
Og mikið um brennivínskaup.
ísafirði 1. febrúar..
Tíðarfar á landi hefur verið
eitt mildasta og hagstæðasta,
sem menn muna. Á sumum úti-
gangsjörðum hefur fé varla
komið í hús, á þessum vetri,
enn sem komið er, og hafst vel
við.
Nú hækkar sólin blessuð og
vefur vestfirzku fjöllin, víkur
og dali í geislaflóði. Nú fer
líka blámaðurinn, steinbíturinn
að koma á miðin við Vest-
firði. Verði steinbíturinn gjöf-
ull verður vetrarvertíðin góð.
Bílaárekstrar hafa verið all-
tíðir hér á ísafirði í vetur. Sýn-
ir það, að meiri gætni í umferð-
inni er nauðsynleg. Það er alls-
staðar sama sagan. AUir þurfa
að flýta sér lifandis ösköp. Þeir
eru alltaf á einhverju met-
stroki og mega ekki aungablik
missa. Hverjar afleiðingarnar
kunna að verða eða geta orð-
ið, það hefir enginn tíma til
þess að hugsa um.
Á þennan hátt og með vax-
andi farartækjum stærri og
Róttækar breyt-
ingar í Alsír.
Franska stjórnin kom saman
á fund og tilkynnti að honum
loknum róttækar breytingar
varðandi Alsír. M. a. hefur
þremur hershöfðingjum verið
vikið frá, og aðrir fluttir til.
Alls munu þær ná til 10 hátt
settra liðsforingja. Heimavarn-
arliðið í Alsír verður lagt niður
og lögreglan endurskipulögð,
hegningarlögin endui'skoðuð
(sum ákvæði þeirra, með tilliti
til þess, sem gerzt hefur í Alsír)
og héraðs- og sveitarstjórnar-
kosningar eiga fram að fara í
vor undir ströngu eftirliti.
smærri, verða umferðarmálin
að flóknasta vandamáli, því
fyrst þarf að ráða við fólkið.
Mikil áfengiskaup hafa verið
hér í janúar, einkum síðari
hluta mánaðarins. Menn telja
víst að áfengi hækki í verði,
en vilja ekki missa af dropan-
um, og ekki stendur á pening-
um þegar áfengi er annarsveg-
ar. Og hvað eyðum við miklu
í áfengi? Áfengisverzlun ríkis-
ins seldi fyrir 178 millj. kr.
Hve miklu er svo smyglað og
lekur á ýmsan hátt? f áfengið
kostum við aldrei minna en
250 millj. krónur, miðað við
nýliðið ár. Væri ekki heppilegt
að reyna að minnka þann aust-
ur?. Arn.
Strandaði við
Helgasker.
Vélbáturinn Haraldur
strandaði í nótt skammt frá
Helgaskersbaujunni við
innsiglinguna til Hafnar-
fjarðar. Bjartviðri var og hið
bezta veður er báturinn tók
niðri. Ekki komst hann á
flot aftur af eigin ramleik,
en Reykjanes og Fislciklett-
ur drógu hann aftur á flot.
Ekki er vitað hvað báturinn
er mikið skemmdur, en hann
mun verða tekinn í slipp til
athugunar. Jón Kr. Gunn-
arsson er eígandi bátsins.
Fjallgöngxunenn hafa nýlega
klifið Aconeagua.
Leiðangm* fjallgöngumanna
frá Argentínu hefur komist
upp á tind fjallsins Aconcagua,
sem er 22. þús. f. ofar sjávarfleti
ing svo að botninn úr brúsan-
um rifnaði frá og varð af all-
mikið bál. Eldurinn mun hafa
læst sig í fót Jóns litla, sem
staðið hefur nálægt og ekki
ósennilegt, að benzín hafi jafn-
framt skvetzt á hann. Hina
tvo drengina mun ekki hafa
saknað og forðuðu þeir sér úr
portinu á samri stund og
sprengingin varð.
Samkvæmt frásögn manns,
sem var nærstaddur — hann
var að gera við bíl sinn á næstu
grösum við portið — heyrði
hann allhvella spreningu og sá
á sömu stundu reykjarsúlu
leggja upp úr portinu. Maður-
inn kvaðst þá hafa klifrað upp
á nærliggjandi skúr þarna sem,
hann sá vel yfir portið. Sá hann
þá bálið og drenginn í port-
inu. Maðurinn kallaði þá til
nærstadds manns og bað hann.
að koma til hjálpar, en sjálfur
klifraði hann yfir girðinguna,
sem umlykur portið, og til
drengsins. Þegar maðurinn kom
til drengsins var hann meðvit-
undarlaus en með lífsmarki. —
Kom hinn maðurinn þá til að-
stoðar og hafði meðferðis teppi
sem þeir vöfðu um drenginn og
slökktu með þeim hætti eldinn.
Gekk þeim verst að slökkva í
fótum hans, m.a. vegna þess að
hann var með gúmmískó á fót-
Hringdi annar mannanna
þegar í stað á sjúkralið og lög-
reglu, er kom strax á vettvang,
en hinn maðurinn beið yfir
hinum helsærða dreng á með-
an. —
Drengurinn var fyrst fluttur
í slysavarðstofuna en síðan í
sjúkrahús og þar lézt hann rétt
á eftir.
Utv&rpsuntræða
á mánudaginn.
Önnu umræða um efnahags-
málafrumvarpið hefst í neðri
dild í dag, og er gert ráð fyrir,
að henn verði lokið á morgun.
Þriðja umræða mun svo fara
fram á mánudagskvöld og verð-
ur henni útvarpað. Verður þá
um tvær umferðir þingflokk-
anna að ræða, hin fyrir 30 mín-
útur, en hin síðari 15 mínútur,
eins og oftast er venja við slik-
ar umræður.
Gert er ráð fyrir, að hægt
verði að koma málinu gegnum
efri deild á þrem dögum, og
ætti það því að komast gegnum
þingið fyrir aðra helgi.
og hæsti tindur meginlands
Ameríku. í leiðangrinum voru
fimm hermenn og einn óbreytt-
ur borgari.