Vísir - 07.06.1960, Blaðsíða 2
2
V f S I B
Þi'iðjudáginn 7. júní 1960
Útvarpið í kvöld:
19.00 Þingfréttir. Tónleikar.
16.30 Veðurfregnir. — 20.30
j Skóla- og fræðslumál í
Bandaríkjunum, — erindi
] (Magnús Gíslason náms-
i stjóri). — 21.00 Hljómsveit
Ríkisútvarpsins leikur. —
j Stjórnandi: Hans Antolitsch.
, a) Svíta í fjórum köflum
j eftir Helga Pálsson. b)
j „Donna Diana“, forleikur
j eftir Rezniczek. 21.30 Út
j varpssagan: „Alexis Corbas1
eftir Nikos Kazantzakis
(Erlingur Gíslason leikari)
! 22.00 Fréttir og veðurfregnir
22.10 íþróttir (Sigurður Sig
J urðsson). 22.25 Lög unga
j fólksins (Guðrún Svafars
dóttir og Kristrún Eymunds
dóttir) — til 23.20.
Eimskipafélag íslands:
Dettifoss fór frá Hamborg á
föstudag til Uddevalla, Vent-
J spils og Finnlands. Fjallfoss
J fór frá Norðfirði á laugar-
dag til Seyðisfjarðar og
j Reykjavíkur. Goðafoss fór
] frá Gautaborg á föstudag,
væntanlegur til Reykjavíkur
í dag. Gullfoss fór frá Reykja
J vík kl. 1200 á laugardag til
j Leith og Khafnar. Lagarfoss
fer frá New York í dag til
Reykjavíkur. Reykjafoss
kom til Hamborgar á laugar-
; dag — fer þaðan til Rotter-
' dam og Reykjavíkur. Selfoss
kom til Reykjavíkur fyrir
viku frá Hamborg. Trö'lafoss
fór frá Vestmannaeyjum á
laugardag til Hull, Antwerp-
en og Hamborgar. Tungu-
foss kom frá Vopnafirði í
gærmorgun.
Söluleyfi.
Á fundi bæjarráðs 3. þessa
mánaðar var lagt fr5 n bréf
frá Guðmundi Ólafssyi'i, sem
sækir þar um levfi til að
starfrækja pylsuvagi. Mál-
inu var vísað til u asagnar
heilbrigðisnefndar c ; lög-
reglustjóra. — Þá sam-
þykkti bæjarráð tð veita
Braga Brynjólfssyn' eyfi til
KROSSGATA NR. '165:
Skýringar:
Lárétt: 1 sleppa, 6 fugl, 8
and.., 10 raun, 12 reka, 14 á
Húsi, 15 tímarit, 17 frumefni,
18 hengi..., 20 guðspjallamaður.
Lóðrétt: . .bogi, 3 hreinitæki,
4 gabb, 5 merki, 7 lagaskjals, 9
aeti, 11 stafirnir, 13 nafni, 16
dropi, 19 samhljóðar.
Lausn á krossgátu nr. 4164:
Lárétt: 1 negla, 6 fló, 8 rá, 10
æður, 12 ama, 14 snæ, 15 gafl,
17 Ag, 18 lön, 20 öskrar.
Lóðrétt: 2 ef, 3 glæ, 4 lóðs, 5
Brági, 7 frægur, 9 áma, 1.1 una,
13 'afls, 16 lök, 19 nr.
kvöldsölu að Blómvallagötu
10, og G. Arngrímssyni
bráðabirgðaleyfi til kvöld-
sölu að Hafnarstræti 8.
Starfsmaður vatnsveitu.
Vatnsveitustjóri sótti nýlega
um leyfi bæjarráðs til að|
ráða Sigurð Björnsson verk-|
fræðing til starfa og sam-i
þykkti ráðið það á fundi sín-
um 3. júní. -
Skátablaðið.
Annað hefti Skátablaðsins á
árinu 1960 hefir borizt blað-
inu, og er þetta helzta efnið:
Nauðgun eigi
glæpur -
ef konan er hvít.
Frá 1. júní hafa öll flug-
félög, sem halda uppi sam-
göngum við Kongó-nýlendu
Belgíumanna, aukið ferðir
þangað vegna stóraukinnar
eftirspurnar á fari þaðan.
Það eru hvítir menn, sem
flýja landið unnvörpum, en
fyrst og fremst konur og
börn, því að óttast er hryðju-
verk, þegar landið fær sjálf-
stæði, 30. júní. Hafa blöð og
foringjar svertingja óspart í
hótunum við hvíta menn, og
eitt blaða þeirra hefur m.a.
tilkynnt, að eftir 30. júní
muni bað ekki teljast glæp-
ur að nauðga hvítum konuin.
Fimm vetra kýr í Noregi eign
aðist fimm kálfa hér á dögun-
mn. Þetta var sem við var að
búast engin venjuleg kýr. Hún
er í fjósi dýralæknaskólans
Norska í Nittedal.
Tilkynning frá útgáfunefnd,
íslenzkur Gilwellskóli eftir
Franck Michelsen, Ósýnilega
höndin, saga frá Lapplandi
eftir Jan Kinnsale, Islenzkt
skátafrímerki 1962, Skáta-
sveit lamaðra og fatlaðra,
Skógarmerkið og margt
fleira. Ritstjóri blaðsins er
Ingólfur Örn Blöndal. Það er
smekklegt að öllum frágangi.
Bílasala.
Á fundi sínum 3. þessa mán-
aðar féllst bæjarráð á tillögu
umferðarnefndar um að
veita Björgúlfi Sigurðssyni
leyfi til næsta hausts fyrir
bifreiðasölu við Sætún á lóð-
inni vestan við Dósaverk-
smiðjuna. Átti bæjarverk-
fræðingur að setja nánari
skilyrði um þessa starfsemi.
— Björgúlfur hafði áður bif-
reiðasölu við Ingólfsstræti.
Happdrætti Fáks.
Vinning'ar komu á eftirtalin
númer: Gæðingur kom á
miða nr. 2807. Tryppi, vetur-
gamalt á nr. 2720. Beizlis-
stengur á nr. 953.
Skaðabótakrafa.
Björn Jóhannesson ritaði
nýlega bæjarráði bréf, þar
sem hann fór fram á skaða-
bætur vegna bifreiðaárekst-
urs. Bæjarráð taldi ekki unnt
að verða við erindinu.
SA-gola og
skúrir.
f morgun var hæg suð-
austanátt hér á landi og
þokuloft austan lands og úti
fyrir Norðurlandi.
Heitast var á Máná 15
stig, en kaldast á Dalatanga
7 stig. í Rvk var suðvestan-
átt, 2 vindstig og 9 stiga hiti.
Skygni var 5 km, úrkoma sl
nótt 4 nun.
Grunn lægð er suðvestur
af Reykjanesi og og önnur
lægð um 1000 km suður af
Reykjanesi á hreyfingu norð
austur.
Veðurhorfur í Rvík og ná-
grenni: Suðvestangola . og
skúrir. Hiti 9—11 stig.
Tékkneski teikstjorinn breifst af
verkum ísi. iistamanna.
En „gryfjan" i Þjóðleikhúsinu er fyrir
neðan allar hellur.
Þjóðleikhússtjóri bauð frétta-
mönnum að hitta að máli Lu-
ek Mandaus, leikstjóra óper-
unnar „Selda brúðurin“ eft-
ir Smetana í tilefni þess,
að listahátið Þjóðleikhússins
hófst meg frumsýningu hennar.
Leikstjórinn kvað hér um að
ræða sérstaklega þjóðlegt verk,
og léki honum og löndum hans
ætíð forvitni á að sjá, hvernig
óperan yrðí túlkuð í öðrum
löndum, því að oftast eru ein-
hverjir flytjendur erlendir. Hér
eru t. d. þrír söngvaranna ís-
lenzkir, Ævar Kvaran, Eygló
Viktorsdóttir og Egill Sveins-
son, hljómsveitin og dansfólkið.
Hinir eru tékkneskir, dr. Smet-
ácek stjórnar allri tónlist,
Mandaus er leikstjóri, Oldrich
Simácek stjórnaði leiktjalda-
málun, Frantisek Halmazna er
höfundui’ og stjórnandi dansa.
Ludek Mandaus hefir áður
stjórnað þeesarri óperu í þrem
erlendum borgum, Barcelona,
Mílanó og Vín. Hannkvaðsthafa
orðið forviða af að kynnast ís-
lenzkum listamönnum Þjóð-
leikhússins svo og menningu
landsins. Æfingar hefðu staðið
tiltölulega stuttan tíma, en ár-
angurinn væri að sínu áliti frá-
bærilega góður. Gæti hann ekki
betur séð, en Þjóðleikhúsið hér
hefði framúrskarandi menn í
sinni þjónustu, og talaði hann
einkum um leiksviðsmanninn
Guðna Bjarnason og ljósameist-
arann Hallgi’ím Bachmann. Þá
lét Mandaus í Ijós hrifningu
sína yfir hljómsveitinni og
reyndar var leikstjórinn yfir-
leitt stórhrifinn af listum og
menningu íslands. Einn galla
fann hann á Þjóðleikhúsinu, en
það var staður hljómsveitar*
innar, „gryfjan“. Kvað hann að-
stæður ákaflega erfiðar og
nærri ófært að koma þar fyrir
stærri hljómsveitum, svo lag
væri á.
iL W ti jíl’ !’
Nemendasamband Menntaskólans
í Reykjavík
Aðalfundur Nemendasambandsins verðuf haldin í
Menntaskólanum í Reykjavík miðvikudaginn 8. júní n.k.
kl. 9 e.h.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Árshátíð Nemendasambandsins verður haldin að Hótel
Borg fimmtudaginn 16. júní n.k. og hefst með borðhaldi
kl. 7 e.h. „Júbíl“-árgangar eru beðnir að tilkynna þátttöku
sem fyrst í síma 32999.
Stjórnin.
Ibúðarhœð
óshast
Erum kaupendur að 5 herbergja íbúðarhæð, 130—•
140 ferm. íbúðarhæðin þarf helzt að vei’a nýleg, í
góðri hirðu, nálægt Landspítalanum og' laus til
íbúðar í þessum mánuði.
Tilboð óskast send til skrifstofu ríkisspítalanna,
Klapparstíg 29, fyrir 10. júní næstkomandi.
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA.
Verdol
Þvottalögur í vorhreingerningarnar.
Fæst í næstu verzlun.
Verdol-umboðið.
Olíusaian h.f.
§tnlka óskast
til afgreiðslustarfa.
Sítd ag Fiskur.
Austurstræti.
AÐALFUNDUR
Sjóvátrggingarfélag íslands h.f., verður haldinn í skrifstofu
félagsins miðvikudaginn 8. júní kl. 3 e.h.
Sjóvátryggingafélag íslaitds h.f.
Móðir mín,
EUFEMIA WAAGE,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 8. þ.m,
kl. 1,30 e. hádegi. Blóm og kransar eru afbeðin, en þeir,
sem vilja minnast hinnar látnu, láti líknarstofnanir njóta
þess.
Indriði Waage.
Móðir mín
GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR
verður jarðsett frá ísafjarðarkirkju n.k. föstudag þann 10.
þ.m. kl. 2 e.h.
Minningarathöfn verður haldin á morgun þann 8. þ.m.
í Dómkirkjunni kl. 11 f.h.
Fyrir hönd aðstandenda.
Björg Jónasdóttir.