Vísir - 07.06.1960, Qupperneq 11
Þríðjudaginn 7. júní 1960
V 1 S I R
ÍÍE
Krúsév sleppir sér enn.
Segir Eisenhower aðeins hæf-
an sem barnahæiisstjóra.
Adenauer ætti að loka í geðveikrahæli.
Kirkjubæjarblesi kom tvisvar sínnum fyrstur í mark í stökki,
bæði í 4. og 6. flokki. Hann er rauðblesóttur, 6 vetra, úr Rangár-
vallasýslu og eigandi er Jón M. Guðmundsson, Reykjum. —
Knappinn á myndinni er Arni Fl. Jessen. (Sjá aðra mynd frá
kappreiðunum og frétt annars staðar í blaðinu.).
Mikið flogið hjá Rugfélagi
íslands þessa dagana.
Yfir 100% aukning á leiðinni Glasgow Kaup-
mannahofn miðað við sama tíma í fyrra.
Starfsemi Flugfélags fslands
er nú mjög mikil, bæði innan
lands og utan, og er nú mun
meira um farþegaflutninga en
í fyrra.
Einkum er það aúkinn
straumur erlendra ferðamanna,
sem veldur aukningunni í utan-
landsfluginu. Þá hafa pantanir
á erlendum flugmiðum, þ. e.
milli staða erlendis, aukizt um
meira en helming síðan í fyrra.
Leiðin Glasgow—Kaupmanna-
höfn er nú flogin daglega af
vélum F. I., og að sögn Sveins
Sæmundssonar, blaðafulltrúa,
hafa bókanir á þeirri leið auk-
izt um rúmlega 100% frá því á
síðasta ári. — Ferðir til megin-
landsins eru nú 7 á viku.
Þá hyggst F. í. taka upp á ný
ferðir til ýmissa staða hér inn-
-anlands, til landkynningar. —
Ferðir þessar urðu mjög vin-
sælar á sínum tíma, en m. a.
vegna ónógs flugvélakosts, féllu
þær niður um tíma. Nú eru
nokkrar slíkar ferðir fyrirhug-
aðar til Öræfá. Farið verður
héðan á sunnud.morgni, flogið
til Fagurhólsmýrar, en ekið
þaðan til Skaftafells, en þar er
náttúrufegurð mikil. — Áætlað
er að koma aftur til Reykjavík-
ur seint sama kvöld.
Þá verður haldið uppi mið-'
nætursólarflugi, líkt og gert
hefur verið undanfarin ár. Bor-
izt hafa fyrirspurnir frá erlend-
um ferðaskrifstofum og nú mun
efnt til þríggja ferða, þann 18.
24. og 26.júní. Farið verður með
Douglas DC-3, og lagt upp um
kl. 23. Er ætlunin að lenda í
Grímsey á leiðinni.
Þess má að lokum geta að far-
þegafjöldi hefur verið með
mesta móti innanlands það sem
af er þessum mánuði, enda
munu flugfargjöld tiltölulega
lítið hafa hækkað undanfarið
miðað við flest annað.
í brezkum blöðum er leidd
athygli að því, að sólarhring
eftir að Krúsév lagði fram hin-
ar endurskoðuðu afvopnunartil-
lögur sínar, en samkvæmt þeim
kemur hann til móts við kröfur
vestrænu þjóðanna varðandi
eftirlit, hafi hann sleppt sér í
árásarræðu gegn þeim mönn-
um, sem hann ætlast til að taki
tillögur sínar alvarlega.
Hann hafði skorað á Eisen-
hower að fallast á afvopnunar-
tillögurnar, er 10-þjóða ráð-
stefnan um afvopnunarmál
kemur samn til fundar í Genf
í dag, en ( árásarræðunni, sem
hann flutti 3. þ. m. sagði hann
um Eisenhower, að hann væri
„óábyrgur og óhæfur til að
gegna starfi sínu.
„Þegar hann lætur af emb-
ætti“, sagði Krúsév, „væri hið
bezta, sem við gætum boðið
honum í þessu landi að vera for-
stöðumður á barnaheimili
(kindergarten), þar sem við
gætum verið vissir um, að hann
gerði ekkert af sér, en sem
æðsti maður ríkis er hann
hættulegur.“
Um Adenauer, forsætis-
ráðherra Þýskalands, sagði
hann, að hann hefði verið orð-
inn bilaður ágeðsmunum fyrir
löngu og ekkert hægt við hann
að gera nema setja hann í1
spennitreyju og fara með hann
Þýzkír fótboltaskór
gamla verðið.
i/ERZLC?
olar renm
brautir
Upplýsingar um
ferðalög.
Farseðlar til allra landa.
Gistihúsnæði.
Odýrar utanlandsferðir.
FERÐASKRIFSTOFA
RÍKISINS.
Sími 1-15-40.
Vörubíistlórafélagii
Þróttur
Merki á bifreiðar félagsmanna fyrir árið 1966 verða afhent
á stöðinni frá 8.—20. júní n.k. Atliugið að þeir sem ekki
hafa merkt bifreiðar sínar með hinu nýja merki fyrir 21.
júní n.k. njóta ekki lengur rétdnda sem fullgildir félags-
menn og er samningsaðilum Þróttar eftir það óheimilt að
taka þá til sinnu.
Stjórnin.
í geðveikrahæli. Hann gleymdi
ekki Christian A. Herter utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna og
aðstoðar-utanríkisráðherra hans
Douglas Dillon, „Og gleymið
ekki Nixon,“ bætti hann við.
Svo endurtók hann hótanirnar
um sérfrið við Austur-Þýzka-
land, og hefnieldflaugaárásir,
aðvaranir Malinovsky jrrði að
taka bókstaflega. Hann hefði
mikið vopnabúr og gæti valið
úr þau, sem bezt hentuðu.
43 hvalir veiddir.
Veiðzt hafa 43 hvalir, að
því er Vísir frétti í morgun,
og voru þá hvalveiðibátar á
leiðinni með 4 til viðbótar.
Hinn 12 júní í fyrra höfðu
ekki veiðzt nema 36 livalir,
en aftur höfðu veiðzt um 70
hvalir 12. júní í hitt eð fyrra.
Nokkuð brælusamt mun á
miðunum.
Slysfarir.
Nokkur smærri slys urðu um
helgina, og menn fengu skrám-
ur og sár af ýmsum ástæðum,
en þó muu ekki hafa verið um
neitt alvarlegt að ræða, nema í
slysi því, sem sagt er frá á öðr-
um stað hér í blaðinu.
Jökull Sigurðsson Mávahlíð 4
varð fyrir bíl við Eskihlíð 10 og
skrámaðist á enni. Sigurður
nokkur Sigurðsson datt ofan af
þaki á Nýju Blikksmiðjunni, og
er ókunnugt um me.iðsl, sem
munu þó ekki alvarleg, og Gísli
Stuw datt ofan af stól og skarst
á höfði.
7aup$'kctpup\
KAUPUM hreinar ullar-
tuskur. Baldursgötu 30. —
SAMÚÐARKORT Slysa-
varnafélags íslands kaupa
flestir. Fást hjá slysavarna-
sveitum um land allt. — f
Reykjavík afgreidd í síma
14897. (364
Kaupi gull og silfur
LÍNDARGOTU 25 SIHI13745“
OOKráOOOOOf
Ertu fróöur?
1. Anastas Mikojan, fyrsti
varaforsætisráðherra.
2. Austur-Berlínar og Lissa-
bon.
3. Eintracht í Frankfurt
(7:3).
4. Lloyds.
5. Dakota (DC-3).
6. Concepcion.
7. í Japan.
8. Vivian Leigh og sir Laur-
ence Olivier.
9. Gyðingaböðull Hitlers
nr. 1, sem var tekinn fastur í
ísrael.
10. Egyptalandi.
€£38808000001
( PSRUTZ
Fínkorna framköllun
Kopiering
Stækkun
Perutz filmur
FÓKUS
Lækjargötu 6 B.
mmnn'œ
Kaupum
Frímerki.
Frímerkjasalan.
Ingólfsstræti 7.
Sími 19394.
(421
MINNINGARSPJÖLD DAS.
Minningarspjöldin fást hjá
Happdrætti DAS, Vestur-
veri, sími 1-77-57 — Veið-
arfærav. Verðandi, sírni
1-3786 — Sjómannafél.
Reykjavíkur, sími 1-19-15
— Guðmundi Andréssyni
gullsm., Laugavegi 50, sínli
1-37-69. — Hafnarfirði: Á
pósthúsinu. Sími 50267. —
ÞRÓTTUR.
Mfl., 1. og 2. fl. æfing á
íþróttavellinum í. kvöld kl,
8. — Nefndin.
K.R. —
1. og 2. fl. æfing í kvöld
kl. 8,30.--- Þjálfarinn.
Reykjavíkurmót:
Þriðjudagur 7. júní: 5. fl»
B Víkingur B og Víkingur C.
Dómari: Jón Þorláksson. —•
4. fl. B. Fram B — JFjam C.
Dómari: Magnús Thjell.
Samkomur
Annað kvöld, miðvikudags-
kvöld kl. 8.30 efnir kristni-
boðsflokkurinn Vorperla til
samkomu í Laugarneskirkju.
Jóhannes Ólafsson kristni-
boðslæknir, Felix Ólafsson
ki’istniboði o. fl. tala. Ein-
söngur. Tekið verður á móti
gjöfum til kristniboðsins í
Konsó. Allir eru hjartanlega
velkomnir.
PASSAMYNDiR
teknar í dag, tilbúnar á
morgun. — Annast allar
myndatökur utanhúss óg
innan.
Pétiar Thomsen
A.P.S.A. '
Kgl. sænskur hirðljósm.
Ingólfsstræti 4. Sími 10297.
P.O. Box 819.
Ekknasjóður íslands
hefur, eins og að undanförnu
merkjasölu á sunnudaginn
(á morgun). Eins-og flestum
er kunnugt, er Ekknasjoður
stofnaður 1942 til syrktar
ekkjum og börnum þeirra,
sem missa sína fyrirvinnu.
Sjóðurinn er í umsjá bisk-
upsdæmis íslands, og ■stjórn-
ar honum 5 manna nf i '1,
sem biskupinn er formaður
að. Merki verða afhent frá
kl. 9 f. h. í Sjálfstæðishúsinu
og eru foreldrar beðnir um
að leyfa börnum sínum að
selja þessi merki og styrkja
méð því gott málefni. 1