Vísir - 15.12.1960, Síða 12

Vísir - 15.12.1960, Síða 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. Látið hann færa yður fréttir og annað lestrarefni lieim — án fyrirhafnar af yðar hálfu. Sími 1-16-60. Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið okeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Fimmtudaginn 15. desember 1960 Húskruni ' íbúðarhúsið Vestribær Merkisnesi í Höfnum brann s.l. mánudagskvöld. Þegar eldurinn varð slökkt- ur stóðu aðeins uppi útveggir liússins. Allt annað vap brunn- ið. Missti Valgeir Sveinsson er bjó í húsinu ásamt konu sinni óg börnum alit innbú sitt í elds- voðanum. Það var um kl. 9 um kvöldið að slökkviliðinu í Keflavík var gert viðvart um eldinn og einn- ig slökkviliðinu á Keflavíkur- Flugvelli. Miklir erfiðleikar voru á slökkvistarfi vegna vatnsskorts. Enn leynivín- sali tekinn. Enn tók lögreglan hér í bæn- um einn leynivínsala í nótt. Var það leigubílstjóri sem lögreglan stóð að sölu áfengis og hefur þessi bilstjóri verið kærður áður fyrir sömu sakir. í sambandi við þetta skal hér með leiðrétt frásögn á Vísi s.L mánudag um töku leyni- vínsala, sem kærður hafði ver- ið þrívegis áður á þessu ári. í fréttinni stóð að sá maður hafi neitað að láta leita í bíl sínum nema að undangengnum úrskurði. Þetta var á misskiln- ingi byggt. Sá maðurinn sem krafðist úrskurðarins hafði ekkert áfengi í bifreið sinni þegar leitin var gerð. Hins veg- ar skeði það í þetta sama skipti, að sá hinn margbrotlegi, sem blaðið skýrði frá, var þá tek- in í fyrsta skipti á þessu ári og fundust við leit í bílnum hans 9 flöskur af vínanda. Biður 'blaðið hlutaðeigendur afsökun- ar á þessu mishermi. I Varamaöur Lumumba krefst víiurkenníngar sem forsætisráih. Msrgra ára borgarstyrjöSd, ef gæzluSlð S.jjj. yrði flutL frá Kcngé. Ernsl Wiese, heitir austurrískur hlaðamaður, sem undanfarna 9 mánuði hefur ferðast tæpa 50.000 km. á landi á leið til Ástralíu og Nýja Sjálands. Á ferðalaginu hefur hann notað bifreiðina liér að ofan. Hann hefur ekki farið venjulega þjóðvegi, og er myndin hér að ofan tekin á Súmötru, en þar var cinna erfiðast yfirferðar. Fjarlægð verði hús við Hverfisgötu. Mtis levknuhöll rrd Mikln ttÞrtj ? Enn hefur einn blakkur leið- togi sligið fram og krafist við- urkenningar. Er sá Gisanga, að- : stoðar-fórsætisráðherra f stjórn Lumumba, sem nú situr í fang- elsi í herbúðum liðs Mobuto ofursta. Hefur Gisanga skrifað Dag Hammarskjöld um þetta og einnig tilkynnt Mobuto hvaða kröfur hann geri. Hann segir, iað Lumumba sé meinað að i ■ rækja hlútverk sitt sem lögleg- ur forsætisráðherra, sökum fangelsisvistar sinnar, en hann sé forsætisráðherra hinnar einu löglegu stjórnar landsins, sem hann (Gisanga) ætli nú að veita ^forstöðu í forföllum Lumumba 'með aðsetri í Stanleyville, er nú sé höfuðborg landsins. Dag Hammarskjöld liefur farið fram á aukinn stuðning til þess að Sameinuðu þjóð- irnar geti innt af hendi hlut- verk sitt í Kongó. Hann tel- ur margra ára borgarastyrj- öld framundan í Kongó, ef hver af annarri hinna 18 þjóða, sem þar hafa lið, flytja það heim. Enn mun ekki haf- inn brottflutningur neituiarj þeirra. 'Erlander forsætisráðherra N» hylgju- lengd. Ríkisútvarpið tók í morgun að útvarpa á nýrri bylgjuilengd, 1435 m í stað 1648 m áður. Þessi ráðstöfun mun fyrst og fremst hafa verið gerð til þess að firra hlustendur truflunum, en úti um land mun hafa borið Nokkrir forsvarsmenn fyrir- tækja við Hverfisgötu hafa skrifað bæjarráði bréf, þar sem bent er á nauðsyn þess að fjar- lægð verði hús hau, sem víða standa út í götuna. Þessi hús, sem byggð voru áður en breikkum götunnar var ákveðin hafa staðið þarna um áratuga skeið og þau torvelda talsvert umferðina vegna þess hve þau þrengja að akbraut- inni. Sá háttur hefur verið hafður á um þetta, að um leið og hús hefur verið rifið og nýtt bvggt í staðinn hefur bað verið fært upp í lóðina með hliðsjón af breikkun götunnar. Nú þykir hinsvegar ýmsum á því, að erlendar stöðvar, sem sent hafa á svipaðri bylgju- lengd og íslenzka útvarpið hafi truflað sendingar þess. Kennedy valdi McHamara fyrir iandvarnaráikerra. John F. Kennedy, verðandi forseti Bandaríkjanna, tii- kynnti í gær, að Robert Mc- Namara hefði fallist á tilmæli sín um að verða landvarnaráð- herra Bandaríkjanna, í hinni nýju stjórn demokrata, sem tekur við í janúar. McNamara er 44 ára. Hann er nýtekinn við sem forstjóri Fordverksmiðjanna og verður ’af 3Vz millj. dollara tekjum á næstu 4—5 árutn, vegna þess að hann varð viðbeiðni Kenne- dys. — Þessi skipan í embætti er talin sýna, sem og aðraf, að Kennedy leggi áherzlu á að fá menn í stjórn sína sérfróða á sviði véltækni og fjárhagsmája, og er minnzt á eldflaugavarnir og efpaiiagsaðstoð í þvi sam- I bandi. eigendum fyrirtækja við Hverf- isgötu, og öðrum sem þar eiga hagsmuna að gæta, vera seina- gangur á breikkun götunnar og hafa því farið fram á það við bæjarráð, að gatan verði breikk uð og húsin fjarlægð, sem enn standa út í götuna. Enda þótt hér sé um ákjósan- lega lausn að ræða, myndi hún sennilega kosta bæjarfélagið meiri peninga en það getur varið til þess arna í skjótri svipan. í flestum tilfellum myndi bærinn verða að kaupa bæði húsin og lóðirnar og síðan að láta rifa húsin, en allt þetta kostar geypi fé. Bæjarráð hefir visað þessari málaleitan til umsagnar borg- arlögmanns., Á sama fundi bæjarráðs var rætt um læknahús — svokall- að Domus medica —- sem lækn- ar höfðu fengið fyrirheit um að byggja mætti á lóðinni við Miklatorg, sem er vestan við Eskihlíðarbæinn gamla. Á þeirri lóð stendur nú strætis- vagnabiðskýli og söluskáli Gils Sigurðssonar. Lagt var fram á bæjarráðsfundi umsögn lóða- ,nefndar, sem hafdi si^fchvíjð við mál þetta að athuga, m. a. varðandi bílastæði og að- keyrslu, en bæjarráð ákváð að leita umsagnar skipulagsstjóra um það. Svía hefur nú lýst yfir i svari til Nkrumah forseta Ghana, sem skrifaði stjórnum allra 18 ríkjanna um burtkvaðningu heriiðs frá Kongó, að sænska stjórnin hyggist ekki kveðja heim lierlið sitt frá Kongó eins og sakir stæðu, og Nehru hef- ir lýst hinu sama yfir fyrir hönd Indlands svo sem fyrr hefur verið getið. Einn af ritstjórum Times í Lgndon flutti erindi um Kongó i brezka útvarpið í gærkvöldi. Hann komst að sömu niður- stöðu og Hammarskjöld, að borgarastyrjöld mundi brjótast út um allt Kongó, ef gæzlu- liðið yrði kvatt burt. Frh. á 11. s. Unt 200 manns fórust vestra. Seinustu fregnir frá Banda ríkjunum herina, að nær 200 menn hafi farizt af völdum hríðarveðursins, sem fór yf- ir talsverðan hluta Bandar- •íkjanna um s.l. hel.gi. Vart munu bó öll kurl komin til grafar emi. Kertasníkir flýgur til Horna- fjarðar á laugardag. Færir börnunum þar jólagjafir og heldur happdrætti fyrir þau. Jólasveinninn Kertasníkir flýgur á vegum Flugfélags Is- lands til Hornafjarðar á laug- ardaginn kemur og hyggst gleðja börnin bar á ýmsan hátt. Efnt verður til samkomu í Höfn í Hornafirði, þegar Kerta- sníkir kemur austur þangað. Þar afhendir hann börnunum jólagjafir, sem hann hefur með- ferðis, og síðan heldur hann happdrætti, þar sem verður margt góðra vinninga, svo sem reiðhjól og fleira. Þetta er svo sem ekki í fyrsta sinn, sem Kertasníkir flýgur með Föxunum. Hann hefur líklega gert það fimm sinnum áður, í fyrra flaug hann til Sauðárkróks, en árin áður fór hann til Akureyrar, ísa- fjarðar, Egilsstaða og Vest- mannaeyja, og er ekki að því að spyrja, að hann er börnum alls staðar aufúsugestur og sjálf- ur þykir honum feikigaman að fljúga og hitta börn sem víðast um land og er Flugfélaginu á- kaflega þakklátur fyrir að gefa sér kost á þessum ferðum. Rússneska vélin kom aEdrei. Átti að sækja hingað sjúkan mann. 1 gærmorgun fékk flugum- ferðarstjórnin á Reykjavíkur- flugvelli tilkymiingu frá rúss- neskum stjórnarvöldum þess efnis, að von væri hingað á rússneskri farþegaflugvé! (Hj- ushin 14), til að sækja veikan mann í rúsneska sendiráðinu í ReykjaTÚk. Síðar dags kom síðan tilkynn- ing um það að hætt væri við að senda vél þesga hingað, og er ekki vitað hver ástæðan var fyrir því, né um sjúkleika sendi- ráðsmannsinsmannsins. Iljushin 14 flugvél hefur aldr- ei sezt hér á Reykjavíkurflug- völl. Þeim svipar í útliti nokk- uð til Convair flugvélanna, 2ja hreyfla, með nefhjóli. Tekur um 30 farþega. Þessar vélar eru mikið notaðar af tékkneskum ílugfélögum og pólskum, og fiokkaðar som. „medium range airlinér“, eða - farþegavél rpeð meðal flugþol.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.