Vísir - 10.03.1961, Qupperneq 6
VlSIR
Föstudaginri. 20.- rttarz 1961
WÍSXR
DAGBLAÐ '
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson.
Ritstjórnarskrifstofur eru að Laugavegi 27, en aðrar
skrifstofur að Ingólfsstræti 3.
Ritstjórnarskrifstofurnar eru opnar frá kl. 8,30—18,00.
Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Aigreiðsla: Ingólfssti'æti 3, opin frá kl. 9,00—19,00.
Sími: 11660 (fimm linur).
Vísir kostar kr. 30,00 í áskrift á mánuði.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Gísli J. Johnsen
áttrapftur.
Skytdí það vera tilviíjun?
Senn eru liðin fimm ár frá.því að kommúnistar og'
i Framsóknarkommúnistar á Alþingi samþykktu tillögu
til þingsályktunar um að varnarliðið skyldi á brott
af landinu hið bráðasta. Sú samþykkt varð til þess, að
Molotov minntist þess austur í Moskvu, að þeir Kreml-
verjar ættu marga vini hér úti á hjara veraldar.
Engum hugsandi manni kom lil hugar þá, að komnuin-
istarnirí þessum tveim flokkum hefðu haft þjóðarhagsmuni
Islendinga í huga, er þeir gerðu samþykktina um, að Island
skyldi standa öllum opið og óvarið. Mönnum kemur það
enn síður til hugar nú, þegar þessir aðilar hafa haft ærin
lækifæri til að sýna þjóðinni innræti sitt og raunverulegt
hugarfar.Tillagan var runnin undan rifjum formanns Fram-
sóknarflokksins, sem var með henni að lialda áfram þeim
undirbúningi á stjórnarsamvinnu við kommúnista, sem
liann hóf með því að veita þeim stuðningi í skemmdarvcrk-
fallinu mikla vorið 1955. Tillagan var þáttur í kosninga-
undirbúningi Framsóknarkommúnista, sem voru logandi
hræddir við Þjóðvarnarflokkinn og ætluðu m.a. steypa
undan honum með þessu hætti.
Nú brá svo við, að þegar landhelgismáiið var
aftur kornið á dagskrá vegna möguleikans á að koma
deilunni út úr heiminum, uppgötvuðu aðrir aðilar er-
lendis — að þessu sinni á Bretlandi — að þeir eiga
góða vini á Islandi, sem berjast fyrir bá.
I>að liefir verið haft eltir forvígismanni og' aðaltalsmanni
yfirmanna á hrezkum togurum og hirt i hlaði hér að
hami telji þá menn hér á landi, sem vilja ekki failast á
samkomulagið, \ ini sína og einlæga bandamenn. Mann-
inum varð að orði, þegar hann heyrði, að hér væru til
menn, sem herðust með öllum ráðum gegn samkomulag-
inu, að þeir í liull væru þá ekki algerlega vinalausir á ls-
landi eða heillum horfnir.
Skyldi það vera alger tilviljun, að þessir tveir
aðilar tali um vini sína hér á landi — fyrst og fremst
helztu forsprakkar kommúnista í Moskvu, og síðan
foringi mestu fjandmanna Islendinga meðal brezku
þjóðarinnar?
Nei, hér er vitanlega ekki um tilviljun að ræða. Þetta
er eins eðlilegt og það getur verið, því að í bæði skiptin
hafa kommúnistarnir í stjórnarandstöðuflokkunum barizt
gegn hagsmunum þjóðar sinnar. Um leið og' þeir gera það,
gerast jxeir vrnir og bandamenn annarra þjóða, sem vilja
okkur ekkert gott, enda þótt annar aðilinn sé svo hygginn,
að hann brosir jafnan Ixlítt til okkar, en hinn svo hrein-
skilinn, að hann fer aldrei í fclur með kala sinn i okkar garð.
Það verður að óska öllum þessurn bandamönnum
til hamingju með bræðralag beirra og einlæga sam-
stöðu. Islending-ar ættu að geía ýmislegt af því lært
að virða þessa kumpána fyrir sér. . ,
í dag er áttræður einn mesti
athafnamaður þessa lands fyrr
| og síðar, Gísli J. Johnsen stór-
kaupmaður.
Það var sagt um Gisla J.
Johnsen í Vísi fyrir tuttugu
. árum, á sextugsafmæli hans.
i að hánn hefði verið brautryðj-
j andi á mörgum sviðum og jafn-
an fylgt sínum mörgu áhuga-
málum fram af elju og dug, og
verið einn af athafnamestu
mönnum þessa lands seinustu
fjóra áratugina. Þetta var
gullsatt. Hið sama má í raun-
inni segja nú, að því við bættu,
að nú má segja „seinustu sex-
tíu árin“. Gísli J. Johnsen hefir
nefnilega ekki dregið sig í hlé
enn. Því fer mjög fjarri, því að
hann gengur enn teinréttur,
fjörlegur og höfðinglegur meðal
vor, enn sistarfandi og jafn
áhugasamur um allt, sem til
framfara má vei'ða, og hann
ávallt hefur vei'ið.
Gísli J. Johnsen fæddist í
Vestmannaeyjum 10. marz 1881
og þar ólst hann upp og dvald-
ist mikinn hluta sinnar löngu
starfsævi. Er nafn hans ói'júfan-
jlega tengt viðreisnartímabilinu
isem þar hófst um aldamótin.
Þegar á barnsaldrx lét hann
hendur standa frarn úr ermum,
því að 12 ára missti hann föður
sinn. Hann var elztur barnanna
og hjálpaði nú móður sinni, sem
bezt hann gat, til þess að sjá
fyrir heimilinu, Utan fór hann
fyi'st 16 ái’a og segir hann, að
við það hafi sér aukist áræði,
og svo hóf hann verzlunari-ekst-
ur svo ungur að árum, að hann
varð að reka verzlunina í nafni
móður sinnar. Hann eignast
hlut í fyrsta bátnum sínum —
og fyi'sta bátinn sinn einn alda-
mótaárið, en upp úr aldamót-
unum kemur hann auga á nýja
möguleika, og keypti 1904
fyrsta mótoi'inn sem fluttist til
Suðurlands, og lét smíða sér
bát, og fór að gei'a út á vélbát,
og fór það allt vel, og jók það
trú hans og annara á vélbátun-
um oó hófst nú vélbátaaldan.
Þetta er í rauninni forsaga mik-
illar athafnasögu í fáum drátt-
um, en til þess að rekja athafna-
sögu Gísla J. Johnsen þyrfti
heila bók, ef vel ætti að vei'a.
Á það skal aðeins di'epið að G.
J. J. hafði forgöngu um fjölda
margt, sem til mikiliar framfara
varð. Hann kom upp viðgei'ðai'-
vei’kstæði fyrir vélbáta, reisti i
Eyjum fyrsta vélfrystihúsið hér
á landi, stofnaði þar fiskimjöls-
verksmiðju, byggði þar fyr^tu
plíugeyma hérlendis, yar>frum-
kvöðull að byggingu sjúkra-
hússins þar og forustumaður á
sviði björgunarmála, og hann
barðist ósleitilega fyrir, að Vest-
mannaeyjar fengu símasam-
band.
Gísli J. Johnsen hefir nú um
langt árabil átt heima hér í
bæ og starfsvettvangurinn ver-
ið hér því að hann rekur hér
heildsöluverzlun, en greinar
þeirrar starfsemi ná víða, því
að viðskiptavinir G. J. J., sem
ei'u margir og víða, einkum í
verstöðvum, hafa margreynt,
að hann er hollráður, sanngjarn
maður og góður viðskiptis, þar
er hann jafnan allur og heill,
eins og hann hefir verið sem
forustumaður á vettvangi hinna
stóru mála.
Munu þeir vei'ða margir, sem
minnast þessa höfðingsmanns á
áttræðisafmæli hans í dag.
Lelkféíag SigEufjariar 10 ára.
Tekur tií meðfer5ar Fjalb-Eyvíud á afmælinu.
Frá fréttaritara Vísis.
Siglufirði í gær.
Leikfélag Siglufjarðar hefur
að undanförnu æft leikritið
Fjalla-Eyvind undir stjórn
Gunnars R. Haixsens leikstjóra.
Leikfélagið er 10 ára um þess-
ar mundir, var það stofnað 24.
apríl 1951. Áður höfðu starfað
liér leikfélög með sama nafni,
sem störfuðu um lengri eða
skemmri tíma.
í sambandi við frumsýningu
á þessu leikriti verður gefin út
vönduð leikskrá með fjölda
mynda og yfirlit um leikstarf-
semi á Siglufirði frá öndverðu.
Jóhann Hannesson, skólameist-
ari, skrifar þar unx skáldið Jó-
hann Signrjóisson og Gunnar
Hansen, lekstjóri, um leikritið
sjálft. Núverandi stjórn Leikfé-
lags Siglufjarðar er þannig
skipuð: Formaður Steindór
Hannesson, vai'aformaður Júlí-
us Júlíusson, ritai'i Halldóra
Jónsdóttir, gjaldkeri Haraldur
Árnason, og meðstjórnandi Gisli
Þorsteinsson. i
Leikritið Fjalla-Eyvindur
verður frumsýnt föstudaginn
10. marz næstk. Verður vandað
til sýningarinnar eftir föngum.
Gunnar R. Hansen hefur skipu-
lagt fyrirkomulag leiksviðs og
gert teikningar af leiktcöldunx,
en Herbert Sigfússon málar
tjöldin. — Laugardaginn 11.
marz verður svo haldin afmæi-
ishátíð félagsins með fjölbreytt-
um skemmtiatriðum á Hótel
Höfn.
ÞrJ.
Hertoginn af Kent
opinberar.
Tilkynnt var í London , gær-
kvöldi opinberlega, Irúlofun
hertogans af Kent og ungfrú
Kathlyn Worsley, af kunnri
aðalsætt í Yorkshire.
Hertoginn er 25 ára, en unn-
usta hans nærri 4 árum eldri
og tókst vinátta með þcim fyrir
4 árum. Elisabet drottning
hefur veitt samþykki sitt og
vei'ður brullaup tilkynnt og
haldið innan tíðar. Hertoginn,
fi’ændi hennar er áttundi mað-
ur til ríkiserfða á Bretlandi. —
Hann er liðsfoi’ingi og verið
með herdeild sinni i Vestur-
Þýzkalandi að undanförnu.
úr einu í annað.
BERGMAL
Annars var Jxað einkennandi fyrir málflutning eða
öllu heldur máljióf stjórnarandstöðunnar, að fiarparnir
í þeim herbúðum flýðu stöðugt úr einu víginu í annað. Ekki
getur aðstaðan talizt góð, Jxegar á það er litið, cn fortíð
rauðu flokkanna í Jxessu lífshagsmunamáli er líka á þann
veg, að aðstaða þeirra var mjög óhæg. Kemur )>ar helzt til,
að vanrækslusyndir Jieirra eru mýmargar, en auk þess er
Iiægt að rifja upp ummæli þeirra, er J>eir réðu til þess, að
fariðskyldi að lögum í öllu. Var þetta til dæmis rifjað upp
á þriðjudagskvöld, að þvi er snerti ummæli Einars 01-
geirssonar fyrir nokkrum árum varðandi stækkun land-
hclginnar. Og fleiri tóku í líkan streng, áður en J>á grun-
aði, hvemig gaugur málanna mundi verða. 1
Stjórnarflokkarnir mega vel við una, hvernig farið
hefir í bessum umræðum, og beim mun betur sem
lengra líður, cg almenningi verður ljós munurinn á
gerðum þeirra og skinhelgi stjórnarandstöðunnar. j
Við og við heyrist kvartað
yfir því fyrirkomulagi, sem er
á sölu brauða o. fl. matarkyns,
og hefur Ber'gmál nýlega fengið
tvö stutt bréf um þetta.
„Einhleyp" skrifar:
„Hér í bæ mun vera fjöl-
mennur hópur einhleypinga,
sem hefur aðstöðu til þess að fá
sér matarbita heima hjá sér á
morgnana og kvöldin, en kaup-
ir sér eina aðalmáltíð úti í bæ.
Þessu fólki mundi henta vel að
geta fengið keyptar nokkrar
brauðsneiðar í einu, í stað þess
að verða að kaupa a. m. k. hálft
fi'anskbrauð eða „sundur skorið
rúgbrauð“ — og verða svo að
henda helmingnum af því það
er orðið þux'rt eða ólystugt, og
heyri ég sagt, að sömu sögu sé
að segja á mörgum heimilum.
Er hér um mikla óþarfa eyðslu
að ræða á löngum tíma. Hvers
vegna er ekki sinnt óskum, sem
stundum hafa verið fram born-
ar í blöðum, að hafa sneitt
brauð á boðstólum fyrir þá, er
ekki þurfa að kaupa brauð
nema til dagsins eða til tveggja
daga í senn? Ekkert ætti að
vera hægara á þessari öld plast-
pappírsumbúða. Eg hygg, að
það yrði mjög vinsæl þjónusta
við stóran hóp manna, ef slík
þjónusta væri látin í té.
Einhleyp.“
„Húsmóðir“ ski'ifar:
„Nýlega er byrjað á því að
selja súrmjólk i hyrnum og
dettur mér ekki í hug að amast
við því, en ég vildi mælast til
þess, að hún yrði einnig' til sölu
í hyrnum, sem taka hálfpott en
hún fæst aðeins í hyrnum, sem
taka pott. Áður gátu menn
fengið súrmjólk í heilflöskum
og hálfflöskum, en nú mun vera
hætt að selja mjólk í flöskum
Það þótti sjálfsögð þjónusta
fram að þessu að menn ættu
þess kost að fá súrmjólkina í
hálfflöskum og ætti að vera
jafnsjálfsagt nú, að menn geti
fengið hvort heldur er hálfan
pott af þessari vöru eða heilan,
þótt umbúðirnar séu aðrar.
Húsmóðir.“-