Vísir - 12.06.1961, Síða 2
ýíS;
& •• •• •' • •'- •:•' • >
Björgvin Hermannsson markvörður Reykjavíkurliðsins
VÍSIR
Utanbæjarmenn
sigruöu Reykvíkinga.
Satt að segja bjóst ég við, að
Reykjavíkurúrvalið myndi færa
sínum gamla melavelli verðuga
afmælisgjöf í gær. 5—0 hefði
svona fyrirfram verið viðeig-
andi.En þetta fór nú á annan
veg. Utanbæjarmenn komu í
veg fyrir afmælisgjöfina og
minntu hressilega á, að sá tími
er löngu liðinn að Reykvíking-
ar voru ósigrandi á heimavelli.
í heild var þessi leikur frem-
ur bragðdaufur, sérstaklega af
hálfu Reykjavíkurliðsins. —
Fyistu 15 mínúturnar voru á-
gætar, vel leiknar og 1 mark
skorað, en síðan var sem bar-
áttuviljinn væri horfinn. Utan-
bæjarmenn náðu er líða tók á
hálfleikinn stöðugt betri tökum
á leiknum og í síðari hálfleik
sýndu þeir, að þeir vildu sigra.
Fyrsta mark leiksins kom er
6 minútur voru af leik eftir á-
hlaup frá vinstri. Þórólfur lék
á Kristinn á miðjunni, gaf til
Gunnars Felixsonar, sem sendi
Þórólfi knöttinn aftur ag skor-
aði Þórólfur þannig, eftir að bú-
ið var að sundra vörninnif Þetta
mark verður að skrifa algjör-
lega á reikning varnarinnar,
sem leyfði hinum leiknu mönn-
um, Þórólfi og Gunnari Felix-
syni að prjóna að vild sinni.
Þetta voru einu stóru mistök
varnar utanbæjarmanna, sem
eftir þetta mark náði sér veru-
lega á strik og átti í heild góðan
leik.
Ekki liðu nema 4 mínútur þar
til utanbæjarmenn jöfnuðu
metin/ Það var Steingrímur
Björnsson, hægri útherji, sem
það gerði eftir ágæta sendingu
frá félaga sínum Skúla Ágústs-
syni sem kominn var út á hægri
kantinn. Þetta mark má að
sama skapi skrifa á reikning
reykvísku varnarinnar, sem
átti alla möguleika á að ná
knettinum. Næst á Þórólfur fast
skot framhjá. Utan frá hægri
skapaðist færi, er Guðm. Ósk-
arssón sendi hæðárbolta inn í
vítateiginn, sem Ellert . skall-
aðí til Gunnars Felixsonar, en
hann skaut kontra mjög föstu
skoti, sem vel staðsettur Helgi
markvörður bjargaði yfir þver-
slá. Björn Helgason og Ingvar
starf a veí saman að áhlaupi upp
miðjuna, sem lauk með hörku
skoti Ingvars rétt yfir þverslá.
Þá átti Skúli Ágústsson hörku-
skot framhjá rétt í lok hálfleiks-
Helgi Danielsson markvörður gerir tilraun til að hand-
sama boltann en mistókst og boltinn lenti í markinu.
Síðari hálfleikur var mun
slakari en hinn fyrri. Utanbæj-
armenn létu stöðugt meira að
sér kveða og við borð lá strax
á 4. mín. að Ingvar skoraði, eft-
ir að Hreiðar hafði „kiksað“, en
Rúnar bjargaði á síðustu stundu
í horn. Mínútu síðar mistekst
Rúnari svo að spyrna frá úti við
vítateigshorn. Ásgeir Þorsteins
son vinstri útherji utanbæjar-
manna fékk upp úr því knött-
inn og sendi hann með fastri
hæðarspyrnu rakleitt í mark-
ið. Nú upphófst langt þóf og
var lítið um að knötturinn fengi
að ganga milli margra sam-
herja. Utanbæjarmenn voru á-
kveðnari, sóttu fast og hrundu
sérhverri tilraun Reykvíkinga.
Vörn Reykvíkinga var vægast
sagt léleg íjþessum leik. Rúnar
hefur maður ekki séð svona
slakari lengi. Hreiðari mistókst
hvað eftir annað og framverð-
irnir virkuðu seinir og þungir
báðir tveir. Framlínan reyndi
töluvert til að ná saman, en
tókst ekki. Tríóið var bragð-
dauft og leikdreifingin hvergi
nærri nóg til að skapa árang-
ur. Það er einkennilegt, að
svona skotharðir menn skuli
/
ekki reyna að skjóta t. d. frá
vítateig, en það sást tvisvar að-
ins. Það er ótækt að ætla sér
ávallt að leika inn að mark-
línu.
Lið utanbæjarmanna kom
skemmtilega á óvart. Þeir voru
ákafir og leikglaðir og náðu
furðu vel saman. Bakverðirn-
ir áttu báðir góðan leik og
mætti landsliðsnefnd vel hugsa
til Jóns Stefánssonar sem bak-
varðar. Framverðirnir Magnús,
Sigurjón og Kristinn voru mjög
duglegir. Sigurjón og Magnús
mættu þó báðir temja sér spyrn
ur með jörðu til samherja sinna
í framtíðinni einkum Sigurjón,
sem alltof oft séndi þeim hæð-
arbolta, þegar hitt var hægt. í
framlínunni bar mest á tríóinu
og vakti Skúli Ágústsson sér-
staka athygli fyrir lipran leik.
Björn skortir boltameðferð , en
er geysiduglegur. Ingvar er
ávalit marksækinh og átti hann
í fullu tré við Rúnar. Stein-
grímur og Ásgeir voru vel með
og skoruðu sitt hvort markið.
Vel hefði landsliðsnefnd mátt
gefa Steingrími tækifæri sem
miðframherja í seinni hálfleik
og færa/Ingvar út á kantinn.
H.
grípur boltann í upphlaupi mótherjanna. Árni Njálsson
fylgist spenntur með.
Að utan
Júgóslavía sigraði Pólland 2:1
í undankeppni heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu.
í Lissabon léku landsleik
Argentína og Portúgal og sigr-
aði það fyrrnefnda 2:0, sem
teljast verður athyglisverður
sigur, þegar litið er á að Portú-
gal gerði jafntefli við England
nú fyrir skömmu.
Allar líkur eru til þess að
sænski knattspyrnumaður-
inn, Rune Börjesson, sem verið
hefir bezti maður sænska
landsliðsins nú um nokkuri
skeið, leiki ekki með á mót
Danmörku 18. júní, því hann ei
sagður vera um það bil aí
skrifa undir samning við ítalsk;
knattspyrnuliðið í Lanerossi
Milano. Spurzt hefir að Agn:
Simonsson sé einnig að far;
til Lanerossi, frá Real Madrid
en hvorki hann né spæski
meistararnir munu vera ánægí
ir með hlutskipti sín.
Þá hefir Ole Madsen skrifac
undir samning við ítalskt félag
Kúpavnjur
(
Utsölumaður Vísis í Kópavogi er Gerður
Sturlaugsdóttir, Hlíðarvegi 35, sími 14947.
Fastir kaupendur og þeir, sem óska að gerast
áskrifendur, snúi sér til afgreiðslumannsins.
Dagblaðið VÉSIR