Vísir - 21.07.1961, Side 5
Föstudagur 21. júlí 1961
VtSIR
5
ttaktar slóöir
Et 'illunt Æforris
Brezka skáldinu og rit-
höfundinum William Morris
(1834—1896) hefur m.a.
verið lýst, sem einum ágæt-
asta vini Islands fyrr og síð-
ar. Hann ferðaðist xun fsland
tvívegis og orkti um ísland.
Dóttir hans tók ástfóstri
við ísland og ferðaðist hér
— um landið, sem faðir
Iiennar dáði svo mjög.
William Morris var mikið
Að utan -
Framh. aí 8. síðu
Greenewalt.
þýðir lækkað verð. Það hef-
ir verið reiknað út, að jafn-
vel þó Du Pont dreifi hluta-
bréfasölum þessum yfir 10
ár muni magn General
Motors-bréfanna á markaðn-
um tvöfaldast,
Mein skorið burt.
Það er því hætt við að
skáld, sérkennilegur maður
og fjölhæfur, jafnvígur á
margt. Hann var mjög af-
kastamikill rithöfundur. —
Verk hans komu m.a. út í
heildarútgáfu 1912 í 24
bindum. Áttunda bindið í
þessu mikla ritsafni er Jour-
nals of Travél in Iceland.
Nú á að gefa þessa
fcrðasögu Williams Morr-
is út á ný sérstaklega
og með óvanalegum
hætti. Og sú saga er í
stuttu máli þessi:
Félagið William Morris
Society var eins og nafnið
gefur til kynna stofnað til
minningar um hann, til þess
að vinna að auknum skiln-
ingi á gildi verka hans, í
stuttu máli til þess að halda
minningú hans á lofti. Fjórir
imgir menntamenn, aðdá-
endur Williams Morris,
hreyfðu þeirri hugmynd í
félaginu að fara til íslands,
þessar aðgerðir allar bitni
hart á hinum almennu
hlutabréfaeigendum, sem
margir hverjir hafa lagt
sparifé sitt í þessi hlutabréf
sem þeir töldu trygg. Á það
lagði minnihluti Hæstaréttar
áherzlu, að fara bæri var-
lega í beitingu hringa lög-
gjafarinnar í þessu tilfelli,
vegna þess að það myndi
bitna harðlega á tugþúsund-
um og hundruðum þúsunda
almennra hlutafjáreigenda.
Meiri hluti Hæstaréttar
viðurkenndi að vísu, að
þetta myndi koma hart nið-
ur á mörgum. en svaraði þvi
til, að ekki yrði að því gert.
Það gæti verið sársaukafullt
að skera meinsemdir burt.
en slíkt mætti ekki hindra
lækninguná.
og rekja slóðir skáldsins,
sem ferðaðist hér 1871 og
1873.
Nú eru þessir ungu menn
komnir hingað til lands,
komu á Gullfossi síðast,
þeirra erinda sem að ofan
getur. Eg var svo heppinn
að ná tali af þeim í gær og
spyrja þá nánara um tiidrög
ferðarinnar og hina fyrirhug-
uðu útgáfu á ferðasögunni.
Sagðist þeim svo frá:
„Charles Skilton bókaút-
gefandi, sem einnig er aðdá-
andi verka Williams Morris,
fékk vitneskju um áhuga
okkar og áform, er um þetta
var rætt innan félagsins, og
upp úr viðræðum um þetta
innan félagsins milli hans og
okkar og fleiri manna, spratt
svo önnur hugmvnd, sú,
að gefa ferðasögu Will-
iams Morris út sérstak-
lega á næsta ári. Skilton
er þeirrar skoðunar, að
ferðasagan sé eitt lians
bezta verk og læsilegasta
f.vrir allan almenning. og
nú er sem sagt í ráði, að
útgáfunni verði þannig
hagað, í samstarfi við okk-
ur, að framan við ferða-
söguna verði ítarlegur
inngangur eftir okkur, og
einnig verður í bókinni
ferðasaga okkar um sömu
slóðir og Morris fór,
prýdd myndum, nútíma
ferðasaga frá sömu slóð-
um.
Við fengum raunar bug-
myndina um, að fara ti! ís-
lands fyrir nokkru árum. og
jók það áhuga okkar, er við
kynntumst æ betur verkum
Williams Morris. Og ' októ-
ber siðastliðnum var svo
komið, að
við vorum farnir að hugsa
um að fara til Islands og
ferðast um þar — fara
sömu slóðir' og William
Morris — rekja þær eins
og okkur verður frekast
unnt.
Við höfum Landrover-bif-
reið með okkur og munum
nota hana til ferðalaganna,
þar sem fært er á bifreið, en
munum vafalaust verða að
ferðast sumstaðar ríðandi
eða fótgangandi.
William Morris ferðaðist
hér víða um land. Hann fór
héðan úr Reykjavík um Suð-
urlandsundirlendi, kom til
Eyrarbakka og á sögustaðina
Bergþórshvol og Hlíðarenda,
til Geysis og Gullfoss, norð-
ur í land fór hann og kring-
um Snæfellnes o. s. frv.
Við munum segja frá ferð
okkar í viðaukablaði Times
um bókmenntir, háskóla-
blaði og fleiri blöðum og
þess má og gela, að talsvert
hefur verið um ferð okkar
og áform sagt þegar í frétt-
um blaða.
Við höfum hlakkað mikið
til þessarar ferðar og við
vitum að hún verður okkur
ógleymanleg — og það er
einlæg von okkar allra, að
hún geti orðið til þess, að
auka kynni manna á WiJliam
Morris, sem íslandsvini,
skáldi, rithöfundi og manni
— til þess að nútíminn geti
kynnst þessum látna, gagn-
merka manni og skáldi.
Hinir ungu menn sem hér
um ræðir, og ég átti með
skemmtilega stund á heimili
mínu í gær, eru:
Peter Haxworth, Worcest-
er College, Oxford, Anthony
Wilson, University College,
Oxford, Richard Haxworth,
Bwith Wells, Wales og Hugh
W. D. Bushett, Jesus College.
Oxfprd.
Eg þakka þeim félögum
komuna og ágæt kynni og
óska þeim fararheilla og
veit, að lesendur Vísis taka
þar undir.
Eg vil nota þetta tækifæri
til að minna á, að ðgætiega
hefur verið um WiJliam
Morris skrifað hér á Jandi og
vil einkum benda á ágæta
ritgerð Snæbjarnar Jónsson-
ar. Að minnsta kosti eitt af
ljóðum Williams Morris hef-
ur verið þýtt á íslenzku
„Iceland first seen“ (Land
sýn við ísland), þýtt af
af Steingrími Thorsteinson
og birt í Ljóðaþýðingum
hans, II. b.
A. Th.
Mega yfirverkfræð-
ingar gera verkfall?
í gær var lialdinn sáttafund-
ur í deilu verkfræðinga og
Vinnuvitendasambandsins. Á
þessum fundi fóru vinnuveit-
endur fram á það, að verkfall-
inu yrði frestað, en á það vildu
verkfræðingar ekki fallast.
Á þessum fundi var að öðru
leyti mest rætt um það, hvort
yfirverkfræðingar mættu fara
í verkfall, en í gamla samningn
um stendur, að þeir hafi ekki
verkfallsrétt, að því er fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambandsins, Björgvin Sigurðs-
son, skýrði blaðinu frá í morg-
un. Verkfræðingar vildu nú
samt sem áður halda því fram,
að hið yfirvofandi verkfall gilti
einnig um yfirverkfræðinga.
Skemmdir -
Frh. af 16. s.
Ummæli sín um að fréttin
hafi verið „furðuleg og æs-
ingafull“ hefur forstj. Bæj-
arútgerðarinnar í engu rök-
stutt, en hins vegar beinlín-
is lýst yfir því, að höfuðatr-
iði fregnarinnar, upphæð
tjónsins á bryggjunni er rétt.
Hins vegar myndu öll dag-
blöðin hafa getað flutt les-
endum sínum gleggri fregnir
af árekstrinum, ef Bæjarút-
gerðin hefði ekki dregið að
gefa út fréttatilkynningu um
málið í rúmar sex vikur.
Björgvin Sigurðsson skýrði
blaðinu frá því, að vinnuveit-
endur hefðu þá farið fram á
það, að yfirverkfræðingar færu
ekki í verkfall, fyrr en að und-
angengnum úrskurði Félags-
dómsins. Verkfræðingar munu
svara þeirri málaleitan í dag.
Annar fundur hefur ekki
verið boðaður og eru allar
horfur á, að verkfallið skelli á
næstkomandi mánudag.
Sumarbúðir —
Framh. af 2. síðu.
kemur mannvirkjum og nátt-
úrugæðum og einnig hefir
starfsskráin reynst mjög vel
við hæfi hinna fjölmörgu ung-
linga, þar sem reynt er að finna
viðfangsefni við hæfi hvers
einstaklings og þeim skipt nið-
ur í hópa eftir aldri og þroska.
Ýmsir fremstu íþróttamenn
þjóðarinnar hafa dvalizt með
drengjunum við ' æfingar og
hefir það gefið hina beztu
raun.
f ráði er að gera kvikmynd
af síðasta námsekiðinu og síðar
verður ef til vill efnt til sýn-
ingarferðar með hana og hún
sýnd í skólum.
Nú eru síðustu forvöð að
sækja um aðgang að síðasta
námskeiðinu og eru umsóknir
afgreiddar á skrifstofu ÍSÍ,
Grundarstg 2 b, Reykjavík. —
Sími 14955.