Vísir - 21.07.1961, Blaðsíða 9
Föstudagur 21. júlí 1961
V I S 1 R
9
Francoise
úthrópuð
Franska skáldkonan
Francoise Sagan hefur
gefið út nýja skáldsögu,
þá fimmtu í röðinni. —
Bókin heitir „Hin dýr-
legu ský“ og er titiilinn
tekmn úr prósaljóði
Baudelaires. Bókin er
aðeins 185 síður.
Að þessu sinni þykir
bregða nokkuð nýtt við,
að allir helztu bók-
menntagagnrýnendur
Frakka ráðast á bók
Sagan og segja að hún
sé ómerkileg, siðlaus og
laus í reipunum.
Bonjour Tristesse.
Eftir þessar undirtektir
gagnrýnendanna eru menn
farnir að velta því fyrir sér
hvort frægðarsól Francoise
Sagan sé að renna til viðar.
Hún hefir nú í átta ár verið
langfrægasti rithöfundur
Frakka. Hún kom fyrst fram
á sjónarsviðið átján ára með
bókina „Bonjour Tristesse".
Var hún þá álitin undrabarn
og gagnrýnendurnir hófu
bókina upp til skýjanna.
Hún seldist í milljónum ein-
taka og sama er að segja
um allar seinni bækur henn-
ar.
Fulltrúi ungu
kynslóðarinnar.
’ Auk þess hefir Francoise
Sagan verið mikill persónu-
leiki.Hún hefir orðiðhálfgerð
þjóðsagnapersóna fyrir smell
in tilsvör sín og hún hefir
01-010 fulltrúi yngstu kvn-
slóðarinnar í Frakklandi
með allri léttúð hennar,
slægð og kaldhæðni. Enn er
það í fersku minni að hún
lenti í bílslysi er hún ók
sportbíl sínum með ofsa-
hraða út af þjóðveginum
skammt frá París. Þar var
hún fulltrúi þeirrar æsku
sem lifði tæpt og undi sér
bezt við lífshættu í ofsahröð-
um akstri.
Menn héldu, að Sagan
væri svo kærulaus í líferni
sínu, að henni hefði þótt það
eitt lakast, að hún skyldi ekki
láta lífið i bílslysinu. Þvert
á móti því fékk bifreiða-
slysið mikið á hana og hún
ský
66
dot um útsíður og mynda-
efni í vikublöðum landsins.
En nú telja menn að Sagan
hafi 26 ára að aldri spennt
bogann of hátt með síðustu
skáldsögu sinni „Hin dýrð-
legu ský“. Það er að minnsta
kosti í fyrsta sinn, sem
gagnrýnendurnir ráðast allir
á hana.
Þjáning —
afbrýðisemi.
Skáldsagan fjallar um af-
brýðisaman eiginmann.
Hann er Ameríkani og heit-
ir Alan. Kona hans er frönsk
og heitir Josée. Og sem sagt
Alan pjáist af ægilgri af-
brýðisemi. Það er undarlegt
að finna slíka stjórnlausa
SIÐLAUS
OG
LEIÐINLEG
hætti að aka kappaksturs-
bílum.
En alla tíð síðan hefir hún
verið skapandi tízku og
nýrra skrítinna siða meðal
unga fólksins. Hún átti sinn
þátt í að gera litla hafnar-
bæinn St. Tropez á Blá-
ströndinni að eftirsóttasta
skemmtistað Frakklands.
Keppir við
Birgittu.
Sagan er ekki lagleg né
vel vaxin. Hún er nefstór
og ósköp budduleg. Samt er
hún eina franska konan,
sem hefir getað háð harða
samkeppni við Birgitte Bár-
Gagnrýn-
endur for-
dæma
síðustu
bók henn-
ar: „Hin
dýrðlegu
afbrýðisemi í bók eftir Sag-
an, sem viðurkennir ekki að
ástin sé tilfinning, heldur
aðeins líkamleg nauðsyn
eins og matur. Þetta táknar
þó enga stefnubreytingu hjá
skáldkonunni, því að það
kemur brátt í Ijós, að þessi
afbrýðisemi stafar ekki af
tilfinningum, heldur af ein-
hverri stjórnlausri tauga-
veiklun.
Alan og Josée eru suður
á baðströnd í Florida og
Alan þjáist af afbrýðisemi.
Hann spyr Josée í þaula um
það, hvort hún hafi nokkurn-
tíma verið með öðrum mönn-
um áður en, hann kynntist
henni og hún játar það eins
og hvern annan eðlilegan
hlut. Hann heldur áfram að
spyrja hana um ástarævin-
týri hennar og hún segir
honum frá hverjum unnust-
anum á fætur öðrum sem
hún hafði átt áður. Játning
eftir játningu og stöðugt vex
afbrýðisemi mannsins.
Leikari í
leiðinlegu atriði.
Josée fer loks að leiðast
að segja þessar sífelldu ást-
arsögur. Henni varð eins inn-
anbrjósts eins og leikara, sem
var að leika leiðinlegt leik-
rit. Hana fer að langa til að
losna við þennan leiðinlega
eiginmann. Lengi skortir
hana þó dug til þess, þangað
til hún hittir veiðimanninn
Richardo, fer með honum
út á vélbát og tekur fram-
hjá með honum, enda þótt
henni geðjist ekkert að
Richardo, „hann er með
hugsandi hundsaugu“.
En við þetta fær Josée
sjálfsöryggi sitt aftur. Hún
lítur á sjálfa sig í spegli eft-
ir atvikið „og henni virðist
hún hafa yngst um 10 ár.
Svo viðurkennir Josée það
fyrir Alan eiginmanni sín-
um, að hún hafi tekið fram-
hjá honum. Hún verður al-
veg hissa á viðbrögðum
hans þegar hann rýkur upp
og heimtar skilnað.
Fórnarlömb
ímyndunar.
Svona heldur sagan áfram.
Josée snýr heim til Frakk-
lands eftir skilnaðinn, en
Alan og annar maður, sem
flæktur er í spilið, elta hana
með Hlugvél yfir Atlants-
hafið. Alan getur ekki verið
án hennar og þau sættast í
Ritz-hóteli í París. „Þau
urðu fljótlega fórnarlömb
þeirrar líkamiegu ímyndun-
ar, sem er kölluð ást.“
En ekki batnar ástandið.
Nú fer afbrýðisemi Alans
fyrst að keyra úr hófi fram.
Hún er ólagleg og siðlaus en
— slær alltaf í gegn. Eftir
síðasta hjónaskilnað sinn
tekur hún aðeins tryggð við
hundinn sinn.
Hann leigir einka-lögreglu-
menn til að elta konu sína
og fylgjast með hegðun
hennar. En allt kemur fyrir
ekki. Josée finnur leiðir til
að halda framhjá manni sín-
um „í baðherbergi og í kok-
teil-party“.
Og aftur byrja játningar
Josée. Hún viðurkennir enn
brot sín fyrir Alan og lýsir
þeim út í æsar og hann tryll-
ist af afbrýðisemi.
Síðan lýkur bókinni á orð-
unum „það verður alltaf
eins og spilað er út“.
Siðlaus
en selzt.
Gagnrýnendur ráðast nú
á Sagan fyrir það hvað bók
hennar er sundurlaus og ó-
merkileg. Þeir kvarta og sár-
an yfir því að hún sé siðlaus
og þekki ekki ástina. Þess
vegna segja þeir, að þetta
sé ljót og leiðinleg bók.
En hún selzt samt eins og
bráðið smér. Á einni viku
seldust í París 80 þúsund
eintök af henni. Svo það er
kannske of fljótt að hrósa
happi yfir fallinni stjörnu.