Vísir - 12.08.1961, Blaðsíða 2

Vísir - 12.08.1961, Blaðsíða 2
2 VÍSIR Laugardagur 12. ágúst 1961 wmm ,=T w//////ámw///A ^ o > LAISIDSKEPPNSN : Verður hún eldraun liðs sem er lakara en oft áður? Eins og frá er skýrt á öðr- um stað í blaðinu í dag, þá hefst landskeppni milli B-liðs A-Þjóðverja og íslendinga á Laugardalsvellinum í dag. Þetta er í annað skipti sem þessar þjóðir þreyta slíka keppni á þessum grundvelli, en í hið fyrra skipti sigruðu A-Þjóðverjar með miklum yf- irburðum. Ýmsum getum hef- ur verið að því leitt, hvort fara muni á svipaðan hátt nú, eða jafnvel, að munurinn verði enn meiri nú en þá. Lið A-Þjóðverjanna er a.m. k. jafn sterkt, ef ekki sterk- ara nú, en á hinn bóginn vant- ar talsvert upp á, að styrk- leiki hins íslenzka liðs, sem nú hefur verið stillt upp, sé sambærilegur við það, sem var, er hin fyrri keppni fór fram. 1 nokkrum greinum eigum við góða menn, s. s. í þrí- stökki, þar sem Vilhjálmur Einarsson ætti að geta sigrazt á hinum þýzka keppinaut sín- um. Hann hefur að vísu ekki náð eins góðum árangri í sumar og í fyrra, en þó vant- ar aðeins fáeina sentimetra upp á að hann hafi náð jafn góðu stökki og keppinautur- inn. Jón Ólafsson, sem í ár hefur stokkið rúma 2 m, á einnig möguleika til sigurs, þeir hafa stokkið 2,00 m A- Þjóðverjamir en Jón 2,03 m. 1 hinum greinunum erum við hins vegar ekki eins sig- urstranglegir, og fyrirfram er vitað að við bíðum ósigur í mörgum. Liði okkar nú, er stillt upp af vanefnum, eins og þeir sem fylgjast með þessum málum hafa vafalaust þegar gert sér grein fyrir, m. a. af skrifum hér í fyrradag á íþróttasíðu. Kemur þar bæði til, að þeir menn sem á undanförnum árum hafa ver- ið hvað efnilegastir hafa ekki sýnt þær framfarir sem margir hefðu talið eðlilegar, og eru vafalaust margar or- sakir til þess. Hins vegar, að nú eru margir af þeim í- þróttamönnum sem við höf- um talið boðlega á alþjóðleg- um vettvangi eru ekki hér á landinu nú, eða hafa þá alveg hætt keppni. Björgvin Hólm, sem um ár.e.bil hefur verið einna bezt- ur í grindahlaupi og tugþraut og er mjöð liðtækur í mörg- um greinum, svo sem spjót- kasti, er nú erlendis. Pétur Rögnvaldsson, methafinn í 110 m grindahlaupi, er einn- ig erlendis. Hann dvelst nú í Bandaríkjunum við nám, en þar hefur hann í sumar náð 14.6 sek. á vegalengdinni, en það er betri tími en báðir hinir a-þýzku menn hafa náð. Jón Pétursson, hefur cinnig verið mjög góður í hástökki, stökk í fyrra jafnt og A-Þjóð- verjarnir hafa náð nú. Hann varð hins vegar fyrir meiðsl- um í Málmey í sumar, og hef- ur vart náð sér til fulls. Hilm- ar Þorbjörnsson, spretthlaup- ari, er nú hættur keppni, og þar með okkar eina von um að ná sigri í þeirri grein. Tveir 400 m hlauparar, þeir Þórir Þorsteinsson og Hörð- ur Haraldsson, eru nú ekki eins góðir og þeir hafa verið, og veikir það aðstöðu okkar í þeirri grein. Valbjöm Þorláksson, hinn ágæti stangarstökkvari, meiddist í tugþrautarkeppni á Bislet fyrir viku, en mun samt keppa, en enginn veit fyrr en á reynir, hvort hann hefur náð sér til fulls. 1 spjót- kasti keppir m.a. Gylfi Gunn- arsson, sem oft áður hefur Guðmundur Gíslason og Ágústa Þorsteinsdóttir hafa undanfarið tekið þátt I Norð- urlandamótinu í sundi, sem fram hefur farið í Halmstad, Noregi. Frammistaða þeirra hefur verið hin þokkalegasta, hún hefur verið samkvæmt þeim vonum sem gerðar höfðu verið. Hins vegar hefur sundfólk hinna Norðurlandaþjóðanna komið mjög á óvart og varla hefur það sund verið synt, þar sem ekki hefur Evrópu-, verið í landsliðinu. Hann var hins vegar skorinn upp við sjúkdómi í baki fyrr á árinu, og hefur því ekki getað æft. Hins vegar hefur hann náð rúmlega 60 m kasti á innan- félagsmóti, þrátt fyrir algert i æfingaleysi, og er því talinn hafa líkur á að ná lengra en aðrir menn sem völ er á. Er blaðið ræddi við hann í gær, sagðist hann mundu verða með, þar sem hann vildi ekki skorast undan, en kvaðst hins vegar hvergi nærri telja sig • nógu vel undirbúinn til að geta staðið við fyrri árang- ur. Svavar Markússon hefur ekki náð sama árangri nú og í fyrra, og stafar það m. a. af veikindum fyrr á árinu, sem hindruðu hann í æfing- um. Þá er óvíst um þátttöku Guðjóns Guðmundssonar í báðum grindahlaupunum, vegna meiðsla. Fleiri dæmi má nefna. Það er því ljóst, að við er- um ekki vel undir þessa keppni búnir, og hún verður sannkölluð eldraun, og verða allir að taka á sínu bezta, ef halda á í horfinu frá því síð- ast. En einmitt þess vegna er kannske meiri ástæða til þess að fylgjast með nú, því að í- þróttamenn okkar hafa oft sýnt það, að þeir gera bezt, þegar mest á ríður, og það er það sem mestu máli skiptir. Norðurlanda- eða landsmet verið sett. Guðmundur synti 200 m. baksund, náði tímanum 2.36,9 og varð fimmti. Einnig synti hann 100 metra skriðsund og varð þar sjötti á 59.4. Fyrst- ur varð í því sundi Oie Lind- berg, Svíþjóð, á nýju Evrópu- meti, 55,5. Ágústa varð sjöunda í 400 metra skriðsundi á tímanum 5.35.4 og 4. í 100 m. skrið- sundi á 1.07.1. Svíar umiti Finna 4-0 Svíþjóð og Finnland háðu landskeppni í knattspymu um helgina. Svíar sigmðu 4—0, en Finnamir komu á óvart með því að sýna mjög góða knatt- spymu og það var ekki fyrr en undir Iokin sem þeir gáfu sig. Það kom hinsvegar ekk- ert á óvart þótt Svíarnir stæðu sig vel, því „það er eins og allir Svíar séu fæddir knattspýmumenn“. Það virðist engu máli skipta hve marga og góða leikmenn þeir missa út í at- vinnumennskuna, alltaf hafa þeir á takteinum landslið á heimsmælikvarða. Landsleik- inn sigmðu Svíar 1—0, ungl- ingalandsleikinn unnu þeir 3 —1 og drengjalandsleikinn unnu Svíar einnig 4—1. Sigruðu þeir þannig í öllum leikjum sínum gegn Finnum. S.l. þriðjudag fengu reykvískir Badmintonleik- arar skemmtilega heim- sókn af þeim Bill Berry og Mike Hartgrove, en þeir em báðir í landsliði USA, og voru á heimleið frá heimsmeistarakeppninni í Badminton (Thomas-Cup) sem nýlega er lokið í Indó- nesíu. Indónesar unnu, Thailendingar urðu aðrir, Danir þriðju og Banda- ríkjamenn fjórðu. — Bæði Bill og Mike em fyrsta flokks Ieikmenn, og er Bill t. d. álitinn annar bezti ein- liðaleikari í sínu heima- landi, en Mike aftur á móti mjög góður tvíliðaleikari, vann t. d. í umræddri keppni K. Nielsen og Er- land Kops ásamt félaga sínum. En Kops er eins og allir vita heimsmeistari 1961 í einliðaleik karla, og ekkert lamb viðureignar. Bill og Mike léku hér nokkra leiki við reykvíska badmintonleikara, og sýndu ótvíræða yfirburði. Að lokum léku þeir svo einliðaleik gegn hvor öðr- um við mikinn fögnuð á- horfenda, og mátti margt af þeim læra. Hafi þeir þökk fyrir komuna. Sundfólkið stóð sig eftir vonum

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.