Vísir - 17.08.1961, Síða 1
! • ••'•••:• ;
VISIR
51. árg, Jgimmtudagur 17. ágúst 1961. — 186. tbl.
Þjóðverjí drukkn-
ar í Mvvatni.
Sá hörmulegi atburður varð
síðdegis í gær á Mývatni, að
þar drukknaði sextugur Þjóð-
verji, sem var - skemmtiferð
í Mývatnssveit. V .
Atvik í sambandi við slys
þetta voru sem hér segir:
Síðdegis í gær fór einn
heimamanna á Reykjahlíð með
tvo útlendinga, þýzka feðga
frá Bad Godesberg, út á vatn-
ið á hraðskreiðum vélbát.
Nokkur gola var og vindbára,
en veður annars hagstætt. Mý-
vetningurinn var við stjórn á
bátnum, og sat eldri Þjóðverj-
inn fremst í bátnum, en sonur
hans á miðþóttu.
Ágætlega gekk að komast af
stað, og var báturinn kominn
á 20—30 mílna ferð að dómi
Mývetningsins, þegar komið
var að svonefndu Teigasundi,
en þar er Mývatn mjóst, því að
annars vegar gengur út í það
Neslandat%ng.i að vestan og
norðan, en að austan Land-
teigar. Þegar þeir voru um það
bil komnir í sundið, reið alda
undir bakborðskinnung báts-
ins og svifti honum á hliðina.
Lentu mennirnir allir undir
bátnum, en komust strax und-
an honum og reyndu fyrst að
koma bátnum á réttan kjöl, en
Framh. á 5. síðu.
Fort Erie siglir inn á höfnina í morgun. Utar sést Outremont.
Freigáturnar komnar.
ÞAÐ var heldur líflítið við
höfnina í morgun kl. 7,30. þeg-
ar blaðamaður og Ijósmyndari
fró Vísi komu þangað til þess
að ná frétt og myndum af
komu kanadisku flotadeildar-
innar. Það var húðarrigninp
sannkallað vatnsveður. Uti -á
7
ytri höfninni voru Gullfoss og
Goðafoss og lengra úti sást móa
fyrir kanadisku herskipunum
fjórum, en skyggni var slæmt
og sást lítið út sundin.
Búið var að loka af Ingólfs-
garð, þar sem herskipin áttu að
liggja og var öllum bílum bönn
Gaddavírsgirðingarnar tákna
gjaidþrot kommúnismans.
Lögreglan í Berlín telur, að
yfir hálf milljón manna hafi
safnazt saman í gær fyrir fram
an ráðhúsið í Vestur-Berlín, til
þess að mótmæla aðgerðum
austur-þýzkra stjórnarvalda til
þess að hindra alla umferð til
Vestur-Berlínar. Var Willy
Brandt borgarstjóri ákaft hyllt
ur, er hann kvaðst hafa skrifað
Kennedy Bandaríkjaforseta og
krafizt stjómmálalegra að-
gerða — og ekki einvörðungu
orð.
Willy Brandt sagði, að íbúar
Vestur-Berlínar ættu fullan rétt
á að vita, hversu yrði á mál-
um þeirra tekið. Áletranir
kröfuspjalda, er menn báru,
leiddu og í ljós óþolinmæði
manna og gremju yfir aðgerða-
leysi. Á eitt spjaldið var letrað:
Framh á 5. síðu
Öllum hliðum skal lokað.
Austur-þýzkur hermaður
læsir hliðinu á rimlagirðing-
unni í neðanjarðarstöðinni
uð umferð um bryggjuna, að
því er lögregluþjónar sögðu.
Fleiri ráðstafanir höfðu verið
gerðar vegna skipanna, m.a.
var landhelgisgæzlan búin að
flytja varðbátana í vesturhöfn-
ina, svo að Kandamenn gætu
haft Ingólfsgarð út af fyrir sig.
Rétt rúmlega 7,30 sigldi
Gullfoss inn á höfnina með að-
stoð Magna, sem fór strax út
aftur og sigldi nú að forystu-
skipi flotadeildarinnar Fort
Erie, sem var fánum prýtt og
um 15 mínútum fyrir 8 kom
Fort Erie í hafnarkjaftinn. Það
tók nokkuð langan tíma að
koma skipinu að bryggjunni,
það var mesti urmull af sjólið-
um á dekkinu og virtust marg-
ir þeirra eiga heldur náðuga
daga. íslendingar á bryggjunni
höfðu heldur gaman af því, hve
Kanadamönnum gekk illa að
koma kastlínu í land að aftan,
þeir gerðu fjöldamargar til-
raunir með tveimur kastlínum
og þegar þeir loks komu lín-
unni í land var skipið komið
fast að bryggjunni að aftan, en
þá var búið að binda að fram-
an. Magni sigldi nú beint út
aftur og bjóst til að ná í Outre
mont, sem var næsta skip.
Voru skipin síðan tekin inn í
höfnina hvert af öðru.
Herskipin fjögur eru öll frei-
gátur og öll úr sama herskipa-
Framh. á 5. síðu.
hún er á borgarmörkunum.
Síðastliðna nótt fóru 9
vopnaðir einkennisbúnir
austur-þýzkir lögreglu-
menn yfir mörkin inn i
Vestur-Berlín, afhentu
skammbyssur sínár og
báðu um hæli sem pólitískir
flóttamenn.