Vísir - 17.08.1961, Blaðsíða 6
Vf SI R
Fimmtudagur 17. ágúst 1961
6
Nú má læra kelt-
nesku í London.
Á hausti komanða tekur
til starfa í London skóli, þar
sem bömum verður kennd
þjóðtunga Walesbúa.
Englendingum og fleiri
þjóðum hættir til að láta sér
fátt um finnast, þegar talið
berst að keltnesku, gaelisku
og tungu Walesbúa, sem eru
allar keltneskar tungur og
skyldar, telja þær dautt eða
deyjandi mál. Hvað sem segja
má um keltnesku Skotanna
lifir hún þó enn, — og jafn-
vel góðu lífi og betra lífi á af-
skekktum stöðum í Kanada,
aðallega Nova Scotia eða
Nýja Skotlandi, en heima í
Skotlandi, og gaeliskan lifir
í afskekktum héruðum og
eyjum, einkum Aranseyjum,
á írlandi; og þessi tunga eða
írskan er kennd í skólum
landsins, hvort sem nú tekst
að gera hana að framtíðar-
máli eða ekki. En af þessum
þremur tungum tala flestir
þjóðtungu Walesbúa. Það er
talið, að hún sé þann dag í
dag mál einnar milljónar
manna, 700.000 í Wales, en
hinna dreifðra um England
og samveldislöndin.
Walesbúar hafa ríka sjálf-
stæðiskennd og vemda móð-
urmál sitt eftir mætti. Einn
liðurinn er Eisteddfod —
þjóðhátíð, en sú regla gildir,
að meðan þau fara fram, eða
fyrstu vikuna í ágúst, megi
ekki önnur tunga heyrast þar
á ræðupalli en hún.
Wales hefur átt marga
menn og konur, sem heims-
frægð hafa hlotið. David
Lloyd George var Walesbúi
til dæmis. Og Selwyn Lloyd
fjármálaráðherra er frá Wal-
es.
Fyrsti skólinn.
Og nú í september á, sem
að ofan segir, að byrja að
sjá um að foreldrar frá Wal-
es, búsettir í London, geti lát-
ið böm sín í skóla, þar sem
þeim verður kennt móður-
málið. Þessi skóli verður fyrir
börn allt að 11 ára að aldri.
Enskunám sitt byrja bömin
9 ára. Með þessu er lögð mik-
ilvæg undirstaða — svo og
með því að welska er töluð á
heimilunum. En flestinn
bömum er auðvelt að læra
fleiri mál en sitt eigið, séu
skilyrði hagstæð.
Það er af ást á Wales og
tungunni og rækt við hana,
að hún er áfram lifandi mál
í Wales. Það er messað á
tungu þjóðarinnar, — og
mikið simgið á henni, en kór-
söngur er mikið iðkaður í
Wales, svoog þjóðdansar.
Áætlun Kennedys samþykkt
í Punta del Este.
Öll Mið- og Suður-Ame-
ríkuríkin, sem sitja ráðstefn-
una í Punta del Este í Uru-
guay, féllust á áætlun Kenne-
dys forseta um efnahagslega
og tæknilega aðstoð, að einu
undanteknu — Kúbu, en full-
trúi hennar sat hjá.
Hann heitir Ernesto Gue-
vara og er iðnaðarmálaráð-
herra Castros og í hverri ár-
ásinni af annarri réðist hann
hatrammlega á Bandaríkja-
stjóm. Ofannefnd atkvæða-
greiðsla sýnir bezt hvert
mark var tekið á orðum Gue-
vara.
Áætlun Kennedys forseta
er stundum kölluð „Marshall-
áætlunin" fyrir Mið- og Suð-
ur-Ameríku og lýsir betur en
langt mál hvers konar aðstoð
er um að ræða. Gert er ráð
fyrir, að fjárframlög Banda-
ríkjanna á grundvelli þessar-
ar áætlunar nemi 20 milljörð-
um dollara á 10 ámm.
Greiðslan fyrir fyrsta misser-
ið fer þegar fram.
• Ákveðin liefur verið framleiðsla
á nýrri gerð af Hillman de Luxe
Saloon-bifreið, með stærri en
sparneytnari hreyfli. Hraði
verður yfir 130 km. á klst.
Verðið á Englandi verður 498
stpd, en með söluskatti 727
stpd.
• Svíþjöð, Tékkóslóvakía og
Portúgal voru kosin í stjórn I
Alþjóðakjarnorkustofnunarinn-
ar fyrir timabilið 1961—62 í
stað Finnlands, Belgíu og Pól-
lands.
Fyrir nokkru var Amin-
tore Fanfani, forsætisráð-
herra ítala, í opinberri
heimsókn í Sovétríkjunum,
og færði hann þá Krúsév
forsætisráðherra að gjöf
þetta líkan af sikileyskum
skrautvagni, sem gerður er
af mikilli list. Myndin er
tekin, þegar Fanfani af-
henti gjöfina við móttöku
í Kreml.
Salai' er örugg
hjá okkur.
Bifreiðar við allra hæfi.
Bifreiðar með afborgunum.
BQarnir eru á staðnum.
BIFREIÐAS/ILAIXI
FRAKkASTÍG 6
Símar: 19092,18966,19168
/SlLASALANi
■II5-OW
Buick Station ’52,
verð kr. 40 þús. Lítil útb.
Volkswagen ’58 og ’59,
góðir bílar
Opel Caravan ’54,
Verð kr. 60—65 þús.
Skoda Station ’52,
góður en ódýr.
Ingólfsstræti 13
Símar 15-0-14 ög 2-31-36.
HAI\IDLAIVIPAR
SKIPAPERUR
220/230 volt
75 og 100 watta
fyrirliggjandi.
G. Marteinsson h.f.
Umboðs- og heildverzlun
Bankastr. 10. - Sími 15896
Höfum
FRAIHTÍÐ ARSTARF
handa ungum lagtækum manni, sem áhuga
hefur fyrir viðgerðarstarfi við fíngerðar vélar
og nokkra kunnáttu í ensku og norðurlandamáli.
Ákjósanlegt er að viðkomandi hafi einhvers
konar tæknimenntun.
Góðum manni verður greitt gott kaup.
Eiginhandarumsókn, sem tilgreini aldur,
menntun og fyrri störf sendist afgreiðslu blaðs-
ins sem fyrst merkt „Umboð — 25“.
Hrafnista D.A.S
STARFSSTÚLKUR
óskast. — Upplýsingar hjá brytanum í síma
35133 og eftir kl. 7 í síma 50528.
Iðnskólinn í Reykjavík
Innritun fyrir skólaárið 1961—1962 og nám-
skeið í september, fer fram í skrifstofu skólans
dagana 21. til 26. ágúst kl. 10—12 og 14—19,
nema laugardaginn 26. ágúst kl. 10—12.
Námskeið til undirbúnings inntökuprófum og
öðrum haustprófum hefjast 1. september næst-
komandi.
Við innritun skal greiða skólagjald kr. 400,00
og námskeiðsgjöld kr. 100.00 fyrir hverja náms-
grein.
Nýir umsækjendur um skólavist skulu einnig
leggja fram prófvottorð frá fyrri skóla.
Skólastjórl.
I