Vísir


Vísir - 17.08.1961, Qupperneq 3

Vísir - 17.08.1961, Qupperneq 3
Fimmtudagur 17. ágúst 1961 VÍSIR 3 Fréttamaður Vísis og ljósmyndari hittu önnu Harðardóttur á förnum vegi. Hún ætlaði að fá sér skó á fæturna. ViS báðum um aS fá aS slást í förina og hún veitti leyfi sitt meS blíðu brosi. Anna fór í Skóval í Austurstræti. Verzlunar- stjórinn sýndi henni sitt- hvað á sýningarhillun- um. En Anna var fljót að sjá hvað hún vildi og benti brosandi á eina gerSina. Svo virti hún þá fyrir sér eins og til að fullvissa sig um kosti skónna, mátaði þá, þeir pössuðu svo vel og á- kvað að taka þá. Við spurðum önnu hvers vegna hún hefði valið þessa skó. Hún svaraði aðeiné: ,,Vegna þess að þeir eru svo nettir.“ Anna er dóttír frú Ingibjargar Oddsdóttur og Harðar Þórðarsonar sparisjóðsstjóra. Hún er Vesturbæingur og spil- aði handbolta í K.R. í nokkra mánuði þegar hún var tíu ára. Það var nú allt og sumt. En nú er hún að safna sér fyrir utanlandsferð, og vill fara til Danmerk- ur að laéra dönsku. Hún var tvisvar í Englandi 1958 og ‘59 í þrjá mán- uði í bæði skiptin, á skóla í Easibourne og Bexhill. Anna er átján ára og ólofuð. — Þegar við „Mikið eru þeir sœtir.“ spurðum hana hvernig ur fyrir, segir hún: Að- hún eyði peningum sín- allega í föt og skemmt- um, sem hún ekki legg- anir. „Þeir passa alveg.‘ Gína verzlunarstjóri og Anna: „Með þökk fyrir viðskiptin.“

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.