Vísir - 17.08.1961, Síða 4
4
VISIR
FimmtuQagur x7. ágúst 1961
Jafnrétti senorít-
anna á Spáni.
Hinn 16. júli síðastliðinn
var mikill dagur í sögu
spœnskra kvenréttinda. —
Þann dag voru samþykkt
einróma í spánska þinginu
lög, sem tryggja konum
fidlt jafnrétti á við karl-
menn hvað snertir stöðuval,
stjórnmálaréttindi og launa-
greiðslur. Með þessum lög-
um hefur þingið bundið endi
á aldalanga kúgun kvenna á
Spáni.
Lög þessi munu ganga í
gildi þann 1. ágúst næsta ár
og verður konum með þeim
tryggt jafnrétti ; launamál-
um og einnig í hjúskapar-
málum.
Ekki munu þó konur njóta
algers jafnréttis á við karl-
menn. En undantekningarn-
ar eru fáar og hafa sáralitla
þýðingu. Helztu undantekn-
ingarnar eru þær, að konur
fá ekki stöður í hernum, né
í opinberum nefndum, sem
hafa vopnavald til þess að
framfylgja hlutverkum sín-
um og í dómsmálum lands-
ins fá konur ekki sæti, nema
í þeim dómum, þar sem fjall-
að er um verkalýðsmál eða
afbrot ungmenna.
Þessi nýju lög veita kon-
um kosningarétt og kjör-
gengi til allra opinberra
starfa án undantekninga.
Samkvæmt lögunum er
heimilt að skipa konur til
allra starfa hjá ríki eða bæj-
arfélögum. Annar kafli í lög-
unum heimilar konum að
starfa að verkalýðsmálum,
jafnt og körlum. Giftar kon-
ur þurfa þó leyfi eigin-
manna sinna, ef þær vilja
njóta þeirra réttinda, sem í
lögunum er gert ráð fyrir.
En fyrir þessu er sá var-
nagli sleginn, að giftar kon-
ur megi leita til dómstól-
anna, ef þær telja, að eig-
inmenn þeirra hafi neitað
þeim um þessi réttindi af
illgirni einni saman.
Spánskar konur hafa haft
kosningarétt síðan 1931, en
gömul lög, sem nú íalla úr
gildi, komu í veg fyrir, að
þær gætu gegnt öllum opin-
berum stöðum og hlndruðu
einnig, að þær nytu í mörg-
um tilfellum sömu réttinda
og karlmenn.
s ‘ : - \ .•.y.Vft. ■•v'. *
filii ijíai' Cmfietct
skórnir eru cinungis framleiddir úr völdu skinni og með styrktum sóla, en
sniðin eru gerð af þckktum ítölskum og þýzkum skótízkusérfræðingum. —
Spyrjið um EMPEROR skó í vcrzlunum okkar, þá fáið þér gæðaskó í
fögrum stíl.
(jangtöí Cimifiei'cr Akw
%á
Aðalstræti 8 — sími 18514
Laugavegi 20A — sími 18515
Snorrabraut 30 — sími 18517
w
hjá þeim seim umgangast yður, er ekki sízt háð smekk
yðar og snyrtimennsku.
^atntœw
í klæðaburði cr því mjög mikilvægt, hvort scni um er
að ræða, það sem þér klæðisf við vinnu eða þá cr þér
viljið hafa mest við.
^kcmis'
eru jafn áberandi og jakki eða buxur, þess vegna er
sjálfsagt að vanda val þeirra hið bezta, bæði hvað snertir
gcrð, stíl og lit jafnframt gæðunum.