Vísir - 17.08.1961, Side 16

Vísir - 17.08.1961, Side 16
VISIR Fimmtudagur 17. ágúst. I morgun var tíðinda- laust að heita áf síldarmið- unum. VeSur var ekki sem hagstæðast. Bíll ók yfir dreng. Akureyri í morgun. í fyrradag mjaðmargrindar- brotnaSi 12 ára gamall drengur norður í Fnjóskadal. Hann ligg- ur nú í sjúkrahúsinu á Akureyri og var hress eftir atvikum í gœrkveldi. . •: ||l! ' 'f: . ísaas > ", ... : ; :; . SéS yfir hluta af sýningar- svæðinu. — Neskirkja er fremst, Hagaskóli til vinstri við hana og Hagaborg til hægri. Myndin er tekin ofan af „Kringlu“ Melaskólans og sést einnig á myildinni hið gamla lokomtiv Reykjavík- ur. (Ljósm. Vísir I.M.) Slysið skeði um klukkan 6 síðdegis í fyrradag. Bóndinn á Hallgilsstöðum í Fnjóskadal var þá að sækja hey á eyðibýli þar í sveitinni og hafð'i með sér 12 ára gamlan dreng frá Akureyri, Heiðar Jóhannsson að nafni. Þegar bóndinn var búinn að láta heyið á bílinn og lagður af stað með það, lá leið hans upp bratta brekku, en þar spólaði bíllinn. Heiðar litli fór þá út til að huga að nýrri atrennu bílsins upp brekkuna, en í sama bili og bifreiðin fór fram hjá honum, rann Heiðar til á blautu grasi og datt inn undir annað afturhjól bifreiðarinnar. Fór hjólið yfir hann. Var í fyrstu haldið, að hjólið hefið farið yfir læri drengsins og að hann væri óbrotinn og lítið meiddur. Var þess vegna ekki farið með hann til læknis fyrr en í gærmorgun, en þá þótti sýnt, að Heiðar mundi vera all- mikið slasaður. Var hann flutt- ur til Akureyrar og lagður inn í sjúkrahúsið. Kom við athugun í Ijós, að hann var mjaðmar- grindarbrotinn. Sýningar í Skátaheimilinu. Eins og undanfarin sumur er Skátaheimilið við Snorrabraut opið á kvöldin til margskonar tómstundagamans fyrir börn og unglinga. Hvert fimmtudags kvöld eru þar kvikmyndasýn- ingar til fróðleiks og skemmt- unar og hafa verið sýndar í sumar margar úrvalsmyndir. í kvöld kl. 9 verður sýnd mynd- in Björgunarafrekið við Látra- hjarg. Væri óskandi, að sem flestir unglingar ættu þess kost að sjá þessá sérstæðu mynd. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. •jf Spanska stjórnin hefur hafnað 25 milljóna dollara láni hjá Efnahagsstofnun Evrópu, á þeim grundvelli, að lánsins væri ekki lengur þörf. Héraðsmót Sjálfstæðismanna í A.-Barðastrandarsýsiu. Sjálfstæðismenn efna til hér- aðsmóts { Félagsheimilinu Króksfjarðarnesi, A-Barða- strandarsýslu, sunnudaginn 20. ágúst kl. 18. Á móti þessu munu þedr Ing- ólfur Jónsson, landbúnaðarráð- herra og Sigurður Bjarnason, ritstjóri flytja ræður. Flutt verður óperan La | Serva Padrona eftir Pergolesi. Með hlutverk fara óperusöngv- ararnir Sigurveig Hjaltested, Kristinn Hallsson og þorgils Axejsson, leikari. Við hljóðfær ið Ásgeir Beinteinsson, píanó- leikari. Um kvöldið verður dansleik- ur. ■ ■ Nýja kjötið kom ekki í kjötbúðirnar í morgun, svo Sem vænzt haíði verið. — Kaupmenn neita að selja það, þar sem þeir telja sig ekki fá nógu háa álagningu til þess að standa undir kostnaði. Verðlagsnefndin ákvað í gær álagningu, sem Bv. Sigurður. Einar Sigurðsson útgerðar- maður hringdi til blaðsins í gær og óskaði þess getið, að það væri ekki rétt, sem haft var eftir Njáli Gunnlaugssyni, útgerðarmanni í gær, að hann væri búinn að leigja honum togarann Sigurð. Þá hefur blaðinu borizt eft- irfarandi yfirlýsing frá Njáli Gunnlaugssyni um mál þetta: „Undirritaður vili upplýsa, að þegar tryggð hefur verið sjö milljón króna ábyrgð, verð ur leigusamningur vegna leigu á b.v. „Sigurður ÍS 33“ undir- ritaður. Helmingur ábyrgðar- innar er þegar fyrir hendi. Sóðaskrif vikublaðs nokk- urs um hr. alþingismann Einar Sigurðsson og undirritaðan eru svívirðileg lýgi. Reykjavík, 17. ágúst. Njáll Gunnlaugsson. nemur um 15%, en kaup- mennirnir telja sig þurfa um 25% álag til þess að geta greitt eðlilegan verzl- unarkostnað. Kjötstríðið er því algert og verður engum getum leitt að því hvenær úr rætist. Síátrun hófst hér í Reykja- vík í gær og var 250—300 slátrað í Sláturhúsi Sláturfélags Suðurlands við Skúlagötu. — Einnig var slátrað eitthvað á þriðja hundrað dilkum í Borg- arnesi sem fara áttu á Reykja- víkur markað. Sjálfstæðismenn efna til hér aðsmóts á Bíldudal, V-Barða- strandarsýslu, laugardaginn 19. ágúst kl. 20,30. Á móti þessu munu þeir Ing- ólfur Jónsson, landbúnaðarráð herra og Sigurður Bjarnason, ritstjóri, flytja ræður. Flutt verður óperan La Serva Padrona eftir Pergolesi. Með hlutverk fara óperusöngv ararnir Sigurveig Hjaltested, Kristinn Hallsson og Þorgils Axelsson, leikari. Við hljóð- Kjötkaupmenn telja sig ekki hafa efni á að selja kjötið sem fyrr segir. Þó vitað sé að S.Í.S., og Sláturfélag Suðurlands hafi hér nokkra sérstöðu er ekki bú- izt við að þessir aðilar hefji kjötsölu að sinni. Fullt sam- komulag varð í sex manna nefndinni, verðlagsnefndinni. um verðlagið á sumarslátruðu sem tilkyrínt var í gær. — 15% álagning, sem nú er heimiluð mun samsvara um kr. 5.60 á kíló. Þegar blaðið átti tal við Svein Snorrason f ramkv.st j. Kaupmannasamtakanna í morg- un um kjötstríðið skýrði hann færið Ásgeir Beinteinsson, píanóleikari'. Um kvöldið verður dans- leikur. Hljómsveit Guðmundar Einarssonar • leikur. Framh. á 5 sifln Héraðsmót Sjálístæðismanna í V.-Barðastrandarsýslu.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.