Vísir - 24.08.1961, Blaðsíða 2
P3 H u pl EEj
W/////A
Þetta líV.nnið: aí íþrótta- og sýningaliúsi því í Laugardalnum, sem nú cru að hefjast fram-
kvæmdir við. Það mun taka um 2000 manns í sæti og glófflöturinn verður ca. 4 sinnum stærri
en gólfið í gamla Hálogalandi.
urgeir Guðmannsson fram-
kvæmdastjóri ÍBR, en það
má segja að þeir beri hita
og þunga hins dáglega og
umfangsmikla starfs, sem
snýst um íþróttalíf höfuð-
staðarins.
Þeir gátu frætt mig á, að
ÍBR hefði verið stofnað 31.
ágúst 1944. Innan banda-
lagsins væru nú 22 félög (14
íþróttagreinar) með samtals
um 9000 meðlimi. Af þeim
eru um 4700 virkir.
Eftir að hafa rabbað góða
stund v.ið þá Baldur og Sigur-
geir um íþróttanna gagn og
nauðsynjar, leit ég aftur á
myndirnar.
Ég skoðaði Vilhjálm stökkva
þrístökk, Skagamenn sækja að
marki andstæðinganna og
strákhnokka berjast við tæpan
einn meter í hástökki. Þar var
ólíku saman að jafna, en all-
ar áttu myndirnar það sam-
merkt að lýsa vilja, krafti og
lltíyh/u v ih ursMjn ingin:
um
Reykjavíkursýningin er
í algleymingi þessa dagana.
Þúsundir manna streyma
í Melaskólann á hverjum
degi, ganga um stofur og
kynna sér meðal annarra
hluta, iðnað, fræðslumál,
sjávarútveg, síma og póst-
mál Reykjavíkurbæjar. —
Yfirleitt allt milli himins og
jarðar.
Sýningin er á þrem hæð-
um skólans og á efstu hæð-
inni hefur íþróttahreyfing-
in aðsetur sitt. Eg lagði leið
mína í skólann einn daginn
í vikunni, og eins og sam-
vizkusömum og sönnum
íþróttafréttaritara sæmdi
stormaði ég rakleitt upp á
þriðju hæð og inn í íþrótta-
deildina.
Frekar fátt fólk var þetta
augnablikið,, en fyrir framan
heljarmikið línurit á einum
veggnum, stóðu nokkrir menn
og ræddu saman af greinileg-
um áhuga. Línuritið var af að-
sókninni á íþróttavellina síð-
astliðin ár, og var hið athyglis-
verðasta. Sýndi það, að að-
sóknin hafði farið minnkandi
á síðari árum og snerist um-
ræðuefnið um orsakirnar fyrir
oví.
Getgátur voru uppi um
hærra verð, færri leiki og
minnkandi áhuga, en flestir
hölluðust þó að þeirri skoðun,
að orsökin væri bein afleiðing
þess, að allir fyrstu deildar-
og úrvalsleikir hefðu verið
fluttir af Melunum inn í Laug-
ardal.
Vesturbæingar áttu nefni-
lega að vera mun sportsinn-
aðri en aðrir bæjarbúar. — Það
skal tekið fram að Vesturbæ-
ingar voru í meirihluta meðal
v.iðstaddra!
Þarna gat að líta forkunnar-
fagra bikara og verðlaunapen-
inga. Út í einu horninu stóð
hið fræga þolhjól Benedikts
Jakobssonar og upp um alla
veggi hafði verið komið fyrir
útvöldum myndum af íþrótta-
mönnum, íþróttakeppnum og
íþróttamannvirkjum.
Ég gekk um góða stund og
dáðist að vel teknum myndun-
um, áður en ég i rauninni tók
eftir af hverju þær voru.
Þær brugðu upp skemmti-
legri svipmynd af því starfi og
þeim stórkostlegu áföngum,
sem unnizt hafa í íþróttamál-
um undanfarin ár. Nú eru í
notkun 6 félagsheimili og vell-
ir, samtals um 14 hektarar. Af
öllum þessum félagsheimilum
eru hinar skemmtilegustu
myndir, svo ég tali nú ekki um
íþróttaleikvanginn í Laugar-
dal.
Beint andspænis dyrunum
hafði litlu líkani af tilvonandi
sýninga- og íþróttahúsi í Laug-
ardal verið komið fyrir. Bygg-
ing þessi verður öll hin glæsi-
legasta. Hún mun rúma um
2000 manns í sæti og gólfflöt-
urinn mun verða um 5 sinnum
stærri en í gamla Hálogalandi.
Það verður sannarlega gaman
að vera íþróttamaður þá.
Þarna voru staddir Baldur
Jónsson, vallarstjóri, og Sig-
áhuga, — lönguninni til að ná
ákveðfiu marki — þeirri löng-
un, sem gefur íþróttunum gildi.
Um leið og við gengum út,
rak miðaldra kona höfuðið í
gættina, hnippti í samferða-
konu sína og sagði: „Hérna eru
blessaðar íþróttirnar, við meg-
um til með að kíkja hér inn.“
e.b.s.
ÍSjréttadafskrá.
f TILEFNI Reykjavíkursýn-
ingarinnar verður efnt til
íþróttasýningar og keppni á
sunnudaginn. -Þessi íþrótta-
dagskrá hefst í Melaskólan-
um kl. 4 og verður bar sýnd
íslenzk gMma og judo.
Aðalviðburðimir verða þó
á Melavellinum, og hefjast
þeir kl. 5. Þar leiða saman
hesta sína úrvalslið úr Vest-
ur- og Austurbæ í körfu-
knattleik, handknattleik og
knattspyrnu. — Þá verður
keppt í frjálsum íþróttum í
eftirfarandi greinum: Stang
arstökki, þrístökki, 200 m,
800 m og 3000 m hindrunar
hlaupi, 1000 m boðhlaupi og
4x100 m boðhlaupi.
Athiigasemd.
ÉG ætla að biðja ykkur að
koma á framfærj óánægju
minni vegna ummæla þeirra,
sem höfð voru í íþróttaþætti
útvarpsins fyrir skömmu, varð'
andi Reykjavíkurfánann, sagði
Baldur vallarstjóri er við rædd'
um við hann á Rvíkursýning-
unni.
„Fáninn blaktir við hún á
íþróttavöllum bæjarins, og ger
ir það ævinlega þegar keppni
fer fram. íþróttafréttaritara
útvarpsins þótti það bæði ó-
smekklegt og óviðeigandi.
Smekk hans læt ég liggja milli
hluta, en ég vil benda á, að á
flestum erlendum íþróttaleik- •
vöngum er þessi siður hafður
á. Ættu þeir gerst að vita, sem'
sífellt eru á þönum á erlend
íþróttamót“.
Hcr sjást nokkrir áhugasamir íþróttaunnendur virða fyrir sér línurit að aðsókn að
íþróttavöllunum s.I. áratug. — Meðal þeirra eru Sigurgeir Guðmannsson framkvæmdastjóri
Í.B.R. (y.t.v.) Gísli Sigurbjörnsson í Ási (annar f.v.) og Baldur Jónsson vallarstj. (fjórði f.v.)