Vísir - 24.08.1961, Side 15

Vísir - 24.08.1961, Side 15
Miðvikudagur 23. ágúst 1961 Vf SIR ^5 * Astin sigrar allt. Mary Burchell. — Það er allt og sumt, ungfrú Murril. Bréfið til Joup & Joup verður að komast fyr- ir klukkan fimm, ásamt reikn- ingsyfirlitinu um viðskiptin frá í fyrra. Hinu bréfinu ligg- ur ekki eins mikið á. Oliver Leyne lét ritara sinn fara með þetta verkefni, án þess svo mikið sem virða hana viðlits. Erica fór inn í skrifstofu- kompuna sína — þar vann hún mest af sínu starfi. Hún var orðin vaxin upp úr því að taka sér nærri durtsháttinn í yfirboðara sinum. En fyrst eftir að hún hafði orðið einka- ritari hans, hafði hún oft ver- ið að velta fyrir sér hvað hún hefði gert á hlut hans, að hann skyldi vera svona af- undinn og þurr á manninn. Það var ekki svo að skilja að hann réðist á hana ipeð skömmum. Þetta va.r sífelld- ur óánægju-kaldrani. En frá fyrstu stundu hefði eitt vin- gjarnlegt orð getað orðið henni til gleði allan daginn, en kuldalegi þyrkingurinn var henni hugarkvöl. — Þú veizt líklega að hann er kvenhatari? sagði einhver við Ericu þegar hún byrjaði í firmanu sem óframfærinn hraðritari. — Hvernig veizt þú það? hafði Erica spurt. — Það getur nú hvert barnið séð, var svarað. — En við sjáum hann ekki nema hérna í skrifstofunni, sagði Erica, sem vildi ekki treysta palJadómum. — Hann er kannslce allt öðru vísi heima. — Heima! sagði hin með góðlátlegri fyrirlitningu. — Hefur þú nokkurn tíma séð heimilið hans? Erica varð að játa að það hefði hún ekki gert. Hún hafði ekld verið nema skamman tíma 'í bænum og ekki margt séð. — Þú ættir að talca rögg á þig eitthvert kvöldið og skoða húsið. Það er ekki á marga fiska að utan, en ég hef séð það að innan líka! Ég fór þangað með einhver skjöl einu sinni, þegar gamli Leyne hafði eitt hjartveikikastið sitt. — Hvað er út á húsið að setja ? Áttu við að það sé nið- umítt? spurði Erica. — Niðumítt? Langt frá því! Það er stórt eins og graf- hýsi Tutankamons og álíka upplífgandi. Hugsaðu þér gamla Leyne og son hans sitja inni í miðju húsi og ræða um stál- og jámmark- aðinn og annað álika skemmti legt, án þess að brosa út í annað munnvikið, hvað þá meira. Erica hafði hlegið. En um ieið hafði hún hugsað með 'ér: Það getur engin lífsgleði verið í manni, sem er eins og 'Jl’ver Leyne á svipinn! 1 þá daga hafði firmað í hæsta máta verið „Leyne & Sonur“, og faðir Olivers ver- ið öllu ráðandi. Hann hafi skapað fyrirtækið frá gmnni, og elskaði þetta afkvæmi sitt. Það var sagt í bænum að hann hefði valið heimili sínu stað þannig, að hann gæti farið á fætur á nóttinni, ef hann langaði til þess, og horft út um gluggana á log- ana í stálbræðsluofnunum. Fyrirtækið var honum bæði rómantík og átrúnaður, og það eina sem hann bafði á- huga fyrir í veröldinni. Hann var harðjaxl, upp á sína vísu. Ef til vill ekki vegna þess að honum væri harðneskjan í blóð borin, en blátt áfram af því einstreng- islegir menn, sem alltaf hugsa um það sama, verða harðir. Hann sá eklcert annað en sitt eigið markmið. Og hann vildi fóma hverju sem vildi og hverjum sem vildi til þess að líoma sínu fram. Stundum var Erica að velta fyrir sér, hvernig farið hefði ef einkasonur hans hefði neitað að ganga í fyrirtækið. Hún var sannfærð um að þá hefði orðið mikill árekstur, en hún var alls ekki viss um hvor feðganna hefði reynzt harðari, ef til árekstrar hefði komið. Annars var tilgangslaust að velta þessu fyrir sér, því að Oliver hafði gengið inn í SKYTTURMAR PRJÁR 62 fyrirtækið — hann var snar þáttur í því. Að vísu kom hann mjög sjaldan í stál- bræðsluna, hann var auðsjá- anlega ekkert hrifinn af henni, eins og faðir hans, en Oliver Leyne var glöggur skipulagsmaður, og allt sem snerti stjórnina og skrifstof- una var algerlega í hans höndum. Þegar Erica hafði starfað í firmanu kringum eitt ár, fór gamli Leyne að eiga erfitt út af hjartanu. Það kom oft fyr- ir að hann virtist vera í and- arslitrunum og þá var hann lengi veikur og lasburða á eftir. Áhugi hans fyrir firm- anu var óbilaður. En lækn- arnir bönnuðu honum að leggja nokkuð erfiði á sig. Aldrei munu neinir dáleik- ar hafa verið með þeim feðg- unum, en Oliver hefur líklega skilið raunasögu mannsins gamla, sem aðeins þráði að mega halda áfram að starfa, ' en hafði ekki þrek til þess. Erica hlaut að minnsta kosti að sjá að Oliver reyndi eftir megni að sýna föður sínum þolinmæði þegar hann kom í skrifstofuna. Og það gerði hann oft og reyndi þá að jafn- aði að skipta sér af öllu og setja út á allt. Hún hafði gott tækifæri til að taka eftir samskiptum þeirra, því að Oliver hafði — henni til mikillar furðu — gert hana að einkaritara sín- um. Einn daginn hafði hann kallað á hana. — Fáið þér yður sæti, img- frú Murril. Mig langar til að tala við yður um starfið yð- ar. . . Erica mundi enn hve mik- inn hjartslátt hún hafði fengið og að hún hafði feng- ið herping í hálsinn, svo að henni fannst hún ekki geta i komið upp nokkru orði. ! — Hvað hef ég gert ? hafði j hún hugsað með sér. — Hef I ég trassað það sem ég átti að gera. Ætlar hann að reka mig? — Þér hafið verið héma hjá okkur í eitt ár, ungfrú Murril, sagði hann alvarleg- ur eins og hann var vanur. — Já, eitt ár og sex vikur. Hann hafði brosað ofur- lítið. — Ég sé að þér eruð ná- kvæm í þessu sem öðru, sagði hann. Þá ætlar hann ekki að skamma mig, hugsaði hún með sér. — Þér munuð vita að ýms- ar breytingar verða gerðar á fyrirtækinu í sambandi við að faðir minn hættir að starfa, hélt Oliver Leyne áfram. — Feyron hefur verið tals- vert nleira en einkaritari minn, og nú á hann að verða deildarstjóri. Svo að mig vantar einkaritara. Erica beið forvitin eftir framhaldinu. — Ég hef fylgzt með yður og starfi yðar undanfarið ár, og tekið eftir að þér eruð fljót, samvizkusöm og greind. Henni fannst líkast og hann væri að telja saman kosti á hesti, en hún gat fyrirgefið honum það. — Og umfram allt, hélt hann hægt áfram, — virðist mér þér vera húsbóndaholl. Það er sjaldgæfur kostur. Miklu sjaldgæfari en hinir þrír sem ég nefndi. Erica var orðin kafrjóð. — Þökk fyrir, hr. Leyne, gat hún loksins stamað. — Ég vona að ég eigi þetta skil- ið, sem þér hafið sagt um mig. — Annars hefði ég ekki sagt það, sagði hann. — Og það er vegna þessara eigin- leika sem ég hef afráðið að bjóða yður að verða einkarit- ari minn. Þér eruð vitanlega í yngsta lagi, geri ég ráð fyr- ir. Hve gömul eruð þér ann- ars? — Tuttugu og tveggja — nærri því, sagði Erica og fannst það vera talsvert gild- ara en segja: tuttugu og eins. Hann hnyklaði brúnimar. —Svo ung? Jæja, en það er galli sem batnar af sjálfu sér. En ég hefði nú fremur K V I S T !í!i!iii!i!i!i!i!i!i'jfei |Í!!!Í!l!l]l!Íil|!i'|®Í!)li|i ilimiiiiiiliiliiiiiiiiiiliiili! Þeir voru allir ánœgðir með bréf Aramis til lord Winter, en d’Artagnan vildi að þeir tryggðu sér einnig öryggi hertogans. „Það verður einnig þitt verk, Aramis", sagði Athos, „þessi manneskja, sem þú þekkir í Tours, verður að segja drottningunni hvað sé á seyði." Aramis skrifaði: „Kæra frænka, áætlun Buckinghams um að heimsækja bæinn La Rochelle munu ekki standast. Segðu syst-1 ur þinni það. Mig hefur dreymt að hertoginn væri dauður. Ekki man ég hver gerði það, en þú veizt að mínir draumar bregðast aldrei. Ég mun brátt heimsækja þig aftur". Utan á bréfið skrif- aði hann: „Til ungfrú Michon í Tours". Aðeins Bazin gat farið með bréfið til' Tours, sagði Ara- mis, þegar hann hafði lesið bréfið upphátt. „Frænka mín þekkir Baxin og ber traust til hans", — „Gott og vel“, sagði d’Artagnan, „en ef þetta er þitt mál, þá er málið i London mitt. Planchet var þar með mér, og þið getið treyst því að hann bjargar málinu þar fyrir okkur.“ ... og þér eruð óvenjulega örlátur og gjafmildur ai eðlisfari — þér getið borgað mér eins og þér viljið. y.> -'t .vv >.•.» '•AV-V

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.