Vísir - 24.08.1961, Side 16
Fimmtudagur 24. ágúst 1961
Hámeraveið-
ar tregar.
Frá fréttaritara Vísis. —
Patreksfirði í gær.
NOKKRIR menn hafa reynt
að fá hámeri að undanförnu, en
yfirleitt gengið illa.
í fyrra var hámeraveiði dá-
góð eins og skýrt var frá
í fréttum í Vísi, og menn
gera ráð fyrir, að þessar
veiðar muni glæðast, þegar
líður fram á haustið. Aflinn var
beztur í fyrra í Látrarötet og
vænta menn endurtekningar á
því, er frá líður.
KJötstríðið
eitit halcfta
Kaupmenn telja álagn-
inguna enn of lága.
í gærkvöldi var tilkynnt enn nýtt verð á sumar-
slátruðu kjöti. Það lyftist brúnin á húsmæðrum við
þessi tíðindi. Var nú lausn fundin á kjötdeilunni? Því
miður ekki, því kjötkaupmenn og aðrir dreifingar-
aðilar, telja hið nýja verð hvergi nærri til þess að
mæta tilkostnaði öllum við dreifingu kjötsins. Kjöt-
stríðið heldur því áfram.
IIIIIII
áíraiii.
BLAÐIÐ átti í morgun stutt
samtal viö Sigurð Magnússon,
kaupmann, formann Kaup-
mannasamtakanna. Hann sagði:
„Auglýsingin um hið nýja kjöt
verð, er að vísu viðurkenning
sexmannanefndarinnar á því
að álagning af hennar hendi
hafi í byrjun verið alltof lág.
Hér væri því um að ræða spor
í rétta átt. Hinsvegar stæðu rök
Félags kjötverzlana um dreif-
ingarkostnað óröskuð og þá
einföldu staðreynd verður sex-
mannanefndin að gera sér Ijósa
er hún tekur ákvörðun um
þetta mál.
— Þið vissuð þá um þetta
endurskoðaða kjötverð, sem
tilkynnt var um í gærkvöldi?
Nei, við okkar samtök hafa
engin samráð verið höfð um
þessa síðustu vérðlagsákvörð-
un.
— Hvernig á að leysa hnút-
inn?
— Það sem hér verður að
skef að okkar dómi, til þess að
þessu ófremdarástandi ^erði
aflétt af fólki, er að þeirri sjálf
sögðu skipan verði komið á, að
fulltrúar dreifingaraðila séu
með í ráðum þegar slíkar verð-
ákvarðanir eru teknar. Ekki
myndu bændur landsins fella
sig við að nokkrir kaupmenn
hér suður í Reykjavík . iðnað-
armenn og verkamenn, væru
kallaðir saman á fund til þess
einhliða að ákveða laun þeirra.
Menn geta hugleitt þetta, en
svona er þetta í pottinn búið
hjá okkur.
Þrátt fyrir hið nýja verð á
kjöti, situr allt við hið sama
og bæjarbúar geta ekki vænzt
þess að sjá hið sumarslátraða
kjöt í verzlunum, fyrr en feng-
izt hefur raunhæf lausn þessa
mikla vandamáls, sagði Sig-
urður Magnússon að lokum.
SVF-deild
til taks.
Slysavarnadeildin s Sandi
var lögð af stað með tæki sín
og utbúnað síðdegis í fyrradag
til þess að vera til taks, ef lít-
inn vélbát ræki upp í námunda
við Svörtuloft á Snæfellsnesi.
Hafði báturinn sent út neyð-
arkall vegna vélarbilunar og
rak í áttina að landi. En
slysavarnadeildin var rétt ný-
lögð af stað er skeyti barst um,
að vélstjóranum á bátnum
hefði tekizt að koma vélinni í
gang aftur, og væri báturinn
á leið til hafnar. Nærstödd skip
voru og til taks bátnum til að-
stoðar.
Það er haft fyrir satt, að
Reykjavíkurstúlkur, sumar
kornungar, hafi verið næsta
nærgöngular við kanadísku
sjóliðana, sem hér voru á
dögunum, svo að þeim hafi
jafnvel ofboðið, og kalli slík-
ir menn þó ekki allt örnrnu
sína í þessum efnum. Mynd-
in hér að ofan gefur ótvírætt
til kynna, að stúlkurnar hafi
ekki síður haft áhuga fyrir
að skoða skipin en piltar.
(Ljósm. G. E.)
Norrænt verzl-
unarma<ma|»iatg.
ÞING Norræna verzlunar-
mannasambandsins var að
þessu sinni haldið í bænum
Visby á Gotlandi í Svíþjóð dag
ana 8.—10. ágúst sl. Eins og
kunnugt er eiga öll samtök
verzlunarfólks á Norðurlönd-
um aðild að sambandinu, en
Landssamband íslenzkra verzl-
unarmanna gerðist aðili 1. jan.
1960.
Á þinginu voru rædd öll
helztu hagsmunamál verzlunar
fólks, svo sem launa- og kjara-
mál, fræðslumál, tryggingamál
og skipulagsmál. Þá var einnig
rædd aðstaða landssamband-
anna í hinum einstöku lðndum
og afstaða þeirra til annarra
launþegasamtaka í viðkomandi
löndum.
I verzlunarmannasamtökun-
um á Norðurlöndum eru nú um
250 þúsund félagar. Formaður
Norræna verzlunarmannasam-
bandsins var endurkjörinn Al-
got Jönsson frá Svíþjóð. Full-
trúar LÍV á þinginu voru Sverr
ir Hermannsson og Björn Þór-
hallsson. (Frá LÍV).
Fundist hafa í jörðu í baðm-
ullarekru í Alabama stein-
runnar leifar risavaxins
hvals, sem forstöðumaður
jarðfræðideildar Alabama-
háskólans segir sennilega
vera 40 millj. ára gamlar.
Kartöftwr kosta
kr. UiO ktj.
Uppskeran verður seint á ferðinni.
NÚ hefur verið auglýst nýtt
verð á kartöflum, er það kr.
4,60 hvert kíló í smásölu, í
fyrra var verðið kr. 3,75. —
í morgun hafði Vísir sam-
band við forstjóra Grænmetis-
verzlunar landbúnaðarins, Jó-
hann Jónasson, og spurði hann
um horfur í kartöfluuppsker-
unni.
Jóhann sagði: „Það er óhætt
að segja, að vegna þeirra kulda
sem hér hafa verið í sumar,
Vilja sama rétt.
Stjórn Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja hefur
boðað til aukaþmgs í nóv-
ember til að ræða kjaramál
bandalagsmeðlima.
Vísir átti stutt viðtal í síma
við Kristján Thorlacius, for-
mann BSRB í morgun. Hann
kvað þingið mundu ræða ný
viðhorf sem skapazt hefðu í
þessum málumt eftir viðræður
fulltrúa bandalagsins við rík-
isstjórnina svo og eftir gengis-
fellinguna. Þá mundi einnig
verða rætt um verkfalls- og
samningsréttarmál . meðlima
bandalagsins.
Eins og á stóð kvaðst Krist-
ján ekkert geta sagt um hvað
gert yrði beinlínis í þessum
málum, stjórn BSRB hefði ekki
rætt málið nema mjög lítið.
Bíða yrði álits frá stjórnskip-
aðri nefnd, sem á að fjalla um
þessi réttarmál opinberra
starfsmanna. Ríkisstjórnin hef
ur lofað að hvetja nefndina til
að ljúka störfum fyrir þing-
byrjun í haust og táka málið
síðan til umræðu innan stjórn
arflokkanna-
Kristján kvað BSRB hafa
markað sér ákveðna stefnu í
þessum málum. Þar væri keppt
að sama fyrirkomulagi og tek-
ið var upp í Noregi 1958. Það
er fólgið í því að opinberir
starfsmenn hafa takmarkaðan
verkfallsrétt og algjöran samn
ingsrétt. Hér á landi hafa op-
inberir. starfsmenn hvorugt.
Hinir norsku starfsmenn hafa
algjöran verkfallsrétt þegar
deilt væri um almennar launa
hækkanir, en ekki þegar á-
greiningurinn snerist um
breytingar á launaflokkum.
Kristján Thorlacíus sagði að
sáttastigin væru mjög mörg í
Noregi áður en verkfall opin-
berra starfsmanna þar gæti
hafizt og tæki það marga mán-
uði að fara í gegnum þau öll.
einkum þó fyrir norðan og aust-
an, þá muni uppskeran verða
sein á ferðinni. Þessir dagar og
þeir allra næstu munu gera út
um það, hvort uppskerubrestur
verður, eða ef til vill góð upp-
skera.
Víða, einkum hér sunnan-
lands er mjög vel sprottið, en
lélegra annarsstaðar. f vor var
mjög mikið sett niður, svo að
uppskera ætti að geta orðið
góð, ef tíðarfar hindrar ekki.
Nóg framboð ætti að verða á
kartöflum á næstunni, ef tíðar-
far hindrar ekki upptöku, eins
og nú fyrir helgina, þegar ekki
var hægt að taka upp fyrir
rigningu. Nýju kartöflurnar
komu í búðir í gær.“
Bandarískir ferðamenn hafa
notið þeirrar fríðinda að
geta flutt heim varning
keyptan erlendis fyrir allt
að 500 dollara, en ný lög
hafa verið afgreidd, og er
ofannefnt háinark lækkað
niður í 100 dollara.
jjS- og SA-gola,
lúrkomulaust i
ídag — þykkn
jar upp mcð
|A-átt í nótt.