Vísir - 29.08.1961, Blaðsíða 1

Vísir - 29.08.1961, Blaðsíða 1
VISIR Óviljaverk — segir skipsfjórinn. Einn stærsti úthafstogari Breta, sem ber hið konung" lega nafn Prince Philip, var tekinn að veiðum fyhr inn- an fiskveiSitakmörkin viS Grimsey í gærdag. Réttar- höld í máli skipstjórans munu hefjast síSdegis í dag á Akureyri. Togarinn er um 700 tonna skip. Einn eigenda í hlutafélagi því sem togarann á, Páll AS- alsteinsson skipstjóri frá Grimsby, var staddur hér í Reykjavík er fregnin barst og hélt hann af staS norSur til Akureyrar í dag. Það var varðskipið Óðinn undir stjórn Eiríks Kristófers- sonar skipherra er tók togar- ann. í tilkynningu Landhelgis- gæzlunnar segir, að hann hafi verið 1,9 sjóm. fyrir innan fisk- veiðitakmörkin á Grímseyjar- sundi, milli lands og eyjar — á algjöru bannsvæði, 8 mílur til SV. frá eyjunni. Engu skoti var skotið. Fréttaritari Vísis á Akureyri, Árni Bjarnason, sagði í símtali í morgun, að hinn 44 ára gamli skipstjóri togarans, Alfred Whittleton hafi skýrt umboðs- manni brezkra togaraeigenda á Akureyri, Jóni Egilssyni frá því að um hreint óviljaverk hafi verið að ræð, og væri á- stæðan sú, að radar skipsins hefði bilað. Togarinn hafi ný- lega verið kominn á miðinn, afli verið tregur og væri lítill fiskur í skipinu. Togarinn var bggður 1956. Páll Aðalsteinsson, skipstjóri, sonur Aðalsteins heitins Páls- sonar skipstjóra í Reykjavík, er einn hluthafa í útgerð togarans, Abunda, í Grimsby. Ætlaði Páll að koma hingað norður flug- leiðis, en vegna þess að ekki er flugveður mun Páll hafa farið hingað í bíl. Bæjarfógetaembættið byrjaði yfirheyrslur í málinu kl. 1 í dag. Á. B. Sígarettu- þjófnaður. í NÓTT var framinn mikill sígarettuþjófnaður. Brotist var inn í Nesti i Fossvogi og stolið þar um 300 pökkum af sígarett um. Janio Quadros ekur á brott úr forsetahöllinni. Hann ekur bílnum sjálfur. Kona hans Elona situr í baksætinu. r I Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Brazilíu eftir að Quadros forseti landsins sagði af sér fyr- ir helgi. Öttast menn jafnvel að blóðug borg- arastyrjöld geti brotizt út í landinu. Þegar Quadros sagði af sér var varaforseti landsins, Coulart i kynnisferð austur í Rauða Kína. Hann ákvað þegar í stað að snúa heim. Óvíst er þó, hvort hann getur komizt til Brasilíu vegna þess að herinn í Bras- ilíu hefur tekið völdin og meinar honum aðgang að Joao Goulart kemur til Parísar á hraðferð sinni frá Kína til Brazilíu. Hann sést hér ræða við blaðamann. Stórþjófnaður í 2 ungir menn hafa Aðfaranótt sunnudagsins var þjófnaður framinn suð- ur í Njarðvíkum, er miklu af peningum var stolið. í gærdag tókst rannsóknar- lögreglunni hér í Reykja- vík að upplýsa þjófnað þennan, en tveir ungir menn höfðu verið að verki bar syðra. Það var um klukkan 2 aðfara- nótt sunnudagsins, er dansleik var rétt nýlokið í samkomu- húsi hreppsins, Krossinum, að lögregluþjónum úr flugvllar- lögreglu Keflavíkurvallar, sem voru við löggæzlustörf að dans- leik þessum, var tilkynnt um þjófnaðinn. Öllum inngangseyri af dans- skemmtun þessari, sem mun hafa verið haldin á vegum hreppsins, hafi verið stolið. Var talið að um væri að ræða 19,500 krónur. Peningarnir höfðu legið í dálitlum vindlakassa í sælgæt- issölunni. Þegar rannsóknarlögreglan fékk málið í hendur, var hægt að gefa lýsingu á mönnum er grunur féll á, svo og lýsingu á bíl sem þeir höfðu verið í þessari grunsamlegu náungar. í gær tókst rannsóknarlög- reglunni eftir þessari lýsingu, að finna hina grunuðu menn, sem báðir eru ungir. Lögreglan hefur ekki haft nein teljandi afskipti af þessum piltum. Við yfirheyrslu játuðu þeir að hafa framið þennan peningaþjófnað. Þeir skiluðu síðan rannsóknar- lögreglunnj rúml. 13000 krón- Pramh. á 5. síðu. Brasilíu. Coulart er talinn allróttækur í skoðunum, allt að því kommúnisti. Hann dvelst nú 'í Paris og bíður eftir leyfi til að mega fljúga heim. Hann lítur nú á sjálf- an sig sem lögmætan forseta Brasilíu. Ástæðan til þess að Quad- ros sagði af sér var, að hann mætti harðri mótspyrnu hjá þjóðþingi Brasilíu. Quadros var kosinn forseti með mikl um atkvæðamun í forseta- kosningum sl. vetur, en hafði engan þingmeirihluta á bak við sig. Afsögn Quadros kom mjög á óvart og hefur vald- ið því, að Brasilía, þetta friðsama land Suður Amer- íku, hefur nötrað af ótta við borgarastyrjöld og alls kon- ar ófarir. Quadros hefur nú ákveðið að fara til Bretlands en þar ætlar hann að dvelj- ast í fríi sínu næstu fjóra mánuði. Myndirnar, sem hér fylgja eru teknar síðustu daga. Sýnir önnur Quadros er hann ekur : brott alfarinn úr forsetahöllinni. Hin sýnir Coulart hinn rauðlitaða vara forseta ræða við blaðamann á Parísar-flugvellinum. — Hann sagði þar: — Ég er nú hinn eini löglegi forseti Brasilíu. Af Grænlands- miðutn. í MORGUN var verið að landa karfa úr tveim togurum, sem komið höfðu af Grænlandsmið um. Er afli nú tekinn að treg- ast þar. Júpiter var þó með um 200 tonn, en Þorsteinn Ingólfs- son með um 140 tonn. Víking- ur var i morgun hér að taka ís, en hann er nýkominn af Grænlandsmiðum og var með 130—140 tonna afla.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.